Tíminn - 28.04.1976, Blaðsíða 1

Tíminn - 28.04.1976, Blaðsíða 1
Aætlunarstaðir: Blönduós — Sigluf jörður Búðardalur — Reykhólar , Flateyri — Bíldudalur 'Gjögur— Hólmavík Hvammstangi — Stykkis- ihólmur — Rif Súgandaf j. jSjúkra- og leiguflug um 'allt land Simar: 2-60-60 & 2-60-66 ' r Einar Agústsson, utanríkisráðherra: SAMNINGURINN VIÐ V-ÞJÓÐVERJA GILD- IR EITTHVAÐ ÁFRAM — EKKERT HEFUR FRÁ ÞEIM HEYRZT — FRESTUR ÞEIRRA RENNUR ÚT í DAG Gsal-Reykjavik — Rikisstjórnin hefur ekki tekið neina ákvörðun varðandi samningana við Vestur-Þjóðverja og samningurinn, sem tók gildi s.l. haust verður þvi látinn gilda áfram, þar til annað hefur verið ákveðið, sagði Einar Agústsson, utanrikisráðherra i samtali við Timann i gær, en i dag 28. april átti bráðabirgðasamningur rikisstjórnar íslands og V-Þýzkalands að falla úr gildi, þar eð Þjóðverjar hafa ekki staðið við skilyrði, sem sett voru af hálfu tslendinga. Einar Agústsson, utanrikis- ráðherra kvaðst ekki vita um það, hvenær þetta mál kæmi til kasta rikisstjórnarinnar, en hins vegar kvaðst hann búast við þvi að heyra frá Þjóðverjum á næstunni. Það var 28. nóvember s.l., að rikisstjórnir íslands og V-Þýzkalands gerðu samning um fiskveiðiheimildir til handa þýzkum togurum innan 200 milna islenzkrar fiskveiði- lögsögu. t samningnum voru ákvæði þess efnis að hann myndi vera uppsegjanlegur án fyrirvara, en að undan gengn- um viðræðum, ef bókun 6 hjá Efnahagsbandalagi Evrópu hefði ekki tekið gildi að nýju fyrir íslendinga, en margrædd bókun felur sem kunnugt er i sér tollaivilnanir. Samningurinn var háður þvi skilyrði, að bókun 6 tæki gildi á timabilinu frá 28. april 1976. I dag eru þessir fimm mánuðir liðnir, sem Þjóðverjar höfðu til þess að beita áhrifa- mætti sinum innan Efnahags- bandalagsins og fá þvi framgengt að umrædd bókun tæki gildi. í dag Póst- og símamólastjórn: Fjarskiptaþjón- ustan við Breta skal vera sem eðlilegust --------> © Rætt við Pólverja og A-Þjóðverja um fiskveiðimól -------► ® Nú fer þeim að fækka rökkurkvöldunum við Reykjavíkurhöf n þetta vorið, þar sem þessi trilla vaggar sér mjúklega á spegilsléttum sjónum og bíður þess að fiskimaður vitji hennar að morgni og sæki björg í bú á fiskimið, sem eitt sinn voru f engsæl, en nú láta renna minna gull úr greipum sér. Framundan eru bjartar nætur, en aldrei er fegurra en á þeim árstíma við Sundin blá. IÍSRAELSKU ÍBÁTARNIR IHENTA EKKI = Gsal-Reykjavik. — Ég tel að EE þessir israelsku bátar henti ekki = aðstæðum hér, sagði Pétur Sig- EE urðsson, forstjóri Landhelgis- = gæzlunnar i samtali við Timann = igær, er hann var inntur álits á = boði ísraela, sem hafa boðið is- = lendingum hraðskreið skip af S ,,Dobro”-gerð. f Fram hefur komið, að bátar i þessir eru mun minni en Ashe- =llllllllllllllllllllllllllllllllllll!l|l|||||||||||||||||||||||||||| ville-skipin bandarísku. Rang- hermt var þvi i blaðinu i gær, að þau væru stærri en bandarisku skipin. Að sögn Péturs Sigurðssonar, forstjöra Landhelgisgæzlunnar eru bátar eins og þessir isra- elsku bátar langt frá þvi að vera hentugir við landhelgisgæzlu á opnu úthafi. Guðmundur RE 29: Hætti við kolmunnaveiðar — fengum enga fyrirgreiðslu hjó yfir- völdum, segir Páll Guðmundsson, skipstjóri gébe Rvik. —Við höfðum hug á að fara á kolmunnaveiðar, sagði Páll Guðmundsson skipstjóri á aflaskipinu Guðmundi RE 29, og værum farniref af þvf hefði getað orðið. Iiins vegar fengum við enga fyrirgreiðslu, þrátt fyrir að við höfðum beðið um hana hjá yfirvöldum — enn höfum við ekk- ert svar fengið. Þessar veiðar hefðu orðið tilr aunaveiðar og höfðum við hug á að fara á miðin vestur af eynni St. Kilda, en þar tel ég að bezti veiðitiminn sé upp úr miðjum inarz og út aprflmán- uö er kolmunninn gengur norður með, en i mai er hrygningatiminn búinn. Viö hefðuin þá reynt að koma með aflann isaðan i kössum heiin til að það inætti vinna úr lionum, og gera þá tilraunir með fleira en aöeins skreiöog bræðslu. — Það verður að finna verkefni handa flotanum til að beina veið- unum frá þorskinum eingöngu, sagði Páll. Það hefur verið taláð um kolmunna, langhala og fleiri tegundir, en ekkert hefur verið gert þó mikið hafi verið taláð um rannsóknir á veiðum á þessum tegundum. Hafrannsóknastofn- unin hefur að visu fá skip til um- raða, en með þvi að fara i rann- sóknarleiðangur i mai, eins og mér skilst að sé á áætlun hjá þeim, þá álit ég að það kalli jafn- vel það neikvæða fram i kol- munnaveiðum og gefi ranga hug- mynd, ef ekki er farið á þeim tima, sem vænta má verulegs ár- angurs. Pállsagðistvilja leggja áherzlu á það, að skipulag á þessum veið- um, svo og undirbúningur allur. verður að hefjást sem fyrst, svo einhver reynsla fáist, þannig að á næsta ári verði hægt að sækja i kolmunnann. Þá tók Páll einnig fram, að ekk- ert verðlag væri á kolmunna hér á landi, en hér skal tekið fram að skv. skrá Verðlagsráðs sjávarút- vegsins, er kg af kolmunna á kr. 2,73. Þvi til viðmiðunar er hægt að nefna að Færeyingar, sem stunda kolmunnaveiðar fá 7,80 kr. fyrir kg plús 3,00sem þeir fá frá rikinu. eða samtals kr. 10,80 fyrir kg. jjjllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllinillllllllillliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.