Tíminn - 24.07.1976, Qupperneq 9

Tíminn - 24.07.1976, Qupperneq 9
8 TÍMINN Laugardagur 24. júli 1976. Laugardagur 24. júli 1976. TÍMINN 9 Sævar Jóhannesson. ba6 fer ekki milli mála, aö viö Islendingar eigum okkur sérstæö áhugamál. Fyrir skömmu ræddi blaöiö viö Ragnar Ragnarsson forstjóra um starfsemi flug- sveita, sem voru á íslandi á striösárunum, en nú hefur Timinn fengiö til liös viö sig Sævar Jóhannesson lögreglumann. Hann hefur aö nokkru leyti ekki ósvipaö áhugamál og Ragnar, en Sævar vinnur aö gagnasöfnun varöandi Islendinga, sem hafa tekiö þátt i styrjöldum. Þá hefur hann einnig safnaö merkjum her- deilda sem voru hér á landi i siöari heimsstyrjöldinni. Eflaust hafa margir áhuga á aö vita hvaö landinn hefur afrekað i orustum, og eftir þvi sem undir- ritaöur kemst næst, þá hefúr Sævar viðað sér miklum fróöleik um þaö efni. Hins vegar er starfiö erfitt, gögn eru týnd og menn látnir. Þaö væri þvi ekki úr vegi að hvetja þá sem einhverja vitneskju hafa t.d. um ættingja eöa aöra, sem tóku þátt i fyrri heimsstyr jöldinni, og þeim atburöum er Sævar nefnir, aö hafa samband við hann. bvi þarna er að ræöa um fróðleik, sem engan veginn má glatast eins og svo margt hefur glatast úr sögu okkar. Timinn innti Sævar fyrst eftir þvi hvenær hann heföi fengiö áhuga á að kanna þátttöku tslendinga i styrjöldum. Hálft annað þúsund íslendingar voru i fyrri heimsstyrjöldinni — Þaö byrjaöi allt meö þvi, aö ég var aö kanna hvaöa brezkar og ameriskar hersveitir höföu veriö hér á landi á heimsstyrjaldar- árunum. Einsogsvo margir aörir haföi ég lesiö bækur um striös- árin, og þar er yfirleitt eingöngu talaö um brezkar og amerískar hersveitir, en mig langaði sem sagt til aö finna út hvaöa sveitir þetta voru i raun og veru. Eitt sinn var ég staddur á Landsbóka- safninu aö viöa aö mér efni, er ég rakst á bókina — Minningarrit islenzkra hermanna 1914-1918 — en hún er um islenzka hermenn, sem tóku þátt i fyrri heims- styrjöldinni meö Kanadamönnum og siðar meö Amerikumönnum. Ég las þessa bók, og sá aö margir landamir höföu unnið umtaisverö afrek. Mig langaöi til aö kynna mér nákvæmlega hvers konar afrek þessir menn höföu unniö. baö var þá, sem ég aug- lýsti i Lögbergi-Heimskringlu og náði sambandi viö ágætis konu Hólmfriði Danielsson. Hún sendi mér þessa bók ásamt fleiri gögn- um, sem hafa verið mér mikil hjálp i þessu áhugamáli minu. Hólmfriöur þessi er frá Kaldrana i Vindhælishreppi i Húnavatns- sýslu.Maöurhennar var Hjálmar Danieisson frá Hólmlátri á Skógarströnd i Snæfellsnessýslu. ÞEGAR ÖLLU ER A BOTNINN HVOLFT ÞÁ ERU ÍSLENDINGAR HERSKÁIR rannsóknarlögregl Hann er nú látinn, og sendi Hólmfríöur mér öll hans heiöurs- merki. Þá fékk ég einnig i gegnum Hólmfriöi blöö eins og — tslenzka Kanadamanninn — en þar er get- iö um tslendinga sem tóku þátt i siðari heimsstyrjöldinni. i.Núhlýtur þetta aöverageysi- mikið verk, ekki getur þú safnaö heimildum um alla þá tslendinga, sem hafa tekið þátt i báöum heimsstyrjöldunum? — Nei, þaö hefur ekki reynzt mögulegt. t sambandi viö fyrri heimstyrjöldina, þá takmarka ég mig viö þá hermenn, sem fengu afreksmerki. En þetta er um 1400 manns, og margir voru heiðraöir svoafnógu er aö taka. Hins vegar læt ég seinni heimsstyrjöldina biða enn um sinn, en auðvitað þigg ég allar mögulegar upplýs- ingar um hana. Þá börðust tslendingar við Indiána — Þetta er annars komiö út i þaö hjá mér, aö fá einnig upplýs- ingar um þá Islendinga, sem tóku þátt i Indiánauppreisninni 1885 Hún var háö i norö-vestur Kanada, en það voru um tuttugu tslendingar sem böröust þar. Upphafiö á þessari uppreisn var þaö, aö Indiánar voru ekki alveg fyllilega sáttir viö hvernig lönd- um þeirra haföi veriö skipt. Indiánahöföingjar fengu þá til liðs viö sig mann af frönskum ætt- um til aö stjórna uppreisninni. Maður þessi haföi raunar veriö gerður útlægur úr Kanada, fyrir aöra uppreisnartilraun. Um leiö ogþetta spuröistút, þá var safnaö saman herliöi og fengnir menn, m.a. frá Winnipeg. Þessir tslend- ingar komu flestir þaöan. Þegar sló loks i bardaga, þá voru þaö tslendingarnir, sem voru nær ætiö i fremstu vigllnu. Saga er til um einn, sem haföi særzt. Til hans kom þá hershöfðingi, og skipaði landanum aö hverfa aftur fyrir, en sá góöi maður haröneit- aði, og hélt áfram aö berjast. Þaö var ekki fyrr en hann var tekinn meö valdi og fluttur nauðugur, aö hægtyar að gera aö sárum hans. Maður þessi hét Magnús Jónsson og var frá Winnipeg, en hvaöan hann er ættaður hér á landi hef ég enga hugmynd um. Þaö eru ein- mitt atriði sem þetta, sem mig vantar sérlega upplýsingár um. Það gæti alltaf leynzt einhver einhvers staðar, sem vissi þetta upp á hár. Þeir komu jafnvel frá Bandarikjunum til að ganga i kanadiska her- inn. — Hvað getur þú sagt okkur um þátttöku tslendinga i fyrrí heims- styrjöldinni. — Fyrir utan þaö, aö hafa lesiö þær bækur og blöö, sem fáanleg eru um þetta efni, þá hef ég skrif- að t.d. til kanadiska þjóöskjala- safnsins. Þaö eru bara þau vand- kvæöi á aö samkvæmt landslög- um er óheimilt aö gefa upp nokkr- ar upplýsingar um menn, sem enn geta verið á lifi. Ef vafi leikur á því, þá þarf aö finna út hvort viðkomandi er látinn. Ef svo er ekki þá verður aö fá leyfi hans, hitt er svo aftur annaö vandamál, að erfitt er oft á tiöum aö komast aö þvi hvar viðkomandi býr. Ég fann samt sem áöur einu sinni mann, sem haföi tekiö þátt i fyrri heimsstyrjöldinni, en hann var búinn aö týna flestum þeim heimildum, sem gátu komiö mér að gagni, einnig var hann búinn að gleyma æði mörgu. Hafi ég fengiö upplýsingar um einhvern einstakan, þá gref ég upp atburðina, sem þeir lentu i og punkta niöur þaö helzta. Þaö athyglisverða viö Islend- inga á þessum árum er, hve fljótt þeir bjóöa sig fram til herþjón- ustu. Raunar bjóöa tslendingar sig fyrr fram en önnur þjóöarbrot i Kanada, t.d. menn af frönskum uppruna. Maöur hefði getaö haldiö aö þeir byöu sig fyrr fram, þvi bardagarnir voru háðir i Frakklandi, landinu sem Frakkar i Kanada kalla sitt annað fóður- land. Þetta eru menn á öllum aldri, og þaö er ekki aðeins aö þeirséu búsettir iKanada, heldur koma þeir yfir landamærin frá Bandarikjunum til aö ganga i herinn, því aö eins og kunnugt er, þá tóku Bandaríkjamenn ekki þátt I sfyrjöldinni fyrr en nokkuö var liöiöá hana. Þetta hefur sjálf- sagt eitthvað veriö af ævintýra- þrá, aö Islendingarnir fóru til Kanada, og lika hefur þeim ef- laust fundizt þaö sjálfsagt aö berjast fyrir nýja fósturlandiö. Til dæmis fóru þó nokkrir frá Da- kóta, en um þaö vantar mig nán- ari upplýsingar. — Voru einhverjir, sem þarna böröust, sem hafa vakið sérstak- an áhuga þinn? — Þaðer einn þeirra sem mér finnst persónulega hafa staðiö sig sérstaklega vel. Hann hét Hallgrimur Jónsson fæddur á Mýri i Bárðardal 1885, sonur bóndans þar á bænum. Hann fór utan aldamótasumariö og dvaldi um skeiö hjá frændfólki sinu i Winnipeg. Hallgrimur var nám- fús og langaöi til aö læra, og inn- ritaöist þvi i undirbúningsdeild viö háskólann i Winnipeg. Þrátt fyrir auöskiljanlega erfiðleika, þá lauk hann prófi viö háskólann voriö 1912. Frá háskólanum fékk hann sérstaka viöurkenningu fyrir kunnáttu i enskri tungu og bókmenntum. Þessi einstaki maöur geröist siðan kennari i Manitoba, en 1916 innritaðist hann i 108 hersveitina og fór til Frakklands. I október sama ár, er hann orðinn liösforingi og er sæmdur heiöursmerki fyrir hreystilega framgöngu. Voriö 1917 hefur Hallgrimur Jónsson umsjón meö vista-og hermanna- flutningum, en þótti þaö heldur rólegt, svo hann gengur i brezka flugherinn. Hann félll svo i loft- árás i Frakklandi um haustiö 1918. Annars gengu margir Islend- ingar i flugherinn og gátu sér gott orö þar. Þeir náöu oft háum stöö- um innan bandarisku eöa kana- disku herjanna og hvort sem þaö var áláðieða legi, þá má segja aö tslendingar hafi tekið þátt i öllum stórorustum, sem háöar voru i fyrri heimsstyrjöldinni. Hinu sama gegnir um þá siðari, hins vegar er mun erfiðara að fá ná- kvæmar upplýsingar um hana. — Eru fleiri tslendingar þér minnisstæöir frá þessum tima? — Þaö eru vissulega margir, sem koma upp i hugann, en svo hvergi sé hallað á kynin þá vil ég minnast Ingu Johanson. Hún var herhjúkrunarkona og fædd i Húsavik i Manitoba. Foreldrar hennar voru þau Jón Sigurjóns- son frá Einarsstöðum i Suöur-Þingeyjarsýslu og Sigur- laugGisladóttir, en hún var ættuö frá Starrastööum i Skagafiröi. Inga þessi var sæmd æösta heiöursmerki, sem Bretar veita hjúkrunarkonum, en einnig fékk hún samsvarandi merki frá Belg- um. Og afi hans var nokkuð likur Birni Jónssyni á Löngumýri........ — I leit minni aö upplýsingum um tslendinga og þær hersveitir, sem hér voru á striðsárunum, þá hafa auðvitað slæözt inn í sögur og heimildir um tslendinga, sem tóku þátt i seinni heimsstyrjöld- inni. Ég hef, eins og ég minntist á hér áðan, rit, sem gefið var út eftir striöiö, en þar er getið nokk- urra tslendinga, sem tóku þátt i styrjöldinni. Þessi rit — íslenzki Kanadamaðurinn — og Minn- ingarrit islenzkra hermanna — eru vafalaust einstök rit I sinni röð. Mérernæstaöhalda, að ekk- ert þjóðarbrot i Kanada og þó viö- ar væri leitaö, hafi nokkurn tima gefiö út slikar heimildir sem þessar. Hvaö um þaö, þá komst ég i Engu lifi var þyrmt I bardaga. Þarna er taliö aö margir tslendingar hafi barizt. Á boröanum eru kanadisk og brezk herdeildarmerki, en merki ON' AiatlVAL AT CAMI* BOUOK.N Fijótt á litiö væri hægt aö imynda sér þarna hóp af Islenzkum bændum — en þetta eru kanadiskir Indiánar. Myndin var tekin meö viku milli- bili. Kanadiskir hermenn i Frakklandi. A.m.k. tveir þeirra eru greinilega I sömu herdeild og fjöldi ts- lendinga þjónaöi i. Þaö var ekki spurt um fagrar byggingar eöa dýr- mæt mannvirki. Þessi bygging var i eigu vefnaöar- vörukaupmanna I Frakklandi. Hún var eyöilögö i ágúst 1917 Máiverk af kanadiskum her- mönnum aö taka brezkar faii- byssur af Þjóöverjum i St. Juiien skógi I Frakklandi. Tvö heiöursmerkjanna (t.v.) til- heyröu Hjálmi F. Danieissyni, manni Hólmfriöar, sem stutt hefur Sævar hvaö mest i gagna- söfnun hans. Hlaupiö aö loftvarnarbyssunum. Eins og aörar myndir hér, þá er þessi af kanadiskum hermönnum i fyrri heimsstyrjöld. Veriö er aö setja bióm á leiöi fallinna hermanna I Kent — svo er þeim gjarnan gieymt. Eitt sinn var þetta blómlegt þorp. samband við mann af islenzkum ættum, þegar ég var aö leita eftir gögnum varöandi hersveitir á ts- landi i seinni heimsstyrjöldinni. i þeim tilgangi aö fá herdeildar- merki þeirra. Maöur þessi, Harold R. Hennessy, á fyrir lang- afa Kristján Jónsson frá Stóra-Dal i Austur-Húnavatns- sýslu. Kristján átti fé meö fjár- kláöa, eins og Björn Jónsson fyrrv. alþingismaöur, og til að komast hjá þvi að fé hans yröi skorið niöur, þá straukhann meö þaö suður yfir fjöll. — Nokkuð sem Björn hefur ekki gert ennþá — Harold hefur greinilega erft eitthvaöaf einbeitni langafa sins, þvi að i siöari heimsstyrjöldinni hlýtur hann heiöursmerki frá Vil- helminu Hollandsdrottningu, og viöurkenningu frá frönsku rikis- stjórninni fyrir sitt framlag til enduruppbyggingar heil- brigðiskerfisins i Frakklandi. Slðan tekur Búastriðið við — Fyrr eöa siöar þá hlýtur þú aö vera búinn aö fá flestar þær heimildir, sem tiltækar eru um is- Ienzka hermenn I fyrri heims- styrjöldinni og indiánauppreisn- inni 1885. Hvaö tekur þá viö? — Þegar mér finnst ég hafa lok- ið þessum tveimur atriöum þá hefi ég hugsað mér að fara aö glugga I þátttöku tslendinga i spánsk-ameriska striöinu, en þaö var háð rétt fyrir aldamótin. Þar hef ég eitt nafn — og aöeins eitt — Þaö er maður ættaður úr Skaga- firöi og heitir hann aö öllum lik- indum Jón Jóhannsson. I skrám hersins er hann að visu kallaður Jóhann Jónsson, en ég held að það sé rangt. Þvl miður hafa kirkju- bækur úr Skagafiröi frá þessum tima tapazt þannig aö erfitt er aö ganga úr skugga um það. Eftir þvi sem ég kemst næst þá brunnu þær . Sama hefur hent fjölmargar skrár I Kanada og Bandarikjun- um, svo aö oft er æöi erfitt a fá upp rétt nöfn. Jón þessi sem gekk i ameriska herinn 1896, er frændi Sólon íslandus, eða Sölva Helga- sonar sem Davið Stefánsson hef- ur gert frægan. Þeir hafa ef til vill veriö likir frændurnir á einhvern hátt Hvenær ég hins vegar get lokiö heimildasöfnun minni er svo aftur annaö mál. Ég hef minnzt á hve erfitt þaö er aö fá upplýsing- ar, gögn hafa týnzt, ekki er hægt aöhafa uppá mönnum.ogsvo er þaö bannaö af yfirvöldum aö gefa nokkrar upplýsingar um menn, sem taldir eru á lifi. En þaö er engin ástæöa til aö þetta glatist. Þátttaka tslendinga i sfyrjöldum er hluti af sögu okk- ar. Tökum bara sem dæmi indiánauppreisnina. Viö vitum, aö þaö voru tuttugu tslendingar sem þar böröust en hvaöan þeir komu þaö finnst hvergi. Þaö er atriöi sem þetta sem ég hef áhuga á aö kanna. Vafalaust er til ein- hvers staöar bréf frá einhverjum þeirra, eöa eitthvað sem gæti oröið til aö upplýsa um þaö mál. — Nú er þetta áhugamál þitt til- tölulega sérstætt, Sævar, hefur þú hugmynd um einhvern, sem er að vinna á þessu sviöi? — Nei, ég hef ekki heyrt um neinn ennþá, sem hefur haft þetta fyrir áhugamál, en vissulega heldur það manni viö efnið. Þetta er samt sem áöur eins og önnur áhugamál, það veröur aö einbeita sér að þvi til aö árangur náist. Ef þú safnar frimerkjum til dæmis, þá gerir þú allt sem er mogulegt til aö ná þvi sjaldgæfasta, eins er meö þetta áhugamál mitt. Ég reyni þaö sem mögulegt er til að ná i sem réttastar og beztar heimildir, sagöi Sævar Jóhannes- son aö lokum.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.