Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 6
6 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR KJÖRKASSINN Fylgdist þú með beinni útsend- ingu frá Edduverðlaununum? Já 43% Nei 57% SPURNING DAGSINS Í DAG Er fjárhagsstaða Reykjavíkur- borgar góð? sími 483 4700 www.hotel-ork.is Arkar jólahlaðborð Nú fer hver að vera síðastur að panta! Jóhannes Kristjánsson á föstudögum Ómar Ragnarsson á laugardögum Dansleikur að loknu borðhaldi með hljómsveitinni Feðgunum 18. 19. 25. og 26. nóvember 2. 3. 9. 10. 16. og 17. desember Krakkahlaðborð með Birtu og Bárði sunnudaga milli 15-17 20. og 27. nóvember 4. 11. og 18. desember Sælulykill að Hótel Örk Gisting fyrir 2 Þriggja rétta óvissukvöldverður Morgunverður af hlaðborði Fæst á Hótel Örk sími 483 4700 og Hótel Cabin sími 511 6030, Borgartúni 32 Reykjavík. 7.450,- krónur á mann. (Sælulykill fyrir 2 á 14.900,-) SJÁVARÚTVEGUR KG-fiskverkun á Rifi, Brim hf. og Útgerðarfélagið Tjaldur hafa ákveðið að láta smíða fjögur ný línuveiðiskip og er stefnt á að fyrstu skipin verði tekin í notkun á fyrri hluta ársins 2007. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, segir að á móti verði ein- hverjir togarar seldir en ekki hafi verið tekin ákvörðun um hvaða tog- arar það verði né hversu margir. Félögin gera nú út fimm togara og tvö línuveiðiskip en Guðmundur segir að með þessari ákvörðun séu félögin að taka þá stefnumarkandi ákvörðun að einbeita sér í auknum mæli að línuveiðum. Hann segir að breytt útgerðarform muni ekki kalla á fækkun sjómanna en þess í stað verði þeim jafnvel fjölgað. „Útgerð línuveiðiskipa er hag- kvæmt rekstrarform í dag og býður upp á aukin gæði hráefnis og ferskari vöru. Endanlegur kostnað- ur við smíði skipanna liggur ekki fyrir en við höfum unnið að þessu máli í nokkuð langan tíma og ljóst að þau verða smíðuð erlendis,“ segir Guðmundur. Skipin verða mislöng en öll verða þau um 50 metrar að lengd eða nokkru stærri en Tjaldur SH 270, sem gerður er út af Brimi, en hann er rúmir 43 metrar að lengd og 688 brúttótonn. - kk Þrjú fyrirtæki sameinast um nýsmíði fjögurra skipa: Togurum skipt út fyrir línuveiðiskip GUÐMUNDUR KRISTJÁNSSON Forstjóri Brims segir ein bestu línumiðin nú um stundir úti af Norður- og Norðausturlandi og því hagkvæmt að gera línuveiðiskip út frá Akureyri. ATVINNULÍF „Ég fagna því auð- vitað að náðst hafi niðurstaða,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladótt- ir, formaður Samfylkingarinnar. „Eina ferðina enn gefa aðilar vinnumarkaðarins stjórnvöldum svigrúm og mikilvægt að stjórn- völd noti það af mikilli ábyrgð,“ segir hún og telur ljóst að óstjórn í efnahagsmálum hafi verið rót vandans. „Aðilar vinnumark- aðarins voru ekki ábyrgir fyrir því að samningar voru að bresta, heldur ríkisstjórnin, og því eðli- legt að hún kæmi að málinu.“ Ingibjörg telur mikilvæg grundvallarmál hafa náðst fram, svo sem tekjutengingu atvinnu- leysisbóta og aukið jafnræði í lífeyrissjóðssmálum. „Skrefin eru kannski ekki stór, en þau eru mikilvæg.“ Formaður Samfylkingarinnar: Stjórnvöld fá svigrúm ATVINNULÍF „Ég tel það mik- inn ávinning fyrir verkalýðs- hreyfinguna að hafa náð þessu fram um lífeyrissjóðina,“ segir Guðjón Arnar Kristj- ánsson, formaður Frjálslynda flokksins um samkomulag Alþýðusambandsins og Sam- taka atvinnulífsins. „Þarna var ágætlega að verki staðið, enda hefðu lífeyr- issjóðirnir ella orðið að skerða aðrar greiðslur, þar á meðal ellilífeyri.“ Guðjón fagnar því að nást skyldi saman og telur það mjög til góða fyrir þjóðfélag- ið. „Betra er að gengið rúlli rólega niður frekar en að það fari niður á við í einhverju heljarstökki með tilheyrandi kjaraskerðingu.“ Formaður frjálslyndra: Ágætlega að verki staðið ATVINNULÍF Steingrímur J. Sig- fússon, formaður Vinstrihreyf- ingarinnar - græns framboðs, segir ljóst að flestir fagni sam- komulagi aðila vinnumarkaðar. „Ekki er nú á óvissuna og brimskaflana bætandi sem þjóðarskútan er að sigla í gegnum í efnahags- og atvinnu- málum.“ Hann segir þó ljóst mega vera að launafólk sé ekki ofhaldið af leiðréttingunni, þótt í grófum dráttum væri reynt að verja kjörin. „Kanns- ki er ekki kostur á meiru án verulegra átaka. Ég held þetta verði alveg nógu erfitt næstu mánuðina, sérstaklega fyrir útflutnings- og samkeppnis- greinarnar, þó að óvissa eða jafnvel átök á vinnumarkaði hefðu nú ekki bæst við.“ Formaður Vinstri grænna: Launafólk er ekki ofhaldið STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR GUÐJÓN ARNAR KRISTJÁNSSON ATVINNULÍF Ríkisstjórnin fagnar samkomulagi Samtaka atvinnulífs- ins og Alþýðusambands Íslands sem náðist seinni partinn í gær. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir niðurstöðuna draga úr verðbólgu og auka stöðugleika. „Óvissan hefur verið mikil, en sú vissa að samningar haldi skipt- ir miklu máli fyrir stöðugleikann,“ sagði Halldór og kvað ríkisstjórnina hafa lagt mikið á sig svo það mætti verða. Hann sagði ljóst að örorku- málin vægju þyngst í því sem ríkis- stjórnin hefði lagt af mörkum. „Það á að vísu eftir að útfæra nánar, en samstaða er um það að samræma þessar reglur.“ Yfirlýsing ríkisstjórnarinnar til að greiða fyrir samkomulagi Alþýðusambands Íslands og Sam- taka atvinnulífsins um áfram- haldandi gildi kjarasamninga var kynnt síðdegis í gær á fundi með fulltrúum atvinnulífsins og ráð- herrunum fjórum sem mynda rík- isfjármálaráð, en það eru Halldór Ásgrímsson, Árni Mathiesen, Geir H. Haarde og Árni Magnússon. Árni Mathiesen fjármálaráð- herra segir mjög gott að samningar haldist í gildi og greinilegt að menn hafi lagt heilmikið á sig til að ná því markmiði fram. „Vinnuveitendur taka á sig hækkanir og ríkið tekur líka á sig ákveðna hluti í örorkubóta- málum,“ segir hann, en kostnaður ríkisins af aðgerðum vegna örorku- bóta nemur allt að 1,5 milljörðum króna. „Auðvitað á eftir að vinna töluvert í þessu og hluti af þessu að ríkið og aðilar vinnumarkaðar sem að lífeyrissjóðunum standa vinni að þessum hlutum saman.“ Árni segir hækkun og tekjutengingu atvinnu- leysisbóta alfarið vera samningsat- riði milli aðila vinnumarkaðarins þó að stjórnin taki að sér að beita sér fyrir nauðsynlegri lagabreyt- ingu vegna þeirra hluta. „Um atvinnuleysistrygginga- sjóð sem standa á straum af þessu gilda lög, en undir sjóðnum stend- ur atvinnutryggingagjaldið sem vinnuveitendur borga.“ olikr@frettabladid.is Óvissunni hefur verið eytt Forsætisráðherra segir samkomulag ASÍ og SA skipta miklu fyrir stöðugleika í landinu og vera líklegt til að draga úr verðbólgu. Ríkisstjórnin kynnti í gær yfirlýsingu til að greiða fyrir samkomulaginu. GLATT Á HJALLA Í RÁÐHERRABÚSTAÐNUM Það var létt yfir þeim Árna Mathiesen fjármálaráðherra, Baldri Guðlaugssyni ráðuneytisstjóra í fjármálaráðuneytinu, Bolla Þór Bollasyni ráðu- neytisstjóra í forsætisráðuneyti, Árna Magnússyni félagsmálaráðherra og Halldóri Ásgrímssyni forsætisráðherra í ráðherrabústaðnum í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM VIÐSKIPTI Olíufélögin hafa undan- farinn sólarhring lækkað verð á bensíni og olíu. Í gærkvöldi var algengt verð á bensíni á sjálfsafgreiðslustöðum hinna olíufélaganna rétt um 105 krónur, bæði á bensíni og olíu. Verð með fullri þjónustu er svo að jafnaði einni til tveimur krón- um dýrara á lítrann. - óká Samkeppni olíufélaga: Bensín lækkar VERKALÝÐSMÁL Miðstjórn Samiðn- ar ályktaði í gær að segja hefði átt upp samningum fremur en að skrifa undir samkomulag við Sam- tök atvinnulífsins. „Miðað við þær tillögur sem fyrir liggja vegna endurskoðun- ar á kjarasamningum telur mið- stjórn Samiðnar ekki rétt að for- maður Samiðnar gefi samþykki sitt fyrir þeim. Miðstjórnin bendir á að í landinu er mikið góðæri en um 40 prósent launþega búa við kaupmáttarskerðingu á sama tíma og stórir hópar eru að taka til sín miklar launahækkanir,“ segir í ályktuninni. Miðstjórnin segist harma að ekki skuli hafa verið um það sam- staða innan Alþýðusambandsins að tryggja launafólki stærri hlut af góðærinu sem í landinu er. - óká Miðstjórn Samiðnar: Segja átti upp samningum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.