Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 16. nóvember 2005 13
KVIKMYNDAGERÐ Við afhendingu
Edduverðlaunanna á sunnudags-
kvöld tilkynnti Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra að hún hygðist auka fjárfram-
lög til kvimyndagerðar.
„Ríkisstjórnin hefur ákveðið að
auka þessi framlög á næsta ári,“
segir Þorgerður Katrín. Hún segir
að fjárlagarammi ársins 2006 þurfi
að vera sterkur í ljósi efnahags-
ástands, en hún sjái þó fyrir sér
stighækkandi framlög til ársins
2009.
„Það á eftir að ræða nánar
útfærsluna á þessum framlögum og
það verður haft samráð við kvik-
myndagerðarmenn um það hvaða
markmiðum við viljum ná.“
Þorgerður Katrín segist áður
hafa lýst þeirri skoðun sinni að hún
vilji sjá aukningu í framleiðslu á
sjónvarpsefni, jafnvel þó að það
sé háð einhverjum takmörkunum.
„Ég vil líta heildstætt á málið og
er meðal annars að hugsa til Kvik-
myndaskóla Íslands ásamt öðrum
þáttum,“ segir ráðherrann. - saj
www.postur.is
Bítur hundurinn?
Við hjá Póstinum beinum þeim vinsamlegu tilmælum
til þín að gæta þess að bréfberum standi ekki ógn
af hundinum á heimilinu.
Æskilegt er að hundurinn sé hafður í bandi utandyra og
að honum sé haldið frá bréfalúgunni. Aðstoð þín og tillitssemi
auðvelda okkur að koma póstinum til þín hratt og örugglega.
Með fyrirfram þökk.
Vilja málefnalega umræðu
Ungliðar í Vinstrihreyfingunni - grænu
framboði á Akureyri skora á mennta-
málaráðherra að taka þátt í málefna-
legri umræðu um skerðingu náms
til stúdentsprófs. Ungliðarnir segja
menntamálaráðherra hafa hundsað
nemendur og reynt að koma sér undan
umræðunni á fundi í Menntaskólanum
á Akureyri í síðustu viku.
MENNTAMÁL
Prófkjör ákveðið Sjálfstæðismenn á
Seltjarnarnesi efna til prófkjörs um val
á framboðslista flokksins fyrir komandi
sveitarstjórnarkosningar hinn 4. febrúar
næstkomandi.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKUR
ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR
Á verðlaunahátíð Eddunnar á sunnu-
dagskvöld tilkynnti menntamálaráðherra
kvikmyndagerðarmönnum um aukin
framlög til kvikmyndagerðar og framleiðslu
á sjónvarpsefni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
KÓLUMBÍA, AP Tvö börn og karlmað-
ur létu lífið þegar handsprengju
var hent inn í verslun í Bógóta,
höfuðborg Kólumbíu, um liðna
helgi. Maðurinn og sjö ára dreng-
ur létust á sjúkrahúsi af sárum
sínum en tveggja ára stúlka lést
samstundis. Ekki er vitað hverjir
stóðu á bak við árásina en málið er
í rannsókn.
Síðastliðið 41 ár hefur ríkt
mikil óöld í Kólumbíu og er morð-
tíðni í landinu ein sú hæsta í heim-
inum. Á síðasta ári voru 67 manns
drepnir miðað við hverja 100.000
íbúa. Það jafngildir því að um
180 morð væru framin hérlendis
árlega. ■
Þrír létust í sprengjuárás:
Handsprengju
hent inn í búð
FJÖLMIÐLAR Gestur Einar Jónasson
og Lísa Pálsdóttir munu á næst-
unni hætta dagskrárgerð fyrir Rás
tvö. Bæði fara þau yfir á Rás eitt
og segir Dóra Ingvadóttir, fram-
kvæmdastjóri útvarpsins, að um
sé að ræða skipulagsbreytingar í
tengslum við breytta dagskrá sem
tekur gildi 1. desember næstkom-
andi.
„Ég mun aðallega verða á Morg-
unvaktinni á Rás eitt en ætla einnig
að reyna að halda mínum rótgróna
þætti, Með grátt í vöngum, sem
verið hefur á laugardögum á milli
klukkan 16 og 18,“ segir Gestur.
- kk
Breytingar hjá RÚV:
Gestur Einar
og Lísa á Rás 1
GESTUR EINAR JÓNASSON Gestur tekur
breytingunum vel og segir það þroska-
merki að flytjast yfir á Rás eitt.
DÓMSMÁL Staðfest var fyrir helgi
lögbann sem Sýslumaðurinn í
Reykjavík lagði við því að málverk-
in „Í júlí“ og „Bláfjöll“ eftir Einar
Hákonarson yrðu seld.
Héraðsdómur Reykjavíkur við-
urkenndi eignarrétt myndlistar-
mannsins að verkunum og gerði
innflutningsfyrirtækinu Karli K.
Karlssyni hf. að skila þeim innan
hálfs mánaðar, eða sæta 50.000
króna dagsektum ella.
Fyrirtækið vildi meina að mál-
verkin hefðu átt að ganga upp í
húsaleiguskuld þriðja aðila, meðan
málarinn taldi að sá hefði ekki haft
umboð til að ráðstafa verkunum á
þann máta.
Dómurinn taldi ósannað að fyrir
hafi legið samningur um ráðstöf-
un verkanna og því hafi ekki verið
sýnt fram á að eignarréttur yfir
þeim gæti hafa flust. - óká
Lögbann staðfest í héraði:
Málverk sem
ekki má selja
Menntamálaráðherra tilkynnir um aukin framlög til kvikmyndagerðar:
Aukið fjármagn til kvikmyndagerðar