Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 70
SPURNING
VIKUNNAR
á fasteignavef Visis
33,3%Nei
SPURNING SÍÐUSTU VIKU:
Þarf að taka til í geymslunni
þinni?
Ætlarðu
í stórframkvæmdir
fyrir jólin?
66,7%Já
DRAUMAHÚSIÐ MITT MARGRÉT PÉTURSDÓTTIR
Hundavænt með heitum pottiÍsaksskóli er um 1.800fermetrar að stærð.
Hann er byggður í
tvennu lagi. Eldri hlutinn
er frá 1955. Húsameistari
þess húss var Indriði Ní-
elsson. Það hús var um
margt mjög sérstakt. Til
dæmis var strax í upp-
hafi settur í það innan-
hússími og einnig hátal-
arakerfi þannig að skóla-
stjórinn Ísak Jónsson gat
ávarpað nemendur eða
spilað fyrir þá af skrif-
stofunni. Nýrri hlutinn
var vígður 1990 og það
var dr. Maggi Jónsson sem teiknaði það hús. Rýmið í nýbyggingunni veitti
aðstöðu til mun fjölbreyttara skólastarfs en áður að sögn Eddu Huldar Sig-
urðardóttur skólastjóra. Þar er til dæmis mjög góður salur sem nýtist bæði
vinnu nemenda og til sýninga eða tónleikahalds af ýmsu tagi.
ÍSAKSSKÓLI
?
Margrét Pétursdóttir leikari myndi vilja eiga stórt
hús niðri í bæ. „Draumahúsið mitt er með fallegu
útsýni og fallegum garði sem hægt er að ganga
beint út í úr húsinu. Þetta er stórt og fallegt einbýl-
ishús en samt alveg niðri í bæ. Húsið er ofsalega
bjart og það hreinsar sig sjálft. Þar er nóg pláss,“
segir Margrét og sonur hennar Tryggvi Geir bætir
við: „Með sér garðhúsi fyrir mig.“ Mamma hans gef-
ur nú ekki mikið fyrir það í bili en segist myndi vilja
hafa séríbúð í húsinu: „Þar sem amma hans
Tryggva byggi svo hann gæti alltaf farið í pönnukök-
ur. Svo ætti systir mín heima rétt hjá.“ Margrét vildi
auk þess hafa stóran garð. „Garðurinn er hunda-
vænn og með fallegum trjám og heitum potti.“ Og
einhvern tíma seinna garðhúsi fyrir Tryggva Geir.
Fasteigna-
gjöldin hækka
Fasteignaverð hefur hækkað
mun meira en laun að undan-
förnu. Því hafa fasteigna-
skattar líka hækkað langt
umfram ráðstöfunartekjur al-
mennings.
Á síðustu fimm árum hefur fast-
eignaverð á höfuðborgarsvæðinu
hækkað sextíu prósent umfram
launahækkanir. Fasteignagjöld
hækka í sama hlutfalli og fast-
eignaverðið. Því er gert ráð fyrir
að helmingur þeirrar kaupmáttar-
aukningar sem spáð er á þessu ári
fari í að standa undir hækkuðum
fasteignasköttum. Enda þótt mikil
eignamyndun hafi átt sér stað á
þessum tíma innleysir fólk ekki
þann hagnað nema í fáum tilfell-
um. Greiðslubyrði vegna fasteigna-
gjalda hefur því aukist gríðarlega
sem hlutfall af tekjum.
Margrét er hundaeigandi svo húsið yrði
að sjálfsögðu búið með tilliti til þess.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
SELDAR EIGNIR Á
HÖFUÐBORGARSVÆÐINU*
*Þinglýstir kaupsamningar, heimild Fasteignamat ríkisisins.
300
250
200
150
100
50
0
FJÖLDI
17/9-
22/9
202
23/9-
29/9
199
30/9-
6/10
181
7/10-
13/10
210
14/10-
20/10
158
21/10-
27/10
194
52 Bak efni lesið 6.11.2005 16:09 Page 2