Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 72

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 72
 16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR24 timamot@frettabladid.is Útfararþjónustan ehf. Stofnað 1990 Þegar andlát ber að Síðastliðin 15 ár höfum við feðgar aðstoðað við undirbúning útfara. Alhliða útfararþjónusta Símar: 567 9110, 893 8638 og 897 3020 Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Elís Rúnarsson www.steinsmidjan.is MERKISATBURÐIR 1624 Dómkirkjan á Hólum í Hjaltadal eyðileggst í óveðri en hafði þá staðið í meira en tvær aldir. 1849 Rithöfundurinn Fjodor Dostojevskí er dæmdur til dauða en er síðar sýknaður. 1907 Stytta af Jónasi Hallgríms- syni er afhjúpuð í tilefni þess að hundrað ár eru liðin frá fæðingu skáldsins. 1917 Stofndagur Reykjavíkur- hafnar. 1931 Minkur er fyrst fluttur til landsins. 1953 Níu sjómenn farast þegar síldveiðiskipinu Eddu hvolfir á Grundarfirði. 1957 Nonnahús á Akureyri er opnað sem minjasafn. Clark Gable (1901-1960) lést þennan dag. „Það er auka ágóði ef þér líkar vel við stúlkuna sem þú elskar.“ Clark Gable var ástsæll bandarískur kvikmyndaleikari. Á þessum degi árið 1988 kusu íbúar Pakistan leiðtoga í lýðræð- islegum kosningum í fyrsta sinn í yfir áratug. Sú sem varð fyrir valinu sem forsætisráðherra var Benazir Bhutto, dóttir fyrrum leiðtoga Pakistana, Zulfikars Ali Bhutto. Hún var fyrsta konan til að gegna leiðtogahlutverki í íslömsku ríki í nútímasögu. Faðir Benazir hafði verið dæmd- ur til dauða eftir að Mohammad Zia-ul-Haq hershöfðingi hafði hrifsað til sín völd í Pakistan í valdaráni hersins árið 1977. Næstu ár á eftir sætti Benazir oft stofufangelsi og árið 1984 flúði hún til Englands þar sem hún varð leiðtogi fyrrum flokks föður síns. Zia forseti lést ásamt bandaríska sendiherranum í dularfullu flug- slysi árið 1988. Bhutto sneri þá aftur til Pakistan og hóf baráttu fyrir lýðræðislegum kosningum sem flokkur hennar gersigraði síðan þann 16. nóvember. Rík- isstjórn Bhutto féll frá völdum árið 1990 en Bhutto gegndi á ný embætti forsætisráðherra á árunum 1993 til 1996. ÞETTA GERÐIST > 16. NÓVEMBER 1988 Benazir Bhutto leiðtogi Pakistan BENAZIR BHUTTO Líkt og í mörgum öðrum skólum og stofnunum um landið allt verður hald- ið upp á Dag íslenskrar tungu í Mennt- skólanum á Akureyri í dag. Sverrir Páll Erlendsson er íslenskukennari þar á bæ og hefur ákveðnar skoðanir á stöðu íslenska tungumálsins. „Ég held að það hafi verið afskaplega vel til fundið að taka upp Dag íslenskrar tungu því það er mikil þörf á því að hrista okkur til annað slagið og minna okkur á að málið skipti máli,“ segir Sverrir Páll, sem vill ekki gera of mikið úr hlut unga fólksins í þeim vandamálum sem herji á móður- málið. „Það er allt of mikið kvartað undan því að ungdómurinn sé að fara með íslenskt mál til andskotans. Það er alls ekki rétt því af einhverju lærir fólk það sem það hefur eftir,“ segir Sverrir Páll og vill meina að fyrirmyndirnar séu ekki alltaf hinar bestu. „Málið er náttúrlega lifandi en okkur hættir til að vilja frysta það. Samt breytist ýmislegt hjá okkur sjálf- um án þess að við tökum eftir því eins og setningaskipan og frasar sem koma upp og verða óðara eins og sjálfsagt mál í hugum margra sem aldrei hefðu tekið sér þetta í munn óhugsað áður,“ segir Sverrir Páll og tekur dæmi af því þegar staðfastir sjötugir Íslend- ingar taka upp á því að segja: „Ég er ekki að skilja þetta.“ Sverrir Páll víkur að því sem hefur verið ofarlega í umræðunni um íslenska tungumálið en það er sá skrifmáti sem börn, unglingar og jafnvel fullorðnir nota til að skrifa stuttskilaboð í SMS, MSN og á bloggsíður. „Þó að einhver skrifi á skringilegan hátt þýðir það ekki endilega að málið sé að breytast,“ segir Sverrir Páll og telur það að lesa SMS eins og frágenginn texta jafnast á við að lesa upp úr skammstafanaskrá. „Ég verð til dæmis ekki var við það þegar krakkarnir skila mér verkefn- um í skólanum að þeir séu að skrifa með þeirri stafsetningu sem þeir nota á bloggsíðurnar sínar,“ segir Sverrir Páll en áréttir þó að ýmsar villur vaði uppi í málinu. Tekur hann sem dæmi nafnorðastíl sem sé orðinn afskaplega algengur í skýrslum, greinargerðum og almennu stofnanamáli og finni sér þannig einn- ig leið inn í fjölmiðla. Þá sé fábreytni í málnotkun einnig áhyggjuefni, sér- staklega í fjölmiðlum en einnig hjá nemendum í skólum. „Ein ástæðan er sú að nútímaunglingar hafa svo mikið að gera að þeir hafa ekki tíma til að lesa bækur. Það eru nemendur sem ganga í gegnum grunnskóla og fram- haldsskóla án þess nokkurn tíma að lesa bók af eigin hvötum,“ segir Sverr- ir Páll, sem telur nauðsynlegt að vekja unga fólkið til umhugsunar. „Það þarf að komast á sú tíska að það sé eftir- sóknarvert að tala og skrifa gott mál. En hvernig við komum þeirri tísku á veit ég ekki,“ segir Sverrir Páll glett- inn. DAGUR ÍSLENSKRAR TUNGU: HALDINN Í NÍUNDA SINN Málið þarf að komast í tísku Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdamóðir, systir, mágkona og tengdadóttir, Guðbjörg Hilmarsdóttir Seljahlíð 7e, 603 Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 11. nóvember. Útförin fer fram í Glerárkirkju mánudag- inn 21. nóvember kl. 14.00. Smári L. Einarsson Hilmar Örn Smárason Sigurveig Gunnarsdóttir Haukur Þór Smárason Signý Sigurlaug Smáradóttir Hilmar Ágústsson Þóra Jones Axel Alan Jones Kristbjörg Hilmarsdóttir Ingólfur Sveinsson Valgeir Hilmarsson Elín Högnadóttir Signý Sigurlaug Tryggvadóttir Haukur Þórðarson Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á félag aðstandenda langveikra barna á Akureyri, Hetjurnar. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Vilborg Sigurðardóttir Stórholti 20, Reykjavík áður Brimhóla- braut 24, Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 13. nóvember. Útför hennar verður gerð frá Fossvogskapellu þriðjudaginn 22. nóvember kl. 15.00. Gerður Gunnarsdóttir Grétar B. Kristjánsson Gylfi Gunnarsson Gauti Gunnarsson Sigurður Gunnarsson og barnabörn Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Sigríður Jósefsdóttir Hringbraut 50, áður að Tómasarhaga 44, Reykjavík, sem andaðist á hjúkrunuarheimilinu Grund þann 9. þessa mánaðar, verður jarðsungin frá Eyvindarhóla- kirkju, Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 19. nóvember kl. 13.00. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, Björns Eiríkssonar Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Bráðamóttöku Landspítalans við Hringbraut. Hjördís Halldórsdóttir Steinunn Björnsdóttir Eiríkur Björnsson Matthildur Bára Stefánsdóttir Birgir Björnsson Björk Alfreðsdóttir Anna Björnsdóttir og barnabörn. ANDLÁT Edda Eiríksdóttir frá Kristnesi, Reykhúsum 4c, Eyjafjarðarsveit, andaðist á Fjórðungssjúkrahús- inu á Akureyri föstudaginn 11. nóvember. Guðbjörg Hilmarsdóttir, Selja- hlíð 7e, Akureyri, lést á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri föstudaginn 11. nóvember. Sigurður E. Þorkelsson fyrrver- andi skólastjóri, Vatnsnesvegi 29, Keflavík, andaðist á heimili sínu föstudaginn 11. nóvember. Sigursveinn Kristinn Magn- ússon, Holtateigi 26, Akureyri, áður til heimilis Sunnuhvoli, Glerárþorpi, lést á gjörgæslu- deild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri föstudaginn 11. nóvember. Guðbjörg Karlsdóttir frá Stekkj- arholti, Ölduslóð 26, Hafnarfirði, lést laugardaginn 12. nóvember. Magnús Vilberg Stefánsson matreiðslumaður, Blikabraut 11, Keflavík, lést á Heilbrigðisstofn- un Suðurnesja laugardaginn 12. nóvember. Guðríður Guðleifsdóttir, Markarflöt 28, áður búsett í Ólafsvík, andaðist sunnudaginn 13. nóvember. JARÐARFARIR 14.00 Jóhanna I. Þorbjörnsdótt- ir, Einigrund 5, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju. 15.00 Jóna Margrét Tómasdóttir, Vesturgötu 7, Reykjavík, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju. AFMÆLI Bjarki Sigurðsson handknattleiks- kempa er 38 ára. FÆDDUST ÞENNAN DAG 42 f.Kr. Tíberíus Rómarkeisari. 1807 Jónas Hallgrímsson skáld. 1911 Oddgeir Kristjánsson tónskáld. 1857 Jón Sveins- son, Nonni, rithöfundur. EKKI VIÐ UNGA FÓLKIÐ AÐ SAKAST Sverrir Páll telur allt of mikið kvartað undan því að ungdómurinn sé að fara með íslenskt mál til andskotans. FRÉTTABLAÐIÐ/KK Ívar Magnússon fyrrverandi verkstjóri, Lyngbraut 9. Garði, andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sunnudaginn 13. nóvember. Vilborg Sigurðardóttir, Stórholti 20, Reykjavík, áður Brimhólabraut 24, Vestmannaeyjum, lést sunnu- daginn 13. nóvember.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.