Tíminn - 25.04.1976, Blaðsíða 4

Tíminn - 25.04.1976, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Sunnudagur 25. apríl 1976 Jarðbik hefur mikla kosti sem eldsneyti Nú er að þróast ný grein innan sovézka eldsneytisiðnaðarins, sem byggist á nýtingu jarðbiks eða steingerðrar oliu. Eldsneytis- og orkumála- stofnunin skýrir svo frá, að úr jarðbiki megi vinna sömu fram- leiðsluvörur og úr venjulegri oliu, en jaröbikið hafi hins vegar ýmsa kosti, fram yfir oliu. Þannig hefur diselolia, sem unnin er úr jarðbiki, lægra storknunarmark, en þaö hefur mikla þýðingu á heimskauta- svæöunum. Oliuhreinsunar- stöðvar geta vafningalaust tekið jaröbik til vinnslu, en á hinn bóginn er kostnaður við oliu- boranir mjög mikill. Ein aðferö- in er sú, að jarðbikinu er breytt i fljótandi form með þvi að kveikja I þvi. Stofnunin telur, að nýting jarðbiks sem eldsneytis muni auka oliuframleiösluna um margar milljónir tonna á ári. 4 # er maðurinn vel upplagður Vel rakaður Klaus Steínbach er sannfærður um að það sem hjálpaði honum til að setja nýtt met i 100 m sundi meö frjálsri aðferð, var að hann var nýrakaður. Hann var að þjálfa sig fyrir alþjóöasund- mót I Bremen. Hann hafði komizt niður i 49.99 sek. Þá fór hann og „rakaði sig niður” i 49.78 sek. Þannig varð Steinbach sá fyrsti sem synti þessa vegalengd fyrir neðan 50 sek. i 25 m laug eða lengri. Þetta gerðist i lokin á þjálfunartiman- um. Vissulega efast margir um að rakstur geti hjálpað sund- manni til að vinna einn hundraðasta úr sek. En það mun samt heldur ekki aftra mörgum sundmönnum, sem þátt taka I Olympiuleikunum næsta sumar frá aö koma nauð- rakaðir á höfði, fótleggjum og handleggjum til keppni. Einn Austurlenzk alþýðulyf Visindamaður við lækna- visindarannsóknarstofnunina I sovétlýðveldinu Aserbadsjan, Asaf Rustamov, hefur lokiö tiu ára starfi við að þýða og bera saman u.þ.b. þúsund ára gamlar uppskriftir að austur- lenzkum alþýðulyfjum. Hann hefur fundið uppskriftirnar I læknisfræði- og heimspeki- ritum, frásögnum og kvæðum á fornarabisku, aserbadsjönsku, persnesku, tyrknesku, latinu, rússnesku, o.fl. málum. Rusta- mov hefur þurft að umreikna ☆ ☆ þeirra, Klaus Steinbach, er kominn á leið þangað. Á myndinni sjáið þið Klaus Steinbach, órakaðan, meö dóttur sinni Andreu. uppgefnar mælieiningar til nútima mælieininga, en i aser- badsjönsku heimildunum einum saman voru notaðar 154 mis- munandi mælieiningar. * — Ráðið við þinu svefnleysi er aö halda mér vakandi. Slavnesk málkort 1 fyrsta sinn i sögu málrann sókna verður gefin út kortabók yfir útbreiðslusvæði allra slavneskra mála. i 10 ár hafa málvisindamenn frá Sovét- rikjunum, Póllandi, Tékkó- slóvakiu, ítaliu, Austurriki og fleiri löndum safnað efni til verksins. Hafa verið sendir leiðangrar til 800 staða, m ,a. 400 i Sovétrikjunum. Kortabókin mun gera mönn- um kleift að finna almennar reglur um þróun einstakra slavneskra mála og upp- byggingu þeirra. Fyrsta bindi verksins kemur út árið 1978 i tengslum við alþjóðaþing sérfræðinga I slavneskum málum. * — Fjandi óheppinn Idag. Ég er aö reyna að krækja I skó á hægri fót númer 42. — Farðu ekki langt, maturinn er að verða tilbúinn. DENNI DÆMALAUSI „Mamma segir, að allt sem okkur vanti núna á heimiliö sé fill til að leika sér að..hvar skyldi maður fá hann?”

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.