Tíminn - 28.04.1976, Side 5
iYIiðvikudagur 28. apríl 1976
TÍMINN
5
Sjónarmið
loftskeytamanna
Vlsir og Mbl. hafa gert
mikið fjaðrafok út af loft-
skeytamálinu og er tiðrætt um
•■itskoðun i þvi sambandi*
Vegna þess er fráðlegt að
kynna sér viðhorf loftskeyta-
mannanna, en Mbi. birti viðtai
við einn þeirra, Sigurjón
Baldursson á Neskaupstað, i
blaðinu i gær. Sigurjón sagði
m.a.:
„Þann 11. marz s.I. sendum
viö simritarar i Neskaupstað,
tsafiröi, Siglufirði og Ifðfn i
Hornafirði Póst- og sima-
málastjórn samhljóða bréf og
cr þaö svohljóðandi: „Við
undirritaðir starfsmenn loft-
skeytastöðvarinnar I Ncs-
kaupstað tilkynnum hér með,
aö við teljum ekki rétt að vcita
brczkum togurum þjónustu
hér við land á mcðan þcir
brjóta islenzk lög, ncma I
neyðar- og öryggistilfeilum,
Sama gildir um aðstoðarskip
þeirra. Við munum þvi aðeins
sinna öryggís- og ncyðarvið-
skiptum viö þessi skip frá og
með 12. marz 1976, að
óbreyttum aðstæðum.”
Á þó ekki einnig
að afgreiða
póstinn?
„pao næsta, sem gerist I
málinu,” sagði Sigurjón, „er
að freigátan Ghurka kallar
upp Siglufjörð. Vakthafandi
loftskeytamaður spurði hvort
þetta væri neyðar- eöa
öryggistilfelli. Honum er sagt
að bcöið sé um blaðasamtal og
þá segir hann að þaö verði
ckki afgreitt, samkvæmt
áöurgetinni yfirlýsingu.
Við viljum taka það fram,
að viö eigum ekki i ncinu striði
viö Visi eða fréttamenn. Að
við séum ritskoðaðar er hreint
út I biáinn.
Nú siðan gerist það að við
fáum umburðarbréf, undir-
skrifað af póst- og simamála-
stjóra, sein við skiijuin allir
á þann veg, að það brcyti ckki
okkar fyrri ákvörðunum. Hins
vegar gerum viö okkur grein
fyrir þvi að við vorum að
brjóta alþjóðalög, með þvi að
afgreiða ekki samtöl við
brezku skipin, en við höfum
fordæmi fyrir okkur i þvi, scm
er bann viö aö afgreiða póst
frá brezkutn landhelgisbrjót-
um og aðstoðarskipum. En
póstþjónustan hcyrir undir
sömu lög og söniu yfirstjórn
og fjarskiptaviðskipti. Það
hefur ekki verið farið fram á
það, aö póstur fyrir þessi skip
vcrði afgreiddur.”
Búnir að gera
Bretum óleik
Loks sagði Sigurjón i viötal-
inu:
Ef við hefðum skilið um-
burðarbréfiö, eins og sumir
vilja, þá væri búiö að fá okkur
til að veita Bretum alia þjón-
ustu, sem mér þykir miður,
þvi við erum búnir að gera
þeint óleik nteð aðgerðum
okkar. Þeir ná t.d. sjaldan
sambandi viö útgeröarmenn-
ina i Bretlandi.”
Við sama
heygarðhornið
Þrátt fyrir þessar skýringar
loftskeytamannanna er rit-
stjóri Visis, Þorsteinn Páls-
son, við sama heygarðshornið
og hrópar i sifellu —■ ritskoðun,
ritskoðun. Og I leiðara I gær
þrástagast hann á þvi, að
Timinn hafi lýst yfir „ein-
dregnum stuðningi” viö hina
imynduöu ritskoðun.
Göbbels hefur fengið skæð-
an keppinaut, þar sem rit-
stjóri VIsis cr. —-a.þ.
Þessi mynd sýnir jeppann, sem flaug niður 80 metra brekku á Akureyri i fyrradag, þar sem hann hafn-
aði á húsþakinu. (Timamynd: K.S.)
SAS-forstjóri í heimsókn
FORSTJÓRI SAS i Danmörku,
Frede Ahlgreen Eriksen kemur
hingað i. stutta heimsókn um
næstu mánaðamót. Ahlgreen
Eriksen tók við forstjórastarfinu
hjá SAS i Danmörku af Jóhannesi
Nielsen fyrir liðlega ári. Jafn-
framt þvi að vera forstjóri SAS i
Danmörku er Ahlgreen Eriksen
aðili að æðstu stjórn SAS i Stokk-
hólmi.
Þetta er i fyrsta skipti, sem for-
stjóri SAS i Danmörku kemur
hingað i heimsókn siðan SAS hóf
starfsemi sina hér á landi fyrir 8
árum. Starfsemi SAS hér er hluti
af starfsvettvangi markaðsmála-
deildar SAS i Danmörku. I förinni
með Ahlgreen Eriksen verður ná-
inn samstarfsmaður hans i Höfn,
Jörgen Eilersen, en hann er að-
stoðarframkvæmdastjóri i mark-
aðsmáladeildinni i Höfn og hefur
verið tengdur málefnum SAS hér
á landi frá upphafi.
Fyrir utan að heimsækja skrif-
stofu SAS hér i borg, heimsækir
Frede Ahlgreen Eriksen Við-
skiptadeild Háskóla Islands, þar
sem hann flytur fyrirlestur.
Fyrirlestur sinn nefnir hann
„Staða SAS i alheimsflugmál-
um”. Að fyrirlestri sinum loknum
svarar Ahlgreen Eriksen fyrir-
spurnum nemenda i Viðskipta-
fræðideildinni. Siðar um daginn
verður farið til Vestmannaeyja,
ef veður leyfir.
(Or fréttatilkynningu)
Sparið
þúsundir
^^kaupið
HJÓLBARÐA
DRÁTTARVÉLA & VINNUVÉLA HJÓLBARÐAR:
STÆRÐ VERÐ
11x28/6 kr. 31.310.-
750 -16/6 kr. 12.810.-með slöngu.
650 -16/6 kr. 10.770.-með slöngu.
600 -16/6 kr. 8.850,- með slöngu.
700 -12/12 kr. 19.760.-
Ofantalin verð eru miðuð við skráð gengi U.S.S: 178.80
TÉKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐIÐ
Á /SLANDI H/F
AUÐBREKKU 44 -46 KÓPAVOGI SÍMI 42606
AKUREYRI SKODA VERKSTÆÐIO A AKUREYRI H F OSEYRI B
EGILSTAÐIR: VARAHLUTAVERSLUN GUNNARS GUNNARSSONAR
GAROABÆR NYBARÐI H F GAROABÆ
Tilboð óskast
í jörðina Hof i Vesturdal i Skagafirði.
Ræktað land 20-25 hektarar. Stórt afréttarland.
Hlunnindi: Veiöiréttur I á og vötnum.
Upplýsingar I simum (91) 5-32-12 og 2-14-87.
Réttur áskilinn til að taka hvaöa tilboði sem er eða hafna
öllum.
Tilboð óskast fyrir 11. mai.
Tilboð óskast i leitarkerfi („Paging system”) fyrir Borg-
arspitalann i Fossvogi.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, miðvikudaginn 26 mai
1976 kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR I
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 3Í5800
® ÚTBOÐ
Tilboð óskast i bryggjustaura og bryggjutimbur fyrir
Reykjavlkurhöfn.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3.
Tilboðin verða opnuð á sama stað, þriðjudaginn 25. mai
1976, kl. 11,00 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKTAVsÍKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
Auglýsið í Tímanum