Fréttablaðið - 14.11.2005, Síða 14
14. nóvember 2005 MÁNUDAGUR14
fréttir og fróðleikur
03.
33
3
1.
40
5
1.
34
8
Ný verksmiðja sem framleiðir
vörubretti úr pappa tekur til starfa
í Mývatnssveit á næsta ári. Verður
hún staðsett á lóð Kísiliðjunnar við
Reykjahlíð sem lokað var í fyrra, en
Landsvirkjun keypti nýverið lóðina
ásamt mannvirkjum. Þá var Sigbjörn
Gunnarsson, sveitarstjóri í Mývatns-
sveit, heldur svartsýnn á atvinnu-
ástandið í sveitinni en nú ætti að
rætast eitthvað úr málum.
Þessi nýja verksmiðja hlýtur að
auka bjartsýni manna í Mývatns-
sveit á ný?
Já, það leikur enginn vafi á því að
þetta er jákvætt, en auðvitað leysir
þetta ekki allan vanda hjá okkur. En
það voru líka að gerast góðir hlutir í
atvinnumálum hjá okkur í fyrra, þegar
baðlónið hér í Bjarnarflaginu tók til
starfa, það er ekki síður atvinnuskap-
andi. Þar eru ýmsar hugmyndir á lofti
um heilsutengda ferðaþjónustu sem
eru mjög spennandi. Það eru mýmörg
tækifæri í Mývatnssveit og ég er afar
ánægður með aðkomu Landsvirkjunar
að atvinnumálum hér.
Var eitthvað um að fólk flytti úr
sveitinni eftir að Kísiliðjan lokaði?
Einhverjir fóru en það má segja að
það hafi linað þjáningarnar hérna að
atvinnuástandið hér austur á fjöllun-
um var gott, þó það sé kannski ekki
óskastaða að þurfa að sækja vinnu
héðan á Káranhnjúka eða austur á
firði.
Sigbjörn lætur senn af störfum
sem sveitarstjóri í Mývatnssveit en
er hann ánægður með dvölina og
árangurinn?
Já, ég fer héðan sáttur og held að
ég skili af mér góðu búi. Það hefur
alltaf verið aðalmarkmiðið mitt að
sveitarsjóður sé ekki skuldsettur og
það er hann ekki og það hefur bjarg-
að mönnum núna þegar að kreppti í
atvinnulífinu.
SPURT & SVARAÐ
■ NÝ VERKSMIÐJA Í BJARNARFLAGI
Mýmörg tækifæri í Mývatnssveit
SIGBJÖRN GUNNARSSON
Sveitarstjóri í Mývatnssveit.
Háskólinn á Akureyri þarf að draga úr starfsemi
sinni þar sem opinber fjárframlög eru lægri
en rekstrarkostnaður. Svo að endar nái saman
verður deildum skólans fækkað úr sex í fjórar.
Hvað breytist?
Deildir sem hafa nána samvinnu renna saman.
Eftirleiðis verða því viðskipta- og raunvísinda-
deild, félagsvísinda- og lagadeild, heilbrigðis-
deild og kennaradeild starfræktar við skólann.
Auðlindadeild og upplýsingatæknideild munu
hins vegar heyra sögunni til. Með þessum
aðgerðum leggjast tvö embætti deildarforseta
af auk einhverra starfa til viðbótar.
Hvaða þýðingu hefur Háskólinn á Akureyri?
Auk þess að uppfræða og útskrifa fjölda nem-
enda á ári er fullyrt að Háskólinn hafi gríðarlega
þýðingu fyrir uppvöxt og framgang Akureyrar-
bæjar. Lengi hefur verið bent á mikilvægi skól-
ans í byggðaþróun og hann nefndur sem gott
dæmi um möguleika stjórnvalda til að snúa
fólksflutningum af landsbyggðinni við.
Yfir 1.500 nemendur eru við skólann í vetur,
fastráðið starfsfólk er um 170 og stundakennarar
vel á fimmta hundrað.
Hvers vegna þessi fjárhagsvandi?
Nemendum við Háskólann á Akureyri hefur
fjölgað hratt á síðustu árum og líkast til hraðar
en áætlanir stjórnvalda gerðu ráð fyrir. Við það
hefur kostnaður aukist. Þá hefur flutningur starf-
seminnar á Sólborgarsvæðið á Akureyri kostað
sitt, ekki síst afnot af hinu nýja Rannsóknahúsi
en fyrir þau þarf skólinn að greiða 60 milljónir
króna í húsaleigu á ári.
FBL-GREINING: HÁSKÓLINN Á AKUREYRI SKER NIÐUR
Nemendum hefur fjölgað of hratt
52
6
77
5
17 29
0
TEGUND OG FJÖLDI SLYSA Á LANDINU
Í APRÍL TIL JÚNÍ
Umferðar
óhöpp
Vinnu-
slys
Heima- og
frítíma-
slys
Flug-
slys
Sjóslys Önnur
slys
Íþrótta-
slys
Skóla-
slys
Heimild: Landlæknisembættið
Aðilar að kapphlaupinu eru ríkin sem
eiga land að Norður-Íshafi – Noreg-
ur, Rússland, Bandaríkin, Kanada
og Danmörk fyrir hönd Grænlands.
Ísland tengist þessum slag í gegnum
aðild að Norðurskautsráðinu og Bar-
entshafsráðinu. En meginágreining-
urinn stendur á milli Bandaríkjanna
og Kanada um lögsögu yfir norð-
vestur-siglingaleiðinni svonefndu,
milli Noregs og Rússlands um lög-
sögu í Barentshafi, Kanadamenn og
Danir/Grænlendingar etja kappi um
smáeyju í hafinu milli Grænlands
og Kanada, rússneska þingið neitar
að staðfesta samning við Bandarík-
in um lögsögumörk í Beringsundi
og Danir, fyrir hönd Grænlendinga,
trompa allt með því að gera tilkall
til Norðurpólsins sjálfs.
Norðurskautsísinn hopar hratt
„Svona virkar landafræðin,“ hefur
fréttavefur breska ríkisútvarps-
ins, BBC, eftir Peter Croker, írsk-
um olíumálasérfræðingi sem er
formaður í þeirri nefnd Sameinuðu
þjóðanna sem úrskurðar um land-
grunnsmörk (Commission on the
Limits of the Continental Shelf).
Nefndin hefur það hlutverk að
miðla málum milli ríkja sem deila
um landgrunnsréttindi, en deil-
an um Hatton-Rockall-svæðið er
dæmi um slíka deilu sem Ísland á
aðild að.
Vísindamenn hafa spáð því að
svo gæti farið að Norðurheim-
skautsísinn gæti bráðnað alveg
yfir sumarið áður en þessi öld er
liðin. Þetta kemur fram í alþjóð-
legu skýrslunni Arctic Climate
Impact Assessment sem gefin var
út í fyrra. Hopi ísinn svona mikið
opnast áður ófærar siglingaleiðir
og aðgangur að svæðum þar sem
olíu- og gaslindir er að finna. Sam-
kvæmt mati bandarísku landfræði-
stofnunarinnar (US Geological
Survey) er um fjórðungur allra
þeirra olíu- og gaslinda sem enn
hafa ekki verið uppgötvaðar að
finna á Norðurskautssvæðinu.
„Nú eru allir að setja sig í bar-
áttustellingar. Loftslagsbreyting-
ar eru að umbreyta Norðurheim-
skautssvæðinu. Í húfi eru orka,
fiskur og siglingaleiðir,“ hefur
fréttavefur BBC eftir dr. Rob
Huebert, stjórnmálafræðingi við
rannsóknamiðstöðina Centre for
Strategic Studies við Calgary-
háskóla í Kanada. Hann telur að
baráttan um lögsögu yfir þess-
um auðlindum verði áfram hörð.
Nauðsynlegt sé að finna sáttaleið
til að hafa stjórn á þróuninni og þar
muni fjölþjóðlegar samstarfsstofn-
anir eins og Norðurskautsráðið
hugsanlega geta gegnt mikilvægu
málamiðlunarhlutverki.
Meginátakamálin fimm
Meginátakamálin eru fimm: Lög-
saga yfir Norðurskautinu sjálfu,
Norðvestur-siglingaleiðinni, Bar-
entshafi, Berlingsundi og Hans-ey.
Samkvæmt 76. grein Hafréttar-
sáttmála SÞ getur hvert strandríki
gert tilkall til 200 sjómílna efna-
hagslögsögu og allt að 150 mílna
hafsbotnsréttinda þar til viðbót-
ar, sé hafsbotninn beint framhald
landgrunns viðkomandi lands. Að
óbreyttu á ekkert þeirra ríkja sem
eiga land sem liggur að Norður-
skautssvæðinu tilkall til lögsögu
alla leið upp á Norðurpólinn. Eins
og er heyrir því lögsagan yfir Norð-
urskautinu sjálfu undir Alþjóða
hafsbotnsstofnunina, sem er ein af
undirstofnunum SÞ og hefur aðset-
ur í Kingston á Jamaíku. Tvær leiðir
að skiptingu lögsögunnar yfir Norð-
urskautinu milli ríkjanna fimm eru
nú uppi á samningaborðinu. Önnur
gengur út á að skipta lögsögunni
eftir lengdarbaugslínum. Hin leiðin,
sem Kanadamenn og Danir styðja,
er að lögsögumörkin fari eftir lengd
næstliggjandi strandlengju. Sam-
kvæmt þessari reglu myndi Dan-
mörk (Grænland) fá lögsögu yfir
pólnum sjálfum en lögsögusvæði
Kanada stækka einnig.
Kjarni deilunnar um Norðvest-
ur-siglingaleiðina er að Bandaríkin
viðurkenna ekki lögsögu Kanada
yfir henni. Minna er deilt um Norð-
austur-siglingaleiðina (frá Barents-
hafi norður fyrir Síberíu austur til
Austur-Asíu). Þessar siglingaleiðir
gætu skipt miklu máli fyrir Ísland,
þar sem hér gætu verið umskipun-
arhafnir fyrir skip sem sigldu þess-
ar leiðir.
Deilan um Hans-eyju snýst
um lögsögumörk milli Kanada og
Grænlands, sem gæti skipt máli
fyrir könnunar- og vinnsluréttindi
hugsanlegra orkulinda undir hafs-
botninum. Kanada og Danmörk
gerðu samning um lögsögumörkin
á þessu svæði árið 1973, en í honum
var ekki tilgreint hverjum Hans-ey
tilheyrði.
Barentshafsdeilan stendur að
mestu á milli Noregs og Rússlands.
Miklar gas- og olíulindir eru taldar
vera undir botni Barentshafs og því
eru hér miklir efnahagslegir hags-
munir í húfi.
Deilan um Beringsund rakin til
ársins 1990 þegar Bandaríkin og
Sovétríkin gerðu með sér samning
um lögsögumörk þar. Rússneska
þingið hefur neitað að fullgilda
þennan samning og heldur því fram
að samkvæmt samningnum hafi
lögsaga Rússlands minnkað um
50.000 ferkílómetra.
Bandaríkin utangátta
Meðal atriða sem flækja úrlausn
þessara mála er að hlutaðeigandi
ríki þurfa að bera fram þær lög-
sögukröfur sem það telur að það
eigi tilkall til samkvæmt Hafréttar-
sáttmála SÞ innan ákveðins frests.
En Bandaríkin hafa enn ekki full-
gilt Hafréttarsáttmálann, þar sem
nokkrir öldungardeildarþingmenn
í Washington hafa fyrirvara um
að Bandaríkin væru að afsala sér
fullveldisrétti með fullgildingunni.
Þar af leiðandi stendur eitt hinna
hlutaðeigandi ríkja, sem svo vill til
að er valdamesta ríki í heimi, utan
við þá leit að málamiðlunum sem
nú er í gangi. ■
Kapp um lögsögu
Norðurskautsins
Vísindarannsóknir benda til að hlýnun lofthjúpsins sé tvöfalt hraðari yfir
Norðurheimskautinu en að meðaltali á jörðinni. Þessi vitneskja ásamt fleirum
veldur því að mikið kapphlaup er hafið um efnahagslögsögu á svæðinu.
Á GRÆNLANDI Danir sem hafa yfirráð yfir Grænlandi deila um lögsögumörk Hans-eyju
sem er á milli Grænlands og Kanada.
SIGLT UM ÍSINN Vísindamenn hafa spáð því að svo gæti farið að Norðurheimskautsísinn
gæti bráðnað alveg yfir sumarið áður en þessi öld er liðin.
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.iss
ÍSLENSKUR
FJÖLSKYLDUFAÐIR
Á DAUÐALISTA
HELLS
ANGELS
Sigurður Ingólfsson lenti í
útistöðum við mótorhjólagengi
DV2x15 13.11.2005 21:07 Page 1