Tíminn - 07.04.1976, Side 13
MiOvikudagur 7. april 1976.
TÍMINN
13
A FLOTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall
26
—Þrjú brotin rifbein, læknir eitt hættulega nálægt
lunganu. Hún hélt myndunum upp framan við Mark,
sem lyfti þeim upp að Ijósinu.
— Og hvar er svo læknirinn á vakt? spurði hann stutt-
lega. — Hver á annars vaktina?
— Doktor Harwey, læknir — eða áttl að vera á vakt,
svaraði röntgenhjúkrunarkonan gremjulega.
— Hvað eigið þér við — átti að vera?
— Hann var kallaður út í neyðartilfelli, skaut Polly
Friar snöggt inn í.
— Jæja, en hvar er hann? Hvert ætlaði hann?
Polly hikaði og Myra tók eftir að það var ótti í augum
hennar. Hún leynir einhverju, hugsaði hún með sér. Var
hún að reyna að hylma yfir með David og þá hvers
vegna? David var ekkert nema samvizkusemin, þegar
starf ið var annars vegar, svo hvers vegna skyldi stúlkan
finna hjér sér hvöt til að verja hann?
— Ég....ég veit það ekki almennilega, læknir, byrj-
aði Polly óstyrk.— Ég á við, hvert hann ætlaði. En ég get
kannski komizt að því....
Myra trúði þessu ekki. Það var greinilegt að stúlkan
sagði ósatt og var að reyna að vinna tíma. Eitthvað var
ekki eins og það átti að vera og hún sá, hvað Polly létti,
þegar Mark sagði:
— Jæja, það er ekki tími til að hugsa um það núna, nú
er þörf á skjótum aðgerðum hér. Ég byrja sjálfur á að-
gerðinni, og svo getur verið að Harwey komi bráðlega.
Hefur skurðstofan verið látin vita?
— Ég sendi boð um leið og myndirnar komu úr fram-
köllun, upplýsti röntgenhjúkrunarkonan. — Við skulum
vona, að Harwey læknir komi aftur í tæka tið.
— Get ég ekki hjálpað? spurði Myra.
— Harwey er aðstoðarskurðlæknir, sagði Mark. —
Þetta er hans starf og ég er viss um að hann kemur bráð-
lega.
Hann yfirgaf deildina og gekk áleiðis að skurðstof-
unni. Hin fóru á eftir, en Myra greip í handlegginn á
Polly og dró hana afsíðis.
— Hvar er hann? hvislaði hún ákveðin.
— Æ, læknir, ég veit það ekki.
— Jú, þú veizt það. Segðu mér það — sannleikann!
Polly dró djúpt andann. — Hann hefur alls ekkert
komið á vaktina.
Myra starði á hana. — Ég trúi því ekki! David er ef til
vill ungur og ábyrgðarlaus utan sjúkrahússins, en hann
mundi aldrei svíkjast um í vinnunni.
— Ég veit það, læknir, sagði Polly í örvæntingu. — En
hann var ekki kominn, er Bailey læknir fór — hann
sagði að David hlyti að koma á hverri stundu, svo hann
þurfti ekki að bíða. Hann er líka vanur að vera stundvís
og það er sannarlega ekki líkt honum að gleyma, að hann
eigi að vera á vakt.
Myra ýtti við Pollý. — Reyndu að f inna hann, sagði hún
næstum skipandi. — Það stendur leigubíll fyrir utan —
taktu hann!
— Henderson, hvar ertu? heyrðist rödd Marks Lowell
kalla.
Myra flýtti sér inn í sótthreinsunarherbergið. Sam-
kvæmiskjóllinn hennar virtist hlægilegur á þessum stað.
— Hér, læknir, svaraði hún og hann leit vandræðalegur á
hana.
— Heldurðu, að þú getir aðstoðað? spurði hann.
— Auðvitað. Ég starfaði í tvö ár á skurðstof unni við
St. Bede's-sjúkrahúsið. Hún gat ekki stillt sig um að
minna hann á það og hún sá að það kom kímnisglampi í
augu hans andartak, en svo tók alvaran við aftur. —
Vertu tilbúin eins f Ijótt og þú getur, skipaði hann.
Hann fór inn í skurðstofuna og hún næstum svipti af
sér fyrirferðarmiklum kjólnum. Hjúkrunarkona hélt
uppi sótthreinsuðum slopp handa henni og önnur tók
kjólinn og hengdi hann varlega upp. Myra batt upp hárið
og setti hettuna yfir það, fjarlægði síðan naglalakkið,
þvóði hendur og handleggi vandlega og rétti fram til
hjúkrunarkonunnar, sem stóð tilbúin með hanzkana.
Síðan gríman, skórnir, nokkur skref — og hún stóð við
hlið Marks.
Jósep gamli var þegar kominn á skurðarborðið. Eter-
gríman huldi gamla, hrukkótta andlitið og eina hljóðið,
sem heyrðist, var andardráttur hans. Myra sá augu
Marks yfir grímuna, þau horfðu á manninn á borðinu
með meðaumkun.
Hjarta hennar tók svolftið viðbragð. Hver var hinn
rétti Mark Lowell, hugsaði hún — tilfinningasnauði,
ókunni maðurinn, sem setið hafði við hlið hennar í bíln-
um og hlýtt ósnortinn á dapurlega ástarsögu hennar, eða
maðurinn, sem nú stóð hér og horfði á gamlan, þreyttan
mrn
i
i
MIÐVIKUDAGUR
7. aprU
7.00 Morgunútvarp.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Sveins H. Skúlasonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir Guð-
rúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les (8).
15.00 Miðdegistónleikar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.10 Útvarpssaga barnanna:
Spjall um Indiána. Bryndis
V ig lundsdóttir heldur
áfram frásögn sinni (15).
17.30 Framburöarkennsla i
dönsku og frönsku.
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Úr atvinnulifinu.
Bergþór Konráðsson og
Brynjólfur Bjarnason
rekstrarhagfræðingar sjá
um þáttinn.
20.15 Kvöldvaka.
21.30 Útvarpsagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (14).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Lestur
Passiusálma (43).
22.25 Kvöldsagan: ,,Sá svarti
senuþjófur”, ævisaga
Haralds Björnssonar. Höf-
undurinn, Njörður P. Njarð-
vik, les (5).
22.45 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.30 Fréttir. Dagskrárlok.
Miðvikudagur
7. april
18.00 Mjási og Pjási. Tékk-
nesk teiknimynd. Þýðandi
Oskar Ingimarsson.
18.15 Robinson-fjölskyldan.
Breskur myndaflokkur
byggður á sögu eftir Johann
Wyss. 9. Þáttur. Hellir
tigrisdýrsins. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.40 Ante. Norskur mynda-
flokkur i sex þáttum um
samadrenginn Ante. 4.
Þáttur. Hirðingjalif. Þýð-
andi Jóhanna Jóhannsdótt-
ir.
Illé
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Nýjasta tækni og visindi.
— Miðstöð rannsókna á
skammtima fyrirbærum. —
Framfarir i stjörnufræði. —
Blóðsjúkdómar i hundum.
Umsjónarmaður örnólfur
Thorlacius.
21.05 Bilaleigan. Þýskur
myndaflokkur. Sildarlvkt
og ilmsápa. Þýðandi Briet
Héðinsdóttir.
21.30 Einleikur á pianó.Snorri
Sigfús Birgisson leikur
sónatinu eftir Maurice Rav-
el. Snorri Sigfús og Manuela
Wiesler tóku þátt i 7. tón-
listamóti NOMUS. sem
haldið var i Helsinki 28.—30.
janúar siðastliðinn. og
deildu fyrstu verðlaunum
með norskum og sænskum
listamönnum. Stjórn upp-
töku Andrés Indriðason.
21.40 Skákeinvigi i sjónvarps-
sal. Þriðja skák Friðriks
Ólafssonar og Guðmundar
Sigurjónssonar. Skýringar
Guðmundur Arnlaugsson.
22.10 Praumur um frið. Hol-
lensk heimildamynd um
daglegt lif barna i flótta-
ntannabúðum i Sýrlandi.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
22.35 Pagskrárlok.