Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 71

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 71
Samkvæmt 1.mgr 21.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar: 1 Fell í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna 2000- 2012. Tillagan gerir ráð fyrir því að 26 ha lands í landi Fells sunnan Biskupstungnabrautar, breytist úr landbún- aðarsvæði í frístundabyggð. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að deiliskipulagi frístundalóða á umræddu svæði. Athugasemdir Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar verða kynntar með tillögunni. 2 Iða í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna 2000- 2012 á svæði innan þéttbýlisuppdráttar Laugaráss. Tillagan gerir ráð fyrir að 55 ha lands breytist úr svæði undir landbúnað í svæði undir frístundabyggð. Þau svæði eru vestan þjóðvegar en einnig á spildu sunnan núver- andi frístundabyggðar. Einnig breytist lóðin númer 4 við Hamarsveg (Hálsakot) úr svæði undir frístundabyggð í svæði undir landbúnað. Athugasemdir Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar verða kynntar með tillögunni. Tillagan er auglýst sam- hliða tillögu að deiliskipulagi frístundalóða við Hamars- veg og Veiðiveg. 3 Iða II í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna 2000- 2012 á svæði utan þéttbýlisuppdráttar Laugaráss. Tillagan gerir ráð fyrir að 77 ha lands breytist úr svæði undir landbúnað í svæði undir frístundabyggð. Þau svæði eru vestan þjóðvegar að Hvítá og austan hans á móts við frístundabyggð í hlíðum Vörðufells. Athugasemdir Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar verða kynntar með tillögunni. 4 Kjaransstaðir í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna 2000- 2012. Tillagan gerir ráð fyrir því að 77 ha lands í nyrsta hluta jarðarinnar breytist úr landbúnaðarsvæði í frí- stundabyggð. Athugasemdir Skipulagsstofnunar vegna tillögunnar verða kynntar með tillögunni. Tillagan er aug- lýst samhliða tillögu að deiliskipulagi frístundalóða á um- ræddu svæði. 5 Laugarás í Biskupstungum, Bláskógabyggð. Tillaga að breytingu aðalskipulags Biskupstungna 2000- 2012 innan þéttbýlisuppdráttar Laugaráss. Tillagan nær til austasta hluta byggðarinnar og gerir ráð fyrir því að athafnasvæði austan Laugarássbýlisins stækk- ar um 0,7 ha til suðurs og að opið svæði til sérstakra nota milli Austurbyggðar og Lundarbrekku breytist í íbúð- arsvæði. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að endur- skoðuðu deiliskipulagi á holtinu. 6 Ásgarður í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi. Tillaga að breytingu aðalskipulags Grímsnes-og Grafnings- hrepps 2002 -2014. Tillagan gerir ráð fyrir því að 55 ha í nyrsta hluta jarðarinn- ar, frá núverandi frístundasvæði sunnan Kálfhólsgils og Borgargils að háspennulínum undir Búrfelli og jarðar- mörkum að Syðri-Brú er breytt úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir frístundabyggð. 7 Borg í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningashreppi Tillaga að breytingu aðalskipulags Grímsnes-og Grafn- ingshrepps 2002 -2014. Tillagan gerir ráð fyrir því að verslunar og þjónustusvæði, 4000 m2 að stærð norðan við félagsheimilið Borg, breyt- ist í opið svæði til sérstakra nota. Einnig breytist 4000 m2 svæði fyrir þjónustustofnanir og verslunar og þjónustu- svæði norðan við verslunina á Borg í íbúðarsvæði. 8 Efri-Brú í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi. Tillaga að breytingu aðalskipulags Grímsnes-og Grafn- ingshrepps 2002 -2014. Breytingin fellst í því að núver- andi frístundasvæði austan Þingvallavegar stækkar um 8 ha til suðurs meðfram veginum. 9 Minni-Bær í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafnings hreppi Tillaga að breytingu aðalskipulags Grímsnes-og Grafn- ingshrepps 2002 -2014. Tillagan gerir ráð fyrir því að 20 ha landbúnaðarsvæðis breytist í svæði undir frístundabyggð. Landið er um 1 km sunnan bæjartorfunnar í mólendi við Stærribæjargil. Gert er ráð fyrir afleggjara frá Sólheimavegi. 10 Minni-Bær í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafnings hreppi Tillaga að breytingu aðalskipulags Grímsnes-og Grafn- ingshrepps 2002 -2014. Tillagan gerir ráð fyrir því að 2,2 ha landbúnaðarsvæði breytist í svæði undir frístundabyggð. Landið er austan Heiðarbrautar sem er norðan við Biskupstungnabraut. Samkvæmt 1.mgr.25.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagstillögur: 11 Fell í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Fells, sunnan Biskupstungnabrautar og norðan núverandi frí- stundabyggðar sem kallast Holtahverfi. Gert er ráð fyrir 35 frístundahúslóðum, 5.600m2 til 9.500m2 að stærð. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að breytingu að aðal- skipulagi. 12 Holtakot í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi lögbýlis. Gert er ráð fyrir bygg- ingarreitum fyrir íbúðarhús, hesthús og geymslu á svokölluðu Kötluholti. Aðkoma verður frá Biskupstungna- braut. 13 Iða II í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Iðu II á 11 ha svæði suðaustan þjóðvegar næst Hvítá. Gert er ráð fyrir 19 lóðum en þar af eru 9 byggðar. Lóð nr 4 við Hamarsveg (Hálsakot) verður landbúnaðarlóð. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að breytingu að aðal- skipulagi. 14 Kjaransstaðir í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillagan að deiliskipulagi frístundabyggðar á 77 ha svæði austast í landi Kjaransstaða ( hluti 3). Gert er ráð fyrir 7 frístundahúslóðu, 9 til 10 ha að stærð, auk byggingarreits fyrir frístundahúsog útihús landeig- anda. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að breytingu að aðalskipulagi. 15 Laugarás í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi íbúðabyggðar í austast í þéttbýl- inu í Laugarási. Svæðið afmarkast af Hvítá í austri, núver- andi byggð í suðri og austri (Árós, Brekkugerði, Lindar- brekku og Laugarási) og Ferjuvegi í norðri. Innan skipu- lagssvæðisins eru í gildi deiliskipulagsáætlanir frá 1997 við Bæjarholt og frá 1999 við Austurbyggð og fleiri götur. Skal hið nýja skipulag leysa hin eldri af hólmi. Skipulagssvæðið er 38 ha og þar verður blönduð starf- semi, 96 einbýlishúsalóðir og 10 parhúsalóðir þar af eru 6 lóðir þegar byggðar. Gert er ráð fyrir 6 athafnalóðum austan við Laugarásbýlið. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að breytingu aðal- skipulags á þessum stað. 16 Efstidalur í Laugardal, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi tveggja íbúðarhúsalóða í landi Efstadals II. Gert er ráð fyrir tveimur 5.000 m2 íbúðarhús- lóðum neðan bæjarhúsa. 17 Laugardalshólar í Laugardal, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi þriggja frístundalóða við frí- stundabústaðinn Hellishól ofan þjóðvegar í landi Laugar- dalshóla. Aðkoma er frá núverandi tengingu við þjóðveg. 18 Leynir í Laugardal, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar í landi Leynis. Svæðið er um 20 ha og liggur norðaustan Böðmóðs- staðavegar að landi Efstadals og að vegi að Bleikhóli. Gert er ráð fyrir 28 frístundahúslóðum, 5.000 m2 að 8.000 m2 að stærð. 19 Vatnskot í Þingvallasveit, Þingvallaþjóðgarði, Bláskógabyggð. Tillaga að deiliskipulagi þjónustusvæðis í Vatnskoti. Gert er ráð fyrir tveimur þjónustuhúsum sem koma í stað þess húss sem fyrir er. Gert er ráð fyrir 38 bílastæðum en aðkoma verður óbreytt frá því sem nú er. 20 Þingvellir í Þingvallasveit, Þingvallaþjóðgarði, Bláskógabyggð Tillaga að deiliskipulagi við tjald- og þjónustumiðstöð á Leirum við gatnamót Þingvallavegar og Uxahryggjavegar. Gert er ráð fyrir nýjum byggingarreit við núverandi þjón- ustumiðstöð, nýjum byggingarreit fyrir skemmu austan við starfsmannahús og nýjum byggingreit fyrir snyrtingar á tjaldstæðinu austan þjóunstumiðstöðvar. 21 Minni-Bær í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi Tillaga að deiliskipulagi frístundabyggðar við Heiðarbraut í landi Minni-Bæjar. Tillagan gerir ráð fyrir 4 frístundalóð- um austan og norðan Heiðarbrautar. Tillagan er auglýst samhliða tillögu að breytingu að aðalskipulagi. Samkvæmt 1.mgr.26.gr. skipulags-og byggingarlaga nr. 73 1997 er hér með auglýst eftir athugasemdum við eftirfarandi deiliskipulagsbreytingar: 22 Brattholt í Biskupstungum, Bláskógabyggð Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Brattholts. Tillagan gerir ráð fyrir því að mörk deiliskipulagssvæðis stækkar til norðurs og lóð gistiheimilis stækkar og verður 2,1 ha. Að- koma breytist lítillega. 23 Ásgarður í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi Tillaga að breytingu á nýsamþykktu deiliskipulagi frí- stundabyggðarinnar Sogsbakka. Breytingin felst í að byggingarreitir á lóðum 11,13,19,21,27 og 29 verða 10m frá lóðamörkum, þó ekki nær Soginu en 100m. 24 Klausturhólar í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafnings- hreppi Tillaga að breytingum á skilmálum í deiliskipulagi frí- stundabyggðar við Seyðishóla. Í breytingunum felst að hámarksstærð bústaða verður 180 m2 í stað 100m2 og að hámarksstærð aukahúss verður 25 m2 í stað 10 m2. 25 Klausturhólar í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafnings hreppi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar að Seyðishólum, breytingarnar felast í að stærð og lega leik- vallar breytist. Ennfremur er gert ráð fyrir að lóð nr. 4cc verði nr. 2C og stækki úr 5.650m2 í 9.500m2. 26 Miðengi í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar að Farborgum. Breytingin felst í að lóðir nr. 4 ( 6.900 m2 ) og nr. 6 ( 6.900 m2 ) við Dvergahraun breytast í lóð nr. 4 (13.800 m2). Einnig breytast lóðir nr.10 ( 9.800 m2 ) og nr.12( 6.900 m2 ) við Dvergahraun í lóð nr.10 (16.700 m2). 27 Syðri-Brú í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi Tillaga að breytingu á deiliskipulagi frístundabyggðar við A- og B- götu í landi Syðri-Brúar. Breytingin felur í sér breytt lóðamörk mót vestri en við breytinguna minnka lóðirnar. Lóðirnar eru númer 1,3,5,7 og 9 við A-götu (Lækjarbrekku) og lóð nr. 3 við B-götu (Björtubrekku). 28 Vaðnes í Grímsnesi, Grímsnes-og Grafningshreppi Tillaga að breytingu skilmála deiliskipulags við Efri- Markabraut, Höfðabraut og Tóftabraut í landi Vaðness. . Í breytingunum felst að hámarksstærð bústaða verður 120 m2 í stað 80m2 og að heimilt verði að reisa aukahús, allt að 25 m2 að stærð. 29 Flúðir í Hrunamannahreppi, Miðsvæði. Tillaga að breytingu deiliskipulags Miðsvæðis á Flúðum sem samþykkt var árið 2002. Markmið breytingarinnar er að bæta aðgengi að garðyrkjubýlinu Brún sem er austan marka skipulagssvæðisins. Í breytingunni felst að vestan íþróttavallarins er lagður vegur sem liggur frá Langholts- vegi meðfram lóðamörkum að Brún og frá honum verður tenging að garðyrkjubýlinu. Íþróttavöllurinn færist austur sem veginum nemur. Skipulagstillögurnar liggja frammi á skrifstofu viðkom- andi sveitarfélags og hjá embætti skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu, Dalbraut 12, Laugarvatni á skrif- stofutíma frá 16.nóvember til 14.desember 2005. At- hugasemdum við skipulagstillögurnar skulu berast til skipulagsfulltrúa uppsveita Árnessýslu í síðasta lagi 28.desember 2005 og skulu þær vera skriflegar. Hver sá sem ekki gerir athugasemdir við tillögurnar innan tilskilins frests, telst vera samþykkur þeim. Laugarvatni 11.nóvember 2005 Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsfulltrúi uppsveita Árnessýslu AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunnamannahreppi og Skeiða-og Gnúpverjahreppi. 28/69-75 smáar 15.11.2005 16:51 Page 9

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.