Tíminn - 07.04.1976, Side 2

Tíminn - 07.04.1976, Side 2
2 TÍMINN Miövikudagur 7. apríl 1976. Aðalfundur Samvinnubankans: Innlánsaukning á sl. ári 37,7% Tekjuafgangur varð 45,2 millj. kr. reikningum voru 774.4 millj. kr. og jukustum 262.8 millj. kr. eða 51.4%. ÚTLÁN Heildarútlán Samvinnubank- ans námu i árslok 1975 2719.2 millj. kr. samanborið við 2119.4 millj. kr. i upphafi árs. Aukningin á árinu varð þvi 599.8 milij. kr. eða 28.3%. Árið 1974 jukust útlán um 521.8 millj. kr. eða 32.6%. Skipting útlána eftir útlána- formum var sem hér segir i árs- lok 1975: Vixillán 37.4%, yfir- dráttarlán 30.8%, verðbréfalán 27.1% og afurðalán 4.7%. STOFNLÁNADEILD Frá 1972 hefur verið starfrækt við bankann stofnlánadeild, sem hefur það hlutverk að lána til uppbyggingar verzlunar- rekstursins innan samvinnu- hreyfingarinnar. Deildin afgreiddi á árinu 7 ný lán að fjárhæð 36.0 millj. kr., en tvö lán að upphæð 12.0miilj. kr. voru óafgreidd lim áramót. Hefur deildin þvi frá stofnun af- greitt 19 lán að upphæö 78.4 milij. kr. Á árinu aflaði deildin sér 25.0 millj. kr. láns hjá Framkvæmdasjóði Islands, einnig lánaði Lifeyrissjóður SIS deildinni I4.0millj.kr., auk þess sem Samvinnubankinn lagði henni til eins og áður 5.0 millj. kr. stofnframlag. STAÐAN GAGNVART SEÐLABANKA 1 árslok 1975 var innstæða á viðskiptareikningi við Seðla- bankann 12.3 millj. kr. Innéign á bundnum reikningi vegna bindiskyldu var i árslok orðin 765.0 millj. kr., sem er ársaukning að upphæð 259.5 millj. kr. Innstæður i Seðla- bankanum námu þvi samtals i árslok 1975 777.3 millj. kr. TEKJUAFGANGUR Rekstursafkoma bankans varðhagstæðari en nokkru sinni fyrr. Tekjuafgangur til ráð- stöfunar nam 45.2 millj. kr., samanborið við 43.7 millj. kr. árið 1974. Til afskrifta var varið 7.2 millj. kr., i varasjóð voru lagðar 20.0 millj. kr. og i aðra sjóði 18.0 millj. kr. Eigiö fé bankans nam i árslok 201.1 millj. kr. Aðalfundur samþykkti að greiða hluthöfum 13.0% arð fyrir árið 1975. AIR VIKING 1 skýrslu bankastjóra kom fram, að almennar kröfur Sam- vinnubankans i þrotabú Air Vik- ing næmu nú um 30 millj. kr., en af þeirri upphæð hefði bankinn öruggar tryggingar fyrir 15. millj. kr., auk persónulegra ábyrgða. Að þessum ábyrgðum yrði þó ekki gengið, fyrr en upp- gjöri þrotabúsins lyki. Samkvæmt þeim upplýsing- um, sem nú lægju fyrir, mætti gera ráð fyrir, að tap bankans vegna ábyrgðarinnar, sem hann var i vegna flugvélakaupa Air Viking, gæti orðið milli 5 og 10 millj. kr. STJÓRNARKJÖR Endurkjörnir voru i bankaráð þeir Erlendur Einarsson for- stjóri, Hjörtur Hjartar frkvstj. og Vilhjálmur Jónsson frkvstj. Til vara voru kjörnir Hallgrim- ur Sigurðsson frkvstj. Hjalti Pálsson frkvstj. og Ingólfur Ólafsson kfstj. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Óskar Jóna- tansson aðalbókari og Magnús Kristjánsson, fyrrv. kfstj., en Asgeir G. Jóhannesson er skipaður af ráðherra. Aðalfundur Samvinnubank- ans var haldinn að Hótel Sögu laugardaginn 3. april sj. Fundarstjóri var kjörinn Ragnar Ólafsson hrl., en fundarritari Einar S. Einarsson aðalbókari. Formaður bankaráðs, Erlendur Einarsson forstjóri, l'lutti skýrslu um starfsemi bankans á s.l. ári og rakti nokk- uð fjármálaþróunina almennt séð. Kom þar ineöal annars fram, að þróun peningamála hjá innlánsstofnunum á Iiðnu ári hefði verið mun hagstæðari, þegar á heildina væri litið, en á árinu 1974. Ileildarinnlán inn- lánsstofnana hefðu aukizt á ár- inu um 29.1%. Samsvarandi aukning 1974 var 26.3%. Útlán innlánsstofnana i heild jukust um 26.0%, sem er um það bil helmingi minni aukning en árið áöur, þá var hún 49.0%. Lausa- fjárstaða innlánsstofnana gagn- vart Seðlabanka batnaöi einnig verulega á árinu. Þessu næst vék Erlendur að starfsemi Samvinnubankans. Arið 1975, sem var 13. starfsár bankans, var eitt hagstæðasta ár i sögu hans. Innlánsaukn. var hlutfallslega með þeim hærri frá upphafi og sú mesta i krónutölu. Tekjuafgangur fyrir afskriftir var hærri en nokkru sinni fyrr og mikill vöxtur í öll- um viöskiptum. Hagur bankans stendur þvi traustum fótum. FRAMKVÆMDIR Lokið var á árinu fram- kvæmdum við viðbótarbygg- ingu bankans og endurbótum á eldra húsnæði hans að Banka- stræti 7. Tilkoma hins nýja húsnæðis gerði það að verkum, að hægt var að sameina alla af- greiðslu á eina hæð til mikils hagræðis fyrir alla aðila. Þá gat Samvinnubankinn nú I fyrsta sinn á s.l. ári boðið viðskipta- vinum sinum bankahólf til leigu, en mjög brýnt var orðið fyrir hann að geta veitt þessa þjónustu. A árinu voru einnig hafnar framkvæmdir við byggingu húsnæðis fyrir útibúið i Hafnar- firði og umboðið á Stöðvarfirði, en húsnæðisþrengsli hafa staðið vexti og þjónustu þeirra fyrir þrifum, þannig að úrbóta var brýn þörf. Loks festi bankinn kaup á húsnæði þvi við Háaleitisbraut, sem samnefnt útibú hefur frá upphafi starfað i. HEILDARVELTA Eins og áður sagði var mikil gróska i öllu starfi bankans. T.d. nam heildarvelta hans á árinu 81 milljarði og óx á árinu um 47.3%. Færslu- og af- greiðslufjöldi fór vaxandi og nam rúmlega 1.6 milljón og hafði vaxið um 15.8% f.f. ári. 1 árslok var fjöldi viðskiptareikn- inga orðinn 44.462 og hafði fjölg- að um 3276 eða 8.0%. A s.l. ári tók Reiknistofa bankanna eins og kunnugt er til starfa, og er henni ætlað að ann- ast alla vélræna vinnslu fyrir bankakerfið i heild. Af þessari ástæöu yfirfærði Samvinnu- bankinn seint á s.l. ári hluta af tölvuvinnslu sinni frá Skýrslu- véladeild Sambandsins til Reiknistofunnar, þ.e.a.s. út- skrift ávisana- og hlaupareikn- inga. Fjöldi starfsmanna við Sam- vinnubankann var i árslok 105. Skiptist hann þannig milli kynja : 58 konur, 47 karlar. Þess ber að gæta, að umboðsstörf bankans fyrir Samvinnu- tryggingar og Andvöku auka starfsmannafjöldann verulega. ÚTIBÚ Samvinnubankinn rak eins og áður 10 útibú úti á landi og eitt i Reykjavík. Auk þess starfrækir bankinn tvær umboðsskrifstof- ur, þ.e. á Stöðvarfirði og Króks- fjarðarnesi. Atta útibúanna hafa auk bankastarfseminnar á hendi umboðsstörf fyrir Sam- vinnutryggingar og Andvöku. Bankinn hefur nýlega fengið leyfi yfirvalda til að hefja starf- rækslu útibús á Egilsstöðum, sem mun ínnan tiðar byrja starfsemi sina. Frá aðalfundi Samvinnubankans á laugardag Erlendur Einarsson forstjóri. Kristleifur Jónsson bankastjóri. INNLÁN Kristleifur Jónsson, banka- stjóri lagði siðan fram endur- skoðaða reikninga bankans og skýrði einstaka þætti þeirra. Heildarinnlán bankans námu 3577.5 millj. kr. i lok árs 1975, en 2597.8 millj. kr. árið áður, og höfðu þvi hækkað um um 979.7 millj. kr. eða 37.7%. Samsvar- andi aukning fyrir árið 1974 var 625.3 millj. kr. eða 31.7%. Þar sem innlánsaukning bankans var nokkru yfir meðal- talsaukningu viðskiptabank- anna i heild, hækkaði hlutadeild hans i heildarinnstæðum þeirra úr 8.0% i 8.5%. Innlán i árslok 1975 skiptust þannig, að spariinnlán námu 2803.1 millj. kr. eða 78.4% af heildarinnlánum á móti 80.3% 1974. Aukning þeirra varð þvi 716.9 millj. kr. eða 34.4%. Velti- innlán eða innstæður á tékka-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.