Fréttablaðið - 16.11.2005, Side 50
Fallegar íslenskar
kvenflíkur
Elm á Laugavegi í Reykjavík selur eingöngu vörur eftir
þrjá íslenska hönnuði, og flestir munu finna eitthvað við
hæfi uppáhaldskonunnar í þeirra lífi í þessari verslun.
„Þetta eru bæði vandaðar og
afar fallegar vörur,“ segir Lísbet
Sveinsdóttir, einn af eigendum Elm
Design. „Við seljum allt frá vett-
lingum upp í kápur, bara allan
pakkann. Við seljum geysilega mik-
ið af jólagjöfum, og fólk gefur allt í
jólagjöf, allt upp í kápur. Vettling-
arnir og húfurnar eru líka vinsælar
jólagjafir, sem og treflarnir. Eins er
lekkert að gefa fallegar litlar peysur
sem við erum með, eða þá bara
stóra duggu í vetrarkuldann.“
Fyrirtækið er sex ára gamalt, og
hanna Lísbet og hinir tveir eigend-
urnir, Erna Steina Guðmundsdóttir
og Matthildur Halldórsdóttir, öll
fötin sem seld eru í versluninni.
Stöllurnar þrjár byrjuðu á því
að hanna mestmegnis ullarvörur
úr hágæða ull frá Perú, en nú fram-
leiðir fyrirtækið vörur úr
margs konar efnum. Flíkurn-
ar sem þær selja eru margs
konar: Vettlingar, húfur,
treflar, peysur, skyrtur,
jakkar, buxur, pils, kjólar,
kápur, og allt þar á milli.
Elm Design selur vörur
sínar í 100 verslanir í
Bandaríkjunum, sem og
fjölda verslana í París, á
Ítalíu og víðar um Evrópu.
Að auki er fyrirtækið að
undirbúa markaðssetn-
ingu á Elm vörunum á
hinum Norðurlöndunum.
14 ■■■■ { íslenskur iðnaður }■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Smíðum færibönd, þvottakör
og fleira. Önnumst uppsetningar.
18 ára þjónusta við fiskiðnaðinn.
Lausnir í fiskvinnslu
til sjós og lands
Við bjóðum
eftirfarandi:
Hvaleyrarbraut 2 - 220 Hafnarfjörður
Sími: 565 2546 - Fax: 565 2548 - Netfang: mesa@mesa.is - www.mesa.is
M. 950 Hausaklofningsvél (fésvél)
M. 900 Gellu-, kinna- og klumbuskurðarvél
M. 850 Sundmaga- og lundavél
M. 300 Grálúðuhausara
M. 422 Hausapressu fyrir þurrk
M. 310 Keflaknúsari fyrir þurrk
M. 100 Sneiðavél fyrir þurrk
(sneiðir heilan fisk og hausar)
Framleiða innréttingar í um
300 blokkaríbúðir á ári
Brúnás er fyrirtæki með öfluga framleiðslu á Egilstöðum.
Hollt krydd í pakkann
Pottagaldrar heitir íslenskt kryddfyrirtæki sem útbýr
hreinar kryddblöndur og kryddolíur án aukaefna eins og
mónósódíums glútamats eða sílíkon díoxíði.
„Það er algengt að fyrirtæki kaupi
kryddkörfur af ýmsum stærðum og
gerðum til að gefa starfsfólki sínu í
jólagjöf,“ segir Sigfríð Þórisdóttir, eig-
andi Pottagaldra. „Þá eru alls konar
krydd í körfunum, Kryddbókin og jafn-
framt látum við Galdrabók Pottagaldra
fljóta með.“
Pottagaldrar sérhæfa sig í krydd-
blöndum, kryddolíum og kryddiðnaði
almennt til að stuðla að fjölbreytni og
hollustu í matargerð heimilanna. Fyrir-
tækið framleiðir um 40 tegundir krydd-
blandna, annað eins af almennu kryddi
í þremur stærðum, fyrir neytendur,
veitingahús og mötuneyti. Auk þess
framleiða Pottagaldrar fjórar gerðir af
grill- og kryddolíum. Allt hráefni Potta-
galdra er ræktað og framleitt sam-
kvæmt ISO-stöðlum og evrópskum lög-
um og reglugerðum.
„Vörur fyrirtækisins verða að vera
uppbyggandi fyrir líkama og sál og
skapa gleði og stuðla að mannrækt í
matargerð,“ segir Sigfríð, en Potta-
galdrar notar náttúrulega aðferð, krist-
altæra gufuhreinsun, til að hreinsa
kryddið. Þessi aðferð varðveitir nátt-
úrulegan lækningamátt kryddjurta og
ilm þeirra, uppfyllir ströngustu gæða-
kröfur, og er til dæmis notuð fyrir líf-
rænt ræktað krydd.
Pottagaldrar framleiða tvær línur,
annars vegar eina sem er án salts og
pipars, og hins vegar aðra sem auð-
kennd er með gulum miðum, og er salt
í þeim vörum.
„En þetta er lág-natríum salt og er
framleitt á Reykjanesi, en Lífheilsustöð-
in hefur bent á að flestir þurfa að
minnka neyslu á salti sem bindur vökva
í líkamanum,“ segir Sigfríð, sem kaupir
kryddin sín frá 150 ára gömlu hol-
lensku fyrirtæki.
„Þeir eru með sína eigin ræktendur
víða um heiminn. Afbrigðin frá þeim
eru alveg yndisleg, til dæmis óreganó
sem er sætt en ekki beiskt, basilíkan
með sætum keim og timíanið er nánast
eins og blóðbergið okkar íslenska,“ seg-
ir Sigfríð.
Auðvelt er að nálgast Pottagaldra-
kryddið, því það er fáanlegt í öllum
helstu matvöruverslunum landsins, en
körfurnar eru sérpantaðar fyrirfram frá
Pottagöldrum í Kópavogi.
Brúnas er tuttugu ára fyrirtæki sem
framleiðir heimilsinnréttingar á
baðherbergi og í eldhús og
fataskápa, en það er meginuppi-
staðan í framleiðslu þeirra. Innrétt-
ingar þeirra eru ekki bara íslensk
framleiðsla heldur einnig íslensk
hönnun, en hönnuðir hjá Brúnási
eru innanhússarkitektarnir Guðrún
Margrét Ólafsdóttir og Oddgeir
Þórðarson. Brúnás er fyrst og
fremst austfirskt fyrirtæki, enda fer
framleiðsla þess öll fram á Egilstöð-
um og skapar þar atvinnu fyrir 16
manns. Þorleifur Magnússon er
sölustjóri þeirra í Reykjavík. ,,Verk-
smiðja okkar á Egilsstöðum er mjög
vélvædd og afkastamikil, og í raun
höfum við aukið framleiðslu okkar
mikið nýlega með því að fá til okk-
ar ný tæki en halda jöfnum mann-
skap.“ Segir Þorleifur.
Framleiðsla Brúnás-
s og sala hefur breyst mikið eftir
því sem hætt var að nær öllu leyti
að bjóða fólki upp á íbúðir tilbún-
ar undir tréverk eða fokheldar. Með
samningum við ýmsa verktaka
hefur Brúnás fengið stór verkefni
við framleiðslu á innréttingum fyr-
ir íbúðarhúsnæði. ,,Í stað þess að
margir einstaklingar séu að kaupa
innréttingar í íbúðarblokkir er nú
yfirleittt einn einstaklingur sem sér
alfarið um það að kaupa inn, en
með þessu fæst auðvitað aukin
hagkvæmni.“ Segir Þorleifur, en
tekur jafnframt fram að komi
kaupandi nógu snemma inn í sölu-
ferlið sé auðvelt að tryggja það að
hann fái einhverju ráðið í samráði
við verktaka. Verktakarnir virðast
vera ánægðir með þjónustuna hjá
Brúnási enda hafa sumir þeirra
verið í samstarfi við fyrirtækið í
allt að 15 ár og segir Þorleifur
þetta vera eins og ,,nokkuð tryggt
hjónaband“. En auk þessa selur
Brúnás mikið á Austfjörðum og
mun það vera um 10-15% af fram-
leiðslunni.
ÞORLEIFUR Í SÝNINGARSAL BRÚNÁSS.
Lísbet Sveinsdóttir er einn af eigendum
Elm Design, íslensks fatahönnunarfyrirtæk-
is sem selur margs konar flíkur tilvaldar í
jólapakkann.
Sigfríð Þórisdóttir með vel kryddað lamba-
læri.
14-15 Iðnaður-lesið 15.11.2005 15:04 Page 2