Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 4
4 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR
BAUGSMÁL Ágreiningur um æðsta
ákæruvald yfir átta ákærum í
Baugsmálinu, sem nú eru til efnis-
legrar meðferðar, verður reifaður
í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.
Fréttablaðið hefur heimildir
fyrir því að dómurinn hafi boðað
Boga Nilsson ríkissaksóknara til
þinghalds í málinu síðastliðinn
mánudag til að skýra málið, en
hann hafi ekki séð ástæðu til að
mæta.
Pétur Guðgeirsson dómari
upplýsti í þinghaldinu þá að Bogi
teldi ákærurnar átta sér óviðkom-
andi.
Dómararnir vilja að það liggi
skýrt fyrir hvert sé æðsta ákæru-
vald yfir Jóni H. B. Snorrasyni
saksóknara varðandi ákærurnar
átta, en hann sækir málið. Jón
sagði í réttinum á mánudag að ef á
það reyndi starfaði hann í umboði
setts ríkissaksóknara.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari
hafði 11. október tekið til athug-
unar 32 ákærur, sem dómstólar
höfðu vísað frá. Síðar taldi hann
sig vanhæfan til verksins og sagði
sig frá málinu.
Björn Bjarnason dómsmála-
ráðherra setti Sigurð T. Magnús-
son sérstakan ríkissaksóknara
í Baugsmálinu tíu dögum síðar.
Ráðherrann tók fram að settur
ríkissaksóknari færi með allt
málið, einnig ákærurnar átta.
Bogi Nilsson ríkissaksóknari
tók hins vegar fram í bréfi til
dómara og dómsmálaráðherra
3. nóvember að forræði á þeim
hluta málsins, sem ekki var vísað
frá dómi, væri í höndum ríkislög-
reglustjóra. Hann sem ríkissak-
sóknari hefði aldrei tekið við því
forræði úr hans hendi.
Verjendur hafa og krafist þess
að dómstólinn úrskurði um hæfi
Björns Bjarnasonar dómsmála-
ráðherra til að skipa sérstakan
ríkissaksóknara. Sú krafa var
fyrst gerð þegar ljóst virtist í
réttinum á mánudag að Sigurður
T. Magnússon væri æðsta ákæru-
vald varðandi ákærurnar átta.
johannh@frettabladid.is
Jörundur
hundadaga-
konungur
Ævintýramaðurinn
sem lagði Ísland
undir sig.
Lygilegri en nokkur
skáldskapur.
Frábær ævisaga.
SKRUDDA
Eyjarslóð 9 - Reykjavík
s. 5528866 - skrudda@skrudda.is
Ríkissaksóknari
mætti ekki í réttinn
Ágreiningur er um það hver fari með æðsta ákæruvald í þeim hluta Baugsmáls
sem nú er fyrir dómstólum. Ríkissaksóknari neitaði að mæta í Héraðsdóm
Reykjavíkur í fyrradag til að skýra málið. Málið verður reifað í dómnum í dag.
BOGI NILSSON RÍKISSAKSÓKNARI
Dómarar vilja vita hvort sækjandi í
Baugsmálinu starfi í umboði Boga
eða Sigurðar T. Magnússonar, setts
ríkissaksóknara.
NÁTTÚRUHAMFARIR Ögmundur Jón-
asson, Vinstri grænum, gerði
afleiðingar jarðskjálftanna í
norðurhluta Pakistan í síðasta
mánuði að umtalsefni á alþingi í
gær.
Fréttir bærust þaðan af sjúk-
dómum, harðnandi vetrarveðr-
áttu og vaxandi neyð heimilis-
lausra og slasaðra. Hann gat þess
að Rauði krossinn hefði safnað
46 milljónum króna. Ríkið hefði
látið átján milljónir króna af
hendi rakna. „Og ég vek athygli á
því að Íslendingar ætla að láta 87
milljónir króna til þess að styðja
hlut NATO til Íraks og Afganist-
ans. Nær væri að snúa þessari
tölu við og láta milljónirnar
87 ganga til fórnar-
lambanna í Pakist-
an.“
Árni Mathie-
sen fjármála-
ráðherra sagði
í umræðunni að
alltaf mætti deila
um upphæðir
og mælikvarða á
framlög.
„Það vantar
spelkur og það vant-
ar verkjalyf. Við
hljótum að geta gert
betur,“ sagði Þór-
unn Sveinbjarn-
ardóttir, Samfylkingunni.
Hjálmar Árnason, Fram-
sóknarflokki, sagði að ríkis-
stjórnin hefði brugðist fljó-
tt og vel við.
Magnús Þór Hafsteins-
son, Frjálslynda flokkn-
um, sagði tæplega nítján
milljóna króna framlag
til skammar.
- jh
Stjórnarandstaðan deilir á framlag stjórnvalda til bágstaddra í Pakistan:
NATO-fé renni til Pakistan
ÖGMUNDUR JÓNASSON ÞING-
MAÐUR Hann leggur til að 87
milljónir króna af framlagi
til NATO renni til bág-
staddra í Pakistan.
BRETLAND, AP Bresk stjórnvöld
hleyptu í gær af stokkunum nýju
baráttuátaki gegn kappdrykkju
ungmenna og drykkjutengdu
ofbeldi. Átakið tengist gildistöku
nýrra laga sem gefa afgreiðslu-
tíma breskra kráa frjálsan.
Stjórnarandstaðan sakar
stjórnina um að senda almenn-
ingi misvísandi skilaboð. Þann 24.
nóvember taka gildi lög sem fella
úr gildi gömul lög sem skylduðu
kráarekendur til að loka stundvís-
lega klukkan ellefu á kvöldin. ■
Bresk drykkjumenning:
Ölið selt lengur
hjá enskum
GENGIÐ
GENGI GJALDMIÐLA 15.11.2005
Gengisvísitala krónunnar
61,96 62,26
107,35 107,87
72,32 72,72
9,695 9,751
9,279 9,333
7,518 7,562
0,5203 0,5233
88,02 88,54
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
USD
GBP
EUR
DKK
NOK
SEK
JPY
XDR
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
KAUP SALA
102,4408
DANMÖRK, AP Jaap de Hoop Scheff-
er, framkvæmdastjóri Atlants-
hafsbandalagsins, hvatti í gær
aðildarríki bandalagsins til að
senda fleiri hermenn til Afganist-
ans, nú þegar verið er að stækka
friðargæsluliðið þar sem NATO
fer fyrir.
Gæsluliðið í Afganistan, ISAF,
hefur nú 12.000 mönnum á að
skipa. Í liðinu þjóna hermenn frá
36 þjóðlöndum. Þar á meðal eru
á annan tug liðsmanna Íslensku
friðargæslunnar. Til stendur að
ISAF taki á næsta ári einnig við
gæslu í suðurhluta Afganistans, er
bandarískum hermönnum fækkar
í landinu. Skæruliðar talibana eru
enn virkir í suðurhlutanum. „Því
fleiri bandamenn sem geta styrkt
ISAF-liðið, er það tekur við í suð-
urhluta Afganistans, því betra,“
sagði de Hoop Scheffer í heimsókn
í Kaupmannahöfn. ■
Framkvæmdastjóri NATO:
Fleiri hermenn
til Afganistans
JAAP DE HOOP SCHEFFER Framkvæmda-
stjóri Atlantshafsbandalagsins. MYND/AP
FRAKKLAND Franska þjóðþingið
samþykkti í gær tillögu ríkis-
stjórnarinnar um að neyðarlög
skyldu vera í gildi í þrjá mánuði til
viðbótar. Þau voru sett til að auð-
velda stjórnvöldum að binda enda
á óeirðaölduna sem skekið hefur
borgir landsins síðustu vikur.
Nicolas Sarkozy innanríkisráð-
herra hafði áður tjáð þingheimi að
Frakkland stæði nú frammi fyrir
„skæðustu og flóknustu kreppu
sem borgir landsins hefðu þurft
að reyna“ og hún útheimti afdrátt-
arlausar aðgerðir. ■
Óeirðirnar í Frakklandi:
Neyðarlög
framlengd
NICOLAS SARKOZY Innanríkisráðherra
Frakklands talar í þinginu í París í gær.
MYND/AP
Endurskoða flóðahættu Skriðan
sem fór af stað í Noregi í vikunni
hefur komið Norðmönnum til að
velta fyrir sér hvort ekki þurfi
að endurskoða hættuna á flóðum
og skriðum nærri íbúðabyggð og
hvar megi byggja. Tveir menn
hafa farist í flóðum síðustu
mánuði.
NOREGUR
GRÆNLAND Samkvæmt útgönguspá
sem gerð var um miðjan dag í gær,
á kjördegi kosninga til grænlenska
Landsþingsins, stefndi í að vinstri-
stjórn yrði mynduð.
Samkvæmt spánni, sem gerð var
á vegum grænlenska útvarpsins
KNR, fær vinstriflokkurinn IA átta
þingmenn en miðflokkurinn Demó-
kratar níu fulltrúa. Gangi þetta eftir
geta þessir tveir flokkar myndað
nýja landstjórn. Sú stjórn tæki við
samstarfi IA og jafnaðarmann-
aflokksins Siumut.
Samkvæmt spánni heldur Siu-
mut reyndar sínu, níu þingsætum.
Íhaldsflokkurinn Atassut fær aðeins
fjögur þingsæti. - aa
Kosið á Grænlandi:
Vinstristjórn
sennileg