Tíminn - 07.04.1976, Síða 6
6
TÍMINN
Miðvikudagur 7. aprfl 1976.
Gunnor Thoroddsen orkumálaráðherra:
Orkuskorturinn á Norðurlandi
gerir nauðsynlegt, að Kröflu-
virkjun komist í gagnið sem fyrst
l gær gaf Gunnar Thoroddsen
o r k u m á 1 a r á ð h e r r a AI þi n g i
skýrsiu uin Kröfluvirkjun. i upp-
hafi ræðu sinnar rakti ráöherrann
aðdraganda jarðgufuvirkjunar
við Kröflu, en samkvæint lögum
frá 10. april 1971 var ríkisstjórn-
inni heimilað að fela væntanlegri
Norðurlandsvirkjun eða öðrum
aðila að reisa jarðgufuaflsstöö
allt að 55 MW.
Kröflunefnd var skipuð 1974 til
að undirbúa virkjunina. Það var i
verkahring nefndarinnar að sjá
um byggingu stöðvarhúss og
kaup á vélaútbúnaði. Orkustofn-
un hal'ði með höndum rannsóknir
á jarðhitasvæðinu, borun vinnslu-
hola og virkjun þeirra.
Rafmagnsveitur rikisins unnu
hins vegar að undirbúningi og
hönnum háspennulinu frá Kröflu
til Akureyrar og tengingu þeirrar
linu á Akureyri.
Þá skýrði Gunnar Thoroddsen
orkumálaráðherra frá
rannsóknarborunum siðla árs
1974, sem voru íramhald
rannsókna á árunum 1970-73.
Niðurstaða þeirra rannsókna
varð sú, samkvæmt skyrslu
Orkustofnunar. að Kröflusvæðið
stæði undir 50-60 MW gufuvirkj-
un.
Orkumálaráðherra sagði, að
með tilliti til hins mikla orku-
skorts, sem verið hefði á Norður-
landi undanfarin ár, hefði verið
ákveðiö að hraða byggingu
virkjunarinnar. og i april 1975
hefði veriðsamið um kaup á aðal-
vélum virkjunarinnar 2x30 MW
frá japönsku fyrirtæki.
1 framhaldi af þvi ræddi orku-
málaráðherra um horfur i sam-
bandi við Kröfluvirkjun og þær
hugmyndir. að fresta virkjuninni.
Hann sagði:
Eldgosiö i Leirhnjúk og
jarðskjálftahrina sam-
fara þvi.
..Hinn 20. desember 1975 braust
út eldgos i Leirhnjúk.
Jafnframt upphófst mikil jarð-
skjálftahrina. Náði sú hrina
hámarki siðari hiuta janúar, en
upp úr mánaðamótum janú-
ar/febrúar fór smátt og smátt að
draga úr jarðskjálftunum.
Til skýringarskal þess getið, að
um miðjan janúar voru skjálftar
stærri en 3 á Richterskvarða um
50 á viku.
Um mánaðamótin janú-
ar/febrúar voru skjálftar af sömu
stærð um 40 á viku.
Um miðjan febrúar voru ekki
nema u.þ.b. 5 slikir skjálftar á
viku.
Siðan 18. febrúar hefur, sam-
kvæmt upplýsingum frá
Raunvisindastofnun Háskólans,
enginn jarðskjálfti með styrk-
leika 3 eða meira fundist á
Kröflusvæðinu.
Hinn 19. janúar s.l. rituðu 4 sér-
fræðingar i jarðvisindum við
Raunvisindastofnun Háskólans
iðnaðarráðherra bréf, þar sem
þeir telja að meðan jarðskjálfta-
hrinan sem hófst 20. desember
1975 stendur yfir telji þeir óráð-
legt að halda áfram framkvæmd-
um við Kröfluvirkjun öðrum en
þeim, sem stuðla að verndun
þeirra mannvirkja sem þegar
hefur verið fjárfest i.
Með hliösjón af þvi sem að
framan greinir má gera ráð íyrir
að jarðskjálftahrina sú sem hófst
um s.l. áramót sé liðin hjá.
Rétt er að geta þess, að
smásk jálftar, þ.e.a.s. skjálftar
minni en 3 að styrkleika hafa
fundist á Kröflusvæðinu siðan á
miðju sumri 1975 og finnast enn.
Miðað við núverandi aöstæður
eru viðhorf Orkustofnunar og
Kröflunefndar þau, að rétt sé að
halda áfram óbreyttri fram-
kvæmdaáætlun.
Viðhorf Orkustofnunar kemur
fram i bréfi til ráðuneytisins, þar
sem segir m.a.:
,,Nú hefur dregið úr jarð-
skjálftavirkni við Kröflu. Hafa nú
upp á siðkastið ekki komið stærri
skjálftar en i fyrrasumar og
haust, meðan boranir stóðu þar
yfir. Skjálftar af þeirri stærð
valda ekki vandkvæðum við
boranir og verður borinn þvi
sendur að Kröflu að núverandi
aðstæðum þar óbreyttum, þegar
borun við Laugaland lýkur."
Vegna náttúruham fara gæti
fyrstog fremst verið um hættu af
völdum jarðskjálfta og hugsan-
legs eldgoss að ræða. Sú hætta er
ávallt að vissu marki I vrir hendi.
þegar um er að ræða mannvirki á
hinu virka eldgosabelti landsins.
Jarðskjálftar
Það er álit visindamanna eins
ogáðurvar sagt að jarðskjálfta-
hrina sú sem hófst l'yrir alvöru
með eldgosinu sé liðin hjá.
Hugsanlegt sé hins vegar að hún
geti hafist að nýju, en ómögulegt
sé nú um þaö að segja á þessu
stigi.
Áhrif jaröskjálfta á mannvirki
virkjunarinnar hafa verið athug-
uð af séríræðingum.
Stöðvarhúsið, svo og önnur
byggingarm annvirki Kröflu-
virkjunar, er reiknað fyrir jarð-
skjálftaáraun, sem nemur 220
cm/sek 2. Hér erum að ræða tvö-
falt meiri kröfur um styrkleika
mannvirkja, heldur en gerðar eru
nú til bygginga á höfuðborgar-
svæðinu.
Þetta samsvarar 20% þyngdar
og væri sambærilegt við þá
áraun, sem mætti búast við i jarð-
skjálfta af stærð 7 (Richter), er
ætti upptök sín i námunda við
stöðvarhúsið. Ekki er talið lik-
legt, að svo stór jarðskjálfti geti
átt sér stað á Kröflusvæðinu. Þvi
veldur jarðhitinn, en einmitt hinn
mikli hiti i jarðskorpunni á þess-
um stað hindrar, aö mikil spenna
geti safnast saman i skorpunni.
Stórir jarðskjálftar gætu hins
vegar komið i norðurenda
sprungusveimsins, þar sem ekki
gætir jarðhita i miklum mæli.
Ollum tækjum i Kröfluvirkjun
(aflvélum, rafbúnaði og öðrum
tækjum) verður komið fyrir með
tilliti til jarðskjálftaáraunar,
hinnar sömu og áður er getið þ.e.
7 stig (Richter). Er sérstaklega
gengið frá öllum festingum og
undirstöðú allra véla og tækja
með tilliti til þessarar áraunar.
Fram hefur komið sú spurning
hvort steypuvinna sé fram-
kvæmanleg, einkum mikilvægir
hlutir svo sem aflvélaundirstöð-
ur, á meðan búast má við jarð-
skj álftum.
Að athuguðu máli verður að
telja, að engin sérstök áhætta sé
þessu samfara, og steypuvinna
þurfi af þessum sökum ekki að
tefjast.
Er hér stuðst við athuganir á
þessu atriði sem gerðar hafa ver-
ið i Japan við likar aðstæður.
Þá hafa sérfræðingar og athug-
að áhrif jarðskjálfta á borun og
mannvirki gufuveitu.
Nokkrir skjálftar af styrkleika
um 4á Richterkvarða áttu upptök
sin á Kröflusvæðinu meðan borun
stóð þar yfir sumarið 1975. Bor-
menn urðu þeirra litt varir og
höfðu skjálftarnir engin merkjan-
lega áhrif á borunina, þótt upp-
tökin væru nærri bornum. Ekki er
talið aö borholum stafi hætta af
jarðsk jálftum.
Oliklegt er, að lögn gufuleiðslu
frá borholum að stöðvarhúsi þurfi
að tefjast þótt einhver skjálfta-
virkni verði á svæöinu. Alita
verður, að leiðslunum sjállum sé
litil hætta búin i jarðskjálftum
vegna þess sveigjanleika, sem er
i sliku mannvirki.
Ekki er talið að háspennulinu
stafi teljandi hættn af jaröskjálft-
um enda liggur hún að megin-
hluta utan svæðisins.
Eldgos, hraunvarnir
Með hliðsjón af fyrri viðburðum
i Mývatnseldum er ekki taliö úti-
lokað að eldgos gæti hafist að
nýju. Allar spár i þessu efni eru
vitanlega mjög erfiðar. Ef til
sliks kæmi er talið liklegast að
það yrði á hinu virka sprungu-
svæði frá Bjarnarflagi norður
Guiiiiar Tlioroddsen.
fyrir Leirhnjúk, en mannvirki
Kröfluvirkjunar i Hliðardal og
borholusvæðið liggja nokkuð
austan við hið virka sprungu-
svæði.
An þess að talin séu mikil lik-
indi fyrir sliku gosi kemur til
greina að gerðir verði varnar-
garðar á tveim stöðum til þess að
bægja frá þeirri hættu að hraun
renni um ofanverðan Hliðardal.
Horfur um gufuöflun
Eins og aður er fram tekið er
gerl ráð fyrir að bora 4 holur á
svæöinu sumarið 1976. Er þar lýst
nánar tilhögun þeirrar borunar.
Alltaf er nokkur óvissa i sam-
bandivið gufuboranir. Rannsóknir
hafa hinsvegar sýnt að næg orka
er fyrir hendi á Kröflusvæðinu.
Framkvæmdaáætlunin tekur mið
af þvi að næg gufa veröi tiltæk á
þessu ári fyrir fyrri vélasam-
stæðuna méð fullum afköstum en
það eru 30 MW. Fari hinsvegar
svo mót von aö ekki hafi fyrir árs-
lok náðst þetta gufumagn að fullu
er unnt að reka stöðina i upphafi
með minna afli.
Enda þótt horfið yrði að þvi ráði
að fresta virkjuninni i eitt ár
hniga öll rök að þvi að gufuborun-
um yrði haldið áfram samkvæmt
upphaflegri áætlun.
Fjárhagsleg atriði
Búið er að reisa mannvirki,
festa kaup á vélum og búnaði og
gera samninga um marga þætti
virkjunarinnar og mun þegar
varið til Kröfluvirkjunar nokkru
á annan milljarð króna.
Eins og fram kemur af þvi sem
rakið hefur verið gefa náttúru-
hamfarirnar i vetur ekki tilefni til
að fresta virkjuninni. Samt sem
áður verður hér gerð grein fyrir
þvi, hvaða útgjöldum væri
hugsanlegt að fresta i ár, ef ekki
ætti að koma virkjuninni i gang
fyrr en siðla árs 1977.
Samkvæmt lánsf járskýrslu
fyrir árið 1976 er áætlað fé til
framkvæmda á vegum Kröflu-
nefndar 1778 millj. kr.
Verkfræðistofa Sigurðar
Thoroddsen telur að unnt væri að
fresta uppsetningu tækja og
búnaðar, byggingaframkvæmd-
um og tengdum liðum að fjárhæð
356 millj. kr.
Að þvi er tekur til gufuveitunn-
ar telja ráðgjafaverkfræðingar
Orkustofnunar að hægt sé að
fresta til ársins 1977 útgjöldum að
upphæð 153 millj. kr.
Framkvæmdir við gufuboranir
á svæðinu voru i framkvæmda-
áætlun árið 1976 að upphæð 280
millj. kr.
Enda þótt horfið yrði að þvi ráði
að fresta framkvæmdum við
sjálfa Kröfluvirkjun og gufuveitu
i eitt ár, er ekki fært að fresta
borunum eftir gufu á svæðinu.
Kostnaöur við háspennulinu frá
Kröflu til Akureyrar á árinu 1976
er áætlaður 515 millj. kr.
Fest hafa verið kaup á efni til
linunnar. Nema þau vörukaup
samtals um 300 millj. kr. Ef um
frestun Kröfluframkvæmda um
eitt ár væri að ræða yrði lækkun
útgjalda um 215 millj. kr., sem er
kostnaður við lagningu linunnar.
Yfirlit yfir hugsanlega
fjármagnsfrestun 1976
Hér á eftir fer framkvæmda-
áætlun fyrir 1976 og hugsanlega
fjármagnsfrestun i siðari dálkn-
um:
Framkvæmdir
Kröflunefndar 2778 356
Gufuveita 450 153
Gufuborun 280 0
Háspennulina 515 215
4023 724
Aukinn kostnaður vegna
frestunar
Frestun Kröfluvirkjunar mundi
hins vegar hafa m.a. eftirfarandi
annmarka i för með sér:
a) Gera verður ráð fyrir að
kostnaður við framkvæmd
þeirra verkþátta, sem frestað
yrði til næsta árs mundi hækka
um a.m.k. 20%.
b) Vextir á byggingatima mundu
hækka sem svarar ársvöxtum
af fjárfestingunni.
c) Verulegt tekjutap vegna
seinkaðrar gangsetningar.
d) Gjaldeyriseyðsla vegna disel-
orkuvinnslu.
Orkuskortur á Norður-
landi og orkumarkaður
Það er kunnara en frá þurfi að
segja að Norðurland hefur búið
við tilfinnanlegan orkuskort að
undanförnu.
Hefur hann m.a. komið fram i
þvi að siðustu árin hefur þurft að
neita fjölda umsókna um húshit-
un á þessu svæöi, og þegar alvar-
legar truflanir hafa komið i Lax-
árvirkjun hefur stundum rikt
neyðarástand á þessu orku-
veitusvæði.
Orkuskortur hefur staðið iðnaði
mjög fyrirþrifum. Þurft hefur að
gripa til mikillar diselorku-
vinnslu með ærnum tilkostnaði.
Siðustu mánuði ársins 1975 var
álag diselvéla að degi til nokkuð
stöðugt á bilinu 10-12 MW. Frá
áramótum s.l. hefur orkufram-
leiðsla með diselvélum verið tvö-
falt meiri, en á sama tima á s.l.
ári, þrátt fyrir það að engar telj-
andi rekstrartruflanir hafi átt sér
stað vegna istruflana i Laxá.
Vitað er að m jög vaxandi áhugi
er á Norðurlandi á aukinni raf-
orkunotkun. Sem dæmi má nefna
að Samband isl. samvinnufélaga
hefúr leitað eftir kaupum á 10-12
MW viðbótarafli fyrir iðnfyrir-
tæki sin á Akureyri. Þá hefur
KEA leitað eftir möguleikum á
raforkukaupum til hinnar nýju
mjólkurstöðvar, 8-10 MW, breyti-
legt eftir árstima.
Einnig er áhugi á aukinni raf-
orkunotkun til iðnaðar á öðrum
stöðum norðanlands svo sem
Húsavik, Sauðárkróki og Blöndu-
ósi. Gæti þar verið um 5-6 MW
aflþörf að ræða.
Hér er i flestum tilfellum um að
ræða val milli innlendra orku-
gjafa og oliunotkunar.
Það gefur auga leið að skipa
þarf málum á þann veg að hinn
innlendi orkugjafi verði fyrir val-
inu. Til þess að svo megi verða,
þarf að stefna að þvi að nægileg
raforka verði fyrir hendi norðan-
lands þegar á næsta vetri.
Orkuvinnsla á Norðurlandi öllu,
að undanskildu Skeiðfoss-
virkjunarsvæðinu, nam s.l. þrjú
ár sem hér segir:
Ár Heildar Þaraf
orkuvinnsla diselorka
1973 171Gwst 32Gwst
1974 181 Gwst 16 Gwst
1975 201 Gwst 18,6”
A árinu 1977 má gera ráð fyrir
að orkuþörfin verði ekki undir
280-300 Gwst.
Miðað við þessa orkuþörf og
erfiðar aðstæður i Laxá, gæti
þörfin á diselorkuvinnslu numið
allt að 70 Gwst á þvi ári og er þá
m.a. höfð hliðsjón af þvi að 1973
þurfti að framleiða 32 Gwst i
diselstöðvum.
Þegar hafðar eru i huga tiðar
truflanir i Laxá verður diselorku-
vinnslu varla útrýmt og aukinni
eftirspurn fullnægt nema Kröflu-
virkjun taki til starfa svo fljótt
sem veröa má, þvi að jafnvel þó
kleift yrði að flytja um Norður-
linu allt að 8 MW leysir það ekki
vandann nema að hlula til.
P.étt er að taka fram að heimild
er i lögum um Kröfluvirkjun fyrir
lagningu stofnlina til Austurlands
og unnið cr að undirbúningi þeirr-
ar linu.
Kostnaður við diesel-
framleiðslu og gjald-
eyriseyðsla
En til frekari skýringa á þvi
hvað i húfi er skal ég nefna hér
tölur um þá geigvænlegu gjald-
eyriseyðslu og fjáraustur i
diesel-framleiðslu sem framund-
an k’ynni að vera.
Samkvæmt upplýsingum frá
Rafmagnsveitum rikisins er
meðalframleiðslukostnaður á
kilóvattstund i dieselstöðvum um
13 krónur. Af þvi er erlendur
gjaldeyrir um tveir þriöju hlutar.
Verði ástandið þannig, að á næsta
ári þurfi að framleiða allt að 70
gigavattstundum i dieselstöðv-
um, mundi kostnaðurinn verða
um 900 milljónir króna, þar af er-
mffWlH
1111
■
III f(;