Tíminn - 30.07.1976, Page 4

Tíminn - 30.07.1976, Page 4
4 TÍMINN Föstudagur 30. júli 1976. Verkstæði fyrir fatlaða Walter Arendt, atvinnumála- ráöherra V-Þýzkalands (t.v. á myndinni) er hér aö opna nýtt verkstæöi fyrir fatlaða i Born- heim-Hersel nálægt Bonn. Stofnunin gefur möguleika á þjálfun i 240 iðngreinum, s.s. prentun, bókbandi, málmvinnu og alls konar rafmagnsvinnu. U.þ.b. 150 verkstæði fyrir fatlað fólk eru til á við og dreif um allt V-Þýzkaland, þar sem i allt geta komizt að um 20.000 manns. Trygging og þjálfun fatlaðra Hannelore H. naut tilverunnar og starfaði sem búðarstúlka i stórverzlun i einni af stórborg- unum viö Rin, naut lifsins þar til hún dag einn á siðasta ári lenti i bilslysi og lamaðist að hluta. 1 dag verður þessi 35 ára gamla stúlka að vera i hjólastól. Hún þurfti ekki að greiða kostnað við langa sjúkrahúslegu. Stéttar- félag hennar annaðist allan kostnað við að reyna að koma henni aftur út i lif og starf. En auðvitað hafði hún áhyggjur af framtiðinni. Meðan hún var enn rúmliggjandi kom til hennar fulltrúi úr Verzlunarmanna- félaginu, endurhæfingarráð- gjafi og læknir. í sameiningu gerðu þau framtiðaráætlun um þjálfun hennar og atvinnu. Nú er Hannelore að læra tannsmiöi i Michaelhoven I Köln-Roden- kirchen. Alla tið frá þvi slysið henti hana og þar til hún lýkur námi og þjálfun — um tveggja ára timabil fær hún yfirfærðar tekjursem svara til 85% af fyrri netto tekjum hennar. með morgunkaffinu — Þær eru allar mjög athyglis- verðar, en þessi hrifur mig mest. — Jónatan, kennarinn I lista- skólanum segir að ég þurfi að fá betri þjálfun I að teikna form líkamans. Viltu gera mér greiöa...? ' \0-7Q DENNI DÆMALAUSI „Þú veizt, glugginn I herberginu minu sem þú þarft að hreinsa tvisvar eða þrisvar I viku.”...

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.