Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 26

Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 26
[ ]geta verið skemmtileg afþreying yfir vetrarmánuðina. Það er hægt að fara á námskeið í öllu mögulegu ef fólk hefur áhuga. Spænska, mósaík, sushi-gerð, draumaráðningar og kertagerð er meðal þess sem hægt er að læra á námskeiðum.Námskeið Velferðarsjóður barna á Ís- landi var stofnaður árið 2000 með gjöf frá Íslenskri erfða- greiningu upp á hálfan milljarð króna. Framkvæmdastjóri sjóðsins er Ingibjörg Pálma- dóttir fyrrverandi heilbrigðis- ráðherra. „Heilbrigðisráðuneytið og Íslensk erfðagreining gerðu með sér samning um að byggja upp sjóð sem myndi koma til móts við börn á ýmsan hátt,“ segir Ingibjörg en hún hefur verið framkvæmdastjóri sjóðsins í fjögur ár. „Stjórnarfor- maður sjóðsins hefur frá upphafi verið Bjarni Ármannsson forstjóri Íslandsbanka og aðrir stjórnar- menn eru Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar og Sól- veig Guðmundsdóttir lögfræðing- ur hjá heilbrigðisráðuneytinu.“ Ingibjörg segir að frá því að sjóðurinn var stofnaður hafi hann styrkt fjölmörg verkefni. „Allra stærstu verkefnin til þessa eru Rjóður sem er hjúkrunar- og end- urhæfingarheimili fyrir langveik börn í Kópavogi sem hefur starf- að í tvö ár og Mentorverkefnið Vinátta sem er á fimmta ári en hugmyndina að því átti Valgerður Ólafsdóttir.“ Ingibjörg segir að Mentorverkefnið hafi átt að vera tilraunaverkefni í þrjú ár en það hafi reynst svo vel að því hafi verið haldið áfram. Hún segir að yfir fjögur hundruð börn og jafn margir mentorar hafi farið í gegn um verkefnið og í það hafi verið settar yfir fjörutíu milljónir síðan það byrjaði. Ingibjörg segir að sjóðurinn hafi líka styrkt margt annað sem viðkemur börnum eins og mæðrastyrksnefnd, hjálparstarf kirkjunnar, námskeið fyrir börn alkóhólista og foreldra misþroska barna. Um það bil áttatíu milljón- um er úthlutað úr sjóðnum árlega. „Á hverju ári gefur sjóðurinn líka börnum úr fjölskyldum sem hafa lítið milli handanna sumargjafir. Félagsmálayfirvöld benda okkur á hvar sumargjafanna er mest þörf og þær fara í það að borga fyrir tómstundaiðkun, ný föt, sumar- dvalir, hjól eða bara það sem barn- ið þráir að fá en hefur ekki getað eignast. Í það heila fóru um tíu til tólf milljónir í sumargjafir í ár.“ Ingibjörgu finnst að Íslensk erfðagreining hafi sýnt einstak- lega gott fordæmi með því að stof- na sjóðinn. „Íslensk erfðagreining er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem leggur svo mikla fjármuni í sjóð sem eingöngu er ætlaður til þess að bæta hag barna og hann hefur nýst þúsundum barna á einn eða annan hátt.“ Sjóðurinn nýtist þúsundum barna Elín A. Þorgeirsdóttir er verk- efnisstjóri Mentorverkefnisins Vináttu. Hún segir að verk- efnið hafi gengið mjög vel frá upphafi. „Mentorverkefnið Vinátta er byggt á alþjóðlegri fyrirmynd,“ segir Elín. Hún segir að uppruna- lega komi hugmyndin frá Ísrael en Íslendingar hafi fengið hana frá Svíþjóð og verkefnið hafi svo verið lagað að íslenskum aðstæð- um. „Hvert land aðlagar verkefnið eftir sínum forsendum. Hjá okkur er ekki eins mikil stéttaskipting eins og í Ísrael eða eins mikið af innflytjendum eins og í Svíþjóð.“ Mentorarnir koma bæði úr háskóla og af síðasta ári í fram- haldsskóla. Börnin sem taka þátt eru á aldrinum sjö til tíu ára. „Það sem mér finnst mjög merkilegt við verkefnið er að það tengir saman þrjú skólastig og allir þátt- takendurnir læra hver af öðrum,“ segir Elín. Hún segir að á meðan mentorarnir taki þátt í verkefninu séu þeir á námskeiði sem metið er til þriggja eininga, hvort sem þeir eru í framhaldsskóla eða háskóla. Elín segir að verkefnið hafi gengið mjög vel og þess vegna hafi verið ákveðið að halda áfram með það. „Þetta hefur gert gríðarlega mikið fyrir mörg börn og í rauninni marga mentora líka. Börn af erlendum uppruna fá til dæmis oft meiri tilfinningu fyrir íslensku samfélagi og mentorarn- ir fá á móti tilfinningu fyrir bak- grunni barnanna. Verkefnið hefur eflt sjálfsmynd og félagsþroska margra barna og skólarnir hafa verið mjög ánægðir með það.“ Eflir sjálfsmynd og félagsþroska barna Börnin eiga að: ■ Kynnast nýjum hugmynd- um, aðstæðum og öðlast nýja þekkingu og reynslu. ■ Styrkja sjálfsmynd og auka félagslega færni. ■ Kynnast nýjum aðstæðum til skemmtunar. ■ Kynnast möguleikum til náms. Mentorar eiga að: ■ Þroska félagslega færni og sam- skiptahæfni. ■ Þroska samkennd. ■ Búa sig undir að kynnast mis- munandi einstaklingum. ■ Öðlast nýja reynslu. ■ Fá nýjar hugmyndir um hvernig starfa má með börnum. ■ Þroska sköpunarhæfni. Markmið Mentor- verkefnisins Vináttu Elín A. Þorgeirsdóttir er verkefnisstjóri Mentorverkefnisins Vináttu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ingibjörg Pálmadóttir er framkvæmdastjóri Velferðarsjóðs barna á Íslandi. Ný námskeið vikulega, staðsetning Mjódd Simi. 894 2737 www.ovs.is „Enginn ætti að láta þetta framhjá sér fara. Á skipulegan og skjótvirkan hátt er hægt að margfalda lestrarhraða án þess að það bitni á skilning. Samfara lestri er námstækni sem nýtir aukin afköst lesturs og tryggir að það sem lesið er gleymist ekki.“ Þorvaldur H., 24 ára lögfræðinemi. ...næsta námskeið 5. janúar 2006. Skráning er hafin á www.h.is og í síma 586-9400. Minnum á hin vinsælu gjafakort okkar. 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2 1 dálkur 9.9.2005 15:17 Page 2
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.