Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 61

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 61
MARKAÐURINN MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 2005 21 H É Ð A N O G Þ A Ð A N Innanlandsflutningar eru okkar fag. Flytjum hvað sem er, hvert sem er, hvenær sem er. Tökum ekkert aukagjald. Vatnagarðar 6 Reykjavík Sími: 581 3030 www.adalflutningar.is Vatnagarðar 6 • Reykjavík • Sími: 5813030 Enska – danska – sænska – norska – þýska Sérhæfing í fjármálum, lögfræði, læknisfræði, lyfjafræði, verkfræði, þýðingar úr norðurlandamálum á ensku Sími 587 3690 Fax 587 3691 baf@centrum.is NÝSKÖPUNARVERÐLAUN SAF VORU AFHENT VIÐ HÁTÍÐLEGA ATHÖFN Á GRAND HÓTELI REYKJAVÍK Á FÖSTU- DAGINN. Stephen Brown, svæðisstjóri Icelandair á Bretlandseyjum, hélt ræðu og Sturla Böðvarsson samgönguráðherra af- henti verðlaunin. Nýsköpunarverðlaunin hlaut Adrenalín.is fyrir nýja adrenalíngarð- inn á Nesjavöllum sem tekinn var í notkun í júlí 2005. Þar er háloftabraut, svifbraut, risaróla, klifurveggur og fleira sem kemur adrenalíni af stað. Adrenalín.is er í eigu Ferðaskrifstofunnar Ultima Thule. Þar að auki hlutu Fjord Fishing á Vestfjörðum og Veg Guesthouse á Suðureyri viðurkenningu. GUÐMUNDUR V. FRIÐJÓNSSON OG HARPA GUÐNADÓTTIR TAKA VIÐ VERÐLAUNUM FRÁ ÁRNA MATHIESEN FJÁRMÁLARÁÐHERRA. Fjármálaráðu- neytið veitti hvoru þeirra um sig 250 þús- und krónur fyrir lokaverkefni þeirra á meist- arastigi í hagfræði og viðskiptafræði. Í loka- verkefni sínu við Háskóla Íslands fjallaði Harpa um hagstjórn en efni meistararit- gerðar Guðmundar frá Viðskiptaháskólann í Árósum var hagkvæmni myntsvæða. VIÐ UNDIRRITUN SAMNINGS PARX OG LÍN Samningur þess efnis að ParX viðskipta- ráðgjöf IBM taki að sér fjármálastjórn fyrir Lánasjóð íslenskra námsmanna var undirritaður í október og gildir fram til 15. apríl 2006. Ástæða samningsins er að fjármálastjóri LÍN er í fæðingarorlofi á þessum tíma. Fyrirtækið mun aðstoða LÍN við áætlanagerð, fjárstýringu og önnur verkefni fjármálastjóra. Það mun einnig yfirfara ferla á fjármálasviði LÍN og ráðgjafar ParX gera úttekt á starfseminni og skila niðurstöðum sínum við lok verksamnings. Ísmar tekur við CAT vélstýringum Ísmar, sem undanfarin ár hefur þjónustað verktaka, verkfræði- stofur og ríkisfyrirtæki með landmælingatæki og vélstýring- ar, hefur tekið að sér sölu og þjónustu á samsvarandi búnaði sem Hekla flytur inn frá Cat- erpillar. Trimble, sem Ísmar hefur um- boð fyrir, er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu vélstýringar sem eru mjög útbreiddar hérlendis. Cat- erpillar frá Heklu er leiðandi í framleiðslu á hvers kyns vinnu- vélum. Fyrirtækin tvö, Trimble og Caterpillar, eru í samstarfi varðandi framleiðslu á vélstýri- búnaði sem byggir á rafeinda- tækni sem Trimble hefur þróað og sérhæft sig í um árabil. - hb 20_21_Markadur-lesið v/myndir 15.11.2005 15:14 Page 3

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.