Fréttablaðið - 14.11.2005, Page 73
MÁNUDAGUR 14. nóvember 2005 29
Reykjavík: Mörkin 4, sími: 533 3500 Akureyri: Hofsbót 4, sími: 462 3504 Egilsstaðir: Miðvangur 1, sími: 471 2954
Opið virka daga: 10-18 og laugard. 11-15
����������������� ����������� ������������ ��������
����������������������������������������������
����������
FÓTBOLTI Luis Garcia, leikmaður
Liverpool, var allt í öllu í stór-
leik Spánverja sem rótburstuðu
Slóvaka 5-1 í fyrri umspilsleikj-
um liðanna um laust sæti á HM á
næsta ári. Garcia skoraði frábæra
þrennu auk þess að fiska víta-
spyrnu og rautt spjald en Fern-
ando Torres skoraði örugglega úr
henni. Garcia átti reyndar sök á
marki Slóvaka en Szilard Nemeth
komst inn í slaka sendingu hans til
baka og minnkaði muninn. Garcia
var svo skipt útaf fyrir félaga sinn
hjá Liverpool, Fernando Morient-
es sem kórónaði stórsigur Spán-
verja með lokamarki leiksins.
„Án vafa er þetta leikur sem
alla knattspyrnumenn dreymir
um. Bæði var þetta mjög mikil-
vægur leikur þar sem mikið var
í húfi og þetta var minn fyrsti
leikur í byrjunarliði landsliðs-
ins og hann heppnaðist bara vel.
Luis Aragones landsliðsþjálfari
sýndi mér mikið traust og ég er
virkilega ánægður að hafa svarað
kallinu með svona góðum leik. Við
höfum sýnt að við verðskuldum
að fara á heimsmeistaramótið á
næsta ári,“ sagði Luis Garcia um
leikinn.
Svisslendingar komu nokkuð
á óvart með auðveldum 2-0 sigri
á Tyrkum en Philippe Senderos,
leikmaður Arsenal, og Valon
Behrami sáu um markaskorun
heimamanna. Báðir eru þeir tví-
tugir að aldri og eru miklar vonir
bundnar við þá sem lykilmenn
liðsins í framtíðinni. Svisslend-
ingar vörðust vel í leiknum og
lögðu áherslu á að fá ekki á sig
mark en þeir skoruðu síðan úr
föstu leikatriði og skyndisókn og
því virkaði leikaðferð þeirra full-
komlega og eru þeir i góðri stöðu
fyrir síðari leikinn á miðvikudag.
Spánverjar eru nánast komnir á HM eftir stórsigur um helgina:
Luis Garcia afgreiddi Slóvaka
ÞRENNA Í FYRSTA LEIKNUM Luis Garcia
réð sér ekki fyrir kæti eftir að hafa skorað
mörkin í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Frank Lampard, miðjumaður Chel-sea og enska landsliðsins, segist
reiðubúinn að binda sig Chelsea til enn
lengri tíma en núverandi þriggja ára
samningur hans nær til. Lampard, sem
er einn launahæsti leikmaður liðsins,
hefur staðið sig frábærlega í ár og eru
mörg stórlið í Evrópu að falast eftir
kröftum hans. En Lampard vill hvergi
annars staðar vera en hjá Chelsea. „Ég
er samningsbundinn til 2009 en eftir
nokkra mánuði mun ég banka á dyr
Romans Abramovich og biðja um lengri
samning. Hjá Chelsea hef ég allt til alls,
risa félag með stór markmið og bestu
stuðningsmenn í heimi,“ segir Lampard.
Úkraínski hnefaleikakappinn Vitaly Klitschko segir að nýr bardagi við
Lennox Lewis geti fengið hann af því
að leggja boxhanskana á hilluna, en
því lýsti Klitschko yfir í síðustu viku eftir
að hafa farið í aðgerð á hné. Hinn 34
ára gamli Klitschko hefur hug á því að
blanda sér í pólitíkina í heimalandi sínu
en segir að hún fengi að bíða ef Lewis
myndi einnig taka hanskana af hillunni
og berjast við sig. „Hann er eini box-
arinn sem skiptir mig einhverju máli. Ég
myndi berjast við hann á stundinni ef
hann hefur áhuga,“ segir Klitschko, sem
einmitt tapaði fyrir Lewis í bardaga fyrir
nokkrum árum.
Martin Jol, stjóri Tottenham, hefur gefið í skyn að hann hafi mikinn
áhuga á landa sínum hjá Chelsea,
vængmanninum Arjen Robben. Jose
Mourinho er sagður óánægður með
hversu langan
tíma það tekur
Robben að
koma sér í sitt
rétta form og
ætlar Jol að
nýta sér tæki-
færið á meðan
það gefst. „Ef
það verða meiri
vandamál hjá Robben og Mourinho þá
mun ég gera mjög gott tilboð í hann.
Tottenham er lið á hraðri uppleið og
félagið á pening til að kaupa bestu
leikmenn Evrópu,“ segir Jol.
Washington vann óvæntan sigur á meisturum San Antonio í
NBA-deildinni í körfubolta í fyrrinótt,
110-95, en þetta
var fimmti sigur
Washington
í síðustu sex
leikjum liðsins.
Gilbert Arenas
átti stórleik fyrir
Washington og
skoraði 43 stig en
það sem mesta
athygli vakti hjá San Antonio var arfa-
slakur leikur Tim Duncan, en hann
skoraði aðeins 11 stig og hitti úr 3 af
15 skotum sínum utan af velli. Önnur
helstu úrslit voru þau að Dallas vann
New Orleans 109-103, Houston lagði
New Jersey 99-91 og Milwaukee bar
sigurorð af Indiana, 103-102.
ÚR SPORTINU
FÓTBOLTI Úrugvæ fer með eins
marks forystu til Sydney eftir
að Dario Rodriguez skoraði eina
mark leiksins gegn Áströlum á
Estadio Centenario, en þetta var
fyrri leikur liðanna í umspilinu
um sæti á HM á næsta ári.
Ástralar voru betri aðilinn stór-
an hluta leiksins og Guus Hiddink,
þjálfari Ástrala, var alls ekki sátt-
ur eftir leikinn. „Við réðum gangi
leiksins í fyrri hálfleik en vorum
ekki nógu ákveðnir til að klára
verkefnið. Ég held að Úrugvæ
muni verjast í Sydney, þeir kunna
það vel og þetta verður mjög erfitt
en þetta er í okkar höndum.“
Trinidad og Tobago fór illa
að ráði sínu á heimavelli en liðið
náði aðeins jafntefli gegn Barein.
Christopher Birchall jafnaði fyrir
heimamenn með glæsilegri auka-
spyrnu eftir að Salman Husei
hafði komið Bahrain yfir. Það
verður mikið í húfi fyrir bæði lið í
seinni leiknum en hvorugt þeirra
hefur komist á HM áður. - hþh
Umspilsleikirnir fyrir HM:
Úrugvæ var
stálheppið