Tíminn - 22.10.1976, Page 6
6
TÍMINN
Föstudagur 22. október 1976
Umsjónarmenn:Pétur Einarsson
r
Omar Kristjónsson
Hermann Sveinbjörnsson
Heltin hamlar fætinum að
vísu, en viljanum ekki
Þeir timar virðast liðnir, er ibúar þessa lands
töluðu af stolti og virðingu um Alþingi, alþingis-
menn og forystumenn þjóðarinnar. Ekki þykir
lengur tiltökumál, þó að einfeldningar fari með
almenn sannindi eins og innantómar kennisetn-
ingar og hafi á þeim endaskipti á opinberum vett-
vangi eða jafnvel á fjöldasamkomum erlendis.
Siðgæðisvitund manna er breytt. Varla er svo
framinn glæpur i þessu landi, að ekki ómi marg-
radda jarmur um að forystumenn þjóðarinnar,
og þá einkum framsóknarmennírnir, séu þar við
riðnir.
Vert er þó að hafa i huga að til eru menn, sem
leitast við að rangfæra almenn sannindi til þess
eins að svala hefndarþorsta sinum á óvini, er, oft
óafvitandi, hefur sært tilfinningar þeirra eða
dregið að sér fullmikla athygli meðbræðranna, að
mati viðkomandi, á þeirra kostnað. Verða slikir
menn gjarnan svivirðilegir i athöfnum sinum og
getur þolandinn orðið fyrir óbætanlegu tjóni af
þessum sökum. Slika veiki er, að áliti geðsjúk-
dómasérfræðinga, mjög erfitt að uppræta, þar
sem sjúklingurinn getur verið fullkomlega eðli-
legur að öðru leyti og tekst þvi að halda, sálar-
ástandi sinu leyndu og villa á sér sýn, en brotnar
svo gersamlega, er hann verður að játa sekt sina
og á þá oft ekki bata von. Þessu fólki fyrirgefur
samfélagið, þvi það er ekki sjálfrátt gerða sinna.
Hinu er ósvarað, hvernig múgurinn dæmir þá
frumspekinga, er komið hafa fram á sjónarsviðið
i framhaldi af hinu svonefnda „Ármannsfells-
máli” (er vegið var að virðingu nokkurra ihalds-
manna i Reykjavik), með ærumeiðandi yfirlýs-
ingar og fullyrðingar um ýmsa af forvigismönn-
um þessa lands, og þá sér i lagi framsóknar-
menn.
Þessir menn eru margir sem leikarar i s jónleik
af þvi tagi, að þeir eru leikstjóranum þóknanlegir
i einu og öllu, en láta sig litlu varða um stað-
reyndir, séreðli hlutanna eða afleiðingar af hátt-
erni sinu. Þessum vesalings einfeldningum er
stjórnað af skipulögðum neðanjarðarhreyfingum
stjórnmálaflokka, er hafa það markmið að hefta
af alefli framgang Framsóknarflokksins, eftir að
sýnt var að hann var i mikilli sókn og formaður
flokksins sannaði, að hann er hinn mesti far-
sældarmaður i ráðherrastól, virtur af lýð sins
lands.
Þegar slikar öldur riða yfir, þannig að fornhelg
vigi hrynja að grunni, siðir og venjur eru virt að
vettugi og afneitað er nauðsyn þess að komast að
kjarna málsins, þá er gjarnan spurt: Hvar getur
maðurinn leitað halds og trausts?
Ekkert, sém fer eitt sinn fram úr meðalhófi,
þekkir sin takmörk. Framsóknarmenn hafa tekið
á þessum náungum af þolgæði. Þeir hafa að visu
skaðað flokkinn mikið um sinn, en viljinn fyrir
velferð islenzku þjóðarinnar stendur óhaggaður
eftir. „Sinum gjöfum er hver likastur”. Menn
munu hugleiða timana tvo, hve lengi þeir njóta
ánægjunnar. Ef menn glata dyggð til að þjóna
föðurlandinu, hvernig mega þeir þá gagnast þvi.
ÓK •
Kynning á ungu framsóknarfólki
„Onnur stjórn ón þótttöku
Framsóknarflokksins hefði
að öllum líkindum ekki
orðið farsælli"
— segir Kristinn Jónsson í Búðardal
„önnur stjórn án þátttöku
Framsóknarflokksins heföi aö
öllum likindum ekki oröiö far-
sælli,” segir Kristinn Jónsson i
Búöardal.
Við höfðum tal af Kristni
Jónssyni, verzlunarmanni hjá
Kaupfélagi Hvammsfjarðar i
Búðardal, er hann var á ferðinni
I bænum fyrir skömmu. Krist- -
inn er 28 ára Dalamaður, fædd-
ur og uppalinn á Hallsstöðum,
Fellsströnd i Dalasýslu. Hann
lauk landsprófi frá Reykholts-
skóla og nam siöan einn vetur
við lýöháskóla i Danmörku. Að
námiloknu réðist hann til starfa
hjá Kaupfélagi Hvammsfjarðar
I Búðardal, þar sem hann hefur
starfað siðan.
Kristinn hefur unnið nokkuð
að félagsmálum, aðallega innan
Framsóknarflokksins, og var
kosinn i stjórn Sambands ungra
framsóknarmanna á siðasta
þingi þess á Laugarvatni.
Við spuröum Kristinn fyrst,
hvaö heföi vakiö stjórnmála-
áhuga hans og hvers vegna
hann hefði valiö Framsóknar-
flokkinn?
— Það var min skoðun, og er
ennþá, sagði Kristinn, — að þaö
væri skylda hvers þegns að taka
■vissan þátt i stjórnmálum, þvi
það er svo margt sem pólitik
kemur inn á, t.d. á hverju ári
þegar skattskráin kemur út, þá
eru miklar umræður um
skattamálin, verðlag á' vörum
og þjónustu, og I raun og veru
flest allt sem maöur tekur sér
fyrir hendur á degi hverjum, er
meira og minna háð stjórnvöld-
um. Þess vegna gerir þaö mann
viösýnni I hinum ýmsu málum,
ef reynt er að fylgjast með og
taka þátt I umræðum um þau.
Svo er þaö annað mál hvað fólk
tekur mikinn þátt I pólitisku
starfi, en þaö er undir einstak-
lingnum komiö.
Ég hef aö minum dómi, haft
mikiö gagn af þvi að starfa inn-
an Framsóknarflokksins og það
hefur gert mér auðveldara að
skilja hin ýmsu vandamál, og
auk þess er þroskandi aö starfa
aö svona málum. En hvers
vegna ég valdi Framsóknar-
flokkinn var einfaldlega vegna
þess, að hans stefna féll bezt að
mlnum þjóðfélagslegu skoöun-
um.
Fyrir 12-14 árum er ég fór að
fylgjast meö stjórnmálum var
Framsóknarflokkurinn einn
flokka að minum dómi er lét sig
einhverju skipta hagsmuni
landsbyggöarinnar, og allt fram
á þennan dag hefur flokkurinn
barizt fyrir sem jöfnustum lifs-
skilyrðum um allt land. T.d.
meðan vinstri stjórnin sat undir
forystu Framsóknarflokksins,
þá átti sér stað bylting á þessu
sviði, þannig að fólk fór aö trúa
aftur á land og þjóö. Þar sem
atvinnuleysi haföi verið árvisst,
og fólksfækkun hafði átt sér
stað, fór allt aö breytast til hins
betra.
En þrátt fyrir þaö má sjá
hróplegt misrétti á milli þegn-
anna, þótt aldrei verði um það
aö ræða að allir sitji við sama
borö hvar sem þeir eru búsettir.
En margt má lagfæra t.d. verð á
raforku, þjónustu, sima, og að
maöur tali nú ekki um hinn
mikla skatt, sem þeir verða að
greiða er nota oliu til upphitun-
ar. En þaö sem verst er, er það,
að margir landsmenn gera sér
ekki grein fyrir þessu misrétti,
og hafa ekki veitt athygli þeirri
stökkbreytingu, er varö á lands-
byggðinni i stjórnartiö vinstri
stjórnarinnar, ef draga má á-
lyktun af úrslitum sfðustu al-
þingiskosninga.
— Landbúnaður er með mikl-
um blóma i Dalasýslu. Er útlit
fyrir að svo veröi enn um langa
framtiö?
— Dalasýsla er landbúnaðar-
hérað, þar sem nær eingöngu er
byggtá sauðfjár- og kúabúskap.
Nú hin seinni ár hefur mjólkur-
framleiöendum fækkað og
mjólk minnkað. Það er m.a.
vegna þess, að kúabændur hafa
ekki taliðsig bera þaðúr býtum,
sem þeir þyrftu. Og önnur á-
stæða er sú, að þróunin hjá
mjólkurframleiðendum hefur á
undanförnum árum verið mjög
ör, t.d. tankvæðing o.fl. Þetta
hefur kallað á fjárfrekar fram-
kvæmdir og margir hefðu kosiö
að byggja upp hjá sér, en fjár-
magn til þeirra hluta hefur ekki
legið á lausu. Af þeim sökum
hafa menn hætt við kýr og fjölg-
að viö sig sauðfénu. Þetta gerir
að verkum að óhagkvæmari
rekstur veröur hjá mjólkurbú-
inu I Búöardal.
Það er min skoöun aö gera
þurfi byggöaráætlun fyrir Dala-
sýslu. Þar sem m .a. lagt væri tii
grundvallar aukin mjólkur-
framleiðsla, og i framhaldi af
þvi yrðu aukin aöstoð til þeirra,
sem vildu byggja upp kúabú.
Nú er Búöardalur eini byggö-
arkjarninn i héraöinu og byggist
nær öll atvinna þar á þjónustu
við nágrannasveitirnar. Það er
orðiö mjög brýnt að auka á fjöl-
breytni I atvinnulifinu, svo eöli-
leg uppbygging geti átt sér staö.
Þaö er styrkur fyrir hvert héraö
að blómiegur byggöarkjarni sé
þar og geti veitt flesta þá þjón-
ustu sem þörf er á.
— Hvert er að þinu mati mest
aökallandi verkefni stjórn-
valda?
— Brýnasta verkefni stjórn-
arinnar er að skipuleggja nýt-
ingu sjávaraflans, þannig að við
getum búið að honum um ó-
komna framtið, og aukið þar
með verömætasköpun þjóðar-
innar. Leggja veröur áherzlu á
næga atvinnu um allt land.
Einnig veröur að útfæra og aö-
laga byggöastefnuna vanda-
málum einstakra héraða, en
vandamálin geta verið misjöfn
eftir stöðum. Viða um land eru
húsnæðisvandræði, og á þeim
stöðum þarf að gera eitthvað
sem örvar fólk til að byggja, svo
að fólk leiti ekki eingöngu á
suð-vesturkjálka landsins.
Fleira mætti telja, en full at-
vinna um allt land og áfram-
haldandi uppbygging er þaö,
sem stjórnvöld á hverjum tima
verða að leggja áherzlu á.
— Finnst þér, að almenning-
ur beri nægilegt traust til
stjórnmálamanna og stjórn-
málaflokka?
— Það hefur verið skoðun
margra, nú seinni árin, að
stjórnmálamenn séu óábyrgir,
og virðing fyrir þeim og Alþingi
fari þverrandi. Með rökum má
styðja það aö svo sé á stundum,
bendi ég þá á vinnubrögð stjórn-
arandstæöinga, ekki bara þá
sem nú er, heldur einnig stjórn-
arandstööuna er sat á timum
vinstri stjórnarinnar siöustu.
Vorið 1974 þegar erfiðleikar
blöstu viði efnahagsmálum, var
það yfirlýst stefna þeirra sem I
stjórnarandstöðu voru, að það
skipti ekki máli hvort tillögur
rikisstjórnarinnar væru skyn-
samlegar eða ekki, stjórnin yrði
að fara frá. Það tókst, og erfið-
leikar af þessum sökum jukust.
Slik vinnubrögð stjórnmála-
manna eru ekki til að auka virö-
ingu þjóöarinnar á þeim, eöa
stjórnmálum yfirleitt, þar sem
hagur þjóðarinnar er iátinn
vikja fyrir skammsýni og
flokkslegri þröngsýni.
Einnig er það orðið þannig, að
alþingismenn hafa svo mikinn
starfa með höndum, eru t.d. II
mörgum nefndum og ráðum,
auk þess að gegna þing-
mennsku.aðþeir hafa ekki tima
til að sinna kjósendum sem
skyldi. Þannig hefur samband
þingmanna og kjósenda minnk-
að.
1 þriðja lagi hafa fjölmiðlar,
nú upp á siðkastið, verið mjög
iðnir við að brigzla stjórnmála-
mönnum um alls konar misferli.
Hrópað er upp misrétti, alls
konar fullyröingar koma fram,
sem margir taka undir að ó-
hugsuðu máli, og menn ausa
auri hver á annan. Þar finnst
mér fjölmiðlar hafa brugðizt. 1
staðþess að skýra út og upplýsa
málin, ganga þeir fram i þvi að
sverta náungann og auka á tor-
tryggni meðal þegnanna. Lýö-
ræðinu stafar hætta af þessum
vinnubrögðum.
— Hvaö vilt þú segja um
varnarmálin og þá skoðun sem
haldið hefur verið á lofti að taka
eigi leigu fyrir afnot af landinu?
— Þvi miöur tókst vinstri
stjórninni ekki að hrinda þeim
áformum stjórnarsáttmálans I
framkvæmd að láta herinn fara.
Ekki verður Framsóknar-
flokknum mikið ágegnt I þess-
um efnum með Sjálfstæöis-
flokknum, enda við ramman
reip að draga i þessu máli, þar
sem mér hefur fundizt sumir
erindrekar Sjálfstæðisflokksins
leggja sig meira fram við það,
aö gera svokölluðum vinaþjóö-
um til hæfis, en minna úr þvi
atriði, hvað væri fslenzku þjóð-
inni fyrir beztu. Það er min á-
kveðna skoöun, að Framsókn-
arflokkurinn veröi þegar hann
kemst i þá aðstöðu, ef til vill aö
afloknum næstu kosningum, aö
láta varnarmálin verða mál
málanna. Nú, svo er spurningin
um, hvort við eigum að reyna að
græða á varnarliöinu meö þvi aö
láta þá borga leigu fyrir afnotin.
Ég svara einfaldlega með einu
NEII, að það á ekki að vera til
umræðu innan Framsóknar-
flokksins.
— Að lokum, Kristinn, er
Framsóknarflokkurinn I sókn
eða er hann á undanhaldi?
— Staða stjórnmálaflokks fer
að minum dómi eftir störfum
flokksins á hverjum tfma.
Framhald á 20. siðu.