Fréttablaðið - 16.11.2005, Qupperneq 54
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 MARKAÐURINN14
F Y R I R T Æ K I
F Ó L K Á F E R L I
„Að sýna náunganum tillitssemi
og umhyggju er lífsviðhorf sem
ég drakk í mig með móðurmjólk-
inni,“ segir Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands,
þegar hann er beðinn um að deila
sínu besta ráði með lesendum
Markaðarins. Hann segir það
vera vegarnesti sem hann hafi
alltaf reynt að hafa að leiðarljósi
í lífinu. Það skipti engu máli hvar
maður er staddur eða hvert við-
fangsefnið er, tillitssemi og um-
hyggja gagnvart náunganum sé
alltaf mikilvæg.
Grétar segir það vel mega
vera að þetta viðhorf geti komið
í veg fyrir skjótfenginn ávinning
í einhverjum tilvikum. Til lengri
tíma litið skili það sér hins vegar
alltaf að hafa þessi sjónarmið í
hávegum. Þar að auki hafi það
góð áhrif á sálarlífið og samvisk-
una. „Manni líður betur. Er hægt
að óska sér einhvers mikilvæg-
ara?“ - hhs
B E S T A R Á Ð I Ð
Þau óraði varla fyrir því að Te &
kaffi yrði eitt af leiðandi fyrir-
tækjum landsins í framleiðslu og
sölu á kaffi þegar þau opnuðu
litla verslun við Barónsstíg fyrir
rúmum tuttugu árum. Fljótlega
færðu þau verslunina í bakhús á
Laugavegi en eitt leiddi svo af
öðru og fyrirtækið flytur nú inn
hágæðakaffi og -te frá helstu
kaffiframleiðslulöndum heims-
ins.
„Þegar við byrjuðum var ekki
sama kaffimenning og er í dag.
Það hefur margt breyst og ég
held að það sé óhætt að segja að
menn létu sig eiginlega hafa það
að drekka uppáhellt kaffi í gamla
daga. Blönduðu bara vel af mjólk
og sykri í það. Í dag kaupir fólk
aðeins dýrara kaffi en veit að það
er ánægja í hverjum sopa,“ segir
Sigmundur.
Te & kaffi fagnaði tuttugu ára
afmæli á síðasta ári og eigend-
urnir eru ánægðir með þann
mikla vöxt sem hefur verið í fyr-
irtækinu frá því það var stofnað.
Starfsemi félagsins fer fram í
verksmiðjunni í Stapahrauni í
Hafnarfirði þar sem kaffibaun-
irnar, sem fluttar eru inn frá
rúmlega 30 mismunandi löndum,
eru brenndar í þar til gerðum
ofnum og kaffinu er pakkað í
neytendaumbúðir. Auk þess rek-
ur fyrirtækið fjórar verslanir og
tvö kaffihús. Verslanirnar eru á
Laugavegi, í Kringlunni, Smára-
lind og í Suðurveri og kaffihúsin
tvö eru á Laugavegi og í Smára-
lind.
KAFFIHÚSIN OG VERSLANIRNAR
„Við kaupum aðeins hágæðakaffi
að utan. Kaupum það frá helstu
kaffilöndum heimsins og margt
af því sem við kaupum er vottað
af sérstökum nefndum sem
starfa í viðkomandi löndum. Það
staðfestir að það sé fengið frá
bestu ökrunum,“ segir Sigmund-
ur. Hann segir að kaffibaunirnar
séu fluttar til landsins hráar en
þær séu svo brenndar í ofnum
hjá kaffibrennslu félagsins í
Hafnarfirði. Þar er því svo pakk-
að fyrir verslanirnar en Te &
kaffi selur framleiðsluna bæði í
sínum eigin verslunum svo og í
stórmörkuðum. „Öll vinnsla fer
fram hjá okkur. Frá því baunirn-
ar koma í hús og þar til þær fara
í kaffivélarnar hjá fólkinu og
þannig við tryggjum að varan sé
rétt meðhöndluð og eftir bestu
mögulegu leiðum. Verslanirnar
okkar eru andlit fyrirtækis-
ins út á við. Við seljum þar
bæði baunir sem fólk getur
malað heima hjá sér en auk
þess malað kaffi. Við höfum
núna nýlega innleitt kerfi með
svokölluðum einstefnuventli á
kaffpakkningarnar. Ventillinn
virkar þannig að loftið streymir í
aðra áttina og heldur kaffinu því
fersku. Við viljum ekki að kaffið
skemmist í hillunum hjá kaup-
manninum og varan er því alltaf
fersk.“
KAFFILAUSNIR OG GALAPAGOS
Te & kaffi hefur um 60 starfs-
menn sem skiptast þannig að um
30 þeirra starfa við framleiðslu
og heildsölu á kaffinu en annar
eins fjöldi á kaffihúsum og í
verslunum. Fyrirtækið þjónustar
auk þess fyrirtæki. „Það má
segja að við séum með lausnir
fyrir fyrirtæki og einstaklinga.
Við seljum kaffivélar fyrir kaffið
en auk þess kaffið sjálft og annað
sem þarf hvort sem er fyrir fyr-
irtæki eða heimili,“ segir Sig-
mundur.
Hann segir ekki standa til nein-
ar breytingar á fyrirtækinu aðrar
en þær að fyrirtækið stefnir að
því að halda áfram á sömu braut
við að þróa besta kaffið og teið
sem hægt er að fá hér á landi.
„Við höfum alltaf stækkað innan
frá og höldum því áfram. Við
erum þjónustufyrirtæki með há-
gæðavörur og þannig verður það
áfram. Við teljum að það sé mikil
eftirspurn eftir hágæðakaffi til
dæmis. Í fyrra fluttum við inn há-
gæðakaffi frá Galapagos-eyjum.
250 gramma pakki kostaði um
990 krónur. Við fyrstu sýn
kann kannski einhverjum að
finnast það dýrt. En þegar
það er skoðað betur sést ber-
sýnilega að svoleiðis getur
skilað kannski 30-35 bollum. Það
telst því ekki mikið á bollann enda
kom annað í ljós því kaffið seldist
upp,“ segir hann.
Fjölskyldan vinnur við fyrir-
tækið og líkar vel. Hún er
brennandi af áhuga og á fyrirtæk-
ið að fullu. Ætlar sér frekari land-
vinninga en í sama formi og áður:
Standa vaktina og gera vel við
kúnnann.
„Við finnum það í kaffhúsinu á
Laugaveginum að það er komin
önnur kynslóð sem fastakúnnar í
verslunina. Nú koma kannski for-
eldrar með börnin sín og þau hafa
keypt sitt kaffi í búðinni um ára-
bil. Það finnst okkur gaman því þá
vitum við að við erum að gera vel.
Svoleiðis verður það áfram,“ seg-
ir Sigmundur.
Te & kaffi
Stofnað: 1984
Verslanir (4): Laugavegi, Kringlunni,
Smáralind, Suðurveri
Kaffihús (2): Laugavegi, Smáralind
Starfsmenn: 60
Sælkerakaffi og hágæðate
Í lítilli verslun á Barónsstíg 18 hófu hjónin Sigmundur Dýrfjörð og Berglind Guð-
brandsdóttir að selja te og kaffi árið 1984. Síðan þá hefur starfsemin undið upp
á sig og reka hjónin nú fjórar verslanir og tvö kaffihús í Reykjavík.
ÁGÚST TORFI HAUKSSON vélaverkfræð-
ingur hefur verið ráðinn framkvæmda-
stjóri landvinnslu
Brims á Akureyri og
tekur hann við því
starfi þann 1. nóv-
ember nk. Hann lauk
prófi frá Vélskóla Ís-
lands árið 1995 og
ári síðar stúdents-
prófi frá Verkmenntaskólanum á Akur-
eyri. BSc-prófi í vélaverkfræði lauk
hann frá Háskóla Íslands árið 1999 og
MS-prófi í vélaverkfræði frá University
of British Columbia í Vancouver í
Kanada árið 2001. Á árunum 2001-2002
vann Ágúst Torfi að rannsóknum í
Kanada og frá 2002 hefur hann unnið á
Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns
í Reykjavík. Ágúst Torfi þekkir vel til
landvinnslu Brims á Akureyri, enda
vann hann þar sem vélstjóri í sex sumur
á árunum 1993 til 1998.
GUNNAR ÞÓR PÉTURSSON hefur verið
ráðinn lögmaður Actavis Group. Í lög-
mannsstörfum sínum
hefur Gunnar Þór
sérhæft sig í Evrópu-
rétti, lyfjalöggjöf,
samkeppnisrétti og
stjórnsýslurétti.
Gunnar Þór lauk
embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Ís-
lands 1997 og meistaraprófi í Evrópu-
rétti, L.L.M., frá Háskólanum í Lundi í
Svíþjóð 1998. Hann hlaut réttindi til mál-
flutnings fyrir héraðsdómi 2002. Gunnar
Þór starfaði hjá Lögfræðiskrifstofu Suð-
urnesja 1997 og Eftirlitsstofnun EFTA
1999-2004. Hann hóf síðan störf hjá
LOGOS lögmannsþjónustu 2004. Undan-
farið hefur Gunnar Þór kennt Evrópurétt
við lagadeild Háskólans í Reykjavík.
Gunnar Þór er giftur Eddu Björk Skúla-
dóttur iðjuþjálfa og eiga þau tvö börn.
Stjórn Sjóvár hefur ráðið ÞÓR SIGFÚS-
SON sem forstjóra en hann mun hefja
störf í desembermánuði. Þór Sigfússon
hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra
Viðskiptaráðs Íslands en hann tók við
því starfi í maí 2003. Þór starfaði áður
sem ráðgjafi fjármálaráðherra (1993-
1998) og aðstoðarframkvæmdastjóri hjá
Norræna fjárfestingabankanum (1998-
2003). Hann er með meistaragráðu í
hagfræði og hefur stundað doktorsnám
í alþjóðaviðskiptum við Háskóla Íslands.
Þór hefur meðal annars skrifað þrjár
bækur um Ísland og alþjóðavæðingu,
Örríki á umbrotatímum, Landnám – út-
rás íslenskra fyrirtækja og Straumhvörf.
Þór er 41 árs gamall.
Þá hefur Sjóvá ráðið HELGA BJARNASON
tryggingastærðfræðing sem aðstoðar-
forstjóra félagsins. Helgi mun einkum
sinna verkefnum tengdum vátrygginga-
starfsemi félagsins. Helgi hefur unnið
undanfarin ár að uppbyggingu og
rekstri KB-líftryggingar, nú síðast sem
forstöðumaður vátryggingasviðs. Helgi
er 36 ára gamall.
Á LAGERNUM Halldór Guðmundsson, framleiðslustjóri og brennslumeistari, og Sigmundur Dýrfjörð framkvæmdastjóri á lagernum í
Hafnarfirði. Te & kaffi flytur inn baunirnar í sekkjum eins og þeim sem sjást á myndinni, svo er kaffið brennt og pakkað í neytendaumbúðir.
Te & kaffi flytur aðeins inn hágæðakaffi frá um 30 löndum og eins og sjá má er jólakaffið þegar komið í pakka og tilbúið til afgreiðslu.
GRÉTAR ÞORSTEINSSON, FORSETI ASÍ
Drakk það í sig með móðurmjólkinni að
sýna náunganum tillitssemi og umhyggju.
Tillitssemi og umhyggja
Fr
ét
ta
bl
að
ið
/V
al
li
14-15 Markadur-lesin v/mynd 15.11.2005 14:52 Page 2