Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 2
2 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR RANNSÓKN Neysla vímuefna á sér að miklu leyti stað í jafningjahóp- um meðal ungmenna. Þar læra þau hvert af öðru og þar getur almenn neysla orðið hluti af lífsstíl þeirra. Löggæsla og refsingar leysa aðeins lítinn hluta vandans en eftirlit for- eldra og gott samband þeirra við börnin sín minnka verulega líkur á að ungmenni leiðist út í fíkniefni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri skýrslu Lýðheilsu- stöðvar og Rannsókna & grein- ingar. Skýrslan var kynnt í gær en hún var gerð til að kortleggja neyslu áfengis og fíkniefna meðal ungmenna. Sérstaklega var litið til framhaldsskólanema við gerð skýrslunnar en þeir eru flestir á aldrinum sextán til tuttugu ára. Í skýrslunni kemur meðal ann- ars fram að allt að helmingur framhaldsskólanema sem orðnir eru tvítugir eða eldri hefur próf- að að reykja hass. Um er að ræða nemendur sem hefur seinkað í námi og geta skýrsluhöfundar sér þess til að þar liggi hluti skýr- ingarinnar. Hlutfall þeirra sem reykja tóbak er einnig mun hærra í hópi eldri nemenda. Bjór er vinsælasta áfengið í þessum aldurshópi og kemur sterkt áfengi þar á eftir. Minna er drukkið af léttvíni. Þá hafði yfir helmingur allra framhaldsskólanema orðið drukk- inn árið 2004 síðustu þrjátíu dagana áður en rannsóknin var gerð. - aöe METS.LISTI EYMUNDSSON 9. nóv. ������������� ����������� ����������� ������������� ����������� ���������������� ������� ����������������� ������������������ � ������������������������������� SPURNING DAGSINS Sigrún, fórstu í Ríkið í gær? „Nei, ætli ég bíði ekki með allt slíkt að minnsta kosti þangað til ég er búin í prófum.“ Fegurðardrottningin og flugneminn Sigrún Bender varð tvítug í gær og má því lögum samkvæmt kaupa áfengi í Ríkinu. DÓMSMÁL Maður sem dæmdur var í Hæstarétti fyrir brot á fiskveiði- löggjöf fyrir um hálfu ári síðan hefur vísað máli sínu til Mannrétt- indadómstóls Evrópu. Ekki ligg- ur fyrir hvort dómstóllinn tekur málið upp, en strangar reglur gilda um hvaða mál eru tekin þar fyrir og vegna mikils fjölda mála tekur nokkurn tíma hjá dómnum að afgreiða mál. Ragnar Aðalsteinsson, lög- maður mannsins, staðfesti að málinu hefði nýlega verið skotið til Mannréttindadómstólsins, en segist löngu hættur að reyna að giska á hvenær mál fái afgreiðslu hjá dómnum. „Meðferðartíminn getur reynt mjög á þolrif þeirra sem bíða niðurstöðu,“ segir hann. Ragnar segir að í dómi Hæsta- réttar frá því í apríl sem skotið hefur verið til Mannréttindadóm- stólsins hafi maður verið dæmdur til refsingar fyrir veiðar í netlög- um eigin jarðar. Með því segir hann nýtingarrétt hafa verið tekinn af eiganda jarðarinnar og færðan til annarra óviðkom- andi. „Með erindi til Mannrétt- indadómstóls Evrópu hefur verið ákveðið að láta reyna á réttindi eigenda jarða til fiskveiða í sínum eigin netlögum, en eignarréttur nýtur verndar samkvæmt fyrsta viðauka við Mannréttindadómstól Evrópu.“ Þá segir Ragnar standa fyrir dyrum að eigendur sjávarjarða höfði einkamál fyrir íslenskum dómstólum þar sem látið verði reyna á réttindi í netlögum í heild sinni. „Það gæti orðið eftir einhverjar vikur en að svo stöddu þori ég ekki að nefna dag.“ Á vettvangi Mannréttindadóm- stólsins er í skoðun að hætta að taka við málum sem til hans er beint af einstaklingum, að því er kom fram í nýlegu viðtali blaðsins við Davíð Þór Björgvinsson, dóm- ara við dómstólinn. Hann segir að fyrr en síðar verði dómstóllinn að grípa til að- gerða vegna mikils fjölda mála sem til hans er beint. Davíð segir meðalbiðtíma eftir úrskurði vera tvö til þrjú ár, en stærri prófmál geti tekið allt að tíu árum í með- förum dómsins. olikr@frettabladid.is Trillukarl með mál til Evrópudómstólsins Máli trillukarls á Ströndum hefur verið vísað til Mannréttindadómstóls Evrópu. Hann var dæmdur á báðum dómstigum fyrir brot á fiskveiðilöggjöfinni. Ragnar Aðalsteinsson segir manninn hafa orðið fyrir eignaupptöku. SMÁBÁTAVEIÐAR FYRIR NORÐAN Eigendur sjávarjarða berjast fyrir rétti sínum til veiða í eigin netlögum. Dómstólar hér segja stjórnvöldum heimilt að setja reglur um fiskveiði- stjórnun. FRÉTTABLAÐIÐ/KJK RAGNAR AÐALSTEINSSON Ragnar, sem er lögmaður trillukarlsins, segir eignarréttinn njóta verndar í viðauka við Mannréttinda- dómstól Evrópu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Samkeppniseftirlitið hefur til athugunar hvort ástæða sé til að hefja sjálfstæða rannsókn á hlut Bensínorkunnar í ólöglegu samráði olíufélaganna. Félaginu var tilkynnt um þetta bréfleiðis eftir úrskurð áfrýjunar- nefndar Samkeppnismála í lok jan- úar, en í honum var talið að ekki hefði verið gætt andmælaréttar Bensínorkunnar. Því var fallist á kröfu um niðurfellingu fjörutíu milljón króna sektarúrskurðar samkeppnisráðs frá því í október 2004. Guðmundur Sigurðsson, for- stöðumaður hjá Samkeppnis- eftirlitinu, segir hafa verið litið svo á að mál Orkunnar ættu sam- leið með málum Skeljungs. „Og frá lögmönnum Skeljungs, sem við skrifuðum sem meirihluta- eiganda í Orkunni, fengum við ekki ábendingar um annað en þeir myndu taka til varna fyrir fyrir- tækið. Svo var öðru haldið fram við áfrýjunarnefnd, það er að Sam- keppnisstofnun hefði aldrei snúið sér til Bensínorkunnar,“ segir hann og bætir við að stofnunin hafi snúið sér til Bensínorkunnar á ný skömmu eftir niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar. Guðmundur segir Orkuna í svari til stofnunarinnar hafa haft uppi sjónarmið um fyrningu mála. „En frekari afstaða í málinu hefur ekki verið tekin,“ segir hann og treysti sér ekki til að segja til um hvenær ákvörðunnar kynni að vera að vænta. - óká Ólöglegt samráð olíufélaganna þriggja; Olís, Esso og Skeljungs: Mál Orkunnar enn í skoðun BENSÍNORKAN Samkeppnis- stofnun íhugar að taka aftur upp mál Orkunnar vegna samráðs olíufélaganna. 22 ,8 % 22 ,8 % 8, 9% 10 ,0 % 1, 4% 1, 7% 3, 7% 4, 8% 5, 7% 6, 6% 5, 0% 4, 6% 5, 0% 5, 0% FÍKNIEFNANOTKNUN FRAMHALDSSKÓLANEMA 20 00 20 04 Hafa aldrei prufað neitt þessara efna 2000 74,3% 2004 74,4% Hass Amfeta- mín LSD E-töflur Kókaín Sveppir Sniff Hlutfall framhaldsskólanema sem hafa prófað tiltekin ólögleg vímuefni að minnsta kosti einu sinni um ævina. Ný skýrsla Rannsókna og greiningar um áfengis- og fíkniefnaneyslu ungmenna: Bjórinn vinsæll og hass algengt PRAG, AP Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er ásamt Vaclav Havel, fyrrverandi Tékklandsforseta, í hópi sex fyrr- verandi þjóðar- og ríkisstjórn- arleiðtoga sem skrifa undir bréf til Vladimírs Pútín Rússlands- forseta þar sem skorað er á hann og rússnesku ríkisstjórnina að standa sig betur í að virða mann- réttindi. „Þær upplýsingar sem við höfum undir höndum (...) gefa okkur ástæðu til að ætla að rússnesk stjórnvöld beiti stjórn- arandstöðuna óeðlilega miklum þrýstingi, að frelsi fjölmiðla sé naumt skorið og að ákæruvaldið og dómstólar lúti áhrifum fram- kvæmdavaldsins,“ segir í bréfi sexmenninganna. Auk Vigdísar og Havels skrifa undir það Mary Robinson, fyrr- verandi Írlandsforseti, Rexhep Meidani, fyrrverandi forseti Albaníu, og fyrrverandi forsæt- isráðherrar Kanada, Rúmeníu og Búlgaríu. - aa Senda Pútín opið bréf: Árétta mann- réttindi VIGDÍS FINNBOGADÓTTIR Fyrrverandi forseti Íslands er meðal þeirra sem skrifuðu undir bréfið til Pútíns. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR Bruni í Amager Um 200 manns þurftu að yfirgefa heimili sín þegar kviknaði í fjölbýlishúsi í Amager-hverfinu í Kaupmannahöfn á mánudagskvöld. Aðeins einn maður slasaðist, en fjöldi íbúa var fluttur á sjúkrahús vegna gruns um reykeitrun. Eldsupptök eru ókunn. DANMÖRK VINNUSLYS Maðurinn sem lést í vinnuslysi á athafnasvæði álvers- ins í Straums- vík um miðjan dag á mánudag hét Róbert Þór R a g n a r s s o n , búsettur í Kóp- avogi. Hann var s t a r f s m a ð u r fyrirtækisins Stálafls Orku- iðnaðar í Garða- bæ. Róbert Þór var 39 ára gam- all og lætur eftir sig sambýliskonu. Í tilkynningu lögreglunnar í Hafnarfirði kemur fram að klukk- an 14:37 á mánudaginn hafi lög- reglu borist tilkynning um alvar- legt vinnuslys á athafnasvæði álversins. Maður hafði runnið ofan af bárujárnsklæddu þaki kerskála þar sem hann var við vinnu. Lögregla segir talið að Róbert Þór hafi látist samstundis, en frek- ari rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir. - óká Banaslys í Straumsvík: Nafn manns- ins sem lést RÓBERT ÞÓR RAGNARSSON ������ ��������� ���� ������ ��������� �� ���������� ������ �� ������������������������������ ������������������������������ ���� ������ ������ ������ ����� ����������������������������� �������� ���� ��������� ������� ��� ������� ��� ������� ������ ���� ���� ����� �������� �������� ��� ���������������������� ����� ������������������������������ ��� ��� ������ ����������� ������ ������� �������������� ��� ���� ���������������������������������� �������� ��� ���������� ���� ���� ��������������������������������� ������������������������������ �� ����� ��������� ����������� ����� ������ �������������� ����� ������������������ ����� ���� �������� ��������� DANMÖRK Ritt Bjerregaard, borg- arstjóraefni jafnaðarmanna í Kaupmannahöfn, vann yfirburða- sigur í kosningunum samkvæmt útgönguspá sem Gallup gerði fyrir TV2 og vitnað er til á frétta- vef dagblaðsins Politiken. Kosið var til allra sveitarstjórna Dan- merkur í gær. Ritt er fyrrverandi ráðherra í ríkisstjórn Danmerkur. Samkvæmt spánni vinna jafn- aðarmenn fjóra menn í borgar- stjórninni frá síðustu kosning- um en hægriflokkurinn Venstre tapar tveimur. Sósíalíski vinstri- flokkurinn tapar líka tveimur fulltrúum. ■ Kosið í Kaupmannahöfn: Ritt kjörin borgarstjóri
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.