Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 86

Fréttablaðið - 07.11.2005, Síða 86
 7. nóvember 2005 MÁNUDAGUR34 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 Laugardaginn 12. nóvember ætlar hópur Íslendinga að slá heims- metið í fjöldajójói. Heimsmetstil- raunin mun fara fram í Smára- lind en núgildandi heimsmet var sett á Írlandi fyrir þremur árum. Þá jójóuðu 426 manns samtímis í tvær mínútur. Í Smáralind er ætl- unin að fá 500 manns til að jójóa samtímis í að minnsta kosti tvær mínútur og komast þannig í næstu Heimsmetabók Guinness. Hlynur Björnsson og Hjört- ur Atli Guðmundson úr Mennta- skólanum í Kópavogi hafa veg og vanda af skipulagningu atburðar- ins með hjálp Eddu útgáfu, sem gefur út Heimsmetabókina hér á landi. Edda stóð á síðasta ári fyrir gerð stærstu pylsu í heimi ásamt SS og Myllunni og var það met skráð í bókina góðu. „Okkur datt þetta í hug í sam- starfi við Eddu. Við vildum reyna að gera eitthvað frumlegt og skemmtilegt og breyta eitthvað til,“ segir Hlynur, sem sjálfur er gamall jójósveiflari. „Maður var í þessu þegar maður var lítill. Ég á gömul jójó í skúffunni heima og það er aldrei að vita nema maður fari að dusta rykið af þeim.“ Að sögn Hlyns munu flestallir úr MK mæta í Smáralindina til að taka þátt í heimsmetinu en einnig verður jójóum dreift um verslun- armiðstöðina. „Það eru allir vel- komnir og fyrstir koma, fyrstir fá. Við erum þegar komin með nokkur jójó til að æfa með í skól- anum og það er mjög mikil stemn- ing fyrir þessu,“ segir hann. Heimsmetstilraunin í Smára- lind hefst klukkan 14.00 og von- andi fáum við Íslendingar enn eitt heimsmetið skráð í sjálfa Heims- metabók Guinness. - fb JÓJÓÆFING Hlynur Björnsson og Hjörtur Atli Guðmundsson sjá um skipulagningu heims- metstilraunarinnar. Æfingin skapar meistarann eins og sjá má á þessari mynd. MYND/HEIÐA 500 Íslendingar sýna listir sínar Hilmir Snær Guðnason hefur að undanförnu verið að sýna einleikinn Ég er mín eigin kona. Á fimmtudag- inn í síðustu viku vildi þó ekki betur til en svo að kona í salnum fékk aðsvif og þurfti að hringja á sjúkra- bíl. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þetta kemur fyrir hjá Hilmi því þegar hann sýndi Með fulla vasa af grjóti ásamt Stefáni Karli Stefáns- syni fékk karlmaður aðsvif. „Þetta er frekar skrýtið, tvö skipti á tiltölulega skömmum tíma,“ segir Hilmir en bendir jafnframt á að svona geti gerst þegar menn eru að sýna mikið. „Það getur allt komið fyrir í beinni,“ útskýrir hann. Leik- arinn segir andrúmsloftið verða svolítið undarlegt þegar svona komi fyrir. „Maður fer úr karakter og vonar að það verði allt í lagi með fólkið,“ segir hann og bætir við að það sé undir hinum áhorfendunum komið hvort sýningin haldi áfram. „Þeir vildu það en ég verð að viður- kenna að það kom smá hökt í upp- hafi,“ viðurkennir Hilmir og segist hafa fipast eilítið í textanum. Hann áréttar engu að síður að konan sé velkomin aftur enda eigi hún eina sýningu inni. Hilmir segir leik- ara ekki vera búna undir óvæntar uppákomur en hann hafi stundum þurft að bregðast ansi skjótt við. „Ég man eftir því þegar kviknaði í kastara á miðri sýningu,“ segir Hilmir og hlær að minningunni. Leikarinn kann engar skýringar á þessum tilvikum og vonast til að ekki þurfi að setja upp viðvörunar- skilti fyrir sýningar sínar. Það er þó hálf furðuleg tilviljun að í báðum leikritunum skiptir Hilmir oft um persónuleika en leikarinn vonar að það sé einskær tilviljun. Sýningin Ég er mín eigin kona hefur að sögn Hilmis gengið vonum framar og hann er mjög ánægður með viðtök- urnar. Hilmir segir það vera hálf undarlegt að vera einn uppi á svið- inu en enn undarlegra sé að vera einn niðri í kjallara að ganga frá. „Það er enginn sem klappar mér á bakið og ég verð bara að ræða við persónurnar um frammistöðu kvöldsins. Ætli ég verði ekki bara orðinn geðklofi þegar þetta er yfir- staðið.“ freyrgigja@frettabladid.is HILMIR SNÆR Hefur tvisvar á skömmum tíma þurft að bregðast við því að áhorfandi úti í sal fengi aðsvif. HILMIR SNÆR: AÐSVIFIN ELTA HANN Á RÖNDUM Kann engar skýringar á þessum atvikum Í dag eru nákvæmlega fimmtíu dagar til aðfangadags jóla. Þann fagra dag eru jólapóstpokar íslenskra heimila jafnan úttroðnir hvítum, rauðum og gylltum umslögum, með hinni séríslensku áritun „Jól!“ í einu horninu og jólafrímerki ársins í öðru. En þótt enn sé ekki komið að kvöldum jólakortaskrifa hjá Íslendingum eru nýju jólafrímerkin komin í sölu; annað sem sýnir grenitré og er ætlað til sendinga utanlands en hitt af rauðum jólaeplum sem ætluð eru jólaglaðningi milli Íslandsstranda. „Það er afar skemmtilegt að hanna jólafrímerki, ekki síst þar sem þau eru oftast unnin á sumrin þegar ekkert minnir á jólin. Þá myndast oft mjög súrrealísk umgjörð og andrúmsloft,“ segir grafíski hönnuðurinn og tangómeistarinn Hany Hadaya á H2 Hönnun, sem hannaði jólafrímerki Íslandspósts í ár og einnig síðustu jól, þegar myndefnið var hreindýr og rjúpa. „Á jólafrímerkjum þarf að nota myndefni sem fólk tengir strax jólahátíðinni. Ég valdi rauð epli því þau skipa órjúfanleg- an sess í jólahaldi Íslandsbyggða gamla tímans, þegar rauð epli og eplaangan var oft eina raunverulega táknið um að jólin væru að koma. Þá valdi ég grenitréð sem svo fagurt stendur í íslenskri náttúru og við höggvum til að setja upp í stofunni og skreyta um jól,“ segir Hany, sem hannað hefur fjölda frímerkja undanfarin ár og hlotið ýmis verðlaun fyrir, þar á meðal fyrir eitt sem var valið fegursta frímerki heims. „Frímerki hafa aðeins verið á undanhaldi því nú er svo mikið stimplað beint á bréfin. Jólafrímerki er þó hefð sem allar kristnar þjóðir halda í og hafa gefið út frá ómuna tíð, en segja má að í heildina litið sé trúarlegur boðskapur jólanna sá sem oftast verður fyrir myndvalinu; Jesúbarnið, María og Jósep, vitringarnir, Betlehemstjarnan og fjárhúsið. Hins vegar eru jólin einnig mikil kaupmannahátíð og margt sem tengist jólunum sem kaupmenn hafa fært samfélögum mannanna og er nú orðið órjúfa tákn jóla. Þar má nefna piparkökur, kerti og stjörnur,“ segir Hany, að ógleymdum jólasveininum sem oft hefur prýtt jólafrímerki heimsins. Jólafrímerkin í ár anga af greni-, epla- og kanelilmi og er það í fyrsta sinn sem sú prenttækni er notuð í frímerkjagerð Íslendinga. „Þá eru notaðir prentlitir sem bættir hafa verið með ákveðnum ilmefnum. Ilmurinn er indæll en ekki jafn áberandi og ég hélt að hann yrði og því betra að viðtakandi jólakortsins nuddi aðeins frímerkið til að æsa upp jólailminn,“ segir Hany glaður og hrifnastur sjálfur af angan eplafrímerkisins, sem flestir munu njóta hér innanlands um jólin. SÉRFRÆÐINGURINN HANY HADAYA HANNAÐI JÓLAFRÍMERKI ÍSLANDSPÓSTS Í ÁR Jólaangan epla og grenitrjáa í frímerkinu HANY HADAYA Grafískur hönnuður. ... fær Telma Tómasson fyrir að breyta tímaritinu Eiðfaxa í veglegt og nútímalegt blað fyrir unnendur þarfasta þjónsins. HRÓSIÐ LÁRÉTT 2 poka 6 í röð 8 ósoðin 9 hljóma 11 ryk 12 gljáun 14 gáleysi 16 samtök 17 einkar 18 sarg 20 austfirðir 21 réttur. LÓÐRÉTT 1 hrjúf 3 skammstöfun 4 hringur 5 óhreinindi 7 smávarningur 10 siða 13 líða vel 15 svanur 16 for 19 tveir eins. LAUSN Ofurtala 17 21 29 32 38 12 14 28 42 45 47 23 33 11 3 0 1 6 6 7 7 9 6 9 5. 11. 2005 2. 11. 2005 Einfaldur 1. vinningur næsta laugardag Tvöfaldur 1. vinningur næsta miðvikudag Fyrsti vinningur gekk ekki út. Fyrsti vinningur gekk ekki út. 33� LÁRÉTT: 2 sekk, 6 rs, 8 hrá, 9 óma, 11 im, 12 fágun, 14 vangá, 16 aa, 17 all, 18 urg, 20 af, 21 ragú. LÓÐRÉTT: 1 gróf, 3 eh, 4 kringla, 5 kám, 7 smá- vara, 10 aga, 13 una, 15 álft, 16 aur, 19 gg. FRÉTTIR AF FÓLKI Einar Bárðarson, oft nefndur umboðs- maður Íslands, teflir fram öllum helstu poppstjörn- um Íslands á jólaplötunni Jólaskraut sem væntan- leg er fyrir jólin. Lögin á plötunni eru gamal- kunn en ganga nú í endurnýjun lífdaga með nýjum flytjendum. Jónsi úr Í svörtum fötum syngur Jól alla daga, sem Eiríkur Hauks- son söng á sínum tíma, og Gleðileg jól allir saman, sem Eyjólfur Kristjánsson gerði ódauðlegt. Sjálf Birgitta Haukdal mun svo feta í fótspor Helgu Möller og syngja lagið Heima jólin. Nylon-stelpurnar ráðsat ekki heldur á garðinn þar sem hann er lægstur og syngja gamla Wham!-lagið Last Christmas með nýjum texta eftir Ölmu Guðmundsdóttur úr Nylon. Þær taka svo einnig lagið Hátíðarskap sem Þú og ég sungu á sínum tíma. Spéfuglinn Sveppi verður einnig með á plötunni en hann leysir Ladda af og syngur lögin Snjókorn falla og Rokkað út um jólin með sínu lagi. Idolstjarnan Heiða lætur líka til sín taka og syngur lögin Minn eini jólasveinn, sem Ellen Kristjánsdóttir söng upphaflega, og Aðfangadagskvöld, sem Þú og ég sungu á plötunni Hátíðarskap. Söngvarinn Friðrik Ómar Hjörleifs- son frá Dalvík slæst í hópinn með tvö lög; Ég verð heima um jólin, sem flestir þekkja, og en í seinna laginu fetar Heiða í fótspor söngkonunnar Mari- ah Carey og flytur lagið Allt það sem ég óska eða All I Want for Christmas eins og það heitir í ensku útgáfunni. EÐA Á VISIR.IS PÖNTUNARSÍMI 550 5 000 SMÁAUGLÝSINGAR FRÉTTABLAÐSINS FRÉTTABLAÐIÐ ER SMÁAUGLÝSINGA- BLAÐIÐ – smáauglýsingar sem allir sjá EÐA Á VISIR.IS PÖNTUNARSÍMI 550 5 000 SMÁAUGLÝSINGAR FRÉTTABLAÐSINS FRÉTTABLAÐIÐ ER SMÁAUGLÝSINGA- BLAÐIÐ – smáauglýsingar sem allir sjá
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.