Tíminn - 19.03.1976, Síða 19

Tíminn - 19.03.1976, Síða 19
Föstudagur 19. marz 1976 TÍMINN 19 Ofbeit og uppblástur © heldur fékk öll þjóBin aö kenna á afleiðingum þeirra. Eldar þessir ollu landsskemmdum, fjárfelli og manndauöa. Hraunið frá Skaftár- eldum er 565ferkm., og hefur allt runnið yfir gróið land. Séra Jón Steingrimsson á Prestbakka skrifaði sögu Skaft- árelda, allt frá þvi, er þeir byrj- uðu, 2. júni, og þar til þeim lauk ogdragafórúr þeim geigvænlegu afleiðingum, sem þeir ollu. Þarna er um samtima heimildir að ræða og nútimamenn hafa ekkert leyfi til að rengja eða draga þær I efa. Ég get ekki stillt mig um að taka hér upp orörétta frásögn hans: „Þann 16. júni var sama veðr- átta. Kom nú ógurlegur eldgang- ur fram úr Skaftárgljúfri, að allt gljúfrið sýndist fullt af honum, sem nú aö öllu leyti tók af og eyði- lagði þessar klaustur- og kóngs- jarðir: Á á Siðu og Nes i Skaftár- tungu, hvor um sig 12 hundruð aö dýrleika. Asamt tók þessa elds- framkasts af og yfir þakti öll hraun milli Siðunnar og Skaftár- tungunnar, sem voru mikið hrisi og viðar vaxin, ein þau notabeztu hagbeitarlönd. Þar á meðal var Brandaland, eitt hagkvæmt skóg- arpláss,sem Kirkjubæjarklaustri fylgdi að gjöf ábótans, Hallgeirs Andréssonar, á Þykkvabæjar- klaustri 1350”. Þann 29. júni lýsir sr. Jón þeirri eyðileggingu, sem hraunflóðið olli Skaftártungu- megin. Þar stendur orðrétt: ,,Að austanverðu tók það af þann góða og allt of sparhaldna kolaskóg i Skaftárdal, en uppskrældi þann, sem var um hóla og gil, þar vest- ur af bænum. Túnið skemmdi hann ei, svo þá fólk fjölgar i byggðinni aftur, byggist Skaftár- dalur aftur aö nýju. Allur kola- skögur á Hæl skrældist, en af- brann þó eigi.” Tæplega geta skógræktarmenn nútimans haldið þvi fram, að þær lendur, sem hér um ræðir, hafi eyðzt, vegna ofbeitar eða búsetu i landinu, nema þeir trúi þvi, að i þessu tilfelli sem öðrum sé um „Guðs reiði- og refsield” að ræða yfir ranglátum forfeðrum og for- mæðrum okkar. öræfajökulsgos — Öskjugos — Mývatnseldar Hér skal ekki meira rætt um Skaftárelda eða afleiðingar þeirra, en aðeins þvi við bætt, að sennilega hefur tjónið af völdum gjósku og eitraðra lofttegunda, sem upp komu, valdið enn meira tjóni á gróðurriki landsins, en hraunflóðið, enda þótt undir þvi liggi mörg býli og eftir standa aðrar jarðir, sem áður voru höf- uðból, en eru siðan kotbýli ein. Ekki er hægt að ræða um eyð- ingu gróðurs og byggða á Islandi, án þess að minnast á öræfajök- ulsgosiðárið 1362, sem lagði i eyði á fáum klukkutimum Litla-Hér- að, eða öðru nafni Hérað milli sanda. Þá falla I auðn milli 30 og 40 bæir, bæöi af völdum jökul- hlaups og öskufalls. Þegar svo afturfer að myndast búskaparað- staða á þessu svæði, heitir þar öræfi.og segirsú nafngift meira, en mörg orð, hvemig landiö hefur litið út, eftir þær óskaplegu nátt- úruhamfarir, sem þarna hafa átt sér stað. öskjugosið 1875 er taliö þriðja- mesta öskugos á Islandi á sögu- legum tima. Aöal gosgeirinn féll yfir Mið-Austurland og lagði i eyði Efri-Jökuldal og byggð á Jökuldalsheiði. Atján jarðir fóru i eyði um tima, en hvort þær hafa allar byggzt aftur, eða eftir hvað mörg ár, hef ég ekki fullkomnar heimildir um. En hitt er fullvist, að jarðvegurinn hefur orðið veik- ari fyrir uppblæstri, en áður var ogum gróður hefur ekki verið um að ræða nærri eldstöðvunum, ef á graslendi hefur fallið. Árin 1724—1729 standa yfir hinir svo nefndu Mývatnseldar og þá rennur Reykjahliðarhraun, sem eyddi 4 jörðum. En um hvað mik- ið af grónu landi þaðhefur runnið veit ég ekki, en gróið land hefur verið kring um Reykjahllð og næsta nágrenni hennar. Ekki verður hér neinum getum að þvi leitt, hvert tjón hefur orðið af öskufalli i þessari löngu goshrinu, en ósennilegt er, að ekki hafi fall- ið gjóska til skemmda á nærliggj- andi héruö. Hér hefur með örfáum dæmum verið minnt á það, hver örlaga- valdur eldgosin hafa verið og eru á gróðurrlki landsins og búskap- arsögu þjóöarinnar frá upphafi landnáms, en um þann þátt skal hér látið staöar numið. Veðurfar: Búsmali — Sauðfjársjúkdómar Það verður tæplega annað en skáldskapur, þótt nútimamenn reyni að gera grein fyrir þvi, hvernig gróðurfari landsins var háttað við komu landnámsmanna hingað. Þó er ekkert óeðlilegt við það, að uppi séu hafðar ýmsar kenningar á þvi sviði, eða i ljós látnar skoðanir á þessu máli, ef þær eru byggðar á þeim vöröu- brotum, er sagan lætur okkur i té. Það mun vera óhætt að ganga út frá þvl, að veðurfar hafi verið mikið hlýrra, en nú er, en þó hef- ur það ekki verið áfallalaust fyrir búskapinn i landinu. 1 þvi sam- bandi er rétt aö hafa i huga frá- sögnina af Hrafna-Flóka, sem felldi bústofn sinn á fyrsta ári, vegna þess að hann gætti ekki að afla heyja um sumarið. Þetta bendir til þess, að landið hefur ekki allt veriö viöi eða viði vaxiö milli fjalls og fjöru, en ef svo hefði verið, var ekki um möguleika til heyöflunar að ræða, vegna þess að slikan gróöur heföi enginn maður getaö slegið. 1 öðru lagi sýnir þetta, að án þess að aflað væri fóðurs fyrir veturinn, var búseta i landinu ekki möguleg og búsmalinn ekki getað gengið hér öll ár sjálfala, heldur hafa komið hér á söguöld margir harðir vet- ur, eins og viða má sjá i fombók- menntum okkar. Aldrei verður það annað en ágizkum, hvað margt búfé hefur verið á fyrstu öldum Islandsbyggðar, en fátt hefur það verið i fyrstu. Likur benda tii þess að nautgripir hafi verið tiltölulega flestir og hross hafa fljótt einnig orðið mörg, en sauðfjáreignin ekki verið nálægt þvi eins stór hluti búsmalans, eins og slðar varð. Að hross hafi verið mörg, bendir til, að árið 1000, þegar kristni var lögtekin á Al- þingi, var það sett sem annað aðal skilyrði að éta mætti hrossa- kjöt, en það hefði ekki verið gert, nema það hafi verið stór hluti af fæðu þjóðarinnar og án þess mátti ekki vera. Þótt gengið sé út frá þvi, að afkoma þjóðarinnar hafi verið góð allt fram til siðaskipta, er meira en hæpið að álykta, að búsmalinn hafi verið svo margur, að til ofbeitar kæmi, meðan land- ið var svo mikið gróið, eins og nú er látið i veðri vaka. Um miðja 16. öld kólnar svo mjög um alla Evrópu, að timabil það hefur hlotið nafnið Litla-ls- öld. Má þá geta nærri um áhrif kólnandi veðurfars hér á norður- slóðum, og skal nú athugað um það nokkru nánar. Séra Jón Egilsson, sem um tima var prestur á Hrepphólum, hefur skrifað Biskupaannála, sem ná fram um aldamótin 1600. Hann var fæddur 1548oghefur þvi sjálfur vel munað siðari hluta 16. aldar. Auk þess hefur hann marg- an fróðleik eftir afa sinum, sr. Einari ólafssyni I Göröum. Sr. Einar var fæddur 1497 og þess vegna hefur sr. Jón heimildir frá fyrstu hendi um nær alla 16. öld. Hann segir: „Veturinn 1518—19 var svo mikill fellivetur, að nokk- uð fjölgaði fátæklingum og dcki meira en svo að allir héldu búum sinum og þrem hlutum alls úti- penings”. Sex árum siðar eða veturinn 1524—25, segir sami höf- undur: „Var svo mikill fellivetur, að þeir sem áttu 200—300 fjár eða meira, áttu þeir, sem mest áttu eftir um vorið 20—30 kindur.” Sr. Jón segir, að eftir 50 ár hafi Grimsnesingar ekki náð sér efna- lega eftir þennan eina harðinda- vetur. En úr þvi að Grimsnesing- ar bjuggu svo lengi að þessum einavetri, má nærrigeta, hvemig hinar harðbýlli sveitir hafa orðið úti. Sé leitað heimilda um það, hvernig afkoma-þjóðarinnar hef- ur verið á 16. öld, er ekki um auð- ugan garð að gresja, en þó er lik- legt, að hún hafi verið sæmileg framanaf, en farið mjög hnign- andi, þegar liða tók að aldarlok- um. Til er dómur eftir sýslumann i Þingeyjarþingi frá 1582, og er þar talið orðið sauðlaust á mörg- um bæjum og almúga ókleift aö ljúka gjöldum eða tlundum I vað- málum. Svona er þá ástandið i sumum héruðum i lok 16. aldar. Þá liggur næst fyrir að athuga 17. öldina og sjá, hvortekki hlaupi á snærið hjá ofbeitarpredikurum nútimans, en Skarösannáll er beztaheimild þess timabils. Ann- álinn samdi Björn Jónsson, bóndi á Skarði i Sæmundarhlíö. Hann er fæddur 1574 og hefur þvi munað velupphaf 17. aldar. Um árið 1602 hefurhannþettaað segja: „Vetur aftakalegur til harðinda um allt Island. Almennilegur peninga- fellir. Engir mundu þá þvilikan harðindavetur frá jólum til Jóns- messu, svo þá varð hið fyrsta sauðgróður. Lá is fram langt á sumar. Grasleysi mikið. Tók frá fisk fyrir norðan. Þetta kölluðu menn kynjaár. Þá komu engir lögréttumenn til Alþingis úr Norðlendingafjórðungi, sökum harðindaforfalla. Anno 1603. Mannfellir af fátæku fólki um allt Island af haröindum og sulti, gekk og blóösótt, dó og mannfólk- iðaf hennimörgum tugum saman i hverri kirkjusókn. Eyddust bæ- ir. Fiskileysi. Anno 1604. Gekk blóðsótt. Féllu yfirferðarmenn. Hlutavetur syðra. Fiskileysi fyrir noröan. Kom is. Rak hvali. Sela- tekja mikil. Þetta var kallað eymdarár. Á þessum tveimur fyrirfarandi hörðu árum með þvi fyrstu hörkuárinu, sem mest undirbjó, féllu i Hegranesþingi 800 manna. Það var bæði yfir- ferðafólk og fátækir barnamenn, sem inni lágu. Svo hefur verið reiknað, að á þessum þrem árum, hafi fallið 9 þúsund manns. Anno 1605. Vetur harður. Kom is. Hann fórfyrir austan land, rak allt um kring að austan og sunnan ofan fyrir Grindavik um vorver- tiðarlok. Anno 1610. Vetur harður og langhriðasamur. Kom fjúk á einmánuði á Geirþrúðardag. Þá urðu margir menn úti með fé sinu i Miðfirði, einnig 14 menn i Borg- arfirði. Ógurlegt fjártjón um all- ar þessar sveitir og viðar. Anno 1612. Kom is. Harðindaár mikið. Hróflaðist um sauðfé mjög svo. Jarðfellis ógangur i Austurdölum i Skagafirði. Eyddust nær 2 bæir. Hlupu fram yfrið miklir skógar. Rak af þeim viði ofan i Hólm og viðar um Skagafjörö, þvi að Hér- aðsvötn stemmdi uppi. Ekki verður Skarðsárannáll rakinn hér lengra, en svona er þá upphaf 17. aldar, og fjölmörg ár eru það, sem greina frá fjárfelli og i kjölfar hans stórfelldur manndauði. Arið 1695 er þessa frásögn að finna: 1 ár komst hafis vestur á móts við Þorlákshöfn litlu fyrir sumar, og sunnudaginn fyrstan I sumri rak hann fyrir Reykjanes og Garðskaga og inn á fiskileitir Sel- tirninga. Ekki var Isbreiðan þó meiri en svo, að út yfir hana sást af fjöllum, og kaupförin, sem til landsins voru komin á sveimi úti fyrir. Isinn, sem inn á Faxaflóa koms, fyllti vikur og voga, svo að gengt var frá Akranesi I kaup- staðinn i Hólminum. Þessi is hvarf ekki, fyrr en um vertiöar- lok; Fyrir Vestfjörðum öllum var ein Isbreiða og komst hann nú suður fyrir Látraröst. Fyrir Noröurlandi lágu hafþök, sem hvergi sá út fyrir og lá þar fram um þing. Þessu fylgdi að vonum vorkuldar og grasleysi, og varð nú sums staðar taöan af túnunum svo smá, að hún tolldi ekki i reip- um, heldur varð að flytja hana i hærusekkjum. Arið 1696. Vetur hefur verið aftakaharður og er sagt, að ekki hafi verri vetur komið.siðan 1633. Peningur hefur nálega gerfallið um land allt. Manndauði er orðinn af hungri og bjargarleysi i norðursýslum og viðar um land. Arið 1697. Enn dundi yfir hörkuvetur og er nú viða um land mikill manndauði. Meira en 80 menil eru dánir i Tré- kyllisvik. Yfir 50 i Rifi og þar i kring, tuttugu á Hellissandi, átta- tiu I Fljótum og Ólafsfirði, 70 i Svarfaðardal, 30 i Höfðahverfi. Að lokum er um ár þetta sagt, að bjargarleysið hafi veriö svo mik- ið, að jafnvel refurinn hafi orðið hungurmoröa. 1697 féll búpening- ur hrönnum saman og og jafnvel kúm var lógaö og mannfellir vegna hungurs. 1698. Manndauöi hefur orðið vegna bjargarskorts i Kelduhverfi, á Tjörnesi, Flateyj- ardal, Siglufirði, ólafsfirði, Fljót- um og á Skagaströnd og all víða vestra. 1 Trékyllisvik, Stein- grimsfirðU Bitru, Hrútafiröi og Króksfirði. Um árið 1700. Hallær- inuhnnirekkiogdeyr fólk um all- ar sveitir úr hor og vesöld. Flest óáta þykir nú gómsæt, hrossakjöt og hrafnar, þang og þönglar.gras og grúturog er yfirleitt ekki neitt það til, er tönn verður á fest, að fólk leggi sér þaö ekki til munns. Svona er þá’ hag þjóðarinnar komið I lok 17. aldarinnar og má segja, að sagan verði ekki rakin eftir öðru en harðsporum og hörmungum, fjárfelli og mann- dauða. Það verður ekki af neinu viti um það deilt, að það er kóln- andi veðurfar, sem fer með sauö- fjáreign landsmanna svo langt niöur, að fólkiö i landinu skortir bæði föt og fæði, en klæðlitlu og hungruðu fólki er erfiöara að afla sér viðurværis, en Nóbelskáldi og skógræktarstjóra að áfellast þaö fyrir ofnotkun lands, eyðingu skóga og bithaga. Arið 1703 er fjárfjöldi á öllu landinu aðeins 278.994 kindur eða að meðaltali 37.02 kindurá bónda. 1760 er fjárfjöldinn á bónda 54,48 kindur, en kemst niöur i 13,91 kind i Móðuharðindunum. Nokkrar likur eru á þvi, að veö- urfar hafi verið mildara á fyrri hluta 18. aldarinnar, eða liklegra nær að segja þolanlegra, vegna þess að einnig á fyrri hluta henn- ar koma ekki svofá ár, sem valda fjárfelli og manndauða. En þegar liða tekur á siðari hlutann, riður yfir þjóðina það mesta hörm- ungartimabil, sem um getur, og að afloknum Skaftáreldum liggur nærri, að þjóðin liði hreinlega undir lok, enda er þá rætt um aö flytja alla Islendinga suður á Jót- landsheiðar. En þaö er fleira en harðindi og heyleysi, sem höggva skarö i bú- smalann. Fjárkláði berst til landsins og verður að einni verstu plágu, sem um getur i sögunni. Bráðafár i sauöfé kemur fram á Vestfjörðum og breiöist þaðan út til annarra landshiuta og veldur bændum oft þungum búsifjum, allt fram til þess tima, að Dung- als-bóluefni kemur til sögunnar á árunum milli 1930—40. Fjáreign landsmanna er við lok 18. aldar i þvi lágmarki, að hún hefur aldrei fariö neðar, nema að afloknum Móðuharðindum. Ariö 1802 er fjárfjöldinn á öllu landinu aðeins 153.000 kindur. Verulegur hluti fjáreignarinnar kemur auðvitað á þá bændur, sem búa i góðsveitum landsins. En Hákoni Bjarnasyni og öðrum þeim, sem halda þvi fram, að sauðféð hafi eyðilagt landið, ætla ég að færa sönnur á það, að of margar sauðarklaufir á heiðarbýlum og harðbýlustu hér- uðum landsins hafi troðið gras- svörðinn niður i svað eða sand. Það er að sjálfsögðu freistandi aö rekja hér betur, en gert hefur verið sögu 18. aldar, en vegna þess, hvað það tæki langa frá- sögu, verður þvi sleppt að þessu sinni. Ef athugaö er um sauðf jár- fjölda landsmanna á þessari öld, að meðaltalið er um 231.300 fjár ogerþágengiöút frá,að tala býla sé sú, sem þeir hvor i sinu lagi gefa upp, Skúli Magnússon og Magnús Ketilsson.er hún 6235 býli. Þá eru aö meðaltali 34,83 kindur á býli, e.m.ö.o., landið er þvi nær friöaö frá allri sauðfjár- beit um þvi nær tveggja alda skeið. Það er þvi sjálfsögð krafa á hendur ofbeitarmönnum aö færa sönnur á, að landið hafi gróið upp á þessu timabili, en ekki gengið úr sér. Um 19. öldina skal ég vera fá- orður, enda þótt hún sé um margt merkileg, einkum um þá andlegu vakningu, sem þá kemur fram á sviði bókmennta og vaxandi fé- lagshyggju. Þrátt fyrir þaö að veðurfar sýnist hafa verið þolan- legra framan af 19. öldinni, en á þeirri 18., verður lifsafkoma þjóðarinnar ekki neinn dans á rósum og kemur það til af mörg- um ástæðum, sem hér verður ekki rætt um. Þegar kemur fram um 1860, kólnar mjög i veðri og rekur nú hvert hafisárið annað, en þeim fylgir harðir vetur og köld vor og þar af leiðandi gras- leysi og heyleysi, hungur á fólki og fjárfellir. Það er ekki auðvelt að gera sér fulla grein fyrir þvi, hver hefur verið fjárfjölih á meö- albýli yfir alla öldina, en tæplega hefur það verið mikið yfir 50—60 kindur. 1 Búnaðarsögu Gunnars Bjarnasonar er sagt, að 1890 hafi sauöfjárfjöldi á meðalbýli aðeins verið 80 f jár. Það gefur þvi auga leið, að fátt hefur verið hjá fátæk- ustu bændunum, og afrakstur búsins engan veginn dugað til framfæris fjölskyldna þeirra. Þaö er af völdum harðæris i land- inu, á siðustu tugum 19. aldar og fyrsta tug 20. aldar, að flótti brestur i liðið og hópum saman hörfar fólkið vestur um haf. 1 jaröabók Arna Magnússonar og Páls Vidalins er sums staðar get- ið um blásturssand og hafa jarðir verið felldar i mati af þeim sök- um, en hvað viðáttumikil svæði hér er um að ræöa verður ekki séð. Hitt vitum við með vissu, að siðan hafa stórar lendur orðið sandágangi að bráð og sumt af þvier hægt að timasetja. Ef flogið er frá Gunnarsholti upp Rangár- velli og eftir Landsveit, hlýtur hver sá, sem ekki er annað hvort eftirtektarlaus eða blindur að sjá, hvað sorglega litill sá hluti er, sem gróðri er hulinn á móti öllum þeim stóru flæmum, sem upp hef- ur blásið. Mér er skylt að gera saman- burð á þvi, hver beitarþungi hefur hvilt á hverri flatareiningu á fjár- leysisárum 17., 18. og 19. aldar, og þeirri framleiöslu, sem er stað- reynd i dag á okkar óskemmda landi. Það mun ekki fjarri sanni að áætla, að þar sem 10 kindur ganga nú, hafi ein veriö áöur, og sé ég þó hvergi votta fyrir uþp- blæstri lands heima við bæi eða fjárhús. Ef beit væri aöalorsök fyrir uppblæstri landsins, hlyti að vera hægt að sýna fram á það, aö upptak áfoksgeiranna mætti rekja þangað, sem beitarþunginn er og hefur verið alla tið mestur, en það er heim aö bæjum og næsta nágrenni við þá. Þar var beit fyrir allan málnytjupening- inn, og meðan fært var frá, var ánum haldið nærri bæjum jafnvel á þjóðveldisöld. Meöan haft var i seli, hefur ekki verið farið langt aö heiman. Á það benda öll bæjarnöfn, sem kennd eru við sel, og þau eru ekki upp til fjalla eða heiöa. Léttir á beitarþunga heimalandsins hefur þvi af þess- um ástæðum aldrei verið annað en mjög óverulegur. Ofbeitarmenn verða að sanna eða éta ofan i sig allt sitt þvaður og f ullyrðingar um þaö, að eyðing lands sé búsetunni i landinu að kenna. Þvi er nú mikið haldið á lofti, að afréttir séu og hafi verið ofbeittir og af þvi stafi sá upp- blástur, sem þar um ræðir. En hafa skyldu menn það i huga, aö allt fram á þessa öld, var allt land ógirt og búsmalinn færði sig til að mestu óhindrað. Eðli og hættir búsmalans eru aðfæra sig af þvi landi, sem hann hefur gengið á, löngu áður en þar hefur veriö nagað i rót niður og leitar á þá staði, sem betri haga hafa upp á að bjóöa. Þá skal einnig á það bent, að beitartimi á afréttum er og hefur alla tið verið stuttur, en að sjálfsögðu mismunandi eftir árferöi. Féð hörfar af afréttinum i stórhópum við fyrstu snjóa á fjölloghefur þá dvalið á afréttin- um um 2 mánuði eða litið þar fram yiir. Ég hef hér minnt á nokkra þá þætti, sem valdið hafa eyðingu gróöurs á tslandi, en þar er um svo mikið mál aö ræða, að efni væri i margar bækur. Þeir menn, sem halda þvi fram, að búsetan i landinu hafi eytt gróðri og veður- fariö hafi litil sem engin áhrif á gróðurbúskapinn, er að sjálf- sögðu ekki of gott að auglýsa fá- fræði sina frammi fyrir alþjóð, en þeirra sjálfra vegna færi bezt á þvi að hætta slikumáróðri. Ef þeir halda honum áfram, er það rétt hjá Halldóri Pálssyni, búnaðar- málastjóra, aðþeim berað svara. Allur sá áróður, sem rekinn hefur verið gegn islenzkum landbúnaði mörg undanfarin ár, er þjóðinni hættulegur og ógnar framtið hennar. Islendingar mega ekki gleyma þvi á sveimi til sólar- landa eða annarra þjóðlanda, að á Islandi verður þjóðin að lifa og við þau gæði, sem landið hefur upp á að bjóða. Hér er hægt að lifa góðu lifi, ,,ef þjóðin hefur vit og vilja, vöðvastyrk og sálarþrótt.”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.