Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 23
[ ]
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA ATVINNA BRÚÐKAUP TILBOÐ O.FL
��������������
�������
������������������
�������������
��������
������
�����������������
��� ����
�������������������
�������
�������
�������������
��������������
��������������
���������������
��������������
� ��������
Góðan dag!
Í dag er miðvikudagur 16. nóvem-
ber 320. dagur ársins 2005.
Umsóknarfrestur um styrk
til sumarnámskeiðs í Þýska-
landi hefur verið framlengdur
af menntamálaráðuneytinu
til 1. desember. Allt að þrír
umsækjendur munu hljóta
styrk til að stunda þýskunám-
skeið sumarið 2006. Nánari
upplýsingar má nálgast hjá
menntamála-
ráðuneyt-
inu.
Vetrarvörur fyrir bílinn má
nú fá á tilboðsverði á ýmsum
bensínstöðvum landsins.
Núna er nefnilega sá tími
þar sem sinna þarf bílnum
af mikillri alúð. Tjöruleysir,
frostlögur, rúðuhreinsir og
rúðuskafa eru nauðsynlegir
aukahlutir í bílinn. Um að
gera að nýta tækifærið á
meðan þetta er á tilboði.
Jólahlaðborð á hótel Flúð-
um, Hótel Rangá og fleiri
hótelum er girnilegur kostur.
Það er mjög afslappandi að
kíkja út fyrir bæjarmörkin í
afslappandi umhverfi lands-
byggðarinnar svona rétt
fyrir jólaörtröðina. Á Hótel
Flúðum og á Hótel Rangá er
boðið upp á sérstakt jólatil-
boð frá 25. nóvember til 10.
desember þar sem innifalið
er meðal annars gisting
og jólahlaðborð en
bóka verður á netinu.
Dagur íslenskrar
tungu er haldinn
hátíðlegur í dag.
Dagurinn er hald-
inn á afmælisdegi
listaskáldsins ljúfa, Jónasar
Hallgrímssonar. Fjölbreytt
dagskrá er um land allt í
tilefni dagsins. Hægt er
að fá frekari
upplýsingar
um dag
íslenskrar
tungu og
frekari
dagskrá á
nams-
gagna-
stofnun.
is.
LIGGUR Í LOFTI
[BÍLAR, FERÐIR OG NÁM]
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík 10.00 13.13 16.25
Akureyri 10.00 12.57 15.54
Heimild: Almanak Háskólans
Mentorverkefnið Vinátta gengur út á
það að nemandi í háskóla eða fram-
haldsskóla og nemandi í grunnskóla
hittast einu sinni í viku. Katrín Dag-
mar Jónsdóttir er tuttugu og tveggja
ára nemandi á fyrsta ári í uppeldis- og
kennslufræði við Háskóla Íslands og
hún er mentor Elínborgar Lorens sem
er níu ára nemandi í Lágafellsskóla.
Kallý og Ella, eins og þær eru kallaðar, hittust
fyrst í byrjun október með fjölskyldu Ellu.
Kallý var búin að velta því fyrir sér í heilt
ár að taka þátt í Mentorverkefninu áður en
hún skráði sig í haust. „Ég var alltaf ákveðin
í því að prófa þetta,“ segir hún. Ella segir að
mamma hennar hafi átt hugmyndina að því
að hún tæki þátt í verkefninu og hún sér ekki
eftir að hafa samþykkt það. Stelpurnar náðu
strax mjög vel saman og hafa gert ýmislegt
skemmtilegt. „Við eigum afmæli með fjög-
urra daga millibili. Við erum báðar meyjur,
sem ég held að geti verið ástæðan fyrir því
að við náum svona vel saman,“ segir Kallý.
Tæpri viku eftir að þær hittust fyrst voru
þær tvær heima hjá Ellu og horfðu á mynd-
band og skoðuðu skartgripina hennar. „Við
erum báðar svona glingurstelpur,“ segir
Kallý. Í eitt skiptið sem þær hittust ætluðu
þær að koma við í Kringlunni til að fara í
banka en gleymdu sér við að skoða eyrna-
lokka í búðunum. „Við ætluðum að fara niður
í bæ þegar við værum búnar í bankanum en
svo vorum við bara í Kringlunni þangað til
við þurftum að fara heim,“ segir Ella.
Kallý og Ella eru búnar að hittast fimm
sinnum síðan þær kynntust. Þær hafa gert
fleira en að skoða skartgripi, þær eru líka
búnar að fara á skauta, skoða fangelsi og fara
í Lególand í Smáralind þar sem þær gleymdu
sér í kubbunum. „Við gleymum okkur alltaf
en mér finnst það skemmtilegast,“ segir
Ella.
Á morgun eru Kallý og Ella að fara á
leiksýninguna Annie og þær hlakka báðar
mjög mikið til. „Ég veit varla hvor okkar er
spenntari,“ segir Kallý.
Meira um Mentorverkefnið á bls. 2.
emilia@frettabladid.is
Náðu strax mjög
vel saman
Ella og Kallý eru strax orðnar mjög góðar vinkonur. Í vetur munu lesendur geta fylgst með þeim stöllum Ellu og
Kallý og því sem þær taka sér fyrir hendur. FRÉTTABLAÐIÐ/E.ÓL.
Nám o.fl.
VINÁTTA
Velferðarsjóður barna styrkir
Mentor verkefnið bls. 2
Ferðir o.fl.
MOSKVA
Draumur ferðamanna og
söguunnenda bls. 3
Bílar o.fl.
RENAULT CLIO
Valinn bíll ársins 2006
í Evrópu bls. 5
Af hverju fylgir
litla bróður ekki
fjarstýring svo
hægt sé að lækka
í honum þegar
þarf?
KRÍLIN