Tíminn - 17.09.1976, Page 8
8
TÍMINN
Föstudagur 17. september 1976.
Metabók
Guinness
setur sitt
eigið met
Norris McWhirter fyrir framan mynd af Ross, bróOur sfnum, viö opnun sýningar á Guinness bók-
unum f Empire State Building i New York.
Þegar Ross McWhirter lét lif-
iö fyrir byssukúlum tveggja
irskra hryöjuverkamanna fyrir
framan heimili sitt I London i
fyrra, aöeins fimmtugur aö
aldri, var fallinn i valinn mikil-
hæfur rithöfundur og tölfræö-
ingur. Þar meö var einnig bund-
inn endir á samstarf tvibura-
bræöranna, sem sáu um útgáfu á
hinum frægu metabókum
Guinness á þriöja tug ára, eöa
allt frá byrjun. Norris heldur
einn áfram útgáfustarfseminni,
ogaövonum hefurálagiðá hann
aukizt til muna. En eftir þvi
sem hann segir þá var sem
hann endurfæddist við fráfall
Ross, ekki sem hálfur maöur
heldur sem tvöfaldur. Hann er
dapur en ekki bitur vegna þessa
ástæöulausa morös og reynir aö
ganga tveim bróöursonum sin-
um i föðurstað.
Þeir Ross og Norris eru af
skozkum uppruna, fæddust
tólfta ágúst 1925 meö nákvæm-
lega tuttugu minútna millibili.
Það hefur verið staðfest af
áreiðanlegu vitni segir Norris
brosandi, en móöir okkar var
viðstödd atburðinn. Þaö þótti
merkilegt hve nauðalikir þeir
voru i sjón og raun. Þeir hafa
hugi eins og japanskar reikni-
vélar, varð einhverjum að orði.
Þeir ræddust við á nokkurs kon-
artáknmáli, sem enginn komst
til botns i nema þeir. Stundum
byrjaöi annar á setningu og hinn
lauk henni. Þeir voru afar sam-
rýmdir og voru saman öllum
stundum, er þeir komu þvi viö,
en mörgum hefur reynzt erfitt
aö skilja þaö nána samband,
sem var á milli þeirra á meðan
báðir liföu. í striöinu voru þeir,
þá sautján ára, settir sem liðs-
foringjaefni i sjóherinn, en hvor
á sitt skipið. Eftir striö fóru þeir
báöir i háskólann I Oxford, þar
sem Ross lagði stund á lögfræði
en Norris hagfræöi. Aö námi
loknu, 1951, fóru þeir út i viö-
skipti saman og settu á stofh
skrifstofu i Fleet Street i Lond-
on. Þeir höföu alltaf haft mikinn
áhuga á tölfræöi og staöreynd-
um — fengu hann liklega aö
erfiöum frá fööur sinum, en
hann gaf út þrjú dagblöö i Fleet
Street á blaðamannaferli sin-
um, (Aö sögn Ross er þaö met.)
Aö áeggjan gamals skólafé-
laga þeirra frá Oxford, Chris
Chataway tóku þeir að sér að
skrifa Guinness bókina, en hún
varð upphaflega til vegna dutt-
lunga yfirmanns Chataways, sir
Hugh Beavers, framkvæmda-
stjóra irska bruggfyrirtækisins
Guinness, sem var frægt fyrir
dökka ölið sitt Guinness Stout.
Dag einn er sir Hugh var á
fuglaveiöum, miöaöi hann á
heiölóu á flugi, en hæföi hana
ekki. — Þetta hlýtur aö vera
hraöfleygasti fugl i heimi, —
tuldraöi hann. — Vertu ekki svo
viss um þaö, — svaraði félagi
hans. Þegar þeir voru komnir
I veiðikofann aftur um kvöldiö
héldu þeir áfram aö rökræöa
þetta en uröu ekki á eitt sáttir.
Þeim til undrunar þá voru ekki
til nein uppflettirit eða heim-
ildabækur, þar sem upplýsingar
um hraöa fugla var aö finna, né
heldur um þaö stærsta,
minnsta, þyngsta, léttasta eitt
eða neitt.!
Þegar sir Hugh kom aftur á
skrifstofu sina, fannst honum,
aö viö svo búið mætti ekki
standa lengur. Hann ákvaö aö
láta rita fullkomna bók, þar sem
staðreyndir og met væru skráð.
Siöan ætlaöi hann aö dreifa
þeim ókeypis á bjórkrár á Bret-
landi, 72.000 aö tölu. En á bjór-
kránum fara oft fram viðræður
um allt milli himins og jaröar,
og þvi gott aö hafa þar handbæri
slika bók.
Chris. Chataway fékk það
verkefni aö finna mann eöa
menn, sem gætu tekiö aö sér að
skrá bókina. Og hvaö var eöli-
legra en aö hann leitaöi til
McWhirter bræöranna, sem á
háskólaárum sinum höföu veriö
þekktir sem gangandi alfræöi-
oröabækur? Ross og Norris
voru þá enn undir þritugu. Þeir
voru kallaðir á fund meö fram-
kvæmdastjórn Guinness fyrir-
tækisins, þar sem þeir voru
spuröir spjörunum úr. Þeir
leystu sómasamlega úr öllum
spurningunum. Þegar sir Hugh
innti þá eftir flughraða lóunnar,
upplýstu þeir hann um að hún
flygi 60 milur á klst og gæti þvi
ekki talizt hraðfleygasti fuglinn,
þvi sá flygi með 80 milna hraöa
á klst. Og þegar einn formaöur-
inn minntistá þaö, aö hann væri
senn á förum til Tyrklands,
sagði Norris: — Tyrkneska er á-
hugavert tungumál, þaö hefur
aðeiiís eina óreglulega sögn.
Þeir voru ráönir til starfans,
og á sextán vikum söfnuöu þeir
heimildum fyrir fyrstu útgáf-
una. Bókin vakti mikla athygli
og hrifningu og óx upp yfir
frumhugmynd sina. Þaö hafa
komiö fram fjöldamörg af-
sprengi af henni, eins og til
dæmis Guinness bók um T-
skyrtur, heillaóskakort, leiki og
margt fleira. Enn er samt 15.000
eintökum á ári dreift ókeypis,
en þaö er aöeins dropi I haf þess
fjölda, sem gefinn er út. Nú er i
undirbúningi 23. útgáfa á
Guinness bókinni á Bretlandi.
Frá þvi McWhirter bræðurnir
gáfu út fyrstu bókina 1955, hefur
hún selzt i 28 miljón eint á 17
tungumálum. Hún hefur mn.s.
selzt i stærra upplagi en bók dr.
Spocks um barnauppeldi og
barnagæzlu. Eina bókin, sem
selzt hefur i fleiri eintökum en
þeirra er brezka heimsal-
manakið, sem hefur selzt i 36
milljónum eintaka, en þaö hefur
lika veriö gefið út i 108 ár. Ann-
ars kemur hún næst á eftir bibli-
unni.
Starfsliö Guinness bókanna 1
London telur nú tuttugu manns.
1 kringum 20.000 bréf berast ár-
lega og mörg þeirra koma með
uppástungurum efni i bókina. A
tveim stöðum i Bandarikjunum,
hafa verið opnaöir sýningarsal-
ir meö Guiness bókum,annar er
i Empire State Building i New
York en hinn i Las Vegas. Sam-
hliða allri vinnu sinni viö út-
gáfustarfsemina og öllum þeim
þeytingi sem þvi fylgir, þá reyn-
irNorris McWhirter aðgera þaö
sem hann getur fyrir málstaö
þann, sem bróðir hans lét lifiö
fyrir. Ross McWhirter hafði op-
inberlega gagnrýnt sprengju-
árásir irska lýðveldishersins, en
skæruliöar IRA höfðu komiö
fyrir sprengjum i göngum neð-
anjarðarlesta, veitingahúsum
og vöruhúsum er höföu slasað
og drepiö margt fólk. Ross gaf
einnig út bækling, sem bar heit-
iö Hvernig á að uppræta
sprengjumenn, og bauð stórfé
til að verölauna hvern þann,
sem gæti komið upp um hryðju-
verkamenn. Með þessu fékk
hann irska lýðveldisherinn á
móti sér með framangreindum
afleiöingum.
Tveim dögum eftir moröið á
Ross mætti Norris á stofnfundi
félags, sem kallar sig National
Association for Freedom, og
berst fyrir auknu frelsi og
öryggi almennings á Bretlandi.
Þegar foreldrar og börn eöa
annaö venjulegt saklaust fólk
getur ekki lengur verzlaö þar
sem þaö var vant i tveim af fjór-
um aöalborgum á Bretlandseyj-
um, vegna sprengjutilræöa, eöa
getur ekki gert sér dagamun á
veitingahúsi af ótta viö ofbeldi,
þá tekur út yfir allan þjófabálk,
og almenningur veröur að
mynda einhver samtök gegn
þessu.
Þegar hann er spurður aö þvi
hvort afskipti hans af þessu fé-
lagi geti ekki beint spjótum
skæruliöanna aðhonum lika, þá
segir hann, að hann geti ekki
svaraö þvi. En hann er þeirrar
skoöunar, aö hann hafi lifaö
góöu lifi og hann sé minningu
Ross bróöur sins, skuldbundinn.
— Þegar allt kemur til alls, þá
er ég tviburi hans. —
i
Hjúkrunarfræðingar
Sjúkrahús Húsavikur óskar að ráða nú
þegar hjúkrunarfræðinga. Húsnæði i boði
Upplýsingar veita framkvæmdarstjóri og
forstöðukona i simum 96-4-13-33 og 96-4-14-
33.
fijúkrahásið í Húsnvík s.f.
Starfsvetur tónlistarféiagsins að hefjast
MOL — Reykjavik. Starfsvetur
Tónlistarfélags Reykjavikur
hefst á morgun klukkan 2.30 með
Schubert-tónleikum i Háskóla-
biói. Þar kemur fram hin heims-
fræga, hollenzka sópransöngkona
Elly Ameling ásamt pianóleikar-
anum Dalton Baldwin.
Elly Ameling er ein af frægustu
ljóðasöngkonum heims i dag, og
Dalton Baldwin er einnig talinn
með fremstu listamönnum á sinu
sviði. Hann heimsótti Island i
fyrra ásamt franska söngvar-
anum Gérard Souzay.
Næstu tónleikar félagsins veröa
svo haldnir þriöjudaginn 28.
september, en þá verða á feröinni
Zetteravistkvartettinn frá Svi-
þjóö.
Þann 9. október munu þeir
Gunnar Kvaran og Gisli Magnús-
son halda tónleika fyrir félagið.
I janúar koma fram á
tónleikum Guöný Guömunds-
dóttir.HafliöiM. Hallgrimsson og
Philip Jenkins.
Franski fiðluleikarinn Jan
Dobrezelewski kemur til meö aö
halda tónleika i febrúar.
ttalski fiöluleikarinn Pina
Carmirelli og Arni Kristjánsson
halda tónleika i marz.
I april heldur Úrsúla Ingólfs-
dóttir tónleika fyrir félagiö, og
auk þess mun Selma Guömunds-
dóttir einnig halda sina fyrstu
tónleika I sama mánuði.
Siðasti viöburður vetrarins
verður svo i mai, en þá mun hinn
heimsfrægi söngvari Peter Piers
halda tónleika.
Tónlistarfélagið getur bætt viö
sig nokkrum félögum fyrir
komandi starfsvetur.
Auglýsið í
Tímanum