Tíminn - 30.07.1976, Síða 21
Föstudagur 30. júli 1976.
TÍMINN
21
AÐ
VIRKJA
ÖLDU-
ORKUNA
Óvenjuleg orkuuppspretta er laggirnar nefnd, sem á aö skipu-
orðið vinsælt umræðuefni á orku- leggja og stjórna rannsóknum
ráðstefnum. Anthony Wedgwood varðandi orku þá sem hugsanlega
Benn, orkumálaráðherra Bret- má nýta frá öldum, en sá mögu-
lands, stendur fyrir ráðstefnu, leiki virðist vera einna raun-
sem hefst i næsta mánuði og á hæfastur. A næstu tveimur árum
dagskrá eru mörg frekar óvenju- á að kanna möguleikana, safna
leg málefni. Rætt verður um skýrslum og i alla staði undirbúa'
hvernig megi nýta orku, sem jarðveginn áður en hægt veröur
kemur frá sólinni, vindum, að breyta orku öldunnar i raf-
sjávarföllum, og öldum. magn.
1 siðasta mánuði var sett á Ein af þeim ástæðum, sem ger-
ir ölduorkuna svo hagstæða er að
framboð orkunnar og rafmagns-
eftirspurnin fylgjast nokkuð vel
að. ölduorkan á veturna ætti að
aukazt, er veöur versnar, en þá
eykst einmitt rafmagnseftir-
spurnin. Þessu er t.d. öfugt farið
með sólarorkuna.
önnur ástæða er að strönd
Bretlands, hæfir vel til að gera
rannsóknir á þvi hvernig bezt sé
að hemja orkuna. Það er áætlað,
að á ársgrundvelli ætti að fást
milli 40 til 70 kilówött á hverjum
metra, sem þýöir að um 1200
milna strönd þurfi til að fullnægja
núverandi raforkuþörf Breta.
Orkuráðuneytið brezka hefur
nú til athugunar fjórar tillögur,
sem allar koma til greina
hvernig megi breyta þessari orku
i venjulega raforku.
Bezt þekkta aðferöin af þessum
fjórum er „dýfing Salters”, sem
er nokkurs konar hreyfanlegir
vindmylluvængir, sem teiknaðir
voru af Stephan Salter hjá
háskólanum i Edinborg.
Rannsóknir Salters i tilraunastof-
um hafa sýnt, aö það er mögulegt
að virkja ótrúlega hátt hlutfall
ölduorkunnar.
1 raunveruleikanum, þá mundi
vera röð af slíkum vængjum, sem
hver hreyfðist upp og niður, en
allir væru þeir tengdir saman.
Orkan, sem þannig fengist yröi
flutt á land annaðhvort i formi
raforku eða vatnsaflsorku.
önnur aðferðin er grundvölluð
á samtengdri röð fleka, þar sem
hver fleki er háður hreyfingum
þess næsta, svo að saman fylgja
þeir hreyfingum öldunnar og
þessa hreyfiorku er siðan hægt að
virkja.
Þessi hugmynd er komin frá Sir
Christopher Cockerell, en hann
átti hugmyndina að flugbátunum.
Sir Christopher hefur ásamt
starfsliði brezku flugbáta sam-
steypunnar sett upp nefnd verk-
fræðinga, sem nefnist ölduorka,
til að þróa þessa fleka.
Þriðja teikningin er grundvöll-
uð á japanskri tækni. Hugmyndin
er sú, að tómur kassi eða glas er
sett ofan i vatnið, þannig að opið
er rétt fyrir neðan yfirborðið.
öldurnar, sem skella á kassanum
koma hreyfingu á vatnið, sem er i
honum og á ofanverðum kassan-
um er litið op, þar sem loft þrýst-
ist út og inn vegna þrýstingsins,
sem skapazt.
1 Japan hefur þeim tekizt, að
nota þessa aðferð til þess að láta
siglingabaujurnar fá nægilega
orku, sem þarf fyrir ljósaútbúnað
þeirra.
Fjórða hugmyndin er kölluð
leiöréttari Russells, en það er
nokkurs konar kassi, sem skipt
hefur verið i tvennt. Þegar aldan
skellur á kassanum og fyllir
Stöðugt skella öldurnar á strönd
Bretlands, sem annars staðar. En
nú ætla Bretar að virkja þessa
gifurlegu orku til að hita og lýsa
upp hús sin.
hann, þá lokast neðra hólfið og,
sjórinn þar spýtist upp i það efrai
þegar næsta alda skellur á kass-
anum. Orkan.sem skapazt, þegar
sjórinn fer úr veðra hólfinu og
upp i það efra er virkjuð og breytt
i raforku.
Enda þótt flestar hugmyndirn-
ar séu að einhverju leyti þekktar
og hafi verið notaðar áður þótt
öðru visi, þá hafa mörg vandamál
komið upp, sem krefjast nýrrar
tækni. Fjöldi stofnana vinna nú að
rannsóknum þessum, sem eru
styrktar fjárhagslega af ólikleg-
ustu fyrirtækjum eins og t.d.
Lloyds, tryggingafélaginu fræga,
og samtökum steypu og mal-
bikunar rannsóknarmanna.
Hvenær ölduorka verður nýtan-
leg sem venjuleg raforka er veru-
lega háð niðurstöðum rann-
sóknarnefndarinnar, sem var
stofnsett i siðasta mánuði. Það
verður þá alla vega ekki á næst-
unni, þvi dr. Lewis Roberts, sem
er formaður nefndarinnar, býst
ekki við, að fá 10 megawatta stöð
fyrr en eftir a.m.k. 10 ár.
(Þýtt og endursagt MÓL