Tíminn - 28.04.1976, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Miðvikudagur 28. april 1976
Á FLÓTTA FRÁ ÁSTINNI
Eftir Rona Randall 39
kvöldi saman tvö ein, Myra. Við ættum að halda upp á
það, sagði hann, þegar þau voru setzt við lítið borð.
Hvers vegna? spurði hún kæruleysislega og honum
fannst hún horfa stríðnislega á sig.
Myra horfði með óþolinmæði á þjóninn, sem lagði á
borðið. Hún var ekki komin hér til að borða, heldur til
annars. Hún heyrði varla hvað Brent sagði.
— Brent — hvað er langt síðan þú varst seinast í
París? greip hún skyndilega fram í fyrir honum.
— Ó... það eru mörg ár, svaraði hann hissa. — Ég fór
héðan, þegar ég fékk mitt fyrsta verkefni í Englandi og
síðan hef ég verið þar.
— Þá er líklega langt síðan þú málaðir þetta, sagði hún
hægt og honum til undrunar tók hún upp úr pakkanum
svolitið, sem þaggaði gjörsamlega niðri í honum. Það
var mynd af Signu — lítið olíumálverk, óinnrammað.
Hann hafði alveg verið búinn að gleyma því, en hann
þekkti það strax aftur.
— Hvar i ósköpunum náðirðu í þetta? Hann var svo
hissa, að hann steingleymdi vonda skapinu — já hann
gleymdi meira að segja sjálfum sér, meðan Myra
breiddi úr hverri myndinni á fætur annarri á borðinu.
— Þetta eru þín verk, ekki satt? Ég vissi það um leið
og ég sá þau.
— En hvar? endurtók hann. — Almátturgur, það eru
óteljandi ár siðan ég gerði þetta. Þetta er svo byrjenda-
lagt og óþroskað....
— En kannske lofar það miklu. Það sýnir hæfileika
þína — og er áreiðanlega verðmætt í augum mannsins,
sem kenndi þér að mála.
Brent leiteinkennilega á hana. — Simon Beaumont! En
vina mín, þekkir þú hann?
— Það held ég.
— Hann varð himinlifandi. — Hvar hittirðu hann?
spurði hann ákaf ur. — Þú veizt ekki, hvað mig langar til
að hitta hann. Þú veizt að ég á honum allt að þakka.
— Já, ég veit það, sagði Myra. — Þess vegna tók ég
þetta.
— Tókst það? endurtók hann.
— Or herberginu hans.
— Svo þú veizt þá, hvar hann á heima. Gott! Láttu mig
hafa heimilisf angið. Ég er búin að reyna að ná sambandi
við hann, en það tókst ekki. Paris er þannig — þú veizt,
sérstaklega listamannahverfið — fólk kemur og fer....
— En sumir eru þar alltaf — til enda!
Eitthvað í rödd hennar varð til þess að hann leit spyrj-
andi á hana.— Hvaðáttu við með því, Myra?
— Bara það, að Beaumont er enn í París. Já og hann
mun aldrei fara héðan. Þú hefur ekki getað haft mikið
fyrir því að hafa uppi á honum Brent.
Honum geðjaðist ekki að ásökuninni, sem fólst í rödd-
inni, og f lýtti sér að segja: — Ég ... ég skrifaði, en hann
svaraði ekki.
— Og þar með varstu ánægður?
— Hvers vegna ekki? Ef hann hefði viljað halda sam-
bandi við mig, hefði hann áreiðanlega svarað.
— Ég held, að þú hefðir átt að reyna betur, Brent. Það
var hann sem uppgötvaði þig, ekki satt? Hann fann þig
sem lítinn, fátækan strák, fyirgefðu, að ég nefni það, en
þú sagði mér það sjálf ur einu sinni. Þú sagðir að foreldr-
ar þínir hefðu yf irgef ið þig peningalausan og f jarskyldir
ættingjar sett þig á barnaheimili. Var það ekki þar, sem
Simon Beaumont fann þig? Kom hann ekki á barna-
heimilið, til að leyta að fyrirmynd meðal barnanna?
Brent viðurkenndi þetta treglega þó. Það var svo langt
siðan hann hafði hugsað um barnæsku sína, að þetta var
næstum áfall. Hann hafði náð langt síðan og eins og
Myra sagði, var það Simon Beaumont, er hafði komið
honum áfram. Hann var órólegur í sætinu.
— Ég hef aldrei reynt að halda því leyndu, sagði hann
þrjózkulega. — Ég hef alltaf vitað, að ég skulda
Beaumont allt.
— En þú hef ur aldrei borgað honum neitt af skuldinni,
sagði hún áakandi.
—Ég gerði mér ekki grein fyrir, að ég hefði neitt að
borga! Ég gerði allt, sem hann vonaðist til og kannske
meira, var það ekki nóg?
— Ef til vill þá, en ekki núna.
— Hvað áttu við: Ég skil ekki....
— Hann er veikur, Brent. Hann liggur á St. Geroges-
sjúkrahúsinu. Þar hitti ég hann.
Svipur hans breyttist þegar í meðaumkunarsvip. —
Vesalings gamli maðurinn! Ég skal sannarlega heim-
sækja hann. Ég ætla að taka með mér eitthvað af ávöxt-
um handa honum. Hvenær er heimsóknartimi?
Skyndilega vall reiðin upp í henni. Hún varð reiðari en
hún minntist þess að hafa orðið áður á ævinni. Hún hafði
aldrei séð neinn galla á þessum manni, en nú var hún
bálreiðog full fyrirlitningar í hans garð! Hún hallaði sér
fram á borðið og sagði, ískaldri röddu:
HVELL
G
E
I
R
I
D
R
E
K
I
K
U
B
B
U
R
Geir, og Ronal á
leiðinni til
herbúða
Brukka.
Nomad-menn
baða sig i
i snjónum
á morgnana!
© r- u's •-
Ertu að1
segja mér
þetta núna
Mér liður eins
og fornaldardýrum
.jarðar hlýtur að hafa^
liðið...
Y~Við
verðum
að
Miðvikudagur
28. april
7.00 Morgunútvarp
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Þess
bera menn sár” eftir
Guðrúnu Lárusdóttur Olga
Sigurðardóttir les (16).
15.00 Miðdegistónleikar
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir.)
16.20 Popphom.
16.40 Litli barmtiminn
17.00 Lagið mitt
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál. Umsjónar-
menn: Arnmundur Back-
man og Gunnar Eydal, lög-
fræðingar.
20.00 Kvöldvaka a. Einsöngur
Sigriður E. Magnúsdóttir
syngur lög eftir Mariu
Brynjólfsdóttur, Sveinbjörn
Sveinbjörnsson, Markús
Kristjánsson og Þórarin
Guðmundsson. Ólafur Vign-
ir Albertsson leikur á pianó.
b. íslenskar þjóðsagnir,
skráðar i Vesturheimi.
Halldór Pétursson flytur. c.
Kvæði eftir Valdimar
Lárusson Höfundur flytur.
d. Kýrábyrgðarfélag Keld-
liverfinga Þórarinn
Haraldsson i Laufási segir
frá einu elsta tryggingarfé-
lagi landsins. e. 'Að kvöldi
Hugleiðingar eftir Þorbjörn
Björnsson á Geitaskarði.
Baldur Pálmason les. f.
Alþýðuvisur um ástina
Söngflokkur syngur laga-
flokk eftir Gunnar Reyni
Sveinsson, sem stjórnar
flutningi.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis Sigurður
A. Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (21).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Haraids Björns-
sonarHöfundurinn, Njörður
P. Njarðvik les (4).
22.40 Nútimatónlist Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
Miövikudagur
28. apríl
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Robinson-fjölskyId-
anBreskur myndaflokkur
byggður á sögu eftir Johann
Wyss. 12. þáttur. ógnir
Suðureyjar. Þýðandi Jó-
hanna Jóhannsdóttir.
18.45 Giuggar Breskur
fræðslumyndaflokkur. Þýð-
andi og þulur Jón O. Ed-
wald.
Hié
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Vaka Dagskrá um bók-
menntir og listir á liðandi
stund. Umsjónarmaður
Magdalena Schram. Stjórn
upptöku Andrés Indriðason.
21.20 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Þýðandi
Briet Héðinsdóttir.
21.45 Huliðsheimur Maya
Bresk heimildamynd um
menningu Maya-indiána,
uppruna hennar og endalok
á 11. öld. Eric Thompson,
sem helgað hefur lif sitt
rannsóknum á þessari fornu
menningarþjóð, skoðar
rústir gamalla borga i
Guatemala og i fylgd með
honum er Magnús Magnús-
son. Þýðandi Þórhallur
Guttormsson. Þulur Ellert
Sigurbjörnsson.
22.45 1 kjallaranum Björn R.
Einarsson, Gunnar Orm-
slev. Guðmundur Stein-
grimsson, Árni Scheving og
Karl Möller flytja nokkur
jasslög. Stjórn upptöku
Andrés Indriðason.
23.15 Dagskrárlok