Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 24
[ ]
Haukur Júlíusson er sagður
einn fróðasti Íslendingurinn
um vinnuvélar og sögu þeirra
hér á landi. Sjálfur vill hann
sem minnst úr þessu gera.
„Ég veit ekki hvort ég hafi neinn
sérstakan áhuga á vélum en auð-
vitað kemst maður ekki hjá því að
læra um það sem maður vinnur
við. Ég er af þeirri kynslóð sem
upplifði þann tíma þegar verið
var að leggja vegi í fyrsta sinn til
afskekktra byggða,“ segir Hauk-
ur hógvær. Hann er fæddur 1950
og byrjaði í bransanum um átján
ára aldur, tók sér svo hlé í örfá ár
og gerðist opinber starfsmaður.
„En þetta togaði í mig og við
félagarnir stofnuðum Jörva
árið 1978 og höfum alltaf verið í
almennri jarðvinnu,“ segir Hauk-
ur. Jörvi er verktakafyrirtæki og
vélarleiga í byggingar- og gatna-
gerðarbransanum. Jörvi á sér
samastað á Hvanneyri og rekur
ýtur, gröfur, vörubíla, hefla, og
fleiri vélar.
Fyrirtækið hefur þá sérstöðu
að hafa fjölmargar gamlar vélar
á sínum snærum sem Haukur og
félagar hans eyða vetrunum í að
gera upp og endurnýja. Þær eru
allar af gerðinni Caterpillar.
„Sumar eru fimmtíu ára gaml-
ar og okkur þykja krónurnar sem
þær skila ekkert lakari en þær
sem við fáum frá nýrri vélum.
Jafnvel bara betri krónur því
hinar skila sér ekki allar, fara
frekar í lánastofnanir og slíkt,“
segir Haukur.
Fyrsta vélin sem Jörvi keypti
var Caterpillar D6B-jarðýta frá
árinu 1960 sem enn er í notkun.
Eins eiga félagarnir eldri jarð-
ýtu, Caterpillar D6A módel 1954,
sem er safngripur en þó vel not-
hæf ef í harðbakkann slær. „Við
vorum þrjá vetur að gera hana
upp,“ segir Haukur.
Haukur er vel fróður um sögu
vélanna hér á landi. Á eftirstríðs-
árunum breyttu vélar miklu á
Íslandi og það sem Haukur hefur
ekki upplifað sjálfur segist hann
hafa fræðst um af sér eldri mönn-
um. „Þetta var vissulega mikil
bylting þegar vegir voru lagðir og
túnrækt tók verulegan kipp með
framræsluvélunum sem komu í
stríðslokin,“ segir hann.
Vélarnar hafa, eins og gefur
að skilja, breyst gríðarlega og
þá er ekki síst að telja þægindi
stjórnandans. „Hljóðeinangrun
er eitthvað sem er nýtt. Í fyrstu
voru menn á þeim húslausum við
alls konar skilyrði og miðstöð var
ekki sjálfgefin hér á árum áður,
hvað þá heyrnarhlífar á höfuðið,“
segir Haukur.
Víraskóflurnar eru horfnar og
hádrifsýtur og breiðbelti breyttu
miklu þegar þau fyrst birtust á
sjónarsviðinu. „Eins varð veru-
leg bylting með tilkomu vökva-
knúinna beltagrafna á sjöunda
áratugnum. Sú bylting er í raun-
inni enn í gangi,“ segir hann.
Á allra síðustu árum hefur
GPS-tæknin breytt miklu fyrir
stjórnendur vinnuvéla því nú geta
menn unnið í öllum veðrum og
vindum og fylgja þá bara fyrir-
mælum á tölvuskjá. „Í þessum til-
vikum er ekki óalgengt að tölvan
sé dýrari en vinnuvélin sjálf,“
segir Haukur og hlær við. ■
Vinnuvélar eru hans ær og kýr
á bílum eiga það til að frjósa fastar á veturna. Gott getur verið að láta poka
með heitu vatni liggja við lásinn í smástund til þess að hægt sé að opna
bílinn ef ekki er til lásaúði.
Læsingar
Þrátt fyrir hækkandi eldsneyt-
isverð og nýja orkugjafa vilja
Bandaríkjamenn bara aka
stórum bílum.
Bensínverð í Bandaríkjunum nálgast
nú fimmtíu krónur á lítrann. Þrátt
fyrir að þarlendis kvarti menn sáran
virðist ekki vera almennur áhugi
á bílum sem nýta aðra orkugjafa.
Meðan hybrid-bílar, sem eru knúnir
af rafmagni auk bensíns, hafa aðeins
náð 1,3 prósenta markaðshlutdeild
vestanhafs eru jeppabifreiðar 25
prósent allra seldra bíla.
Fyrirtækið J.D. Power legg-
ur stund á hvers kyns rannsóknir
tengdar bifreiðum. Þar á bæ gera
menn ráð fyrir að sala á hybrid-
bílum þrefaldist á næstu fimm
árum. Það mun samt aðeins þýða
fjögur prósent af sölu nýrra bíla
og á sama tíma er reiknað með að
jeppar verði komnir í 27 prósent.
Jeff Schuster hjá J.D. Power
telur ástæðuna tvíþætta. Annars
vegar sé það hluti af bandarísku
þjóðarsálinni að hafa allt stórt, en
hins vegar sækist fólk eftir hinum
fjölmörgu notkunarmöguleikum
jeppanna. „Fólk kaupir jeppa af því
að hugsanlega gæti það einhvern
tíma þurft að skutla öllu fótbolta-
liði barnanna á æfingu á sama tíma
og það er að draga bát í kerru.“
Bílaframleiðendur bregðast
við þessu með því að setja meira
púður í jeppana og leggja áherslu
á sparneytni. Því verða fleiri jepp-
ar í boði á næstu árum sem komast
undir tólf lítra markið á hundraði.
Á sama tíma heldur þróun hybrid-
bíla áfram í þeirri von að þeir sæki
á hægt og rólega. ■
Bensínhákar halda velli
Hummer H3. Eyðir tólf lítrum á hundraði og þykir eftirsóttari en hybrid-bílar.
Toyota Prius. Toyota er hvergi nærri hætt
þróun á hybrid-bílum.
Haukur Júlíusson sést hér á Caterpillar D7E frá árinu 1964 við vinnu á Húsafellsvegi í sumar. Haukur og félagar hans gera upp gamlar
vinnuvélar á veturna þegar minna er að gera í jarðvegsbransanum.
Bíldshöfða 9 • 110 Reykjavík •
Sími: 535 9000 • Fax: 535 9090 • www.bilanaust.is
Rafgeymar
í öll farartæki
21
11
/
T
A
K
TÍ
K
1
5.
11
.’0
5
Full búð af aukahlutum
á bílinn þinn
lexusljós, angeleyes,
neonljós, græjur,
spoilerar, lækkunargormar,
kraftsíur, racekútar, o.fl.
AG Mótorsport - Klettháls 9
110 Reykjavík - s. 587 5547
Verslun á netinu : www.agmotorsport.is
Alvöru Bond-bíll verður seldur
á uppboði í janúar.
Bíllin er af gerðinni Aston Martin DB5
og er árgerð 1964. Bíllinn var notaður
í tveimur Bond-myndum, Thunder-
ball og Goldfinger, sem margir vilja
meina að séu bestu Bond-myndir
allra tíma. Í þeim lék hinn eitursvali
Sean Connery aðalhlutverkið þannig
að bíllinn verður vafalaust mjög eft-
irsóttur.
Bíllinn er einn af fjórum sams
konar bílum sem framleiddir voru
fyrir myndina og er hann hlaðinn
ýmsum aukabúnaði sem sáust í mynd-
inni eins og til dæmis vélbyssu, sem
vissulega er ónothæf en nýtist vel til
þess að hræða aðra ökumenn.
Á sama tíma verða einnig boðnir
upp bílar sem voru sérsmíðaðir fyrir
Al Capone og Hank Williams Jr. Upp-
boðið fer fram hjá RM Auctions‘ Vin-
tage Motor Cars in Arizona í Phoenix
hinn 20. janúar næstkomandi. ■
Á reið hennar
konunglega njósnara
Í janúar verður hægt að eignast bílinn sem
Sean Connery þeyttist á í Goldfinger.