Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 16

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 16
 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR16 nær og fjær „ORÐRÉTT“ Þið þarna fyrir sunnan þurfið að fara að drífa ykkur hingað norður á skíði,“ segir Ragnar Sverrisson, formaður Kaup- mannafélags Akureyrar. Hann segir snjó- inn í fjallinu vera góðan. „Mér skilst að starfsmenn skíðasvæðisins hérna séu að leita að snjóframleiðsluvélinni sinni í snjónum uppi í fjalli,“ segir Ragnar. „Hér er farið að sjást ferðafólk sem kemur á skíði. Þetta er ekki aðeins skíða- fólk því meira en helmingurinn er ungir snjóbrettaiðkendur. Þeir flykkjast í fjall- ið.“ Ragnar segir einhverja gerjun vera í bæjarpólitíkinni á Akureyri þessa dag- ana. „Hér var Samfylkingin með prófkjör um daginn og mér skilst að þau ætli sér að ná að minnsta kosti fjórum fulltrúum í bæjarstjórn. Hinir tala á meðan um hvar í ósköpunum Samfylkingin ætli sér að finna það fylgi sem þarf.“ Ragnar segir enn fremur að nú fari að sjást niðurstöður úr verkefninu Akur- eyri í öndvegi, en það varðar endur- skipulagningu á bænum, ekki hvað síst ásýnd miðbæjarins. „Fólk bíður spennt eftir því að heyra hvað verður gert. Nú vilja allir fá að vita hvað má gera hvar, arkitektarnir, verktakarnir og ekki síst íbúarnir. Þetta eru stóru fréttirnar sem við bíðum eftir.“ „Hér er fólk eitthvað byrjað að skreyta hjá sér húsin og á sama tíma fara hjörtu kaupmanna að slá eilítið örar er þeir byrja að búa sig undir jólaversl- unina,“ segir Ragnar og bætir við að sér sé málið skylt enda er hann formaður kaupmannafélagsins þar nyrðra. HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? RAGNAR SVERRISSON, FORMAÐUR KAUPMANNAFÉLAGS AKUREYRAR Hjörtu kaupmanna slá örar Voff „Ég vil hvetja alla hunda- eigendur til að standa saman og styðja við bakið á sínum mönnum, þegar þeir gefa kost á sér til að sinna störfum fyrir bæjarfélög. Árni Þór Helgason, hundaeigendandi og frambjóðandi í prófkjöri Sjálf- stæðisflokksins í Hafnarfirði, í grein í Morgunblaðinu. Úlfur, úlfur „Maður vill ekki hrófla alveg strax við nýjum ráðherra...“ Magnús Kristinsson, útgerðarmaður í Vestmannaeyjum, sem hætt hefur við að fara í mál við sjávarútvegsráðherra vegna byggðakvóta. Fréttablaðið. Ekki hefur gengið þrautalaust fyrir þingmenn Suðurkjördæmis að komast til Vestmannaeyja eins og þeir hafa stefnt að um skeið. Slæm veðurspá og fjarvera for- ystumanna Vestmannaeyjabæjar hafa hamlað för. Nokkuð er síðan þingmenn kjördæmisins ætluðu í heimsókn til Eyja til funda við forystumenn bæjarfélagsins, stofnana og fyrir- tækja. Þá kom slæm veðurspá í veg fyrir för en afráðið var að fresta henni degi áður þar sem veðurútlit var dökkt. Nokkrum dögum síðar átti aftur að reyna en þá kom í ljós að bæjarstjóri og helstu bæjarstjórnarmenn voru á fundi í Reykjavík. Nú stendur til að fara á föstudag en óvíst er hvort af ferðinni geti orðið þar sem spáin er slæm. „Eyjamenn skilja lítt í hvers vegna þingmennirnir geta ekki ferðast með Herjólfi eins og aðrir,“ segir Jóhann Ingi Árnason, ritstjóri Eyjar.net en í atkvæða- greiðslu á miðlinum má glögglega sjá að heimamenn eru ósáttir við frestun þingmannakomunnar. Yfirgnæfandi meirihluti hefur látið þá skoðun sína í ljós. - bþs HERJÓLFUR Eyjamenn skilja lítt hvers vegna þingmenn geta ekki komið með ferjunni eins og aðrir. Alþingismenn reyna að komast til Vestmannaeyja í þriðja sinn: Eyjamenn benda þingmönn- um á að ferðast með Herjólfi Íslenskar mjólkurvörur léku við bragðlauka dóm- ara á Mjólkursýningunni í Herning í Danmörku í gær. Sömu dómarar voru þó hlut- drægir þegar þeir útdeildu Norðurlandameistaratitlum til framleiðenda. „Við erum afskaplega ánægðir með okkur,“ sagði Helgi Jóhann- esson, forstjóri Norðurmjólkur, glaður í bragði eftir að dómar og úrslit á mjólkursýningunni miklu lágu fyrir í gær. „Og ekki nóg með það, við erum stoltir af íslenskum mjólkuriðnaði í samanburði við frændur okkar á Norðurlöndun- um.“ Helgi og félagar höfðu ærna ástæðu til að gleðjast; íslenskar mjólkurafurðir unnu til tíu gull- verðlauna, tuttugu silfurverð- launa og tuttugu bronsverðlauna. Þann skugga bar þó á að þrátt fyrir að íslenskar vörur hafi hlotið öll þessi verðlaun og að auki flest stig í fimm flokkum hlutu íslensku mjólkurbúin engin Norðurlanda- meistaratitill í þetta skiptið. Er þar helst um að kenna þeirri staðreynd að flestir dómararnir voru heima- dómarar en danskir framleið- endur hrepptu alla Norðurlanda- meistaratitlana. „Smekkur þeirra ræður,“ segir Helgi og hlær dátt að vangaveltu blaðamanns um mögu- legt hneyksli. „Við erum pínulítið skúffaðir,“ viðurkennir hann þó. Þó allir helstu mjólkurfræð- ingar og ostagerðarmeistarar Norðurlandanna séu í Herning ku framleiðslan ganga sinn vanagang í mjólkurbúum og neytendur ættu ekki að verða varir við fjarveru meistaranna, sem sjálfir líða ekki skort í sýningarhöllinni. „Ætli hér séu ekki yfir tvö þúsund vörur sem maður getur skoðað og smakkað,“ segir Helgi með mjólkurbragð í munni. ■ Í KÆLINUM Úrval íslenskra mjólkurafurða er gott og framleiðendur fengu rós í hnappagatið í Danmörku í gær þegar þeir voru verðlaunaðir fyrir fjölda vara. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN SIGURSÆLIR MJÓLKURMENN Magnús Ólafsson, forstjóri Osta- og smjörsölunnar, Helgi Jóhannesson, forstjóri Norðurmjólkur, og Hólmgeir Karlsson, markaðsstjóri Norðurmjólkur. Íslensku skyrdrykkirnir slá í gegn í Danmörku SNJÓNUM RUTT ÚR VEGI Nei, þessi mynd er ekki tekin á norðanverðu Íslandi heldur í norðurhéruðum Spánar. Þar hefur snjóað heil ósköp síðustu daga, svo mikið raunar að stjórnvöld hafa varað við ofankomunni. Snjókoma er alls ekki fátíð á þessum slóðum en Spánverjar eiga þó ekki að venjast fannfergi í þeim mæli sem nú er. MYND/AP ALLT UM JÓNS-FARSANN Í DV Í DAG DV birtir Kastljóssviðtalið í heild sinni Kjartan fundaði með Elínu Hirst á Þremur frökkum í gær DV2x15 15.11.2005 20:11 Page 1

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.