Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 30
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN2
F R É T T I R
Björgvin Guðmundsson
skrifar
KB banki hefur ekki skilað full-
nægjandi skýrslum til Fjármála-
eftirlitsins (FME) varðandi þátt-
töku bankans í öðrum rekstri.
Fjármálaeftirlitið gaf út leiðbein-
andi tilmæli í júní í fyrra um
hvernig þessari upplýsingagjöf
skyldi háttað.
Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
FME, sagði á ársfundi í síðustu
viku að misbrestur hefði orðið á
þessu en nefndi ekkert fyrirtæki
á nafn. Fjármálafyrirtækjum
væru sett ákveðin mörk í lögum.
Heimild til hliðarstarfsemi mið-
aðist að því að ljúka viðskiptum
eða endurskipuleggja starfsemi
viðskiptaaðila. Ágreiningur væri
uppi um túlkun á heimild fjár-
málafyrirtækja til þátttöku í hlið-
ar- og tímabundinni starfsemi.
Helgi Sigurðsson, lögfræðing-
ur KB banka, segir að forsvars-
menn bankans hefðu óskað eftir
fundir með Fjármálaeftirlitinu í
bryjun september síðastliðinn til
að ræða fyrirkomulag á þessari
upplýsingagjöf. Bankinn teldi sig
hafa uppfyllt allar kröfur um
upplýsingaskyldu. Síðast í fyrra-
dag hafi skýrslu verið skilað til
Fjármálaeftirlitsins varðandi
þetta efni sem vonandi sé full-
nægjandi. Aðilar séu að þokast
nær hver öðrum varðandi fram-
kvæmd á þessu.
Haukur Þór Haraldsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Landsbankan-
um, segir að yfirlit yfir þátttöku í
atvinnurekstri og hliðarstarf-
semi hafi verið sent Fjármálaeft-
irlitinu þrisvar sinnum frá því að
tilmælin voru gefin út. Það sé í
samræmi við reglurnar sem
kveði á um að senda eigi þessar
upplýsingar á sex mánaða fresti.
Sömu svör er að fá hjá Völu
Pálsdóttur, fjárfestatengli hjá Ís-
landsbanka. Bankinn hafi sent
Fjármálaeftirlitinu þessar upp-
lýsingar frá því að tilmælin voru
gefin út. Ef verulegar breytingar
verði á eignasamsetningu sé
bankinn skyldugur til að senda
FME uppfært yfirlit.
Guðrún Björk Stefánsdóttir,
forstöðumaður reikningshalds og
hagdeildar Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis (SPRON), segir
að FME hafi fengið þessar upp-
lýsingar frá þeim samkvæmt
reglum sem gilda.
Vika Frá áramótum
Actavis Group 1% 13%
Bakkavör Group 0% 85%
Flaga Group 20% -32%
FL Group 5% 49%
Grandi 1% 17%
Íslandsbanki 3% 39%
Jarðboranir -1% 9%
Kaupþing Bank 1% 35%
Kögun 1% 19%
Landsbankinn 2% 93%
Marel 2% 30%
SÍF 1% -11%
Straumur 7% 57%
Össur 3% 29%
*Miðað við gengi í Kauphöll á mánudaginn
G E N G I S Þ R Ó U N
Misbrestur á upplýs-
ingagjöf KB banka
KB banki hefur ekki skilað fullnægjandi upplýsingum til
Fjármálaeftirlitsins um þátttöku í öðrum rekstri.
Fyrirtækið Norð-
urskel í Hrísey
hyggst hefja út-
flutning á kræk-
lingi til Evrópu á
næstunni ef vel
tekst til við veið-
ar. „Við erum ný-
búnir að fá nýtt
hlutafé inn í fé-
lagið og erum með
erlenda sérfræð-
inga til að fara yfir þessi mál
með okkur og þeim líst mjög vel
á aðstæður til veiða. Við erum
búnir að vera að veiða í fimm ár
en þetta eru ekki nema örfá tonn
á ári sem við höfum verið að
veiða en við vonumst til þess að
nú fari þetta vaxandi,“ segir
Víðir Björnsson, framkvæmda-
stjóri Norðurskeljar. - hb
Þriðji ársfjórðungur var sá besti
í sögu Actavis. Uppgjör Actavis
var gott að mati greiningardeild-
anna einkum þær þættir sem
snúa að tekjum og rekstrarhagn-
aði fyrir afskriftir (EBITDA).
Tekjur félagsins stórjukust á
þriðja ársfjórðungi með tilkomu
samheitalyfjafyrirtækisins
Amide inni í bækurnar en þær
námu um 11,7 milljörðum króna
sem er tæplega átta prósentum
meira en markaðsaðilar væntu.
Rekstrarhagnaður samsteypunn-
ar fyrir afskriftir var um 3,5
milljarðar króna sem var um
fjórtán prósentum meira en spáð
hafði verið.
EBITDA-framlegð var um 30
prósent og hefur aldrei verið
hærri á einum fjórðungi. Hún er
einnig vel umfram markmið fé-
lagsins um 26 prósenta fram-
legð. Fyrir árið í heild er hlut-
fallið fjórðungur af rekstrartekj-
um. Hækkunin skýrist af Amide
þar sem framlegðin er mun
meiri en annars staðar í fyrir-
tækinu.
Stjórnendur Actavis reikna
með að fjórði ársfjórðungur
verði einnig góður. Gengi Actav-
is hafði hækkað um tvö prósent
um hádegisbil í gær. - eþa
„Af framansögðu er ljóst að við
núverandi aðstæður er tæpast
svigrúm til að lækka vaxtaálag
Íbúðalánasjóðs. Þó væri mögu-
legt að taka upp valkvætt upp-
greiðsluálag; það er að bjóða
þeim er þess óskuðu að greiða
uppgreiðslugjald og með því
væri hægt að lækka útlánavexti
sjóðsins um 0,25 prósentustig til
þeirra lántakenda sem vilja nýta
sér þennan möguleika,“ segir í
svari félagsmálaráðherra við
fyrirspurn Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, þingmanns Samfylkingar-
innar, varðandi Íbúðalánasjóð.
Íbúðalánasjóður leggur 0,60
prósent álag á útlán sín. 0,15 pró-
sent eru vegna rekstrarkostnað-
ar, 0,20 prósent vegna afskriftaá-
hættu og 0,25 prósent til að mæta
uppgreiðsluáhættu. Nú eru vext-
ir íbúðalána 4,15 prósent en yrðu
3,9 prósent yrði uppgreiðsluálag-
ið aflagt.
Árni Magnússon, félagsmála-
ráðherra, segir í svari sínu að
hann geti sett í reglugerð ákvæði
sem heimili Íbúðalánasjóði að
bjóða lántakendum lægra vaxta-
álag gegn því að viðkomandi af-
sali sér rétti til uppgreiðslu nema
gegn gjaldi. Viðskiptabankarnir
geri það. Þó hafi ekki verið tekin
ákvörðun um að nýta þessa heim-
ild. – bg
Kræklingur til Evrópu
Mikil tekjuaukning hjá Actavis
Rekstarhagnaður vel umfram væntingar
KB banki hefur að undanförnu
boðið fólk sérsniðin tilboð í
bankaviðskipti einstaklinga og
hafa meðal annars sent dreifi-
bréf í öll hús þar sem viðskipta-
vinir þurfa aðeins að hringja í
eitt símanúmer en bankinn muni
svo sjá um flutninginn og um-
stangið eftir að samþykki liggur
fyrir.
„Við teljum að við séum með
það góð kjör og þá betri kjör en
aðrir að við viljum fá tækifæri til
að sýna fólki hvað við getum boð-
ið því,“ segir Friðrik Halldórs-
son, framkvæmdastjóri við-
skiptabankasviðs KB banka.
Hann segir að viðtökurnar hafi
verið góðar og hann telji að KB
banki sé að auka markaðshlut-
deild sína. Aðspurður segir Frið-
rik að bankinn bjóðist þó ekki til
að taka á sig kostnað við að flytja
fasteignalán til bankans. „Það
eru ekki allir sem hafa skyldur
við sína banka og þá teljum við
að við getum náð að bjóða þeim
betri kjör.“
SKRIFSTOFUR KB BANKA Í BORGARTÚNI Forsvarsmenn KB banka hafa verið að funda
með fulltrúum Fjármálaeftirlitsins vegna deilna um hvernig þátttaka bankans í öðrum at-
vinnugreinum skuli flokkuð.
Útrásarvísitala Markaðarins
hækkaði um 4,6 prósent á milli
vikna en mest hækkuðu bréf í
deCode eða um 8,2 prósent og þá
bréf í finnska fjarskiptafyrir-
tækinu Saunalahti eða um 7,4
prósent.
Að meðaltali hækkuðu bréf
um 2,1 prósent en vægi finnska
bankans Sampo vegur þyngst í
vísitölunni en hann hækkaði um 3
prósent. Mest lækkaðu bréf í
sænska félaginu Cherryföretag
eða um 3,8 prósent.
Útrásarvísitala Markaðarins
mælist nú 114,63 stig og er það
hæsta gildi hennar frá því í lok
september. - hb
TM Software
selur Libra
TM Software hefur selt dótturfé-
lag sitt, Libra ehf., til sænska fyr-
irtækisins OMX Technology en
móðurfélag þess rekur kauphall-
irnar í Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn, Helsinki og á Eystrasalts-
löndunum.
Í samkomulagi félaganna
vegna kaupanna felst að OMX
Tecnohology mun nú bjóða sam-
norrænar lausnir fyrir bak-
vinnslu fjármálafyrirtækja en
Libra er í viðskiptum við yfir 20
fjármálafyrirtæki og stofnanir á
Íslandi og býður fyrirtækið breitt
úrval hugbúnaðarlausna. - hb
Getur lækkað vexti Íbúðalánasjóðs
Félagsmálaráðherra segist geta lækkað vexti Íbúðalánasjóðs um 0,25 prósent.
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/S
te
fá
n
Hagnaður
Skandia eykst
Sænska fjármálafyrirtækið
Skandia hagnaðist um 2,6 millj-
arða á þriðja ársfjórðungi sem er
um ellefu prósenta meiri hagnað-
ur miðað við sama tíma í fyrra.
Hagnaður fyrir skatta eykst hins
vegar um 70 prósent. Þetta er
umfram væntingar stjórnenda
félagsins.
Afkoma vátryggingastarfsem-
innar var góð og skilar stórum
hluta hagnaðarins en stjórnendur
Skandia segja að mesti vöxturinn
liggi á Bretlandseyjum.
Hagnaður samstæðunnar fyrir
skatta jókst um 30 prósent. - eþa
FRÁ HRÍSEY Norðurskel í Hrísey ætlar að veiða kræklinga.
Tíu af fjórtán félögum hækka
Útrásarvísitala Markaðarins hækkar um 5 prósent.
KB býður í bankaviðskipti
Greiðir ekki fyrir flutning fasteignalána.
02_03_Markadur-lesið 15.11.2005 16:08 Page 2