Tíminn - 25.04.1976, Blaðsíða 17

Tíminn - 25.04.1976, Blaðsíða 17
16 TÍMINN Sunnudagur 25. aprtl 1976 Sunnudagur 25. aprll 1976 TÍMINN 17 Nf MENNINGAR GERÐ 1MÓ TUN Rætt við Símon Jóh. Ágústsson prófessor ÞAÐ ER dr. Simon Jóh. Agústs- son prófessor, sem hér spjallar við lesendur Timans. Vitaskuld er þarflaust að kynna hann fyrir is- lenzku þjóðinni, en jafnvist er hitt, aö af hans fundi fara menn jafnan fróöari en þeir komu. Þvi skal honum þegar i upphafi þakk- að, ab hann skyldi veita leyfi til þessa blaðaviðtals. Seint á siöast liönu ári sendi dr. Simon frá sér ljóðabók, eins og islenzkum ljóða- vinum er kunnugt, og á þessu ári mun koma út hjá Menningarsjóöi langt rit um tómstundalestur barna, byggt á mikilli rannsókn sem dr. Simon gerði á nærri 1700 börnum i Reykjavik á aldrinum 10—15 ára fyrir einum áratug eða svo. Missti fööur sinn tíu ára gamall Ekki er ætlunin að lengja þetta mál með þarflausu rausi blaða- manns. Við skulum heyra, hvað prófessorinn hefur aö' segja. — Er það ekki rétt, próf. Simon, að þú hafir fæðzt og alizt upp i Arneshreppi i Stranda- sýslu? — Jú, ég fæddist 28. september 1904 i Kjós i Reykjarfirði. For- eldrar minir voru þau hjónin Agúst Guömundsson og Petrina Sigrún Guðmundsdóttir. Ég ólst þar upp til 18 ára aldurs. Þá fór ég alfarinn aö heiman til Reykjavik- ur. Föður minn missti ég þegar ég var tiu ára. Hann varð innkulsa á sjó og dó úr skæðri lungnabólgu, sem þá var að ganga. Hann var þá 49 ára. Ég var næstelztur fimm alsystkina minna. Móður- faðir minn, Guömundur ólason, sem þá var kominn um sextugt, tók við forsjá heimilisins. Kjós er litil jörð, þótt landrými væri ærið. Bústofninn var venju- lega um 67—75 kindur, tvær kýr og eitt geldneyti eða naut, og tveir til þrir hestar. Sjór var mikið stundaður, svo og sela- og fugla- veiði. Heimili mitt var bjargálna, ég leið aldrei neinn skort á upp- vaxtarárum minum. Yfriö nóg matföng voru mestan hluta árs- ins, nema helzt á útmánuðum, þá gat fæði orðið nokkuð einhæft. Viðbit var ávallt nægt, og mikið var etið af hákarli. A útmánuðum var fæöið helzt saltfiskur, harö- fiskur og þorskhausar, auk mjólkur. Brauömeti gat um tima verið af skornum skammti, þar sem flestar vörur þraut i verzlun- um — en úr þvi rættist verulega um sumarmál. Þá komu skip með vörur. //Tíminn langa dregur drögu......." — Þá hefur nútiminn ekki verið genginn i garð á þessum slóðum? — Mikið hefur verið talað um svonefnda aldamótamenn, þ.e. aö mér skilst þá menn, sem mundu eftir sér um 1900 og liföu svo aö sjá og reyna hina miklu byltingu, sem siöan hefur orðiö á atvinnu- háttum, menningu og lifnaðar- venjum þjóöarinnar. En þessar breytingar urðu smám saman og voru hvergi nærri samstiga á öll- um sviðum né i öllum landshlut- um. Ef ég miöa við mina sveit, virðist mér aö gagngerð breyting hafi fyrst orðiö seint i fyrri heimsstyrjöldinni og upp úr henni. — Viltu ekki skýra þetta nán- ar? — Ég skal reyna, en þaö er erf- itt i fáum oröum. Ef ég tek dæmi af mér, þarf ekki djúpt að skyggnast, til að komast að raun um, að sú menningargerö, sem ég lifi nú i, er i veigamikium atriðum frábrugöin þeirri menningargerð, sem ég ólst upp viö, þótt báðar séu þær islenzkar og samhengi sé á milli þeirra. Margt skilur þær að og margt tengir þær. Timinn langa dregur drögu dauöa og lifs, sem enginn kvað Matthias. Simon Jóh. Agústsson. Timamynd Gunnar. Erfiðlega dröslast hver maöur með áskapaða og arfgenga eigin- leika forfeðra sinna i óteljandi ættliði, og mannkynið virðist ekki hafa breytzt frá þvi að sögur hóf- ust. En menning og siðvenjur hafa tekiðstakkaskiptum frá þvi i fornöld, þær breytast frá einu menningarsvæði til annars, frá einni kynslóð til annarrar, þótt sum timabil séu að ýmsu leyti kyrrstæö, en önnur með miklu ör- ari breytingum. Þannig má segja, að margar kynslóðir lifi i einum manni. Þeg- ar sami maðurinn hefur reynt á sjálfum sér áhrif tveggja ólikra menningargerða, fariö úr tiltölu- lega kyrrstæðri og einfaldri menningargerö i aðra, sem er si- kvik og miklu margbrotnari, veröur hann oftast við ihugun lostinn undrun. Honum finnst hann hafa lifað lif margra kyn- slóða. Þessa reynslu höfðu til dæmis Forn-Grikkir á dögum Alexanders mikla, og við Islend- ingar á minum aldri, sem muna hina fornu atvinnu- og heimilis- hætti, eins og þeir höfðu verið i meginatriðum um aldaskeið, en munu nú tæpast finnast á nokkru býli neins staðar á landinu. í lif- andi reynslu þeirra býr andi fleiri kynslóða en yngri manna. Slík tímabil koma ekki oft Slik timabil i sögu þjóða koma ekki oft. Hvort sem minni kynslóð likar betur eða verr, er þessi breyting eða bylting að ekki ó- verulegu leyti hennar verk. Við höfum aö ýmsu leyti komið henni af stað, en orðið að fylgjast með öörum þjóðum, verið virkir þátt- takendur i henni fram til þessa dags, þótt okkur fækki og við hverfum senn af sjónarsviðinu. Börn okkar og barnabörn taka nú við, framtiðiner i þeirra höndum. Þau eiga við mörg önnur vanda- mál að glima en við höföum á þeirra aldri, og verða að reyna að leysa þau með öðrum úrræðum en viö okkar, þegar við vorum ung. Okkur finnst stundum, að ó- persónuleg félagsleg öfl hafi tekiö af okkur ráðin, viö vera orðin ieiksoppar óviðráðanlegra afla, sem viö óttumst og viljum sporna við. Þó erum við undirniðri þess meðvitandi, að við höfum átt okk- ar þátt i þvi að leysa þessi öfl úr læðingi. Við gerum okkur þess einnig grein, að breytingar leiða ekki alltaf til framfara, hamingju og öryggis, heldur geta þær falið i sér ófyrirsjáanlegar hættur. Þessar breytingar leiða oft til angistar, kviða, rótleysis, eftir- sóknar eftir fölsuðum lifsgildum, skorts á skvnsamleeum úrræð- um. Bölsýni og tilgangsleysi mannlegrar tilveru setja mjög, eða að minnsta kosti ekki óveru- legan svip á hugsun nútíma- manna, bæði i skáldskap og heim- speki. Við gerum okkur þess grein, að við lifum á varasömum og hættulegum timum. Þessi menningarbylting, sem nær til allra vestrænna landa, byggist á visindastarfsemi og hagnýtingu hennar, tækninni, en hún hefur i för með sér meiri og minni breytingar á félagsgerð, lifnaðar- og hugsunarhætti. Við vorum verrundirþessa breytingu búin en flestar aðrar Evrópuþjóð- ir vegna þess, að á flestum sviðum höfðum við dregizt aftur úr og höfum orðið að taka þetta skrel á miklu styttri tima en þær. Borgar- eöa þéttbýlismenning hefur þekkzt þar um áraraðir, sums staðar frá þvi i fornöld, eða áður en sögur hófust. En jafnvel i þessum löndum er það að mestu á þessari öld, að hlaupið hefur slikur ofvöxtur i borgirnar, að þær búa miklum hluta ibúa sinna nær ómennsk lifsskilyrði, þrátt fyrir allar menningarstofnanir sinar. En það er vist bezt að slá botn i þessar hugleiðingar. Menningarstarfsemin fór fram aö vetrinum — Það væri nú gaman, ef þú vildir segja mér og lesendum okkar frá menningu, atvinnu og lifnaðarháttum I þessu afskekkta byggöarlagi, þar sem þú ólst upp, — þessari liðnu tiö, sem aldrei kemur aftur og aðeins örfáir menn muna. — Ég man mjög snemma eftir mér, á ýmsar einstakar minning- ar frá þriðja og fjórða ári, og man nokkuð samfellt eftir mér frá fimm ára aldri. Ef ég sný mér fyrst að menningarlegu hliðinni, þá er hún býsna frábrugðin þvi sem nú er, þótt ýmsir nútimalegir þættir vefjist þar inn i, sem voru nær óþekktir eða öðru visi fyrr á öldum. Miklu fleira en nú stóð þá á ævafornum merg. Ýmsir siðir og venjur breyttust þar sennilega seinna en i flestum öðrum hlutum landsins. Ég man til dæmis eftir þvi, þegar mjólk var sett, mig rámar i, þegar skilvindan kom, ég var hálfhræddur við hana. Ég man, að lömb voru kefld á vorin, og ég man vel eftir bæði stiun og fráfærum. I sumum þessum störfum tók ég þátt. Ég hjálpaði til að við stiun, sat yfir kviaám og smalaði þeim. A veturna fór lestur og önnur menningarstarfsemi fram, sem var órofa þáttur hinnar fornu heimilismenningar. I rökkrinu voru sagðar sögur, og man ég þar helzt eftir ömmu minni, Sigriði Pétursdóttur (d. 1912). Hún var eyfirzk að ætt, en fluttist ung með bróður sinum, Simoni, vestur að Breiðafirði. Simon bjó lengi að Brekku i Gilsfirði. Amma min bekkti fólk, sem haföi lifað móðuharðindin, og hún sagði mér ýmislegt, sem það hafði sagt henni. Mér finnst þvi að ég standi býsna nærri þeim atburðum og fólkinu sem lifði þá. Amma min lærði ljósmóður- fræði hjá Jósepi Skaftasyni lækni á Hnausum. Hún fluttist til Tungusveitar i Steingrimsfiröi og siðan i Vikursveit. Þar giftist hún móðurföður minum, Guðmundi Ölasyni, og áttu þau aðeins eitt barn, sem lifði, móður mina. Amma var sjór af sögum, sem við krakkarnir drukkum i okkur. Hún kenndi okkur sæg af bænum og versum, þulum og langlokum. Skömmu eftir að kveikt var, hófst kvöldvakan. Rimur ýmiss efnis voru kveðnar, að minnsta kosti fram til 1917-T8. Söguljóð voru lesin upphátt, svo sem örvaroddsdrápa, Grettisljóð, Axel, Friðþjófssaga, Þorgeir i Vik, svo og Skugga-Sveinn, en aldrei ljóðræn kvæði. Þá voru lesnarsögur: Islendingasögur og aðrar fornsögur, riddarasögur, en einnig bækur eftir 19. aldar menn, Maöur og kona, Piltur og stúlka, Aðalsteinn, og svo skáld- sögur eftir samtima höfunda, og þýddar sögur. Oft var gert hlé á lestrinum og efni rimna, sögu- ljóða og sagna var rætt. Tók allt fólkið þátt i þessum umræðum. Börnin fylgdust af lifandi áhuga með þessum umræðum og voru sispyrjandi. Var sjálfsagt ekki alltaf auðvelt að leysa úr sumum spurningum þeirra. Guðræknin var ekki neinn hégómi Þá er að minnast á heimilisguð- ræknina, sem var þá enginn hé- gómi. Lesið var á hverju kveldi frá veturnóttum til sumarmála og lesinn sálmur eöa brot úr sálmi íyrir og eftir hugvekjuna. Að lok- um bændu menn sig, sem var kallað, lokuðu augum, settu hægri hönd fyrir þau. Þá áttu menn að biðja til guðs hljótt með eigin orð- um. öll vinna var lögð niður meö- an helgiathöfnin fór fram. Börn máttu ekki leika sér. Ég man, að mér likaði illa að mega ekki tálga, þóttist geta tekið eftir guðsoröinu, þótt ég gerði það. En þaö var mér stranglega bannað. Hugvekjur eftir Pétur Pétursson voru einvörðungu lesnar, og oft- ast húslestrabók hans á sunnu- dögum, en stundum prédikanir eftir Pál Sigurðsson. Upp úr fyrri heimsstyrjöld var hætt að lesa á kvöldin, nema Passiusálmana um föstuna. — Oftast voru tvö til þrjú fyrstu og siðustu versin sungin. — Og á sunnudögum voru lesnir húslestr- ar. Svo lagðist þetta einnig smám saman niður. Hugvekjur og hús- lestrar voru lesin með einkenni- legum sönglanda, sem ég get ekki lengur náð, en ekki með venju- legu lestrarlagi. Ekki þótti hæfa að lesa guðsorð eins og tröllasögur, eins og komizt var að orði. Vidalinspostillu var viðast hvar hætt aö iesa i minni sveit, þegar ég man fyrst eftir mér. Kenning hans þótti of hörð. Fáir trúöu lengur á útskúfunarkenninguna, þótt hún slæddist með ýmsu svo- kölluðu guðsorði. Ég minnist eins viðtals mins við móður mina um þetta mál. Þá var ég töluvert inn- an viö tiu ára aldur. Ég taldi upp ýmsa menn, iátna og lifandi, sem höfðu miður gott orð á sér, og spurði hana, hvort þeir myndu ekki fara eða hefðu farið i vonda staðinn. Hún kvað nei við, eöa taldi það engan veginn vist. Þá sagði ég: Til hvers er þá vondi staðurinn, þegar enginn fer i hann? Hún svaraði mér eitthvað á þá leið, að þótt mennirnir væru vondir, væri miskunnsemi guðs þó enn meiri. Trú á guðlega forsjón var mönnum inngróin. Hún var traust, bjargföst, efasemdir kom- ust ekki að. Menn ræddu litt um trúmál né deildu um þau. Sjó- ferðabænir var hætt að lesa, en formaður hvatti háseta sina til aö biðja fyrir sér áður en sjóferðin hófst. 1 sjávarháska gæfist ekkert tóm til bænagerðar. Sögur um Sæmund fróða og kölska gerðu mér mjög gott. Mér yröi svo sem ekki skotaskuld úr þvi að hafa i fullu tré við þann vonda og ára hans. Helviti varð i huga minum hreint ekki óvið- kunnanlegur staður. Ég hugsaði mér hann likan gamla hlóðaeld- húsinu. Höfuðpaurinn sat kóf- sveittur við hlóðirnar og skaraði i eldinn, en púkarnir sátu á þver- bitum hálfhuldir reyk. Þvilika einfeldninga var ég svo sem ekk- ert smeykur við. Einn heitan sumardag, og móð- ir min var ein heima með okkur börnin, fór ég út á hlað, og sé þá ókunnugan mann sitja á hnyðju á hlaðinu. Hann var grannvaxinn, mjög húðblakkur með hrafnsvart hár og bogaöi af honum svitinn. Hann varpaði á mig kveðju. Ég þóttist viss um, að þetta væri kölski, en varð ekki hiö minnsta hræddur, þótti sem hnifur minn hefði komizt i feitt, og hljóp inn i bæ og segi við móður mina: ,,Það er kominn maður, kolsvartur og bogar af honum svitinn. Ég held að þetta sé kölski”. „Hvaða vit- leysa er i þér, drengur”, segir hún þá og fer út. Mikil voru von- brigði min, þegar þetta var þá maöur úr sveitinni og frændi minn i þokkabót. Lestur og skrift Bókakostur var meiri á heimili minu en almennt gerðist þá, bæði Kaldbakur, Kaldbaksvik, Kleifar og Kaldbakur (fjalliö) I baksýn. Hér bjuggu forfeður Simonar Jóh. Agústssonar lengi. Ljósm. Tryggvi Samúelsson. gamlar torgætar bækur og nýjar. Auk þess var allgott lestrarfélag i hreppnum. Ég man afarlitið eftir lestrarnámi minu. Ég minnist þess, að faðir minn gaf mér staf- rófskver um haust, en allæs var ég orðinn um vorið, og ias þá meðal annars Um Grænland að fornu og nýju eftir Finn Jónsson og Helga Péturss. mér til mikillar ánægju. Litið las ég af barnabók- um. Þó man ég eftir Nýjasta barnagullinu, sem Oddur Björns- son gaf út. Annars las ég allar bækur, sem til voru heima og ég gat komizt yfir: fornrit, þjóðsög- ur, gamlar og nýjar sögur, frum- samdar og þýddar, og alls konar fróðleiksefni. Bibliuna gluggaði ég snemma i, en hafði litinn smekk fyrir hana fyrr en ég var kominn á unglingsár. Lestur minn var „allra þefja blessuð blanda”, eins og Þorsteinn kvað. Gotneskt letur lærði ég jafnhliða eða litlu seinna en latinuletrið, las til dæmis snemma Atla eftir Björn i Sauðlauksdal og þótti hann fróðlegur. Af tslendingasög- um held ég, að Gisla saga Súrs- sonar hafi haft dýpst áhrif á mig. Sturlungu entist ég aldrei til að lesa i heild, heldur einungis ein- stakakafla hennar, einkum frá- sagnirnar um Flóabardaga og Flugmýrarbrennu. Ég varð einnig snemma læs á skrift. A heimili minu voru haug- ar af skrifuöum bókum, flestar þeirra eftir Gisla Gislason, bróö- ur Skúla Gislasonar þjóðsagna- ritara. Hann var i mörg ár i Kjós, þótt hann væri talinn til heimilis á Kúvikum. Sörli föðurbróöir minn stundaði lika mikið bókaupp- skriftir. Hann dó 23ja ára, senni- lega úr berklum. Þetta eru þeir seinustu og mestu bókaafritarar i minni sveit, að þvi mér er bezt kunnugt. Ljóð las ég lika mikið, allt frá þvi að ég var innan við tiu ára aldur. Mest dálæti hafði ég á Grimi Thomsen, Jónasi, Matthiasi, Steingrimi, Þorsteini Erlingssyni og Bjarna Thoraren- sen. Einar Benediktsson og Step- han G. þekkti ég þá litiö og hafði ekki þroska til þess að njóta skáldskapar þeirra. Þótt ég muni litiö eftir lestrar- námi minu, man ég mjög vel eftir skriftarnáminu, og að mér þótti það afar leiðinlegt. Barnaskóli var ekki i sveitinni i uppvexti minum, heldur var þar einungis svokallaður „umgangskennari”, sem hafði eftirlit með námi barna og var nokkra daga á hverjum bæ. Móðir min var mjög lóðelsk. Eftirlætisskáld hennar var Stein- grimur. Þótt góður kveðskapur væri mikils metinn á heimili minu, var það ekki litiö hýru auga, ef maður bögglaði saman vísu. Var sagt, að maður yrði heimskur af sliku bulli, sem ætti ekkert skylt við æðri skáldskap, hann væri sérstök guðsgjöf, sem hlotnaðist einstaka mönnum, og yrðu þeir mikið á sig aö leggja til þess að ávaxta vel sitt pund. Báturinn og skíðin voru aðal samgöngutækin Eins og áður segir, þá var vetrinum að mestu leyti variö til lestrar, eftir þvi sem tóm gafst til frá öðrum störfum, veiöiskap, hákarlalegum, smiðum, skepnu- hriðingu og tóvinnu. Drengjum voru kennd öll þau störf, sem þeir gátu valdið, svo sem að snúa tauma, bregða gjarðir, riða net, spinna hrosshár á halasnældu, svo eitthvað sé nefnt. Nokkuö hefðbundin verkaskipting var á milli karla og kvenna. Þær prjón- uðu, saumuðu og sáu um matseld. Faðir minn átti góðan danskan vefstól. Cf hann á hverjum vetri voðir úr vaðmáli og tvisti. Vefnaður var talinn fremur karla verk en kvenna. Gólfþvott önnuð- ust piltar engu siður en stúlkur. A sumrin tóku börnin þátt i öllum störfum sem þau réðu við. Efldi það mjög vinnugleði þeirra, að þau fundu að starf þeirra var til gagns. Ekkert man ég eftir þvi, þegar ég lærði áralagið, fremur en þegar ég fór að fara á skiði. Ég vakti bæði yfir túni og sat hjá, og á frá þeim störfum margar hug- ljúfar minningar. Hvort tveggja það sem ég nendi, að kunna áralagið og kunna á skiðum, var nauösyn. Báturinn var aðalsamgöngutæk- ið, og oft var ófært á vetrum nema á skiðum i þessari fann- þungu sveit. Litil skiði voru smiö- uð handa börnum, svo og litlar árar, sem kallaðar voru spaðar. Reki var mikill á hverjum bæ, nema á bæjunum inni i Reykjar- firði og Ingólfsfirði. Þó gat rekið talsvert i Kjós i austanátt, og á hverju vori var gengið um fjörur og allt smælki, sem kallaö var mir, borið i hrúgur en siðan flutt heim á báti og haft til eldiviðar. Góðan, valinn við i báta, möst- ur, árar, skarsúöir, hrifusköft, gólf og þiljur varö að kaupa af mönnum, sem bjuggu á rekajörö- um. Var mikið verk aö vinna viö- inn með þeim verkfærum, sem þá þekktust. Faðir minn var mjög hagur á tré. Hann smiðaði mikið á vetrum, aðallega fötur, byttur, trog, skiði og baujur, þ.e. lóða- dufl. Hann var einn vetur i Kaup- mannahöfn nokkru fyrir aidamót og vann þar á smiöaverkstæöi. Aður fyrr renndu Strandamenn diska, kúpur og matarföt úr hnyðjum. Var það viðast eða alls staðar lagt niður, þegar ég man eftir mér. Þó voru til slik matar- ilát heima i barnæsku minni, svo og askar, en þá var hætt að nota. Rekinn var þá, og er einkum nú, mikil tekjulind Vikur- sveitunga. Svo að segja hver jörð, sem byggð er nú i Arneshreppi, er rekajörð, og einnig margar þær jarðir, sem lagzt hafa i eyði. Hákarl, selur og fugl — Þú nefndir áðan að þú hefðir snemma lært áralagið. Rerir þú til fiskjar á æskuárum þinum? — Ég byrjaði snemma að gutla á sjó. Fiskur gekk þá inn á Reykjarfjörð, og var oft góður afli þar á sumrin, en þá stóð slátturinn yfir, beituöflun var stopul, svo að ekki var hægt að sinna fiskveiðum að ráði. Stund- um var róið á vorin að heiman út á Húnaflóa, og var það um fjög- urra klst. róður hvora leið. Á Gjögri reri ég eitt vor og tvö haust. Var þá jafnan róið út i Flóa. A hákarlaveiðum var ég eina vetrarvertið, á fimmtán til tuttugu lesta vélbát frá Kúvikum. Þótti mér það skemmtilegt. Við fiskuðum vel, og vildi ég að ég ætti vel verkaöa alla þá hákarla, sem ég hef drepið. Ég er vist hinn eini núlifandi hinna svokölluðu menntamanna islenzkra, sem hefur stundað þennan veiðiskap. A vetrum, þegar logn var, var oftast farið á. fugla- og selveiðar út á Reykjarfjörð. Að þessu var mikil björg, og við höföum oft langa kafla vetrarins teistu eða selkjöt tvisvar I viku. Ég fór fyrst að fara með byssu réttra fjórtán ára, eða eftir að ég var fermdur. Öfermdir unglingar fengu ekki að fara með byssu. Við lifðum að hálfu leyti veiðimannalifi, að skjóta fugla eða sel heyrði til lifs- baráttunni, og menn höfðu siður en svo nokkurt samvizkubit af drápi þeirra. En fyrir okkur var brýnt að drepa öll dýr hreinlega. Við lögðum oft mikið á okkur við að ná særðum fugli eða sel. Svipað gilti um útrýmingu músa, sem ollu oft miklu tjóni á matvælum og lögðust jafnvel á fé á hörðum vetri. Að drepa þær þótti hið mesta nauðsynja- og þarfaverk. — A bæjarhörfnunum hvildi aftur á móti eins konar helgi. Það þótti ólánsmerki að drepa hrafn. Við krakkarnir fengum alltaf aö gefa hröfnunum á Pálsmessu. Var það oftast afvatnaður saltfiskur, lát- inn á háan klett, sem hundar komust ekki upp á. — Minnist þú þess, að konur sæktu sjó, eins og ekki mun hafa veriö óalgengt fyrrum? — Konur fóru ekki i fiskiróöra, Djúpavik, séö til Naustvlkur yfir Reykjarfjörö frá Djúpuvik. Ljósm. Tryggvi Samúelsson. svo að ég muni eftir. Fæstar þeirra kunnu almennilega ára- lagiö, hvað þá heldur meira. Og ekki minnist ég þess, að þær hafi unniö að fiskiaðgerð. Hins vegar gripu þær stundum i að vaska saltfisk, og að þurrkun saltfisks, breiðslu hans og samantekt unnu konur, börn og karlmenn. Bátum sinum völdu Vikur- sveitungar góð nöfn. Þeir hugs- uðu vel um þá, treystu allan bún- að þeirra, dyttuöu að þeim, mál- uðu þá fagurlega á hverju vori. Góðum bátum áttu þeir oft lif sitt að launa. Þeir voru varla taldir til dauðra hluta, svo samgrónir voru þeir tilveru manna. Samband báts og manns mátti á flestan hátt likja við samband Skag- firðings við eftirlætisreiðhest sinn. Ef selja þurfti góðan bát, var þess gætt, að hann lenti hjá góðum sjómanni, sem lét sér að öllu leytiannt um hann. Kom þar fram sama viöhorf og við skepn- um. Menn vildu ekki láta hest, kú, kind eða hund nema til manna, sem fóru vel með þau. Uppeldisfræði Guðmundar Jónsonar — Lifði ekki á vörum fólks sem þú kynntist i æsku mikill fjöldi sagna um sérstæöa einstaklinga og eftirminnilega atburöi liöins tima? — Jú, nokkuð var um það. Ég hef skrifað nokkra þætti um ein- kennilega menn, og birtust þeir i Rauðskinnu endur fyrir löngu. Þaö gengu til dæmis talsvert margar sögur af langafabróður minum, sem Guðmundur hét og var Jónsson. Hann bjó lengstaf á Kjörvogi og i Ingólfsfirði. Guðmundur var greindur mað- ur og vel að sér, og tók þvi oft að sér unglinga til kennslu, eða i læri, eins og þaö var kallað. Eink- um munu það hafa verið óþekkir og þrjózkir strákar, sem komið var til hans. Ég segi hér aöeins eina sögu af þessum frænda minum, þvi að hún hefur nokkurt uppeldislegt gildi, og gætu menn sitthvað af henni lært. Guðmundur gekk mjög strang- lega eftir þvi, að fyrirmæli hans væru rétt skilin, og að þeim væri hlýtt. Eitt sinn fannst dauð mús i bænum i Ingólfsfiröi. Guömundur baö þá strák nokkurn, sem var til náms hjá honum, að taka músina og leggja hana á hauginn. Strákur hlýddi þegar, tók músina og kast- aði henni út á haug. Guðmundur horfði á aðfarir hans og lét þegar vanþóknun sina i ljós, þar sem strákur hafði ekki unnið verkið eins og hann baö hann um að gera það. Hann hafði beöið hann um að leggja músina á hauginn, en strákur hafði kastaö henni á hauginn. Varö nú strákur aö taka músina af haugnum, bera hana inn i bæ og láta hana á sama stað og hún var áður, taka hana upp á ný og leggja hana kirfilega á hauginn. Þessum ögunarháttum sinum lét Guömundur stundum fylgja einfaldar almennar skýringar. svo sem þær, hvilika nauðsyn bæri til þess, að hásetar skildu rétt skipanir formanns og hlýddu þeim. Allur misskilningurog röng framkvæmd gæti kostað skips- höfnina lifið. Helvitis- predikarinn — Manstu nokkuð eftir flökkur- um, þegar þú varst aö alast upp? — Flakkara sá ég aldrei. en nokkrum sértrúarmönnum og helvitispredikurum man ég eftir. Þóttu þeir sumir hvimleiðari. frekari og óskemmtilegri en gömlu flakkararnir. Einn þeirra kom heima og fékk leyfi til að predika.Faðirminnvará lifi. svo ég hef verið innan viö tiu ára ald- ur. Ég hlýddi fyrst á, en fann fljótt. að boðskapur hans var i allt Framhald á bls. 28

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.