Fréttablaðið - 16.11.2005, Side 57
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 17
S K O Ð U N
Seðlabankinn hyggst á næsta ári
taka upp reglulega vaxtaá-
kvörðunardaga. Greining Ís-
landsbanka segir fyrkomulagið
samræmast verðbólgumarkmiði
og vera í takt við það sem
tíðkast erlendis: „Gagnsæi í
stjórnun peningamála mun
aukast með nýrri tilhögun
vaxtaákvarðana Seðlabanka Ís-
lands.“ Seðlabankinn sendi á
föstudag frá sér yfirlýsingu um
breytt fyrirkomulag vaxtaá-
kvörðunarferlis bankans. Verða
frá og með áramótum teknir
upp formlegir vaxtaákvörðun-
ardagar, líkt og tíðkast víða er-
lendis, þar sem bankastjórnin
sendir í lok viðskiptadags frá
sér rökstudda yfirlýsingu um
vaxtastig í endurhverfum við-
skiptum við fjármálastofnanir.
Ekki hefur verið gefið upp hver
tíðni vaxtaákvörðunarfunda
bankans verður, en erlendis eru
slíkir fundir haldnir 6 til 12
sinnum á ári. Auk þessa munu
Peningamál hér eftir koma út
þrisvar ár hvert, en undanfarin
ár hefur ritið komið út ársfjórð-
ungslega. Fækkar einnig verð-
bólgu- og þjóðhagsspám bank-
ans sem þar eru birtar til sam-
ræmis.“
„Með þessu fyrirkomulagi er
reglu komið á takt vaxtaákvarð-
ana Seðlabanka, en fram til þessa
hefur allur gangur verið á tíma-
setningu vaxtaákvarðana hans,
þótt útgáfu Peningamála hafi
gjarnan fylgt tilkynningar um
breytingar vaxta. Svo verður
raunar áfram, en þá daga sem út-
gáfa ritsins fylgir ekki vaxtaá-
kvörðun mun bankinn þó birta
rökstuðning fyrir ákvörðun
sinni.“ Með þessu er bankinn að
færa sig nær þeim vinnubrögð-
um sem almennt eru talin sam-
rýmast best verðbólgumarkmiði,
en jafnan er lögð mikil áhersla á
reglufestu og gagnsæi í útfærslu
seðlabanka á slíku fyrirkomulagi
peningamálastjórnunar. Þannig
mun tímasetning vaxtabreytinga
aldrei koma flatt upp á markaðs-
aðila, og einnig mun ákveðið upp-
lýsingagildi felast í ákvörðun
bankans um óbreytta stýrivexti á
vaxtaákvörðunardögum. Í þeim
löndum sem lengst er gengið
varðandi gagnsæi birtast raunar
fundargerðir vaxtaákvörðunar-
funda svo ljóst sé hvernig
ákvörðunarferlið er, og verður
fróðlegt að sjá hvort slíkur hátt-
ur verður hafður á við
Kalkofnsveginn.
Gagnsæi eykst hjá Seðlabankanum
!
"
#$ % % &
!
"#$%&'
&'(
)
'*++,'- !
' *. / .
!
! #
0%1234'3 !.5
46
78 9:;2
< 9 ==>9???
@ -
!)8
A$
!! B
C
-
B <
-
)
. -
9@
C B <
B )A
$
)D !!
)<A
. @
E
!)8
F
Þriggja
banka
blokk
Það fór svo sem eins og mig
grunaði að hlutafjárútboð FL
Group tókst vel. Ég fékk sjálfur
ekki nema hluta af því sem ég
vildi í útboðinu.
Hlutföllin í hluthafahópnum
komu mér heldur ekki á óvart.
Baugur er orðinn jafn stór og
Hannes í félaginu.
Nú eru þeir félagarnir Hann-
es og Jón Ásgeir komnir saman
með gríðarlega öflugt fjárfest-
ingarfélag og ef maður miðar
við fyrri verk þeirra, þá verður
engin lognmolla í kringum FL
Group á næstunni.
Ég horfi núna mikið á Ís-
landsbanka, enda líklegt að þar
fari eitthvað að gerast. Straum-
ur Burðarás hlýtur að fara að
selja hlutinn sinn í bankanum.
Vandinn er bara sá að það eru
ekki margir sem geta keypt.
Jafnvel þótt ég sé frekar stönd-
ugur, þá hefði ég ekki efni á að
kaupa hlut Straums fyrir rúma
fimmtíu milljarða. Ég þekki
ekki marga sem ráða við svo
stóra fjárfestingu. FL Group,
Baugur og Karl Wernersson eru
líklegustu kaupendurnir að
þessum hlut. Einhverjar raddir
eru um það að Björgólfur Thor
sé ekkert sérstaklega á því að
selja þeim þennan hlut, en
spurningin er hvort aðrir kaup-
endur séu raunverulega í boði.
Nema þá kannski að hægt sé að
selja hlutinn erlendum banka
sem vill komast í tæri við þann
hraða sem tíðkast í íslenskum
bönkum. Vandinn er að fyrir
íhaldsamar erlendar fjármála-
stofnanir er verðmiðinn senni-
lega of hár.
Eftir stendur því að hætta
leitinni og selja hlutinn til FL
Group og Baugs og að Karl
Werners stýri bankanum, Hann-
es FL og Jón Ásgeir Baugi. Þórð-
ur Már hefur verið að lenda erf-
iðari málum fyrir Straum og fer
létt með að klára þetta. Síðan er
hugsanlegt að FL minnki við sig
í KB banka og Bakkabræður
bæti við sig á móti. Þá eru menn
komnir með þrjár gríðarlega
öflugar viðskiptablokkir tengd-
ar þremur bönkum. Exista og
Bakkabræður með KB banka,
Bjöggarnir með Landsbankann
og Straum og FL Group,
Milestone og Baugur með Ís-
landsbanka. Þetta er ekki svo
slæm staða og gefur vísbend-
ingar um að markaðurinn verði
áfram í hörku sókn. Ég hef alla
vega ekki fundið hjá mér neinar
hvatir að undanförnu í þá átt að
hverfa af þessum markaði.
Hvað svo sem maður gerir ein-
hvern tímann seinna.
Spákaupmaðurinn á horninu
S P Á K A U P M A Ð U R I N N
Þ J Ó Ð A R B Ú S K A P U R I N N
Þannig mun tímasetning vaxtabreytinga aldrei koma flatt upp á markaðsaðila
... Í þeim löndum sem lengst er gengið varðandi gagnsæi birtast raunar fundar-
gerðir vaxtaákvörðunarfunda svo ljóst sé hvernig ákvörðunarferlið er, og verð-
ur fróðlegt að sjá hvort slíkur háttur verður hafður á við Kalkofnsveginn.
16-17 Markadur-lesin v/mynd 15.11.2005 15:19 Page 3