Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 85

Fréttablaðið - 16.11.2005, Page 85
MIÐVIKUDAGUR 16. nóvember 2005 37 FRJÁLSAR Jóhann Kristinsson, vall- arstjóri á Laugardalsvelli, segir að Stefán Jóhannsson frjáls- íþróttaþjálfari fari offari þegar hann heldur því fram að iðkendur frjálsíþrótta í Baldurshaga hafi verið í lífshættu á mánudaginn síðasta þegar sprakk úr einum veggnum. „Það er ekkert sem datt úr veggnum nema moli sem er ein- hver grömm að þyngd,“ sagði Jóhann við Fréttablaðið í gær en Stefán sagði að litlu hefði mátt muna að veggurinn hefði hrein- lega gefið sig. „Það eru vissu- lega byggingaframkvæmdir hér í gangi og þær ganga fyrir öðru. Það þarf að sprengja hér fyrir utan og þessu fylgja vissulega óþægindi en allt tal um að fólk sé í lífshættu er ekki rétt.“ Jóhann segir að vandi frjáls- íþróttamanna liggi að stóru leyti í því að ekki sé búið að opna nýju frjálsíþróttaaðstöðuna í Laugar- dalshöll en opnunni hefur ítrekað verið frestað. Nýjasta nýtt er að hún verði opnuð í byrjun desem- ber sem þýðir að frjálsíþrótta- menn muni ekki hafa í nein hús að venda í einhvern tíma þar sem dyrnar að Baldurshaga munu lok- ast í næstu viku. Stefán segir að það verði ekki liðið. „Það gengur ekki og við munum æfa þarna þar til Höllin er klár,“ sagði Stefán, sem brátt mun kveðja Baldurshaga fyrir fullt og allt. Ætli Stefán muni sakna aðstöðunnar? „Nei, það mun ég ekki gera. Ég verð mjög feginn að losna þaðan,“ segir Stefán. - hbg Vallarstjórinn á Laugardalsvelli svarar fyrir sig: Enginn í lífshættu SORGLEGUR AÐBÚNAÐUR Aðstaða frjálsíþróttamanna í Baldurshaga er vægast sagt sorgleg og er bókstaflega allt á floti. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA HANDBOLTI Landsliðshópurinn fyrir æfingaleikina gegn Norðmönnum í lok mánaðarins verður væntan- lega kynntur í dag. Fastlega má búast við nokkuð breyttum hópi frá æfingamótinu í Póllandi á dög- unum enda eiga Ólafur Stefánsson og Sigfús Sigurðsson ekki heiman- gengt þar sem þeir verða að keppa á æfingamóti á Spáni á sama tíma. Arnór Atlason tekur einnig þátt í mótinu en hann var ekki í hópnum í Póllandi. Svo er spurningamerki með þáttöku Jaliesky Garcia Padron sem er tábrotinn. Svo er Ingi- mundur Ingimundarson nýfarinn í speglun og kemur því ekki til greina að þessu sinni. - hbg Handboltalandsliðið: Mikið breyttur hópur ÓLFAUR STEFÁNSSON Getur ekki spilað gegn Norðmönnum í lok mánaðarins. FÓTBOLTI Paul Merson, fyrrum leikmaður Arsenal og núverandi stjóri Walsall í ensku 2. deildinni, segir að Jose Mourinho, stjóri Chelsea, sem margir telja þann fremsta í sínu starfi í heimin- um í dag, myndi ekki ná neinum árangri ef hann hefði ekki bak- hjarla á borð við Roman Abramo- vitsj á bak við sig. „Haldið þið virkilega að Mour- inho gæti náð að koma liði eins og Torquay upp úr 2. deildinni? Það segja allir að Mourinho sé sá besti í heimi en aðstæður í neðri deildun- um í Englandi eru allt öðruvísi og leikmennirnir eru lakari. Mourin- ho, Arsene Wenger og fleiri myndu eiga erfitt uppdráttar ef þeir væru án þessara stjörnuleikmanna sinna,“ segir Merson. - vig Paul Merson: Mourinho er ekkert spes JOSE MOURINHO Er ekki í miklu uppáhaldi hjá Paul Merson.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.