Fréttablaðið - 16.11.2005, Blaðsíða 44
4 ■■■■ { íslenskur iðnaður } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Innrömmun ekki flott lengur
LÁTTU LJÓSMYNDIRNAR ÞÍNAR NJÓTA SÍN Á STRIGA, PLEXI-
GLERI, FRAUÐPLASTI EÐA HVERJU SEM ER
Dikta er fyrirtæki sem sérhæfir sig
í myndvinnslu, skönnun og prent-
un. Hjá þeim er hægt að fá nánast
alla þjónustu í myndvinnslu, en
einnig er möguleiki á að fá mynd-
ir prentaðar á nánast hvað sem er.
Boðið er upp á prentun á fjölmörg
efni eins og plexigler, PVC-plast,
álplötur, frauðplast, MDF og fleira.
Hægt er að fá þetta í ýmsum
þykktum og litum og er veitt ráð-
gjöf við þessa þjónustu ef neyt-
andi hefur einhverjar hugmyndir.
Færst hefur í vöxt að fólk kjósi að
láta prenta myndir á fast efni frek-
ar en að fá þær innrammaðar á
vegg. En það er skemmtilegur
kostur ef fólk vill tilbreytingu frá
innrömmuðum myndum. Dikta
býður einnig upp á aðra óvenju-
lega kosti í prentun en hjá þeim er
m.a. prentvél sem getur prentað
beint á borðplötur, segl, tau og
striga og er þetta eini staðurinn á
landinu þar sem boðið er uppá
slíka þjónustu.
Gamlar eða snjáðar myndir eru
lítið vandamál ef viljinn er fyrir
hendi, en Dikta tekur að sér að
skanna slíkar myndir inn, lagfæra
þær og endurprenta á ljósmynda-
pappír. Stækkun er líka möguleiki
og er hægt að stækka gamlar
myndir af 35mm filmu upp í allt að
metra á breidd, en fer þó allt eftir
upplausn og gæðum myndar.
Býr til ósköp
venjulegar skyrtur
Indriði er klæðskeri með eigin búð á Skólavörðustígnum
og vill hafa skyrturnar sínar sem venjulegastar.
Indriði Guðmundsson, opnaði fyrir
þó nokkru verslun á Skólavörðustíg
10. Þar hefur Indriði verið með
hreiður fyrir skyrturnar sínar, en
hann býr til skyrtur í öllum regn-
bogans litum.
Spurður að því hvað geri skyrt-
urnar hans öðruvísi en aðrar segir
hann, ,,Það er nákvæmlega ekki
neitt, ég bý til skyrtur sem eru ein-
faldar, þægilegar, góðar í sniðinu,
úr mjög góðum efnum og auðveld-
ar í straujun.“ En Indriði er klæð-
skeri úr Iðnskólanum í Reykjavík.
,,Í dag er mikið um það í fatasmíð
að klæðskerar eru að keppast við
það að hafa fötin sem mest öðru-
vísi, en ég bý hér til einfaldar skyrt-
ur sem ég vil bara hafa sem venju-
legastar,“ segir Indriði og tekur
fram að kúnnahópurinn saman-
standi ekki af neinum sérstökum
aldurshópi heldur mest af karl-
mönnum sem vilja góða vöru, ein-
faldleika í hönnun, þægindi og
góða þjónustu.
„Ég er mikið að vinna með end-
urunninn pappa sem ég bý til blóm
úr og set í hálsmen. Eins hef ég ver-
ið að vinna mikið úr fjörusteinum,
og set þá gull eða silfur utan um þá
og nota þá síðan í hálsmen,“ segir
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og
skartgripahönnuður.
Jafnframt er hún þessa dagana
ákaflega hrifin af palíettum og
perlum. „Þær nota ég með silfri og
gulli, og þræði síðan upp í hálsfest-
ar, og þá koma angar svona út um
allt, spretta upp eins og upp-
spretta,“ segir Dýrfinna, sem einnig
er sjóntækjafræðingur og sjón-
fræðingur, og vinnur við því sam-
hliða skartgripagerð.
Dýrfinna er vel kunn landanum,
enda hefur hún tekið þátt í fjöl-
mörgum sýningum, bæði einkasýn-
ingum og samsýningum, og hlotið
margvísleg verðlaun og viðurkenn-
ingar. Hún lærði fag sitt á Akureyri
og í Valdres í Noregi og lauk meist-
araprófi í gullsmíði árið 1983. Hún
er einn eftirtektarverðasti gullsmið-
ur og skartgripahönnuður landsins,
og hefur meðal annars unnið skart
úr íslenskri ull með ívafi hefðbund-
inna eðalmálma, sem og úr íslensk-
um steinum af ýmsu tagi. Stíll
hennar sem skartgripahönnuðar er
bæði sérstakur og persónulegur, og
einkennist af frumlegri og oft
óhefðbundinni efnismeðferð og
djarfri útfærslu.
Vörur Dýrfinnu eru fáanlegar
hjá Ófeigi á Skólavörðustíg, í versl-
uninni Mónu á Laugarvegi og jafn-
framt á Akranesi og á Ísafirði, en
hún býr á Akranesi, og vinnur þar
að skartgripagerð á eigin vinnu-
stofu, og rekur verslun á Ísafirði,
æskustöðvum sínum. Í þeirri versl-
un eru margs konar handunnir
skartgripir og gjafavara til sölu.
Dikta býður einnig
uppá óvenjuega kosti í
prentun en hjá þeim er
prentvél sem getur prent-
að beint á borðplötur,
segl, tau og striga.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Ég bý til skyrtur sem eru einfaldar, þægilegar, góðar í sniðinu, úr mjög góðum efnum og
auðveldar í straujun,“ segir Indriði. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Með uppsprettu um hálsinn
Dýrfinna Torfadóttir, gullsmiður og skartgripahönnuður, finnur sér alls konar skemmti-
lega hluti til að vinna með. Í hennar höndum verða fjörusteinar, palíettur, perlur og
endurunninn pappír að gullfallegum skartgripum.
SKARTIÐ HENNAR Dýrfinnu Torfadóttur er bæði skemmtilegt og djarflegt, en útfærslur hennar og efniviður koma oft á óvart.
Dýrfinna Torfadóttir er ákaflega hugmyndarík, og vekja margir skartgripa hennar mikla at-
hygli.
04-05 Iðnaður-lesið 15.11.2005 16:10 Page 2