Tíminn - 28.04.1976, Side 20

Tíminn - 28.04.1976, Side 20
PLAST ÞAKRENNUR Sterkar og endingagóðar Hagstætt verð. c§h Nýborg? O Armúla 23 — Sími 86755 FÓÐURVÖRUR þekktar UM LAND ALLT fyrir gæði Guðbjörn Guðjónsson Heildverzlun Síðumúla 22 Simar 85694 & 85295 Tryggiðgegn stein- efnaskorti,-gefið STEWART fóðursalt SAMBANDIÐ INNFLUTNINGSDEILD Miðvikudagur 28. apríl 1976 Þingið herði refsilöggjöfina vegna smygls og sölu Reuter, Washington. — Gerald Ford, Bandarikjaforseti, fór þess á leit i gær, að aðrar þjóðir hjálp- uðu til við að stöðva ínnílutning ó- löglegra lyfja og fikniefna til Bandarikjanna og þannig aðstoða við að binda endi á það sem hann nefndi „ógnun við heilsu og fram- tið Bandarikjamanna”. Hann hvatti bandariska þingið eindregið til að samþykkja harða fangelsisdóma sem viðurlög við sölu eiturlyfja og ffkniefna og að herða löggjöfina gegn smyglur- um. I sérstakri tilkynningu sinni lýsti forsetinn kostnaðinum vegna misnotkunar lyfja I Banda- rikjunum sem „hrikalegum” og sagði að vandamál þetta færi versnandi, þrátt fyrir að rikis- stjórnin verði meira en sjö hundr- uð og fimmtlu milljónum dollara til baráttunnar við það á siðasta ári. Ford sagði að meira en fimm þúsund Bandarikjamenn létust árlega vegna misnotkunar lyfja. Ennfremur sagði hann, að helmingur allra „götuglæpa” væru framdir af fikni- og eitur- lyfjaneytendum og að vandamál vegna misnotkunar lyfja og endurhæfingar neytenda þeirra kostuðu Bandarikin um seytján þúsund milljónir dollara á ári hverju. Sagði hann, að Bandarikin myndu auka tilraunir sinar til að fá önnur riki til samstarfs eftir diplómatiskum leiðum og ennfremur yrði stefnt að gerð ná- kvæmari og yfirgripsmeiri sátt- málum, sem nota mætti til að berjast gegn vandamálum þess- um á alþjóðavettvangi. Ford, sem haft hefur orð á áhyggjum sinum vegna „mexik- anska sambandsins” i kosninga- baráttu sinni vegna forkosning- anna, bar i gær fram þakkir sinar við forseta Mexikós, Luis Eshe- verria, vegna þess sem hann nefndi „nýja viðurkenningu á og baráttu gegn” smygli á eiturlyf- inu heróini til Bandarikjanna um mexikönsku landamærin. Forsetinn fór þess á leit við þingið i gær, að það fyrirskipaði þriggja ára fangelsisvist sem lág- marksrefsingu fyrir fikniefna- og eiturlyfjasölu, þegar um fyrsta brot væri að ræða, en sex ára fangelsisvist fyrir endurtekin brot og fyrir að selja lyf til þeirra sem eru undir lögaldri, hvort sem um fyrsta brot eða endurtekin er að ræða. Annað það, sem forsetinn fór á leit, var meðal annars aukin völd til handa tollþjónustunni, einkum á þann veg að hún fái heimild til að leita að lyfjum og öðrum toll- varningi f bátum i einkaeign, sem koma til hafna i Bandarikjunum. Shimon Peres, varnarmálaráðherra ísrael: Sýrland ætlar að yfirtaka Líbanon Reuter, Tel Aviv.— Shimon Per- es, varnarmálaráðherra tsraels- rikis, lét I gær hafa eftir sér, að hann áliti að endanlegt takmark Sýrlendinga með afskiptum sin- um af innanrikismálefnum Styrkja flota vegna Líba non Reuter, Parfs. — Frakkar hafa fyrirskipað þyrlu- móðurskipi sinu Jeanne d’Arc að hálda inn á Mið- jarðarhaf til styrktar flota Frakka þar, eftir þvi sem franski sjóherinn skýrði frá i gær. Tilfærsla þessi kemur i kjölfar opinberrar yfirlýs- ingar um að Frakkland sé reiðubúið að gegna hlutverki friðargæzluaðila i Libanon. Libanon væri að taka landið allt i sinar hendur, til þess að geta ráð- izt á tsrael af meira afli og á lengri landamærum. t viðtali i timariti israelska hersins, Bamahane sagði Peres, að Frelsissamtök Palestinuaraba (PLO) stefndu að þvi, að eyði- leggja tsraelsriki með hryðju- verkum, en stefna Sýrlendinga væri hins vegar sú að eyða tsrael með allsherjarstyrjöld. — t raun og veru vilja Sýrlend- ingar og ætla sér að gleypa Libanon og verða þannig riki, sem telja myndi niu milljónir þegna, i stað sex milljóna, eins og nú er. Þannig gætu þeir komið sér upp mun stærri her og orðið mun meiri ógnun við öryggi tsraels- rikis, sagði Peres i viðtalinu. Stefna Sýrlendinga og aðgerðir þeirra i Libanon fram til þessa hljóta að teljast vera á byrjunar- scigi sinu. Það er ekki nokkur efi á, að endanlegt markmið þeirra er að koma á mjög nánu og yfirtaks- miklu samstarfi, eða sameiningu, þannig að Sýrland geti, einhvern tima i framtiðinni, ráðizt á Israel með sameinuðu afli þessara rikja. En Sýrlendingarnir myndu mæta harðri mótstöðu innan Libanon sjálfs, gegn hverri til- raun til að hertaka landið eða taka málefni þess I sinar hendur, og það hafa leiðtogar þeirra i Damaskus þegar gert sér ljóst, sagði varnarmálaráðherrann ennfremur i viðtalinu við timarit- New York: Tvaer gamlar konur sultu í hel vegna ótta við unglinga NTB/Reuter, New York. — lögreglan fann þau. Tvær systur, önnur áttatiu og Fólk, sem býr i nágrenni við þriggja ára og hin áttatiu og fimm ára, fundust látnar i Ibúð sinni I New York nýlega. Rann- sókn á likunum leiddi i ljós, að báðar höfðu konurnar soltið i hel og það þrátt fyrir mikla pen- ingaeign, þvi i ibúðinni hjá þeim fundust alls fimmtlu og sex þús- und dollarar i reiðufé (um tiu milljónir islenzkra króna). Lik hvorrar konu um sig vó aðeins þrjátiu og sex kiló þegar ibúð systranna hefur skýrt lög- reglunni frá þvi að konurnar hafi um nokkurra ára skeið orð- ið fyrir mikilli áreitni frá hópum unglinga i nágrenninu og að þær hafi hreinlega ekki þorað að fara út fyrir dyr, vegna þess. Ekkert matarkyns fannst i ibúðinni, utan að i isskápnum var flaska af Tabasco-sósu og önnur af sitrónusafa. a Ítalíu í (úní I sumar Sósial-demókratar tóku af skarið og greiða atkvæði gegn ríkisstjórninni • r Reuter, Róm — Flokkur sósial-demókrata rak i gær siðasta naglann i likkistu hinnar tiu vikna gömlu minnihluta- stjórnar á ttaliu og tryggði þannig að mestu að þingkosning- ar verði innan skamms haldnar i landinu. Só sia 1-dem ókra ta flo kkur inn, sem erlitill flokkur og hefur fram til þessa stutt minnihlutastjórn_ Kristilegra demókrata, undir forsæti Aldos Moros sagði i gær að hann myndi ekki greiða atkvæðimeð stuðningsyfirlýsingu við rikisstjórnina, ef viðræður þær sem nú standa yfir um þing- Silvia flytur NTB/DPA, Stokkhóltni. - Fyrir nokkrum dögum kom til Stokkhólms gámur einn allmikill, sem vó um niu hundruð kíló og flutninga- fyrirtæki það sem sendi hann þangað upplýsti þá að hann innihéidi hluta af persönu- iegum munum Sílviu Sommerlath, sem nýlega trúlofaðist Carli Gústafi Svfa- konungi. Sovétmenn trufla enn sendingar vestrænna áróðurs-útvarps- stöðva Reuter, Boirn. — Trufianir á útvarpssendingum vestrænna útvarpsstöðva til Sovétrikj- anna og rikja Austur-Evrópu hafa haldiö áfram, óbreyttar, þrátt fyrir samkomulag þaö, sem gert var i Helsinki á siðasta ári um frjálst flæði upplýsinga milli ianda, sagði Sig Mickelson, forseti stöðv- anna Frjáis Evrópa og Dtvarp Liberly, f gær. — Við höfum ekki orðið varir við neinar breytingar á truflunum þessum, sagði hann. Aðeins Ungverjaland og Rúmenia hafa iátið sending- arnar óáreittar, en trufianir þessar koma að miklu ieyti i veg l'yrir að sendingarnar heyrist i A-Evrópu. Mickelson sagði ennfremur, að hannanir sýndu að útsend- ingar stöðvanna næðu til um þrjátiu og fimm milljóna hlustenda i Sovétrikjunum i hverjum mánuði. Og svo - samatt í - allir baðið! Reuter, London. — Héraðs- yfirvöld Isuðurhluta Englands sendu i gáardag frá sér fimmtiu þúsund dreifíbréf, þar sem fjöiskyldur — móöir, faðir og börn — eru hvattar tii að fara saman i baðá komandi sumri, til þess að spara vatn og, þar með, hjálpa til við að koma í veg fyrir vatnsskort þann, sern yfirvofandi er. Hvatning þessi hefur vakið nneykslun margra Breta, sem vanir eru að baöa sig I algerri einveru og leggja mikið upp úr „baðfriði” sinura. Þar sem veturinn hefur verið sériega þurr á Bret- landseyjum er búizt við mikl- um vatnsskorti þar i sumar, nema mikiár rigningar verði á næstu vikum. eggjakíló NTB, Ljungby. — Egg geta aidrei orðið of dýr, ef sölu- veröi þeirra er varið til þarfra m^la, sagði maður nokkur frá sænsku Smálöndunum ný- lega á uppboði i Ljungby. Maðurinn hafði þá gengið frá kaupuin á einu kilói eggja og greiddi fyrir þau eitt hundrað og fimmtiu norskar krónur eða um fjögur þúsund og fimm hundruð krónur is- lenzkar. Ágóðanum af uppboði þessu verður varið til liknarmáia, þar d meðal söluverði þessa dýra eggjakilós. stuðning við hana enda i atkvæða- greiðslu. Ekki var i gær ljóst hvort til slikrar atkvæðagreiðslu kæmi, en formlegar umræður um þingstuðning við rikisstjórnina hefjast I kvöld og munu þær standa þar til á föstudag. Stiórnmálaskýrendur á ttaliu sögðu i gær að mun liklegra væri að Moro forsætisráðherra myndi einfaldlega tilkynna, þegar drægi að lokum umræðnanna, að hann segði af sér embætti, vegna hvarfs þingsins frá stuðningi við stjórnina. Og þá gerði ákvörðun Sósial-demókrataflokksins ekki einvörðungu úrslit hugsanlegrar stuðningsatkvæðagreiðslu fyrir- fram ljós, heldur kæmi einnig i veg fyrir að komizt yrði hjá kosningum með þvi að mynda meirihluta mið- og hægriflokka á þingi. Ekki er að fullu vist hve hraður gangur mála verður eftir að umræðum þessum lýkur, en búizt er við, að Leone forseti rjúfi þing boði til fyrir fimmta mai og kosninga þann 20. júni. Kosningabaráttan gæti orðið mjög hörð, jafnvel blóðug, en þegar hafa sézt merki um risandi öldu stjórnmálalegs ofbeldis á ttaliu. Flestar skoðanakannanir sem gerðar hafa verið undanfarið hafa bent til þess að Kommúnistaflokkur Berlinguers myndi koma út úr kosningunum sem stærsti flokkur landsins og enda þar með þrjátíu ára einokun Kristilegra demókrata i stjórn- málum ttaliu. Undanfarin þrjátiu ár hefur hver einasti forsætis- ráðherra verið úr röðum Kristi- legra-demókrata. Eini möguleikinn sem stjórn- málaskýrendur sjá til þess að kosningum verði frestað fram til hausts eða lengur er sá, að Leone forseti segi af sér, vegna hugsan- legrar aðildar sinnar að Lockheed-hneykslinu svonefnda. Sá möguleiki er þó talinn ákaflega fjarlægur. Fimm borgarráðsmenn Parísar handteknir þegar þeir Mótmæltu komu Geisel Reuter, Paris.—Fimm sósialist- ar, sem sæti eiga i borgarráði Parisar voru handteknir i gær, meðan þar stóðu yfir mótmæli vegna heimsóknar forseta Brasiliu, Ernestos Geisels, hers- höfðingja, eftir þvi sem lögreglan i Paris segir. Mennirnir fimm voru siðar látnir lausir, en þeir voru meðal tuttugu manna úr hópi mótmæl- enda, sem handteknir voru i þvi skyni að skrá þá. Meðal mann- anna var Michel Salles, sem er leiðtogi sósialista i borgarráði Parisar. Fulltrúar sósialista i borgar- ráðinu birtu siðar i gær yfirlýs- ingu þar sem þeir mótmæltu heimsókn forsetans og gagnrýndu frönsku rikisstjórnina fyrir að sýna á þennan hátt „samstöðu með stjórn fasista i Brasiiiu”, Sósialistar og kommúnistar gerðu aðsúg að forsetanum þegar hann kom i borgarráðshúsið og kölluðu hann „einræðisherra og „piningamann”.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.