Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 32
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN4
F R É T T I R
Björgvin Guðmundsson
skrifar
Meira en helmingur allra lántak-
enda hjá Íbúðalánasjóði greiðir
hærri ársvexti en fimm prósent.
Langflestir lántakendur sjóðsins,
eða um 40 prósent, greiða 5,10
prósent vexti af íbúðalánum sín-
um. Sé miðað við fimm milljón
króna lán til fjörtíu ára hjá
Landsbankanum er hægt að
lækka greiðslubyrði um rúmar
fjögur þúsund krónur á mánuði
með því að endurfjármagna þessi
lán á 4,45 prósent vöxtum. KB
banki og Íslandsbanki bjóða enn
lægri vexti af íbúðalánum eða
4,15 prósent sem myndi lækka
greiðslubyrðina enn meir.
Upplýsingar um fjölda og kjör
lántakenda eru birtar í svari fé-
lagsmálaráðherra við fyrirspurn
Jóhönnu Sigurðardóttur, þing-
manns Samfylkingarinnar, á Al-
þingi. Í svarinu kemur jafnframt
fram að með samanburði á fjölda
þinglýstra kaupsamninga og
fjölda nýrra lána Íbúðalánasjóðs
á fyrstu níu mánuðum þessa árs
megi áætla að markaðshlutdeild
sjóðsins í nýjum íbúðalánaveit-
ingum sé um 44 prósent á höfuð-
borgarsvæðinu en yfir 90 pró-
sent á landsbyggðinni. Í fyrra
hafi þetta hlutfall verið 65 á höf-
uðborgarsvæðinu en yfir 95 pró-
sent á landsbyggðinni.
Samkvæmt töflu yfir upp-
greiðslur lána hjá Íbúðalánasjóði
má sjá að uppgreiðslur hafa held-
ur minnkað þegar liðið hefur á
árið 2005. Á landsbyggðinni hafa
verið greidd upp lán fyrir um
27,4 milljarða króna fyrstu níu
mánuði ársins. Á höfuðborgar-
svæðinu hafa lán að andvirði 76,3
milljarðar króna verið greidd
upp hjá Íbúðalánasjóði sömu
mánuði. Samtals hafa verið
greidd upp lán fyrir hundrað
milljarða króna það sem af er
þessu ári.
Íbúðalánasjóður gerir ráð fyr-
ir að heildavaxtatekjur á þessu
ári verði tæpir 32 milljarðar
króna. Í fyrra voru heildarvaxta-
tekjur sjóðsins rúmir 38 milljarð-
ar króna. Í áætlunum sjóðsins
segir að hreinar vaxtatekjur í ár
verði 1,9 milljarðar króna. Íbúða-
lánasjóður greiðir hvorki tekju-
né eignaskatt.
Yfir hundrað milljarðar
í uppgreiðslur íbúðalána
Meira en helmingur lántakenda hjá Íbúðalánasjóði greiðir
yfir fimm prósent vexti. Uppgreiðslur hafa minnkað.
Félag fasteignasala hefur óskað
eftir því við eftirlitisnefndar Fé-
lags fasteignasala að kannað
verði hvort að innheimtufyrir-
tækið Intrum justitia eða skyldir
aðilar séu að kaupa upp fast-
eignasölur í höfuðborginni.
Haukur Geir Garðarsson, vara-
formaður Félags fasteignasala,
segir að félagið hafi sent eftir-
litsnefndinni fyrirspurn 25.
ágúst síðastliðinn og hafi síðan
þá ítrekað erindið. „Við höfum
ekkert heyrt og við erum mjög
óanægð með hvað það tekur lang-
an tíma að fá svar. Það er sterkur
orðrómur um að Intrum, sem er
að stærstum hluta til í eigu bank-
anna, sé að koma inn á fasteigna-
markaðinn en það er skýrt í lög-
um að slíkt er þeim óheimilt,“
segir Haukur.
Í Markaðnum hefur verið
greint frá því að framkvæmda-
stjóri Intrum ásamt hæstaréttar-
lögmanni hjá félaginu ætli sér að
opna fasteignasölur undir nafn-
inu Domus en þeir hafa neitað
því að Intrum komi nokkuð þar
nærri og að fjárfestingarnar og
reksturinn séu á þeirra eigin
nafni.
Haukur Geir segir að Félag
fasteignasala vilji fá skýr svör
við því hvort að Intrum og þar
með bankarnir ætli sér að reka
fasteignasölur hér á landi með
óbeinum eða beinum hætti og að
félaginu sé fyrst og fremst um-
hugað um neytendavernd.
„Ég get ekki tjáð mig um ein-
stök erindi en þetta mál var
ábending og Félagi fasteignasala
ber samkvæmt lögum að senda
ábendingar. Við skoðum öll mál
og meira hef ég ekki um málið að
segja,“ segir Þorsteinn Einars-
son, formaður eftirlitsnefndar-
innar. - hb
Kanna þátt Intrum
á fasteignamarkaði
Mikið tap varð á rekstri
sænska lággjaldaflugfé-
lagsins FlyMe á þriðja
ársfjórðungi en félagið
tapaði um tvö hundruð
milljónum króna fyrir
skatta á tímabilinu. Frá
áramótum nemur tapið
um 650 milljónum króna.
FlyMe, sem er að stórum
hluta í eigu íslenskra að-
ila, sýndi einnig mikinn
taprekstur á síðasta ári
þótt heldur hafi dregið
úr honum.
Á sama tíma hefur veltan
stóraukist á milli ára eða nærri
þrefaldast á fyrstu níu mánuð-
um ársins. Franco
Fedeli, stjórnarformað-
ur FlyMe, reiknar með
að flugfélagið tapi álíka
upphæð á seinni hluta
ársins og því er ekki út-
lit fyrir viðsnúning á
fjórða ársfjórðungi. En
stjórnendur félagsins
gera ráð fyrir að á seinni
hluta næsta árs skili fé-
lagið hagnaði.
Boðað hefur verið til
hluthafafundar í FlyMe í
næsta mánuði þar sem
stærstu hluthafarnir munu
leggja til að hlutafé verði tífald-
að. - eþa
Tilvalinn fjárfestingarkostur fyrir flá sem vilja binda
fé í skamman tíma án mikillar áhættu. Enginn munur
er á kaup- og sölugengi og innstæ›an er alltaf laus
til útborgunar.
10,4%
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
/
N
M
17
5
9
5
P E N I N G A M A R K A ‹ S S J Ó ‹ U R
Peningamarka›ssjó›ur er fjárfestingarsjó›ur skv. lögum nr. 30/2003, um ver›bréfasjó›i og
fjárfestingarsjó›i. Rekstrarfélag sjó›sins er Rekstrarfélag Kaupflings Banka hf. Fjárfestingarsjó›ur
telst vera áhættusamari fjárfesting en ver›bréfasjó›ur skv. lögunum. Meiri áhætta fjárfestingarsjó›s
er fólgin í r‡mri fjárfestingarheimildum sem geta m.a. leitt til minni áhættudreifingar en í ver›bréfasjó›i.
Nánari uppl‡singar um framangreint má nálgast í útbo›sl‡singu e›a útdrætti úr útbo›sl‡singu sjó›sins
í útibúum KB banka e›a á www.kbbanki.is.
* Nafnávöxtun á ársgrundvelli fyrir tímabili› 30/9/05-31/10/05
– kraftur til flín!
*
GUÐMUNDUR BJARNASON, FOR-
STJÓRI ÍBÚÐALÁNASJÓÐS Íbúðalána-
sjóður segir að miðað við útistandandi lán
á íbúðalánamarkaði megi áætla að mark-
aðshlutdeild Íbúðalánasjóðs hafi verið 56
prósent á fyrsta ársfjórðungi 2005 og bank-
anna 31 prósent. Lífeyrissjóðir hafi um 13
prósent.
M
ar
ka
ðu
rin
n/
H
ei
ða
HÚSNÆÐI INTRUM Forsvarsmenn Intrum
neita því að fasteignasölur séu reknar af fé-
laginu heldur reki framkvæmdastjórinn þær
í eigin nafni.
Stofnandi Karen Millen, Kevin
Stanford, sem er umsvifamikill í
íslensku viðskiptalífi, hefur selt
eitt prósent í Marks & Spencer.
Hagnaður af sölunni nemur um
1,2 milljörðum króna.
Standford keypti hlutina í
Marks & Spencer á meðalverðinu
348 pens á hlut og seldi þá í síð-
asta mánuði þegar gengið fór
yfir 400 pens. Gengi verslana-
keðjunnar er komið yfir 440
pens.
„Já, hlutabréfin hafa hækkað
síðan ég seldi. En stundum lækka
þau líka. Ég er mjög sáttur með
minn hlut,“ segir Stanford í sam-
tali við Sunday Telegraph. - eþa
Gengi bréfa í Landsbanka Ís-
lands hækkaði í Kauphöll Ís-
lands í kjölfar frétta um að bank-
inn hafi fest kaup á írska verð-
bréfafyrirtækinu Merrion Capi-
tal. Bréf í bankanum náði á tíma
genginu 23,6 krónur á hlut en
þar með hafði bankinn hækkað
um 100,25 prósent frá áramótum
og þannig hefur bankinn tvöfald-
ast í verði.
Sé litið til síðastliðinna tólf
mánuða og miðað við sama gengi
á hlut hefur bankinn hækkað um
104,53 prósent en ekkert annað
félag í Kauphöllinni getur státað
af álíka hækkunum. Bréf í
Bakkavör hafa hækkað næst-
mest allra félaga eða um 88,33
prósent frá áramótum og um
91,53 prósent á síðustu tólf mán-
uðum.
Úrvalsvísitalan hafði hækkað
um 42,91 prósent frá áramótum
um miðjan dag í gær og var
4.801 stig og hefur úrvalsvísital-
an aldrei mælst svo há áður.
Fjármálafyrirtæki hafa
hækkað mest allra atvinnu-
greina í Kauphöllinni, að meðal-
tali um 50,4 prósent en iðnaðar-
og framleiðslufyrirtæki að með-
altali um 41,9 prósent það sem af
er ári. - hb
Silfur hafsins
veiðist vel
Síldveiðar hafa gengið vel það sem
af er vertíð og er búið að veiða um
helming úthlutaðs kvóta sem er um
110 þúsund tonn. Bæði veiðar og
vinnsla gengu vel í fyrra. Þá var
aflaverðmætið um 2,4 milljarðar
króna samkvæmt Greiningu Ís-
landsbanka. Þrátt fyrir að verð á
frystum síldarafurðum hafi lækk-
að undanfarna tvo mánuði, gengi
krónunnar hafi styrkst um fimmt-
án prósent á einu ári og hátt olíu-
verð er það enn hátt. Íslandsbanki
reiknar með að aflaverðmætið í ár
verði svipað að því gefnu að allur
kvótinn verði veiddur. - eþa
Kepler-kaup-
in frágengin
Kaup Landsbankans á 82 prósenta
hlut í evrópska verðbréfafyrirtæk-
inu Kepler Equities eru að fullu
frágengin eftir að eftirlitsaðilar í
Frakklandi, Sviss og á Íslandi gáfu
samþykki sitt. Kepler er þar með
orðið hluti af samstæðu Lands-
bankans.
Bjarni Þ. Bjarnason, Halldór J.
Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árna-
son hafa tekið sæti í stjórn Keplers
og verður sá síðastnefndi formað-
ur stjórnar. Aðrir eigendur
Keplers eru starfsmenn en Lands-
bankinn mun eignast allt hlutaféð á
næstu fimm árum. - eþa
Stanford hagnast um
einn milljarð á M&S
FlyMe brennir peningum
Velta fyrirtækisins hefur þrefaldast milli ára
PÁLMI HARALDS-
SON Þrátt fyrir að
velta FlyMe hafi þre-
faldast milli ára er
mikið tap á rekstrin-
um.
BJÖRGÓLFUR GUÐMUNDSSON Banka-
ráðsformaður Landsbankans getur vel við
unað því bankinn hefur tvöfaldast að virði
frá áramótum.
Landsbankinn tvö-
faldast frá áramótum
Úrvalsvísitalan hækkar í 4.800 stig.
04_05_Markadur-lesið 15.11.2005 15:55 Page 2