Fréttablaðið - 07.11.2005, Page 76
7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR24
1.090 kr.
Allar pizzur á
Hvítlauksolía fylgir!
Frítt SMS þegar pizzan fer í ofninn
7.–13. nóv.
58•12345
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
4
7
6
2
MasterCard kynnir:
7 DAGAR EFTIR.
HVAÐ ÁTT ÞÚ
EFTIR AÐ SJÁ?
Í Háskólabíói og Regnboga
26. október - 14. nóvember
„Ljósið!“
- jökull ii
Djasskvartett Reykjavíkur hélt
á miðvikudaginn tónleika fyrir
nemendur Ísaksskóla. Nemend-
urnir tóku tónlistarmönnunum
fagnandi enda ekki á hverjum
degi sem þeim gefst tækifæri til
að hlýða á djass.
Að sögn Sigurðar Flosasonar
saxófónleikara er þetta hluti af
verkefninu „Tónlist fyrir alla“
sem hefur verið í gangi í heil-
an áratug en auk hans skipa
þeir Eyþór Gunnarsson, Tómas
R. Einarsson og Gunnlaugur
Briem kvartettinn. „Það eru
tíu til ellefu tónlistarhópar sem
ferðast vítt og breitt um landið
og kynna fyrir krökkunum ólíka
tónlist,“ segir hann en kvartett-
inn tekur sér þrjár vikur í verk-
efnið og heimsækir nokkra skóla
að morgni til. „Þetta eru orðnar
nokkur hundruð heimsóknir.“
Sigurður segir að krakkarnir
séu góðir hlustendur og ákaf-
lega móttækilegir en bætir við
að það þurfi að sníða dagskrána
eftir aldri. „Við verðum að koma
til móts við þroska þeirra,“
útskýrir hann og telur jafnframt
að þetta sé ofboðslega jákvætt
og gefandi hlutverk.
- fgg
Tónlist fyrir alla
HUGFANGIN Krakkarnir voru
hugfangnir yfir þeim hljóðum sem
Gunnlaugur Briem töfraði fram og
fylgdust vel með því sem fram fór.
FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
ÁNÆGÐIR MEÐ FRAMTAKIÐ Þessir ungu
drengir voru auðsjáanlega ánægðir með
heimsóknina.
Íslensk sveitaballa-
stemning var á veitinga-
staðnum Vega í Kaup-
mannahöfn þegar Sálin
hans Jóns míns fagnaði
útgáfu nýrrar plötu á
laugardaginn var. Kristj-
án Hjálmarsson fylgdist
með fullum, sveittum
og glöðum Íslendingum
skemmta sér konunglega
á tónleikunum.
Um þrettán hundruð manns
troðfylltu veitingastaðinn Vega
við Vesterbrogade í Kaup-
mannahöfn á laugardaginn var
þegar Sálin hans Jóns míns
fagnaði útgáfu plötunnar Undir
þínum áhrifum. Það er óhætt að
segja að stemningin hafi verið
mögnuð. Sálarmenn hafa engu
gleymt og stóðu svo sannarlega
fyrir sínu. Fyrir hlé léku þeir lög
í rólegri kantinum, flest gömul
en skutu inn einu og einu lagi af
nýju plötunni. Eftir hlé tók þétt
keyrsla við og allt ætlaði um koll
að keyra. Hver einasti fermetri
á dansgólfinu var nýttur til hins
ýtrasta og kom fólk sér jafnvel
fyrir á svölum yfir dansgólf-
inu. Hver einasti kjaftur söng
hástöfum með og dillaði sér í
takt við þétta sveitina.
Flestir tónleikagestanna
höfðu fylgt sveitinni frá Ísland
en þó mátti þar einnig finna
Íslendinga búsetta í Kaup-
mannahöfn sem og í Svíþjóð,
Noregi og jafnvel Bretlandi.
Stór hluti gestanna voru hand-
boltamenn úr Haukum og Val
en liðin áttu bæði leik í Evrópu-
keppninni í handbolta fyrr um
daginn. Það var ekki að sjá að
liðunum hafi gengið illa fyrr um
daginn því leikmenn sem þjálf-
ara skemmtu sér konunglega.
Sálin hans Jóns míns steig á
svið í kringum ellefu og spilaði
til að verða þrjú. Eftir eitt upp-
klapp kvöddu Sálarmenn og við
tóku gömul íslensk popplög sem
gestir staðarins dilluðu sér við
lengi fram eftir.
Þegar veitingastaðnum lok-
aði, um klukkutíma eftir að Sál-
armenn höfðu lokið sér af, mátti
finna sveitta, glaða og fulla
Íslendinga langt upp eftir allri
Vesterbrogade.
Undir áhrifum
TRYLLTUR MANNSKAPURINN Drakk, dansaði og söng með hetjunum sínum.
JÚLÍUS SIGURJÓNSSON
Aðdáandi Sálarinnar númer
eitt lét sig ekki vanta.