Tíminn - 28.04.1976, Qupperneq 16
16
TÍMINN
Miövikudagur 28. apríl 1976
GRÆNLANDSVIKA
í Norræna húsinu
Dagskrá 28. apríl:
kl. 15:00 Kvikmyndasýning — Knud, um Knud Rasmussen
kl. 17:15 ólafur Halldórsson, handritafræöingur, fyrirlestur:
„Grönland i islandske kilder” (á dönsku)
kl. 20:30 Hans Lynge og Bodil Kaalund kynna listsýninguna (I
kjallaranum) og segja frá Grafik Værksted I Godthab
kl. 20:30 KVÖLDVAKA í HATIÐASAL MENNTASKÓLANS
v/HAMRAHLlÐ
Nemendur kennaraskólans I Godthab syngja og segja
frá Grænlandi. Kvikmyndir og fleira
Árni Johnsen kynnir.
Norræna húsið er opið til kl. 23:00
NORRÆNA
HÚSIÐ
Tónleikar
i Háskólabiói fimmtuáaginn 29. april kl. 20.30.
StjórnandL PÁLL P. PÁLSSON
Einleikari RHONDDA GILLESPIE
Efnisskrá: Rossini — William Tell forleikur
George Gershwin — Rhapsody in Blue
Edward McDowell — Pianókonsert nr. 2
Benjamin Britten — Young Persons’ Guide to the
Orchestra. (Framsögn: Þorsteinn Hannesson)
Aðgöngumiöar seldir i Bókabúð Lárusar Blöndal, Skóla-
vörðustig 2f og Bókaverslun Sigfúsar Eymundssonar,
Austurstræti 18.
L=dllll SINFÖNÍI HLJÖMSVEIT ÍSLANDS
f||| KlKISl IWRPID
Bifvélavirki — vélvirki
Óskum að ráða bifvélavirkja eða vél-
virkja til starfa nú þegar i véladeild
áhaldahússins i Borgartúni 5, Reykjavik.
Upplýsingar um starfið veita verk-
stjórarnir á vinnustað eða i sima 21000,
Vegagerð rikisins.
æmmimmímmmmmmMm
$
0
y-x
■:t
Orðsending frá
berklavarnadeild
Heilsuverndarstöðvar Reykjavikur.
Til aö stytta biðtíma þjónustuþega berklavarnadeildar
og jafna starf deildarinnar, hefur veriö ákveðiö að
koma á tfmapöntunum.
Eru þeir, sem þangaö þurfa aö leita, þvf vinsamlega
beðnir að panta tima áöur.
Tfmapöntun f sfma: 22400 — kl. 8.20-16.15.
5;,
f.-i v.
Sv.
■b»
’?*
I
i
•V:
y-’
Á
Hestur í óskilum
Dökk jarpur hestur, 5 til 6 vetra, ómarkað-
ur er i óskilum i Hækingsdal i Kjós.
Verður seldur að 3 vikum liðnum, ef eig-
andi gefur sig ekki fram.
Hreppstjóri Kjósarhrepps.
Lesendur
segja:
18300
Op/ð bréf til
Gísla Sigurðs-
sonar, blaðamJ
Arnesi 11/4 1976.
1 Lesbók Morgunblaðsins 4.
þ.m. slettir þú svo ógeðslega úr
klaufunum, að ég get ekki orða
bundizt.
Ég hélt, satt að segja, að mað-
ur i þinni stöðu og á þinum aldri
væri búinn að ná meiri þroska
og þjálfuri en svo, að hann léti
frá sér fara jafnalgjörlega
ábyrgðarlaus skrif.
Ekki ert þú nú mjög frum-
legur að þessu sinni. Þú minnir
mest á belju, sem búin er að
tapa jórtrinu og ekki á annarra
kosta völ en að fá gerjunina úr
næsta kjafti. Þú lepur upp i þig
glóðvolga tuggu frá Braga
Sigurjónssyni, sem hann er bú-
inn að japla á i fjöldamörg ár.
Vesalings Bragi greyið það var
mál til komið að einhver hvildi
hann á jórtrinu.
Hver er meining þin með
þessum skrifum? Ertu að reyna
að vekja upp aftur eitt illvigasta
deilumál 20. aldarinnar hér á
landi? Ertu að svivirða hæsta-
rétt sem dæmdi i málinu?
Veiztu ekki, að Laxármál
féllu á islenzka rikið með dómi
hæstaréttar, þar sem fram-
kvæmdavald hafði brotið lög á
þegnum þjóðfélagsins? Mið-
kvislarmál ættir þú að kynna
þér betur, þvi hvert það mál,
sem maður dæmir og telur sig
hæfan til dómsáfellingar i skyldi
maður gjörþekkja.
Miðkvislarmenn fram-
kvæmdu sjálftöku, það er tóku
rétt sinn sjálfir, en sóttu hann
ekki til dómsvaldsins, höfðu lög-
verndaðra hagsmuna að gæta
eins og segir i hæstaréttar-
dómi 1972. Miðkvislarstifla
var þvi frá upphafi eins og land-
eigendur vissu — ólögmæt.
Það væri vissulega mikill
pólitiskur og menningarlegur
sigur fyrir „kommaliðið”, ef
það ætti eitt heiðurinn af þvi að
hafa bjargað Laxá og komið i
veg fyrir það réttarhneyksli,
sem verið var að fremja á ibú-
um Laxárdals. En þar komu nú
fleiri til, Gisli minn, og ekki ert
þú langminnugur, ef þú manst
ekki góðan hlut Morgunblaðsins
að þeim málum og margra
fleiri. En hvað um það:
,,komma”-liðið má vera þér
þakklátt fyrir að vekja athygli á
þess ágæta hlut i Laxárbarátt-
unni.
Hvernig getur þú sagt, að
engin eftirsjá hefði verið að eyð-
ingu Laxárdals, einnar fegurstu
sveitar á Islandi? Mér finnast
þessi ummæli þér til stór-
skammar. Hvar er nú náttúru-
unnandinn og sjálfstæðishetjan
Gisli Sigurðsson? Er Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki lengur
málsvari eignarréttarins? Eða
er sósialisminn farinn að læða
tánum inn fyrir stafinn hjá þér
og kenna undirstöðuatriði þjóð-
nýtingar? Þú ert námfús. Ég
get varla imyndað mér, að
Morgunblaðið ljái þér siður sin-
ar framvegis til slikra skrifa og
þó allra sizt Lesbókina, sem
hingað til hefur verið ópólitisk.
Sé ég ekki betur en þú hafir mis-
notað vald þitt sem ritstjórnar-
fulltrúi til þess að læða inn þess-
um óþverra.
Ekki eru skrif þin neitt sak-
leysisverk þvi greinin er full af
lygi og rætni.
En hvers vegna? Áttu eitt-
hvað sökótt við Þingeyinga? Sé
svo hafa þeir hingað til reynzt
menn til þess að svara fyrir sig
og gera það eflaust enn, ef held-
ur sem horfir.
Með vinsemd, en litilli virðingu.
Jóhanna Á. Steingrímsdóttir.
Ávarp til fermingarbarna
Fermingardagur.
Þegar maður flettir dagblöð-
um höfuðstaðarins, um þessar
mundir má m.a. sjá langa
nafnalista fermingarbarna.
Margt flýgur i huga og spurn-
ingar um framtið, störf og kjör
þessa glæsilega ungmenna-
skara verða áleitnar.
Þaðeru49ársiðan Ljósberinn
flutti smágreinina — „Til
fermingarbarna” — frá mér og
þar eð ég held að efnið sé enn
timabært, vil ég biðja Timann
að endurflytja þessa kveðju:
,,— Alltaf finnst mér
fermingardagar verahátiðisdag-
ar, ekki aðeins fyrir börnin sjálf
og þeirra nánustu, heldur og
fyrir söfnuðinn i heild, sem þá
tekur á móti i félag sitt fleiri eða
færri ungmennum, sem eiga
smáttogsmáttað fara að starfa
að heill og heiðri kirkjufélags-
ins.
Fermingin er staöfesting
skirnarinnar, en skirnin er sátt-
máli góðrar samvizku við guð,
stofnuð og fyrirskipuð af Kristi
sjálfum, sem órjúfandi tákn
guðs helgandi náðar og samein-
ingar allra barna hans.
Fermingin er þannig staðfest-
ing þess sáttmála, þess heits
endurnýjun, sem aðrir gerðu
fyrir barnið á ómálga aldri
þess. Fyrir fermingu á barnið
aðhafa fengiðnauðsynlega upp-
fræðingu i höfuðatriðum kristi-
legra lærdóma, leiðbeiningar til
að geta með eigin vilja og góðri
samvizku staðfest — sáttmála
skírnarinnar.
Með öðrum orðum:
fermingarbarnið heitir guði
ævinlegri trú og hollustu, heitir
að æfa sig og fullkomna i þvi,
sem fagurt er og samkvæmt
Krists dýrðlega dæmi.
. /
— Ég æfi sjálfan mig að hafa
jafnan óflekkaða samvizku bæði
fyrir guði og mönnum —, segir
Páll postuli og — eins og Kristur
reis upp frá dauðum, svo eigum
vér að ganga i endurnýjung lif-
daganna. — Allt þetta minnir
fermingin á.
Fermingardagurinn er þvi
fyrir minum augum einn hinn
merkasti dagur á ævi manns og
fermingarstundin ein hin hátið-
legasta og ætti að vera áhrifarik
stundfyrir alla viðstadda. Þá er
tækifærið fyrir hina eldri að
rifja upp og spyrja sjálfa sig:
Hvemig hef ég rækt stöðu mina
sem annur lærisveinn Jesú
Krisls?
Slik sjálfsprófun er öllum
nauðsynleg og sjaldan er ræki-
legar minnt á hana, en þegar
ungmennin ganga að altarinu til
að staðfesta skirnarsáttmála
sinn.
— Haltu fast þvi sem þú hefur
— ungi vinur , hver sem þú ert.
Slepptu ekkiþvi sem þú hefur af
góðum andans gróðri frá æsku-
árum þinum.
Þú ert skirður i nafni hins þri-
eina guðs, þú ert græddur sem
grein á lifsmeiðnum Kristi
sjálfum, grein sem á að bera
fagran og blessunarrikan ávöxt,
þú hefur fengið hraustan likama
og heilbrigða sál. Haltu fast i
þetta allt einnig i þekkingu þá
sem þú hefur öðlazt og leitastu
við að auka þar við eftir getu.
Haltu fast i barnatrúna þina,
æskuheimilið þitt og heilræði
foreldra þinna og mundu hvað
þau hafa lagt á sig þin vegna.
Vert þú ljósberiá heimili þinu
og öðru umhverfi. Haltu fast i
trúna, vonina og kærleikann.
Haltu fast i náðarfyrirheit Jesú
Krists. Slepptu aldrei guði úr
brjósti þinu þá sleppir hann
aldrei hendi sinni af þér og gef-
ur þér að siðustu kórónu lffsins
samkvæmt sinu fyrirheiti, sem
aldrei getur brugðizt.”
Þessi nær fimmtugu kveðju-
orð min vil ég nú endurtaka og
biðja guðsblessunar þessa árs
æskuskara.
Einar Sigurfinnsson
Hverageröi.