Fréttablaðið - 14.11.2005, Síða 70
TÓNLIST
[UMFJÖLLUN]
Stúlknaflokkurinn í Nylon er sér
á báti í íslensku tónlistarlífi. Hann
var settur saman af Einari Bárð-
arsyni eftir langar og strangar
áheyrnarprufur á Hótel Loftleið-
um. Þetta var algjör nýlunda hér á
landi en tilbúnar sveitir hafa tíðk-
ast bæði í Bretlandi og Bandaríkj-
unum með góðum árangri.
Þrátt fyrir allar hrakspár og for-
dóma gagnvart stúlkunum verður
ekki annað sagt en að Nylon hafi
eignast traustan aðdáendahóp. Þá
skemmir ekki fyrir að stúlkurnar
hafa sinn sjarma, bráðhuggulegar
og vafalaust dreymir einhverjar
tólf ára stelpur um að vera upp-
götvaðar...alveg eins og þær Klara,
Emilía, Alma og Steinunn.
Á plötunni Góðir hlutir hefur
ekkert verið til sparað. Erlendir
lagahöfundar og upptökustjórar
eru fengnir í lið með sveitinni.
Greinilegt að legið hefur verið yfir
hverjum tón og hverri röddun enda
er platan nánast lýtalaus þegar
kemur að tæknilegri vinnu.
Góðir hlutir á að kynna til leiks
nýja hlið á flokknum. Þær eru ekki
lengur kornungar stúlkur sem land-
inn fékk að sjá fyrir rúmu ári síðan
heldur þroskaðar konur. Laga- og
textasmíðarnar eiga að ýta undir
þessa ímynd sem umslagið stað-
festir endanlega. Áferðin minnir
óneitanlega á það sem er að gerast
í stúlknasveitageiranum núna en
sterkust eru áhrifin frá því sem
Sugarbabes hefur verið að gera
enda ber sú ágæta sveit höfuð og
herðar yfir aðra í þessum iðnaði.
Lagasmíðarnar eru flestar
mjög traustar en útsetningarn-
ar eru leiðigjarnar til lengdar.
Óskiljanlegt hvernig menn geta
verið jafn ófrumlegir og að nota
þennan klassíska gítar jafnmik-
ið. Þá eru „kóver“-lögin tvö, Dans
dans og Eins konar ást, ekki nógu
vel heppnuð. Valið á því síðast-
nefnda er vel skiljanlegt þar sem
það hentar ótrúlega vel til að
sýna fram á röddunarhæfileika
en framsetningin er leiðinleg og
þá sérstaklega munnharpan. Tit-
illagið er nokkuð skemmtilegt
sem og áðurnefnt lag nr. fimm og
flokkurinn nær sér vel á strik í
rólegu lögunum. Þar kemur hins
vegar skýrast fram að Klara Ósk
er sterkasta söngkonan í hópnum.
Nylon hefur sannað að það er
vel hægt að halda úti tilbúinni
sveit. Þegar kemur að markhópi
sveitarinnar er það útlitið sem
skiptir máli, lagasmíðar mega
ekki vera flóknar og táningsstúlk-
ur verða að geta hermt eftir þeim.
Þessi atriði eru algjörlega útpæld
hjá útgefanda sveitarinnar. Fyrir
mitt leyti verður flokkurinn hins
vegar að setja meiri þokka í tón-
listina ef þær eiga selja mér meira
þroskuðu ímyndina.
Freyr Gígja Gunnarsson
GÓÐIR HLUTIR
Nylon
Niðurstaða: Nylon verður að setja meiri
þokka í tónlistina ef þær vilja selja þessa
„meiri þroskuðu“ ímynd.
Ágætis hlutur frá Nylon
Þúsundir kvenna slógust um föt
Stellu McCartney sem komu í
búðir H&M verslunarkeðjunn-
ar á fimmtudaginn. Fötin voru
til sölu í yfir 400 búðum í 22
löndum en aðeins í takmörkuðu
upplagi. Örtröð myndaðist fyrir
utan margar H&M verslanir í
Stokkhólmi og frumskógarlög-
málið tók völdin þegar búðirnar
opnuðu. Eltingarleikur við að ná
fötum af slám og gínum hófst
og konurnar hlupu næstum hver
aðra niður í æsingnum.
Mikil eftirvænting hefur
verið eftir fötum Stellu, dóttur
Bítilsins góðkunna, og er auglýs-
ingaherferðin „Stella McCartn-
ey for H&M“ talin geta skilað
miklum söluhagnaði. Talsmenn
verslunarinnar telja þó ekki
endilega að hagnaðurinn komi
af sölu á fötum Stellu sjálfrar
heldur muni athygli og áhugi
á búðinni aukast til muna. Auk
þess ætti þessi áhugi á fatalínu
Stellu að geta dregið athyglina
frá nýlegu hneyksli í kringum
kókaínmisferli fyrsætunnar
Kate Moss sem var aðalandlit
keðjunnar. Henni var sagt upp í
kjölfar hneykslisins.
„Það er gott að geta boðið
upp á sérstök merki í takmörk-
uðu upplagi sem kosta ekki svo
mikið,“ segir Carl Eric Linn,
vörumerkjastjóri H&M. „Sam-
starfið við Stellu mun gera það
að verkum að allir munu þekkja
verslunarkeðjuna.“ ■
STELLA MCCARTNEY FATAHÖNNUÐUR
Slegist um Stellu
ÞAÐ VAR HANDAGANGUR Í ÖSKJUNNI
ÞEGAR STELLA MCCARTNEY LÍNAN VAR
KYNNT Í H&M.
HUGSAÐU STÓRT
SÍMI 564 0000
Sýnd kl. 10.20 B.i. 16 áraSýnd kl. 8
Sýnd kl. 4 og 6
Frá leikstjórum There Is Something About Mary
Frá framleiðendum The Professional
og La Femme Nikita
����
SV MBL
Ný íslensk
heimildarmynd sem
hefur farið sigurför
um heiminn“MEISTARASTYKKI”
H.E. Málið
����
DV
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40
���
SV MBL
���
“Frábær kvikmynd,
áhugaverðari og fyndnari en
flestar þær sem boðið hefur
verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5, 8 og 10.45 B.i. 12 ára
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
Sýnd í Lúxus kl. 5.40, 8 og 10.20
SÍMI 551 9000
400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu
Crónicas • Sýnd kl. 6
Spænskt tal/enskur texti
Kung Fu • Sýnd kl. 6
Enskur texti
Hostel • Sýnd kl. 8
Enskt tal
Drawing Restraint 9 • Sýnd kl. 8
Enskt texti
Separate Lies • Sýnd kl 10.20
Enskt tal/íslenskur texti
Adams Æbler • Sýnd kl 10.20
Danskt tal/ótextuð
��������������
www.icelandfilmfestival.is �������������������������
Sýnd kl. 10.30 B.i. 16 ára Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 B.i. 14 ára
���
“Frábær kvikmynd, áhugaverðari og fyndnari en flestar
þær sem boðið hefur verið upp á undanfarið”
-MMJ Kvikmyndir.com
Sýnd kl. 5.30 og 8
Þetta var hið fullkomna frí þangað
til þau fundu fjársjóðinn!
Sjóðheit spennumynd með
ofurtöffaranum Paul Walker og
hinni stórglæsilegu Jessicu Alba.