Tíminn - 17.09.1976, Page 14
14
TÍMINN
Föstudagur 17. september 1976.
íslendingar fóru í gang, eftir að Pólverjinn hafði rætt við þó í hólfleik:
Svisslendingar
réðu ekki við
Björgvin skoraði
5 glæsileg mörk
stórskota-
hríð ís-
lendinga
— sem skutu þá á bólakaf (24:18)
í Laugardalshöllinni í gærkvöldi
(slendingar áttu ekki í vandræðum með Svisslendinga í
LaugardalshÖllinni í gærkvöldi, þegar þjóðirnar mættust
þar í vináttuleik í handknattleik: Þegar íslenzku leik-
mennirnir fóru í gang og settu á fulla ferð, voru Sviss-
lendingarnir eins og börn í höndunum á þeim — og það er
óskiljanlegt hvernig þeim tókst að vinna sigur á íslenzka
liðinu á Akranesi. Leikmenn íslenzka liðsins skutu Sviss-
lendingana á bólakaf í síðari hálf leik og — náðu um tíma
9 marka mun (24:15) og sigruðu síðan 24:18.
ÍSLENZKA liöið byrjaði ekki
vel gegn Svisslendingum — leik-
menn liðsins náðu ekki saman og
það sem þeir reyndu, gekk ekki
upp. Svisslendingarnir höfðu
frumkvæðið til aö byrja með og
voru þeir búnir að ná þriggja
(7:4) marka forskoti um miðjan
fyrri hálfleikinn og var útlitið þá
ekki gott fyrir Islenzku leik-
mennina — en þeir vöknuðu af
dvalanum og náðu oft mjög góð-
um köflum og skoruðu 6 mörk i
röð og komust yfir 10:7. Islenzku
leikmennirnir fundu þá veikleika
á hægri væng varnarveggs Sviss-
lendinga, sem þeir nýttu og var
staöan 10:9 fyrir lsland I hálfleik.
Byrjunin I slðari hálfleiknum
var ekki góð en þegar staöan var
orðin jöfn (12:12) settu Is-
lendingar á á fulla ferð — voru
sterkir I vörn og léku þokkalegan
handknattleik. Oft mátti sjá
gamlar góðar leikfléttur hjá
islenzku leikmönnunum, sem
skutu Svisslendinga á bólakaf og
voru þeir búnir að ná 9 marka for-
skoti (24:15) rétt fyrir leikslok, en
þá slökuðu þeir á og Svisslending-
ar náðu að minnka muninn
(24:18) áður en dómararnlr gáfu
merki um að leiknum væri lokið.
Eins og fyrr segir, þá er ó-
skiljanlegt hvernig Islenzka liðið I
fór að tapa fyrir Svisslendingum I
upp á Skaga. Þeir hafa tvlmæla- I
laust vanmetið þá þar. Það er I
ekki hægt að segja að Islenzku
leikmennirnir hafi leikið toppleik
I gærkvöldi, langt frá þvl. En það
er samt ekki hægt að loka augun-
um fyrir þvl, að þeir gerðu marga
hluti mjög góða. Eins og
oft áður var vörnin ekki nógu góð
— það vantaði algjörlega hreyfan-
leika I hana og góðan miðherja á
borð við Sigurberg Sigsteinsson
vantaði illilega. Markvarzlan var
ekki nógu góð — Jens Einarsson
varði ekkertþann tlma, sem hann I
Framhald á bls. 19.
Ólafur Einarsson
var markhæstur
Ólafur Einarsson skoraði flest
mörk tslendinga — hann sendi
knöttinn 6 sinnum I netiö hjá
Svisslendingum með langskotum
og þar að auki átti hann 2 linu-
sendingar á Björgvin, sem gáfu
mörk. Björgvin Björgvinsson
skoraöi 5 mörk — 3 af línu og 2 eft-
ir hraðaupphlaup. Viðar
Simonarson og Viggó Sigurðsson
skoruöu 4 mörk hvor, en annars
var árangur leikmanna islenzka
liðsins þessi: — fyrst mörk, siðan
skot og þá knettinum tapað:
Ólafur................... 6-10-1
Björgvin........1........ 5- 5-1
Viggó.................... 4- 4-4
Viðar.................... 4- 5-2
Geir..................... 2- 5-1
Arni..................... 2- 2-0
Agúst.................... 1- 1-0
BjarniG.................. 0- 0-1
Viðar skoraði eitt mark úr vita-
kasti, en þeir Viöar og ólafur
misnotuðu sitt hvort vitakastið —
létu verja frá sér.
Nýting leikmanna islenzka liös-
ins var nokkuð góð — þeir
skoruðu 24 mörk úr 42 sóknarlot-
um, en 18 mistókust. —SOS
Sigmundur Ó.
Steinarsson
II3:W1N
r
Oánægja
í herbúðum
Skagamanna
r
F F
Það hef ég ekki hug-
mynd um ennþá
ÞAÐ hefur ekki fariö
fram hjá neinum aö mikil
óánægja rikir nú I her-
búðum Skagamanna
vegna þjálfarans Mike
Fergusons, sem lítið sem
ekkert hefur undirbúið
Skagamenn að undan-
förnu — hvorki fyrir
bikarúrslitaleikina gegn
tyrkneska liðinu
Trabzonspor. Ferguson
er nýkominn frá Eng-
landi, en þar dvaldist
hann f 10 daga. Það er vel
skiljanlegt að Skagamenn
séu óánægðir — liö þeirra
hefur aldrei verið eins lé-
Iegt og einmitt I dag,
hverju sem það er að
kenna. Leikmenn liðsins
virðast algjörlega úthals-
og áhugalausir.
Gunnar Sigurðsson,
formaður Knattspyrnu-
ráðs Akraness, var mjög
óánægður eftir Evrópu-
leikinn. Hann sagði i við-
tali við Morgunblaðið: —
„Þú mátt hafa það eftir
mér, að Mike Ferguson
þjálfari liðsins á mikinn
þátt I þvl, hve illa okkur
gekk”.
Jón Gunnlaugsson, fyr-
irliði Skagamanna, sagði
I viðtali við Þjóðviljann
eftir leikinn: — „Það
vantaði bara allt I liðið,
bæði úthald og áhuga, og
þess vegna var ekki nema
von að illa færi”.
® ,,Strákarnir voru
frábærir”
Þeir voru ekki ánægðir
Skagamennirnir eftir
leikinn sem eðlilegt er.
Aðeins einn maður virtist
ánægður I herbúðum
Skagamanna, en það var
Ferguson þjálfari, sem
sagði i viðtali við Þjóð-
viljann: — „Strákarnir
okkar voru alveg frábær-
ir mestan hluta siðari
hálfleiks og léku
þásklnandi vel. Þeir
keyrðu þá alveg á fullu og
það kostaði þá lika, að
leikmenn„sprungu” und-
ir lokin, og þá fenguni við
á okkur tvö mörk. Fyrri
hálfleikurinn var hins
vegar óneitanlega ekki
mjög góður. Tyrkirnir
fengu aö leika sér alltof
mikið óáreittir”.
Þetta eru vægast sagt
furðuleg ummæli hjá
þjálfara. Spurningin er,
hvaðhefði gerztef Skaga-
menn hefðu byrjað leik-
inn á fullu? Já, þeir hefðu
„sprungið” fyrr og fengið
á sig fleiri mörk. Fergu-
son er ánægður með, að
strákarnir hans tóku smá
sprett i slðari hálfleikn-
um, sem varð til þess að
þeir „sprungu”.
Þegar Ferguson var
spurður hvernig hann
ætlaði að undirbúa
Skagaliðið fyrir seinni
leikinn, sagði hann: —
„Það hef ég ekki hug-
mynd um ennþá”. Já,
þetta var svarið og eftir
að hafa heyrt það, vaknar
sú spurning, hvað hefur
Ferguson eiginlega verið
að gera uppi á Skaga I
sumar? Þaðerekki nema
von, að Skagamenn séu ó-
ánægðir með hann.
• Birgir kemur á
óvart.
Birgir Björnsson, for-
maður „K.B.G.-nefndar-
innar’ ’ I handknattleik, en
svo er landsliösnefndin
kölluð af handknattleiks-
mönnum okkar, kom
heldur betur á óvart á
þriðjudaginn, þegar hann
sagði I viðtali við Dag-
blaðiö, að landsliðsnefnd-
in teldi, að Pálmi Pálma-
son, hinn sterki leikmað-
ur Franí, félli ekki inn I
landsliðið, en orðrétt
sagði Birgir: — „Við
sögðum honum, að við
myndun hafa samband
við hann, ef við óskuðum
eftir að fá hann á æfingar.
Hins vegar álitum við,
miðað við liðið, sem við
höfum I huga, að Pálmi
félli ekki inn i það”. Svo
mörg voru þau orð Birgis.
• Inn i hvað féll
Pálmi ekki?
Sama dag og Birgir lét
hafa þetta eftir sér, mátti
landsliö K.B.G.-nefndar-
FV
innar þola skell fyrir
Svisslendingum á Akra-
nesi. Þeir, sem sáu liðið
leika þar, voru allir sam-
mála um að þarna hafi
verið á ferðinni lélegasta
landslið, sem Islendingar
hafa nokkurn tima teflt
fram — það var ekki heil
brú I þvi sem leikmenn
liösins gerðu. Einn kunn-
ur handknattleiksmaður
sagði eftir þann leik: —
„Það er nú vel skiljan-
legt,hversvegna ekkieru
not fyrir Pálma i lands-
liðið — hann er nefnilega
taktlskur og leikinn leik-
maður en þannig leik-
menn falla ekki inn I
landsliðið, sem leikur nú
e f t i r „h ö f ð i ”
K.B.G.-nefndarinnar”.
Landsliðsnefndin er skip-
uð þeim Karli Benedikts-
syni, Birgi og Gunnlaugi
Hjálmarssyni.
PUNKTAR