Tíminn - 12.03.1976, Síða 24
Föstudagur 12. marz 1976
METSÖUflaÆKUR
Á ENSKU í
VASABROTI
SIS-FODIJU
SUNDAHÖFN
fyrir göóan mai
^ KJÖTIÐNAÐARSTÖO SAMBANDSINS
Mesta atvinnuleysi
fjörutíu ór
i
Reuter/NTB. Atvinnuleysi i
helztu iðnaðarlöndum heims
var meira i árslok 1975 en verið
hefur um fjörutiu ára skeið, eða
siðan á árunum upp úr 1930.
Ungt fólk var mun fleira á at-
vinnuleysisskrám en eldra fólk.
Það var alþjóðlega verka-
mannasambandið, sem skýrði
frá þessu i gær, en það hefur
tekið saman atvinnuleysistölur
frá siðasta ári i tuttugu og þrem
löndum.
t löndunum, sem athugun al-
þjóða verkamannasambandsins
(ILO) náði til, reyndust átján
milljónir manna vera atvinnu-
lausir i árslok 1975, eða um 5.3%
af heildar vinnuafli þeirra.
Erþetta 1.3% meir en árið áð-
ur og þvi hafa um fimm milljón-
ir manna misst atvinnu sina i
þessum löndum árið 1975.
Á öllum þeim svæðum, sem
athuguð voru, reyndist ungt fölk
hlutfallslega verst komið. Fjór-
irafhverjum tiu atvinnulausum
töldust til yngri kynslóðarinnar
og er atvinnuleysishlutfall
hennar um tvöfalt á við hlutfall
heildarinnar.
Suður-Evrópa býr við mest
atvinnuleysi af iðnaðarlöndun-
um. Þar misstu um sex hundruð
þúsund manns atvinnu sina á
siðustu þrem mánuðum ársins
1975, eða um það bil jafn margir
og hina niu mánuði ársins til
samans.
Atvinnuleysi kvenna i árslok
var 6.1%, en karlmanna 4.9%.
Athugunin náði til átján
Evrópulanda, Bandarikjanna,
Kanada, Astraliu og Nýja Sjá-
lands.
Rekur þrjú þúsund
Egypta úr landinu
Heuter, Cairó. — Sambúð
Egyptalands og Libýu versnaði
enn i gær, þegar Egyptar sögðu,
að Muammar A1 Gaddafi hefði
fyrirskipað brottvisun þrjú þús-
und Egypta frá Libýu, sem mót-
aðgerð vegna handtöku tuttugu
og sjö libýskra borgara i Kairó.
Egypzkir embættismenn sögðu
i gær að Libýa hefði gert upptæk-
ar allar eigur þeirra Egypta, sem
visað hefði verið úr landi undan-
farna tvo daga.
I egypzku fréttablaði var skýrt
frá þvi i gær að um þrjú hundruð
og fimmtiu manns, sem visað
hefði verið úr Libýu og komið
hefðu um landamæri Egypta-
lands við Sollum, hefðu verið
fluttir á sjúkrahús, hættulega
slasaðir.
Samband milli rikjanna
tveggja er nú talið verra en það
hefur verið siðan i október 1973,
þegar Gaddafi gagnrýndi Egypta
harkalega fyrir striðsrekstur
þeirra gegn ísraelum.
Embættismenn töldu ekki i gær
að til stjórnmálaslita myndi
koma að sinni, en söeðu að sam-
bandið væri i lágmarki nú.
Núverandi deilur milli rikjanna
hófust þegar Egyptar handtóku
sjö Lfbýumenn i Kairó, og sökuðu
þá um að ætla að ræða eða myrða
utanrikisráðherra Libýu, sem þá
var staddur i Egyptalandi og
neitaði að snúa heim á leið.
A eftir fylgdu svo handtökur
tuttugu Libýumanna i viðbót og
voru þeir ákærðir fyrir fyrirhug-
uð skemmdarverk I Egyptalandi.
Lýst eftir
karlmanni
gébé Rvik — Kópavogslög-
reglan lýsir eftir Árna Jóni
Árnasyni, 31 árs.til heimilis að
Nýbýlaveg 30a Kópavogi, en
til hans hefur ckkcrt spurzt
siðan i fyrrakvöld, en þá sást
hann fara i strætisvagn, leið 4
á Illemmi. Ekkert er vitað um
ferðir hans siðan. — Arni Jón
er 175sm á hæð, og var klædd-
ur i brúnteinótt föt, brúna
hanzka, dökka hettuúlpu og
var i svörtum uppreimuðum
gúmmistigvélum. Þeir sem
geta gefið upplýsingar um
Árna Jón Árnason eru beðnir
að hafa samband við lögregl-
una i Kópavogi.
Átökin harðna á
herteknu svæðunum
Reuter, Nablus.— Átök urðu milli
arabiskra unglinga og israelskra
hermanna á herteknu svæðunum
á vesturbakka Jórdan i gær, þeg-
ar nokkrir bæjarstjórar þar,
ásamt bæjarráðum sinum, sögðu
af sér til að mótmæla meintu of-
beldi tsraela.
Telja leiðtogar Araba nú vafa-
samt, að fyrirhugaðar kosningar
fari fram i næsta mánuði, þar
sem bæjarstjórar og bæjarráð
gefa ekki kost á sér til endur-
kjörs. Kosningarnar áttu að ná til
bæja á herteknu svæðunum i
Jórdaniu.
Fréttamenn sáu i gær ísraelska
hermenn draga arabiska ung-
linga Ut af heimilum sinumog
berja þá með kylfum, eftir að
únglingarnir höfðu lokað vegum
með grjóthnullungum og kveikt
elda. Ibúar bæjanna sögðu, að
nokkrir unglingar hefðu verið
handteknir og fólk hefði orðið fyr-
ir meiðslum — sumt á heimilum
sinum.
Neitun Araba á herteknu
svæðunum að taka þátt i kosn-
ingunum, yrði alvarlegt áfall fyr-
ir israelsk yfirvöld, sem hafa
vonazt til að sjá þar risa upp in.n-
lendar héraðsstjórnir, sem é'náð-
ar væru palestinska frelsishern-
um.
Bæjarstjórnirnar hafa allar
sagt af sér, vegna þess að kröf-
um, sem þær gerðu á hendur
Israelum, var ekki sinnt.
Kröfurnar voru: „Að hætt verði
bænalestri Gyðinga á þeim stöð-
um i Jerúsalem, sem eru
Drápu sextiu
NTB, Alsír. — Talsmenn
Polisario, skæruliðahreyfingar-
innar i Vestur-Sahara, upplýstu
á miðvikudag, að sveitir
hreyfingarinnar hefðu drepið
sextiu hermenn frá Marokkó i
siðustu viku febrúarmánaðar.
í skýrslu frá samtökunum er
þvi einnig haldið fram, að eyði-
lögð hafi verið þrjátiu og þrjú
farartæki fyrir Marokkómönn-
um.
Ekki var greint frá þvi i
skýrslunni hve mikið Polisarip-
menn hefðu misst.
Hundrað bilar
i árekstri
NTB, Stokkhólmi. — Nær eitt
hundrað bifreiðar lentu saman i
keðjuárekstri á hraðbrautinni
við Værby i Sviþjóð i gær-
morgun.
Tuttugu og fjórar bifreiðar
voru óökufærar eftir árekstur-
inn og varð að flytja þær burt.
Fimm voru lagðir i sjúkrahús,
en enginn var alvarlega slasað-
ur.
Orsök árekstursins er talin
hafa verið of hraður akstur á
hálum veginum, en sumar bif-
reiðanna voru með sumardekk.
Flytur frá
Sovétrikjunum
Reuter, Moskvu. —Ernst Neiz-
vestny, sem af mörgum gagn-
rýnendum er talinn einn af
mikilhæfustu myndhöggvurum
Sovétrikjanna siðan i bylting-
unni 1917, yfirgaf Moskvu á
miðvikudag, með ferðaheimild
— aðra leiðina — til Vestur-
landa.
Myndhöggvarinn, sem er
Gyðingur að hálfu, fór flugleiðis
til Vinarborgar, en likt og svo
margir útflytjendur frá Sovét-
rikjunum fékk hann fararleyfi
til að setjast að i ísrael.
Hann hyggst sækja um
borgararéttindi i ísrael, en seg-
ist munu búa hvar sem hann
geti unnið.
Neizvestny hefur oft ságt, að
hann liti ekki á sig sem mótfall-
inn stefnu sovézkra stjórnvalda,
heldur hefði hann sótt um leyfi
til að flytjast á brott vegna þess
að á siðastliðnum tiu árum
hefur honum fimmtiu sinnum
verið neitað um leyfi til að
heimsækja Vesturlönd.
Olían rennur
Reuter, Manila. — Ferdinand
Marcos, forseti Filippseyja,
skýrði frá þvi I gær, að olla
,,væri farin að renna” á bor-
unarsvæðinu i Vestur-Palawan.
Yfirlýsing hans varð til þess
að veltan á verðbréfamarkaði i
Manila tók heljarstökk — varð
tvöföld á við veltuna daginn áð-
ur.
1 gær var einnig tilkynnt, að
frá og með deginum i dag væri
þeim, sem ekki eiga heimili sitt
á Filippseyjum, óheimilt að
senda úr landi ágóða af innlend-
um hlutabréfum. Er búizt við að
reglugerðin takmarki flóð pen-
inga inn i landið, frá aðilum,
sem vilja hagnast á innanlands-
viðskiptum þar.
Búizt er við að opinber til-
kynning verði gefin út i dag um
það hversu mikilvægur þessi
oliufundur er, en i gær var ekki
ljóst hvort brunnurinn væri
nýtanlegur.
Til upplýsingasafnara
Tileru þeir, sem hafa óendan-
lega ánægju af þvi að safna upp-
lýsingum um ótrúlegustu hluti,
án tillits til notagildis þeirra.
Hér er einn biti i þeirra söfn:
Reuter, Paris. Robert Galley,
franski samgönguráðherrann,
sagði nýlega á blaðamanna-
fundi að i lok ársins 1976 myndi
Frakkland eiga um 4.000 kiló-
metra af hraðbrautum.
Múhameðstrúarmönnum jafn
helgir rg Gyðingum”, ,,að her-
seta Gyðinga á vesturbakka
Jórdan taki þegar enda”, „að
israelskar hersveitir hætti að ráð-
asi ínn í arabiska skóla” og ,,að
sektir og fangelsisdómar, sem
felldir hafa verið yfir arabiskum
kröfugöngumönnum, verði þegar
afnumdir”.
Arabiskir embættismenn segja,
að um eitt hundrað og fjörutiu
arabiskir námsmenn, bæði piltar
og stúlkur, hafi hlotið meiðsl af
völdum Israela fyrr i þessari
viku.
Einn af hörðustu leiðtogum
Araba á svæðunum, Masri, sagði,
að slæm meðhöndlun tsraela á
ibúum herteknu svæðanna hefði
náð hámarki i vikunni.
— Við munum ekki hætta að
krefjast þess að hersetan taki
enda, sagði Masri, — við viljum
ekki styrjöld, við viljum landið
okkar, frið og réttlæti.
Uppreisnir innan hersins vaxa enn
Karami ætlar að segja af sér vegna ústandsins
Reuter, Beirút. — Astandið i
stjórnmálum og hermálum i
Libanon versnaði enn i gær og
Rashid Karami, forsætisráðherra
landsins, lýsti þvi þá yfir að hann
hyggðist segja af sér vegna
'ástandsins.
Uppreisnarmenn innan
libanska hersins náðu enn þrem
herbúðum á sitt vald i gær og juku
þannig til muna á upplausnina,
sem rikirinnan hersins. Alls telur
hann um 15.000 menn en ekki er
ljóst hve margir hafa gerst lið-
hlaupar siðustu daga.
Yfirmaður hersins i N-LIbanon
var skotinn til bana i gær, þegar
hann var á hraðferð um land-
svæði, sem að meginhluta er
byggt kristnum mönnum. Hers-
höfðinginn, sem var múhameðs
trúar, var á leið til herbúða þar
sem tilkynnt hafði verið um upp-
reisn.
Ibúar i Tripoli sögðu i gær, að
þegar fréttir af dauða hers-
höfðingjans bárust þangað, hefðu
tugir kristinna hermanna verið
teknir af lifi eða særðir i herbúð-
um þar i hefndarskyni.
Staðfesting á þessum orðrómi
fékkst ekki.
Karami forsætisráðherra, sem
i gær sagðist ætla að segja af sér,
nefndi þá ekki hvenær, og þegar
síðast fréttist hafði hann ekki til-
kynnt Franjieh forseta afsögn
sina.
Uppreisnirnar innan hersins,
sem aðallega eru framkvæmdar
af múhameðstrúarmönnum,
héldu áfram að vaxa-i gær, þrátt
fyrir tilboð Hanna Saeed, hers-
höfðingja, um að ganga að flest-
um kröfum hermannanna.
Meðan forsætisráðherra lands-
4á
ins skýrði frá áformi sinu á blaða-
mannafundi i Beirút, mátti heyra
dreifða skothrið i borginni.
Lama iðnaðinn
Reuter, Buenos Aires.— Óopin-
ber verkföll lömuðu lykilhluta
argentiska iðnaðarins i gær,
þrátt fyrir almennar launa-
hækkanir.
Samkvæmt ákvörðun rikis-
stjórnar landsins, sem tekin var
I fyrrakvöld, eiga allir verka-
menn að fá tuttugu prósent
launahækkun, I stað tólf
prósenta, eins og áætlað var i
upphafi. Akvörðun rikis-
stjórnarinnar tekur þó einnig til
þess, að hækkanir á bensini.
rafmagni, járnbrautafargjöld-
um og mörgum neyzluvörum,
skuli verða allt að hundrað
prósent.
Verkamenn, i mörgum tilvik-
um leiddir af herskáum vinstri-
mönnum, stofnuðu til skyndi-
verkfalla i iðnaðarhéruðunum
við Buenos Aires og i Cordoba,
sem er miðdepill bilaiðnaðar-
ins. Krefjast verkamenn i bif-
reiðaiðnaði allt að fimmtiu til
sextiu prósent launahækkana.