Fréttablaðið - 16.11.2005, Síða 90
16. nóvember 2005 MIÐVIKUDAGUR42
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
1 dálkur 9.9.2005 15:22 Page 10
LÁRÉTT 2 mylsna 6 tveir eins 8 kvik-
myndahús 9 dolla 11 tölvuverslun 12
teygjudýr 14 leikhúsfarði 16 íþróttafélag
17 bergtegund 18 sníkjudýr 20 nafnorð
21 slagæð.
LÓÐRÉTT 1 brýna 3 í röð 4 land 5
leikföng 7 réttur 10 forskeyti 13 tjara 15
skaut 16 skordýr 19 sjó.
LAUSN:
Sigurjón Þórðarson, þingmað-
ur Frjálslynda flokksins, sendi
alþjóðastofnunni Transparency Int-
ernational formlegt kvörtunarbréf
í síðustu viku vegna niðurstöðu
hennar um að spilling væri ekki
fyrir hendi á Íslandi. Sigurjón, sem
hefur fengið lof fyrir þetta framtak
sitt, rekur þar ýmis dæmi um spill-
ingu á Íslandi, meðal annars að bók-
hald stjórnmálaflokkana sé lokað,
vinir og ættingjar fyrrverandi for-
sætisráðherra hafi verið skipaðir
dómarar í Hæstarétti, uppákom-
urnar í Baugsmálinu og að Halldór
Ásgrímsson hafi hagnast á einka-
væðingu Búnaðarbankans. Um
þetta má lesa á heimasíðu alþing-
ismannsins (http://www.althingi.is/
sigurjon/safn/002123.html#002123).
Athygli vekur hinsvegar að þann 19.
október síðastliðinn birtist grein í
The Reykjavík Grapevine skrifuð
af Paul Nikolov blaðamanni, sem
er næstum því nákvæmlega eins
og bréf þingmannsins til alþjóða-
stofnunarinnar (http://grapevine.
is/default.asp?show=newsstory&-
id=1098). Þegar Fréttablaðið hafði
samband við Paul Nikolov um þenn-
an sláandi samanburð á greinunum,
sagði hann „Ég er ánægður með að
þingmaðurinn hafi sent slíkt bréf.
Hins vegar gaf ég hr. Þórðarsyni
aldrei leyfi til að nota greinina mína
og skrifa sitt eigið nafn undir. Hann
lét mig ekki heldur vita að hann
myndi nota hana á þennan hátt. Ef
hann hefði spurt mig hefði ég beðið
um að fá nafnið mitt á bréfið,“
útskýrir Nikolov. „En það jákvæða
við þetta allt saman er að hr. Þórð-
arson er greinilega með mjög góðan
smekk fyrir skrifum.“ ■
Stelur grein úr Grapevine
PAUL NIKOLOV Blaðamaður á Grapevine.
Ýmislegt getur orðið til þess að fólk glati GSM-símum og verði fyrir miklu
tjóni þegar símanúmer og aðrar mikil-
vægar upplýsingar hverfa alfarið. Barði
Jóhannsson tónlistarmaður lenti í því
síðustu helgi með heldur óvenjulegum
hætti. Hann varð fyrir því óláni að missa
símann óvart ofan í klósettið þegar
hann var að sturta niður. Hefur hann
því beðið vini og samstarfsmenn um
að senda sér númerin sín á ný vegna
óhappsins. Ekki fylgir sögunni hvort sím-
inn hafi farið alla leið út í sjó, eða bara
drukknað í klósettskálinni.
FRÉTTIR AF FÓLKI
LÁRÉTT: 2 sáld, 6 dd, 8 bíó, 9 dós, 11 bt,
12 amaba, 14 smink, 16 fh, 17 kol, 18 ús,
20 no, 21 ósæð.
LÓÐRÉTT: 1 ydda, 3 áb, 4 líbanon, 5 dót,
7 dómshús, 10 sam, 13 bik, 15 klof, 16 fló,
19 sæ.
Trúbadorinn Þórir spilaði fyrir
leikstjórana Quentin Tarantino
og Eli Roth og leikarann Derek
Richardson á veitingastað Bláa
lónsins síðastliðið sunnudags-
kvöld.
Tarantino og félagar höfðu fyrr
um daginn baðað sig í Bláa lóninu
og haft það mjög náðugt eftir við-
burðaríka helgi í kringum frum-
sýningu myndarinnar Hostel.
Þeir Tarantino og Roth eru víst
miklir aðdáendur Þóris og voru
tónleikarnir að undirlagi aðstand-
enda kvikmyndahátíðarinnar
Októberbíófest og áttu að koma
þeim félögum á óvart, sem þeir
og gerðu. „Þetta gekk mjög vel,“
segir Þórir, sem spilaði fjögur lög
þetta kvöld. Þar á meðal spilaði
hann eigin útgáfu af lagi Outkast,
Hey Ya!, sem hinir frægu áheyr-
endur könnuðust vel við. Lagið er
að finna á fyrstu plötu Þóris, sem
kom út fyrir síðustu jól og naut
mikilla vinsælda.
Eli og leikaranir fengu plöt-
una þegar þeir voru að taka upp
Hostel. Á meðan á framleiðslunni
stóð var haft samband við 12 Tóna,
sem gefur plötur Þóris út, um leyfi
til að nota Hey Ya! í myndinni. 12
Tónar gáfu leyfi sitt en Outkast
stöðvaði ferlið því þeir tvímenn-
ingar Big Boi og André vildu fá
of mikla peninga fyrir notkunina
á laginu. Roth hefur engu að síður
lýst yfir áhuga á að nota lög Þóris
í framtíðinni.
Aðspurður segir Þórir að þeir
félagar hafi skemmt sér vel á tón-
leikunum. „Þetta kom mér dálítið
á óvart. Þeir eru ekki jafnundar-
legir og ég bjóst við, sérstaklega
Tarantino. Hann er eiginlega
venjulegri en ég bjóst við.“
Þórir er mikill aðdáandi Tar-
antinos auk þess sem hann hafði
gaman af fyrstu mynd Roths,
Cabin Fever. Því kom það honum
á óvart þegar hann heyrði af aðdá-
un þeirra á honum. „Þetta var eig-
inlega mjög undarleg kvöldstund
sem ég átti þarna,“ segir Þórir,
sem hélt útgáfutónleika í Iðnó í
gær vegna nýjustu plötu sinnar,
Anarchists are Hopeless Romant-
ics.
freyr@frettabladid.is
TRÚBADORINN ÞÓRIR: SPILAÐI FYRIR TARANTINO OG ELI ROTH
Mjög undarleg kvöldstund
TARANTINO Einn frægasti leikstjóri heims
var hæstánægður með tónleika Þóris.
ÞÓRIR Tónlistarmaðurinn Þórir hélt óvænta tónleika fyrir Tarantino og félaga í Bláa lóninu.
HRÓSIÐ
...fær Jón Ólafsson fyrir að bjóða
öllum sem koma við sögu í Jóns-
bók í útgáfuteitið sitt.
Jónsbók kom út í gær og sagði Jón Ólafsson, viðfangsefni bókarinnar, að
þeir sem hefðu slæma samvisku myndu
skjálfa við lestur hennar. Koma Jóns til
landsins hefur þegar valdið töluverðum
titringi í þjóðfélaginu og var til dæmis
hætt við að sýna viðtal Kastljóss við
athafnamanninn á mánudag. Jón sendir
víst nokkrum fyrirmönnum í þjóðfélag-
inu tóninn í bókinni enda telur hann
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt stein
í götu sína. Jón lýsti því þó yfir að fyrir
honum væru allir menn jafnir, vinir sem
fjandmenn, og vonaðist til að hitta sem
flesta í útgáfuteitinu. Hefur það heyrst
að prenta eigi fjórar bækur í sérstakri
heiðursútgáfu. Mun
Davíð Oddsson
fá bláa, Hall-
dór Ásgríms-
son græna,
Ingibjörg Sól-
rún hreppir
þá rauðu en
það verður
ríkisskatt-
stjóri sem
fær senda
þá svörtu.
Varnarsamningur-
inn nauðsynlegur
Ég tel það mjög slæmt.
Ég held að varnarsamn-
ingurinn hafi verið okkur
mjög nauðsynlegur. Það
er mikilvægt fyrir okkur
að halda uppi sýnilegum
vörnum fyrir landið.
Arnbjörg Sveinsdóttir,
þingkona Sjálfstæðis-
flokksins.
Ekki þörf á her
Ég yrði bara sáttur ef
varnarliðið færi. Það
hefur sýnt sig að það er
ekki þörf á að hafa her
hér á Íslandi þó svo að
þeir hafi aðstoðað okkur
að einhverju leyti, eins
og til dæmis með þyrlun-
um. En ég sé ekki mikla
þörf fyrir herinn, sem
betur fer náttúrlega.
Friðrik Ómar Hjörleifsson
tónlistarmaður.
Ástæðulaust að
halda þeim
Ja, mér finnst ástæðu-
laust að vera að halda
þeim þegar þeir vilja fara
heim til sín. Það á alltaf
að leyfa fólki að fara
heim. Eins og til dæmis
úr afmælum og vinnunni
og svona.
Sif Gunnarsdóttir,
verkefnisstjóri viðburða
Höfuðborgarstofu.
ÞRÍR SPURÐIR Hvað finnst þér um að varnarliðið fari úr Keflavík?
ARNBJÖRG SVEINSDÓTTIR