Fréttablaðið - 16.11.2005, Side 37
!!" # "
$
%
&
'
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ Japanski tölvuleikjahönnuðurinn Shigeru Mi-
yamoto fæddist þann 16. nóvember árið 1952.
Hann er goðsögn í lifandi lífi meðal tölvuleikjaað-
dáenda og oft kallaður faðir nútímatölvuleikja.
Meðal sköpunarverka hans eru Donkey Kong,
Mario, Legend of Zelda og Pikmin fyrir Nintendo.
Gagnvirkni er einkenni verka hans og spilararnir
þurfa að sýna kænsku til að uppgötva eitt og annað
sem falið er í borðunum. Auk þess er söguþráður í
leikjunum sem var nánast óþekkt áður en Mario
varð til.
Árið 1980, þegar Nintendo var spila- og leik-
fangafyrirtæki, kom Miyamoto sér í mjúkinn hjá
Hiroshi Yamauchi, forstjóra fyrirtækisins í Japan.
Yamauchi var góðvinur föður Miyamoto og réði
hann sem listrænan ráðgjafa árið 1980. Hann fékk
það verkefni að hanna tölvuleiki fyrir spilaleikja-
sali í Bandaríkjunum sem voru gríðarvinsælir á
þeim tíma. Niðurstaðan varð Donkey Kong sem
naut strax mikilla vinsælda eins og flest börn og
unglingar þessa tíma þekkja. Aðalkarakter leiks-
ins, Jump Man, sem síðar meir hlaut nafnið Mario,
sló rækilega í gegn. Frá því að hann fyrst sást í
Donkey Kong hefur hann birst í meira en hundrað
leikjum fyrir mismunandi gerðir leikjatölva. Mi-
yamoto varð fljótlega ein skærasta stjarna Nin-
tendo og skapaði marga leiki sem enn eru í háveg-
um hafðir.
Miyamoto er nú framkvæmdastjóri greiningar-
og þróunardeildar Nintendo. Þrátt fyrir að vera
stjarna meðal tölvuleikjahönnuða og maðurinn á
bak við fleiri milljóna dollara uppbyggingu fyrir-
tækisins er hann afar auðmjúkur maður. Hann er
sagður krefjast þess að fá hógværar launagreiðsl-
ur og kemur oftar en ekki hjólandi í vinnuna. Mi-
yamoto var meðal þeirra fyrstu til að fá stjörnu í
malbikið á „Walk of Game“ í San Franciskó sem er
hliðstætt „Walk of Fame“ í Hollywood þar sem all-
ir frægustu leikarar heims fá stjörnu. - hhs
S Ö G U H O R N I Ð
Faðir nútíma-
tölvuleikja
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 9
NÝJASTA TÆKNI OG VÍSINDI
JAPANSKI TÖLVULEIKJA-
HÖNNUÐURINN SHIGERU
MIYAMOTO Meðal sköpunar-
verka hans eru tölvuleikirnir
Donkey Kong, Mario, Legend of
Zelda og Pikmin fyrir Nintendo.
Lögmannsstofan Buys er nú að þróa þrjú vélmenni,
þau Stacy, Dave og Nathan, til að kanna hvort gervi-
greind geti reynst eins vel og raunverulegir lög-
menn við lögfræðistörf. Þessi vélmenni munu bjóða
fram lögfræðiráðgjöf á netinu fyrir viðskiptavini
stofunnar frá og með næsta ári. Forsvarsmenn fyr-
irtækisins segja marga kosti við að hafa lögmann af
þessu tagi frekar en hinn hefðbundna. „Vélmenni
sofa aldrei, þau hafa nánast óþrjótandi minni og
verða klárari dag frá degi.“ Í upphafi verða vél-
mennin notuð til að svara einföldum spurningum
frá almenningi og setja fram gögn á tölvutæku
formi. Gervigreindartækni gerir þeim kleift að
taka ákvarðanir og komast að lagalegri niðurstöðu
upp á eigin spýtur. - hhs
Þróa lögmenn með gervigreind
LÖGMENNIRNIR STACY, DAVE OG NATHAN. Á næsta ári
verður hægt að fá lögfræðiaðstoð byggða á gervigreind þeirra á
internetinu.
Dalai Lama ávarpar
vísindaráðstefnu
Andlegur leiðtogi Tíbeta, Dalai
Lama, var aðalræðumaður ár-
legrar ráðstefnu taugasérfræð-
inga í Washington á dögunum.
Dalai Lama, sem er þekktur fyrir
áhuga sinn á vísindum, sagðist
trúa því að trúin sjái fyrir heil-
brigði hugarins og vísindin um
heilbrigði líkamans. Rík þörf
væri því fyrir bæði atriði í lífi
okkar.
Boðun Dalai Lama til ráð-
stefnunnar var ekki með öllu
óumdeild, einkum þar sem sam-
band trúar og vísinda er umdeilt
mál í Bandaríkjunum. Um fimm
hundruð taugasérfræðingar af
kínverskum uppruna lögðu jafn-
framt fram formlega kvörtun til
skipuleggjenda ráðstefnunnar.
Ráðstefnan fór þó friðsamlega
fram og hélt Dalai Lama sjálfur
sig fjarri allri umræðu um trú-
mál og pólitík. - hhs
DALAI LAMA, ANDLEGUR LEIÐTOGI
TÍBETA Var aðalræðumaður á árlegri ráð-
stefnu bandarískra taugasérfræðinga.
Stærsta símafyrirtæki heims,
Vodafone Group Plc., skilaði
verra uppgjöri fyrir fyrstu
sex mánuði ársins en vænt-
ingar stóðu til um. Hagnað-
ur á tímabilinu var 2,78 millj-
arðar punda, rúmir 300 millj-
arðar ís-
lenskra króna
og 4,35 pens á
hlut, samanborið við 3,62 millj-
arða punda eða 393,4 milljarðar
íslenskra króna og 5,39 pens á
sama tíma árið 2004. Samkvæmt
yfirlýsingu frá félaginu hef-
ur hægt nú á vexti sölu fé-
lagsins þriðja árið í röð.
Sala á tímabilinu jókst
um níu prósent og fór úr
18,3 milljörðum í 16,7
milljarða punda. Hlutabréf í
f é l a g i n u
féllu um 4,3
p r ó s e n t
strax við opnun markaðar í
London í gær. Var það mesta pró-
sentulækkun á einum degi síðan
24. maí. - hhs
Hægir á vexti Vodafone Group
08_09_Markadur -lesið 15.11.2005 14:48 Page 3