Tíminn - 07.05.1976, Side 24
ornado
þeytidreifarinn
góö vinnslubreidd
nákvæmar stillingar
einnig fyrir sáningu
Guðbjörn Guðjónsson
Heildverzlun Síðumúla 22
Simar 85694 & 85295
MINERAL
PELLETS
i # =2
COCURA 4, 5 og 6
steinefnavögglar
Látið ekki COCURA
vanta i jötuna
SAMBANDIÐ
INNFLUTNINGSDEILD
PLAST
ÞAKRENNUR ^
Sterkar og endingagóðar
Hagstætt verð.
cáb Nýborg?
Ármúla 23 — Sími 86755
Alþjóða hermólastofnunin:
Hermálaþróun í Sovét hættuleg
slökuninni
Ástandið í Afríku og Mið-Austurlöndum
gæti leitt til enn alvarlegri átaka
Reuter/NTB, London. — Hraö-
fara uppbygging i hernaöar-
málum Sovétrikjanna skapar
hættu á að tilraunir til slökunar
milli austurs og vesturs beri
ekki árangur, og styrkir þar aö
auki málstaö þeirra sem mót-
fallnir eru slökun, segir i árs-
skýrslu alþjóðlegu hermála-
stofnunarinnar i London.
1 skýrslunni er bent á, að
Sovétrikin og Bandarikin hafi
bæði orðið fyrir stjórnmálaleg-
um áföllum og hnignun, sem að
vissu marki hafi veikt mögu-
leika þeirra til þess að hafa
stjórn á þróun mála i öðrum
heimshlutum. Ennfremur segir
i henni, að þrátt fyrir að Sovét-
rikin hafi styrkt stöðu sina I Af-
riku nokkuð með stuðningi sin-
um við MPLA i Angóla, hafi á-
hrif þeirra minnkað til muna
bæði i Austur-Asiu, I íöndunum
umhverfis Persaflóa og I Mið-
Austurlöndum.
Stofnunin heldur þvi fram, að
þrátt fyrir allt komi hernaðar-
leg staða stórveldanna I Evrópu
að öllum likindum algerlega I
veg fyrir þann möguleika að
annað hvort þeirra reyni að efna
til skyndiárásar á hitt. Sovétrik-
in og Varsjárbandalagið hafi yf-
irburði hvað mannafla snerti,
en sá munur jafnist að fullu
vegna þess að vopn Bandarikja-
manna og NATO-rikja i Evrópu
séu nokkru fullkomnari.
— En NATO gæti misst yfir-
burði sina á þvi sviði einnig, ef
ekki koma til nauðsynlegar
aukningar á Utgjöldum til
vopnabúnaðar, segir i skýrsl-
unni.
Heldur stofnunin þvi fram I
skýrslu sinni, að þróun mála á
síðastliðnu ári hafi aukið hætt-
una á styrjöldum i heiminum,
fyrst og fremst i suðurhluta Af-
riku. í Mið-Austurlöndum hefur
borgarastyrjöldin I Libanon
skapað aðstæður, sem gætu leitt
til nýrra vopnaðra átaka milli
ísrael og Arabalandanna.
I skýrslunni er lögð áherzla á
að yfirburðir Israels i vopna -
búnaði vinni að fullu upp þann
mannafla, sem Arabar hafa
framyfir, bæði að þvi er varðar
útbúnað hvers hermanns, þjálf-
un hans og annað, svo og hvað
þungvopnabúnað áhrærir.
Frekari þróun i Mið-Austur-
löndum sé nú háð þvi hvernig
Arabarikin nýta þann ágóða,
sem þau hafa af oliusölu.
Skæruliðar
fyrir rétt
Reuter, Diisseldorf.— Fjórir
róttækir vinstri-sinnar, þar á
meðal ein kona, sem öll voru
handtekin eftir skæruliðaárás
á sendiráð V-Þýzkalands i
Stokkhólmi fyrir um það bil
ári komu fyrir rétt i Dussel-
dorf i Þýzkalandi I gær, ákærð
um morð á tveim sendiráðs-
mönnum.
Þau voru flutt með þyrlu frá
fangelsinu til dómssalarins,
sem hefur verið sérstaklega
útbúinn vegna gruns um að
félagar fanganna i neðanjarð-
arhreyfingum muni reyna að
taka gisla og fá þau látin laus i
skiptum.
Argentína:
Aðgerðir skæruliða harðna enn
Reuter, Buenos Aires. — Átta
vinstri-sinnaðir skæruliðar voru
skotnir til bana aðfaranótt gær-
dagsins, en þá bar meir á of-
beldisaðgerðum skæruliða I
Argentinu en nokkra aðra nótt
siðanherinn tók þar völdin I sinar
hendur þann 24. marz.
Lögreglan sagði, að þrir skæru-
liðanna, sem voru úr hópi
Peronista, hefðu látið lifið i vél-
byssuárás, sem gerð var á lög-
reglustöðvar i höfuðborg lands-
ins, og haft var eftir áreiðanleg-
um heimildum, að fimm menn
hefðu fallið I árás á varðstöð lög-
reglunnar við þjóðveg nálægt
Ezeiza-flugvelli, sem er fyrir ut-
an Buenos Aires.
Sagtvaraðfimm lögreglumenn
hefðu særzt, og einnig tveir al-
mennir borgarar.
Skæruliðar sátu i gær fyrir Jose
Pardarl, starfsmannastjóra
keramikverksmiðju i Argentinu,
og drápu hann. Hann var fjórði
yfirmaður iðnaðarfyrirtækja I
landinu, sem skæruliðar hafa
ráðið af dögum frá þvi herfor-
ingjastjórnin tók við.
Sextán manns hafa misst lifið i
árásum skæruliða síðastliðna
þrjá daga, og að minnsta kosti tvö
hundruð og tveir hafa verið
drepnir I stjórnmálalegum of-
beldisaðgerðum i landinu siðan
herinn tók við völdum þar.
Sprengjur hafa sprungið viöa
um höfuðborg landsins á undan-
förnum nóttum, þar á meðal ein á
miðvikudagsnótt, sem eyðilagði
teina innanbæjarlestar þar.
Aðfaranótt gærdagsins voru
gerðar bensinsprengjuárásir á
bari og veitingahús I miðborg
Buenos Aires og kveikt var I einni
bifreið.
Bandaríkja-
menn kúg-
uðu Breta
Reuter, London. — Banda-
riska rikisstjórnin reyndi að
stöðva áætlun Breta og
Frakka um framleiðslu
Concorde-þotunnar árið 1964,
eftir þvi sem segir i bók sem
gefin var út i gær.
Höfundur bókarinnar er
Geoffery Knight, forstjóri
brezka flugfélagsins B.A.C.
og segir hann að Bandarikja-
stjórn hafi sett það sem skil-
yrði fyrir láni til Bretlands
að upphæð 2.500 milljónir
dollara, að hætt yrði við
smiði Concorde-þotunnar.
Eftir þvi sem I bókinni seg-
ir reyndu Bretar að stöðva
smiði Concorde I samræmi
við skilyrði Bandarikja-
manna, en Frakkar voru
ófáanlegir til þess.
Þegar ómögulegt reyndist
að fá smiði Concorde stöðv-
aða, setti þáverandi forseti
Bandarikjanna, Lyndon B.
Johnson, þau skilyrði fyrir
lánveitingunni að Bretar
hættu við smiði tv'eggja ann-
arra flugvélategunda, ann-
ars vegar TSR-2 sprengju-
þotuna, sem vera átti hljóð-
frá, en hins vegar Hawker
Siddeley 1154 vélina, sem var
hljóðfrá og gat þar að auki
tekið sig upp lóðrétt.
S-Afríka að verða
ah lögregluríki...
Hans-Dietrich Genscher, utanríkisróðherra V-Þýzkalands:
„Sovét uppfylli Helsinkisdttmélann"
Reuter, Strassburg. — Atján
Vestur-Evrópuriki, þar á meðal
öll aðildarlönd Efnahagsbanda-
lags Evrópu, hvöttu I gær Sovét-
rikin til þess að standa að fullu við
öryggissáttmálann sem gerður
var i Helsinki.
Hans Dietrich Genscher, utan
rikisráðherra Vestur-Þýzka-
lands, sem talaði af hálfu
Evrópuráðs-rikjanna átján,
sagði, að enn hefði mjög tak-
markaður árangur orðið af til-
raunum til þess að fá Sovétrikin
til að uppfylla sáttmálann.
Sagði hann við fréttamenn, að
slökun milli austurs og vesturs
væri þvi háð, að Sovétrikin og
bandamannariki þeirra innan
Varsjárbandalagsins, uppfylltu
ákvæði sáttmálans.
Sagði Genscher, að sérstaklega
væri mikilvægt að Sovétrikin
uppfyiltu mannúðarákvæði sátt-
málans, sem undirritaður var á
öryggismálaráðstefnu Evrópu i
Helsinki á siðasta ári.
Sagði hann að Vestur-Þýska-
land bæri sérstaklega fyrir
brjósti hag þeirra fjölskyldna
sem aðskildar eru vegna járn-
tjaldsins og vildi sameina þær
eftir þvi sem hægt væri.
Slökunin milli austurs og vest-
urs hefur verið allsráðandi á ráð-
stefnu þingmanna frá áðildar-
löndum Evrópuráðsins I Strass-
burg nú, og sagði Genscher að v-
þýzka þjóðin krefðist þess að sjá
nú ákveðin merki þess að slökun-
arstefnu væri I raun framfylgt.
Reuter, Genf. — Alþjóðaráð lög-
fræðinga lýsti þvi yfir, að lög þau
sem áætlað er að verði sett I Suð-
ur-Afriku, þar sem stjórnvöldum
verður heimilað að fangelsa
menn án réttarhalda, sé stórt
skref I átt til þess að koma þar á
fót lögregluriki.
— 1 sameiningu við reglugerðir
þær, sem settar hafa verið um
stofnun öryggisráðs i innanrikis-
málum, gerir þetta nýja vald, sem
stjómvöldum er fengið i hendur,
hvitum Suður-Afrikumönnum það
ókleift með öllu að segja riki sinu
stjórnað með lögum, segir I yfir-
lýsingu ráðsins.
Þá segir ennfremur i henni, að
alþjóðaráð lögfræðinga, sem
starfar i Genf, og er sjálfstæð
baráttustofnun lögfræðinga fyrir
þvi að lög séu virt sem stjórntæki
i heiminum, geti ekki fjallað um
lög þessií einstökum atriðum fyrr
en það hefur fengið texta þeirra i
hendur.
í yfirlýsingunni segir þó: — Af
blaðaskrifum um lög þessi má þó
vera ljóst að þau eru stórt skref i
þróun i átt til lögreglurikis, sem
beinist að þvi að viðhalda stjórn
kynþáttamisréttismanna i Suð-
ur-Afriku. Þau gera kúgunar-
stjórn löglega. —
Brezkir hermenn fyrir
rétt í írska lýðveldinu
Reuter, Dublin. — Yfirvöid i
Irska lýðveldinu munu draga
átta brezka hermenn, sem tekn-
ir voru i gærmorgun innan við
landamæri rikisins, fyrir rétt,
eftir þvi sem sagði I yfirlýsingu
frá rikisstjórninni I gær.
I yfirlýsingunni segir, að
mennirnir átta hafi verið hand-
teknir i þorpinu O’Meath,
skammt innan við landamæri
lýðveldisins, þar sem staðsett er
varðstöð bæði hers og lögreglu.
í tilkynningu stjórnarinnar
var ekki fjallað um málið að
öðru leyti, en haft er eftir áreið-
anlegum heimildum, að her-
•mennirnir átta hafi allir verið
borgaralega klæddir.
Þeir munu vera úr sérstökum
úrvalssveitum brezka hersins,
svokölluðum S.A.S. sveitum.
Talið er að þeir hafi undanfarið
verið staðsettir i landamæra-
héraðinu Armagh á Norður-ír-
landi, þar sem þeir hafa barizt
gegn skæruliðahópum Irska
1 ýðveldishersins (IRA), sem er
ólöglegur.
Það hefur áður komið fyrir,
að brezkir hermenn hafi farið
yfir landamærin og inn á land-
svæði trska 1 ýðveldisins, en
þeirhafa þá ekki gætt sin i ákaf-
anum við að elta uppi skærulið-
ana. Fram til þessa hafa her-
mennirnir verið sendir til baka
yfir landamærin, undir eftirliti
irska hersins. Sú ákvörðun
stjórnvalda að draga þá fyrir
rétt núna mun vera til komin
vegna þess að hermennirnir
voru borgaralega klæddir og
báru ólögleg vopn.
Öheppnir
ránsstað
Rcuter, Buenos Aires.— Þrir
lögreglumenn völdu sér ekki
rétt hús til að ræna þegar þeir
settu á sviö falska „öryggis-
leit” i Buenos Aires i gær.
Húsið sem þeir reyndu að
ræna var i eigu eins af félög-
um þeirra úr lögreglu borgar-
innar, eftir þvi sem lögreglan
þar segir.
Húseigandinn, sem áttaði
sig á svikunum, hafði sam-
band við lögregluna gegnum
talstöð, og þegar hún kom á
staðinn handtók hún átján
vopnaða menn, þar á meöal
iögreglumennina þrjá, fyrir
gripdeildir.
F orngripa-
þjófnaður
Reuter, Ankara. — Þjófar
brutust inn I lyrkneskt safn
nálægt Ankara i gær og kom-
ust undan með verðmæta
fornmuni, meðal annars
þekkta styttu af Midasi, goð-
sagnakonunginum, sem var
þeim óskaplega eiginleika
gæddur, að allt sem hann
snerti varð að gulli.
Safnið sem er i Poatli, um
fimmtíu mflur frá Ankara, er
staðsett þar sem Alexander
mikli hjó á Gordion-hnútinn.
Sprengja
Reuter, Lissabon.— Sprengja
sprakk nálægt bænum Alco-
baca i Portúgal I gær og olli
töluverðu tjóni, en engan
mann sakaði, eftir þvi sem
lögregian þar sagði.
Sprengingin varð skammt
fyrir utan forngripaverzlun,
sem til skamms tlma var I
eigu eins af féiögum i flokki
hreyfingarinnar I Portúgal
sem er samstarfsflokkur
portúgalska kommúnista-
flokksins.
Tveir menn
skotnir......
Rcuter. Tchcran. — Tveir
menn, sem taldir voru hryðju-
verkamenn, voru skotnir til
bana i Teheran i gær, þegar
öryggissveitir gerðu árás á
felustað þeirra þar.
1 opinberri tilkynningu segir
aö báðir mennirnir, Garsivaz
Broumandog Kjosrow Safaie,
hafi verið kommúnistar.
Broumand, sem tók þátt i
sex mánaða hermdarverka-
námskeiði á Kúbu fyrir niu ár-
um var látinn laus árið 1973,
eftir að hafa setib af sér
þriggja ára fangelsisdóm fyrir
starfsemi, sem andstæð var
hagsmunum rikisirís.
I tilkynningunni segir, að
Safaie hafi einnig hlotið þjálf-
un sem hermdarverkamaður i
tveim löndum, en nefnir þau
ekki á nafn.
Dúfnaveiðar og
náttúruunnendur
Reuter, Paris. — Lögreglan i
Paris hefur bannað allar
dúfnaveiðar í skógunum i
nágrenni Parisar, vegna mót-
mæla náttúrufræöinga gegn
þeim. Veiðar þessar hafa farið
þannig fram, að dúfurnar hafa
veriö geymdar I búrum og
þeim siðan sleppt til þess að
skotmenn geti drepið þær.
Þegar hafði verið gripið til
nokkurra aðgerða gegn þess-
um veiðum, þvi aö á miðviku-
dagskvöld brutu náttúruunn-
endur upp mörg búranna og
slepptu lausum mörgum
hundruðum dúfna, sem þannig
sluppufrá skotum veiðimann-
anna.