Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 2
����������
��������������
��������������������
���������������
�������������������
�����������������
��������������
��������������
����� ������������� �����������
������������������������
�������
1. sÆti
VIÐSKIPTI Eftir
viðskipti upp á
meira en 100 millj-
arða íslenskra
króna árið 2005
var Björgólfur
Thor Björgólfs-
son útnefndur
fjárfestir ársins í
búlgarska ríkisút-
varpinu.
F y r i r t æ k i
hans, Novator,
var tilnefnt til verðlaunanna ásamt
Telecom Austria og Global Steel
Holdings. Novator fjárfesti nýverið
í BTC, búlgarska landssímanum, og
fyrr á árinu keypti Novator 34 pró-
sent hlut í El Bank, áttunda stærsta
banka Búlgaríu. Björgólfur var
ekki viðstaddur athöfnina en tals-
maður hans tók við verðlaununum
fyrir hans hönd.
Björgólfur í Búlgaríu:
Valinn
fjárfestir ársins
2 18. desember 2005 SUNNUDAGUR
BJÖRGÓLFI THOR
Hefur gengið flest
í haginn utan
landssteinanna
BANDARÍKIN George W. Bush,
forseti Bandaríkjanna, heimilaði
Þjóðaröryggisstofnun landsins
að hlera síma þúsunda manna
án dómsúrskurðar í þeim
tilgangi að afla upplýsinga um
hermdarverkastarfsemi. Hann
lýsti því yfir í gær, að hann ætlaði
sér ekki að láta af því að beita því
valdi sem hann hefði til að heimila
hleranir í nafni þjóðaröryggis.
Hann gagnrýndi þá harkalaga sem
þátt hefðu átt í að gera hleranirnar
opinberar.
Til að fá leyfi til að hlera síma
eða lesa tölvupóstskeytasendingar
þarf heimild dómstóla. Að því
er dagblaðið New York Times
hermir heimilaði Bush hins vegar
Þjóðaröryggisstofnuninni (NSA)
að fylgjast með fjarskiptum
þúsunda manna búsettra í
Bandaríkjunum við fólk í öðrum
löndum, án úrskurðar, til að
komast yfir upplýsingar um áform
meintra hryðjuverkamanna.
Stofnunin er sögð vilja fá heimildir
til að hlera innanlandssímtöl en
hefur ekki enn fengið þær.
Upplýsingarnar hefur
blaðið eftir ónafngreindum
heimildarmönnum úr leyni-
þjónustugeiranum sem telja að
í lagalegu tilliti séu stjórnvöld
komin út á ystu nöf í svonefndu
stríði gegn hryðjuverkum. Hvíta
húsið reyndi að stöðva birtingu
fréttarinnar þar sem það taldi hana
geta spillt rannsóknarhagsmunum
og varað hryðjuverkamenn við.
New York Times dró í heilt ár að
birta upplýsingar sínar til að afla
frekari upplýsinga.
- shg
New York Times birtir viðkvæmar upplýsingar um George W. Bush:
Heimilaði ólöglegar hleranir
LJÓSAHÚSIÐ 2005
MYND/HILMAR BRAGI BÁRÐARSON
FRÍTT FÖRUNEYTI George W. Bush
fékk sér göngutúr í garði Hvíta hússins
í vikunni með þeim Steve Hadley
þjóðaröryggisráðgjafa og Donald Rumsfeld
landvarnaráðherra.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERÐLAUN Þverholt 18 hlaut heið-
ursnafnbótina ljósahúsið 2005 í
Reykjanesbæ. Það var nefnd á
vegum íþrótta- og tómstundaráðs
bæjarins sem valdi það en sú
nefnd veitir árlega viðurkenning-
ar fyrir fallegustu skreytingarnar
í bænum.
Úr mörgum er að velja því
Reyknesingar eru miklir skreyti-
meistarar. Að Þverholti 18 búa
Fanney Sæmundsdóttir og Odd-
geir Björnsson. ■
Ljósahúsið 2005:
Bjarma leggur
frá ljósahúsinu
Gistu fangageymslur Tveir menn á
fertugsaldri gistu fangageymslur lögregl-
unnar á Akranesi aðfararnótt laugardags.
Annar hafði stofnað til heimilisófriðar og
hinn var með læti á skemmtistað.
Ísing á vegi Bíll valt í einstigi við
bæinn Hvamm á milli Fáskrúðsfjarðar og
Stöðvarfjarðar á laugardag. Tvennt var í
bílnum og meiddist ekki en talsverð ísing
var á veginum. Bifreiðin hafnaði á hvolfi
og er ónýt.
Missti stjórn á bílnum Að morgni laug-
ardags valt bíll á Grindavíkurvegi á móts við
Bláa lónið þar sem ökumaður sendibif-
reiðar hafði misst stjórn á henni vegna
vindhviðu. Bifreiðin er mikið skemmd en
ökumaður og farþegi meiddust ekki.
Fékk höfuðhögg LÍF, þyrla Landhelg-
isgæslunnar, var kölluð út að morgni
laugardags þegar aðstoðarbeiðni barst
frá netabátnum Tjaldi SH-270. Skipverji
hafði fallið um koll í lestinni og óttast var
að hann væri alvarlega slasaður. Erfiðlega
gekk fyrir þyrluna að fara á slysstað vegna
veðurs og áður en langt um liðið var
ástand mannsins betra. Ákveðið var að
hætta við að sækja manninn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
BRUSSEL, AP Leiðtogar Bretlands
og Frakklands lögðu rótgróinn
ágreining um fjármögnun Evrópu-
sambandsins til hliðar í fyrrinótt
er þeir skrifuðu ásamt kollegum
sínum frá hinum aðildarríkjunum
undir samkomulag um langtíma-
fjárhagsáætlun sambandsins fyrir
tímabilið 2007-2013. Samkomulag-
inu var fagnað sem mjög mikil-
vægum áfanga enda hefði trúverð-
ugleiki ESB beðið enn einu sinni
hnekki á áfallaári hefði leiðtoga-
fundinum í Brussel verið slitið án
sáttar um fjárlögin.
Eftir tveggja daga erfiðar
samningaviðræður tókst Tony
Blair, forsætisráðherra Bretlands,
sem gegnir formennskunni í ESB
til áramóta, í fyrrinótt að fá hina
leiðtogana til að fallast á málamiðl-
unartillögu að fjárhagsáætluninni
2007-2013. Það sem gerði útslagið
var að Blair bauð að endurgreiðslur
sem Bretar hafa fengið úr sameig-
inlegum sjóðum ESB frá því Marg-
aret Thatcher samdi um þær fyrir
tveimur áratugum yrðu skornar
drjúgt niður og það fé látið renna í
þróunarsjóði til styrktar uppbygg-
ingu í austantjaldslöndunum fyrr-
verandi sem gengu í ESB í fyrra.
Á móti bað Blair hina leiðtogana,
einkum og sér í lagi Jacques Chir-
ac Frakklandsforseta, um að sam-
þykkja að útgjöld ESB yrðu endur-
skoðuð árið 2008-2009 sem gætu
leitt til þess að landbúnaðarstyrkir
sambandsins yrðu skornir niður.
Franskir búvöruframleiðendur fá
drjúgan hluta þeirra að óbreyttu.
„Þetta er samkomulag sem gerir
Evrópu[sambandinu] kleift að
halda sínu striki; það gerir okkur
kleift að sýna rétta samstöðu,“
sagði Blair.
Samkvæmt samkomulaginu er
ætlunin að lækka útgjöld ESB á
tímabilinu 2007-2013 niður í 1,045
prósent af vergri landsframleiðslu.
Slíkur samdráttur á hinum sam-
eiginlegu sjóðum sambandsins
var að margra áliti í mótsögn við
markmiðið um að auka vægi ESB
á alþjóðavettvangi. En fyrri tillaga
Breta hljóðaði upp á að útgjöld ESB
yrðu takmörkuð við 1,03 prósent af
landsframleiðslu.
Á fyrsta leiðtogafundi sínum
frá embættistöku lagði Angela
Merkel, kanslari Þýskalands, sig
fram um að fá voldugustu aðildar-
ríkin til að sýna samstöðu en jafn-
framt að nýju aðildarríkin væru að
fullu höfð með í ráðum. Hún sagði
samkomulagið „vonarmerki fyrir
þróun Evrópusambandsins. Það er
góð málamiðlun.“
Jose Manuel Barroso, forseti
framkvæmdastjórnar ESB, var
óstjórnlega feginn að samkomulag
skyldi nást eftir vonbrigðin fyrr í ár
er franskir og hollenskir kjósend-
ur höfnuðu stjórnarskrársáttmála
sambandsins og fyrsta atrennan
að sátt um fjárlagamálið fór út um
þúfur á leiðtogafundi í júní. „Evr-
ópa hefur afstýrt stöðnun. Evrópa
er aftur komin á hreyfingu,“ sagði
Barroso í gær.
audunn@frettabladid.is
Fjárlagasátt fagnað
Leiðtogum Evrópusambandsins tókst í fyrrinótt að ná sátt um fjárhagsáætlun
sambandsins fyrir tímabilið 2007-2013. Samkomulaginu var fagnað sem mikil-
vægum áfanga. Stöðnun afstýrt, segir Barroso framkvæmdastjórnarforseti.
BLAIR OG BARROSO Tony Blair, starfandi forseti leiðtogaráðs ESB, og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnarinnar, voru sýnilega
ánægðir með árangur leiðtogafundarins er þeir mættu blaðamönnum í Brussel í gær. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
������ ��������� ���� ������
��������� �� ���������� ������ ��
������������������������������
������������������������������
���� ������ ������ ������ �����
�����������������������������
�������� ���� ��������� �������
��� ������� ��� ������� ������ ����
���� ����� �������� �������� ���
���������������������� �����
������������������������������
��� ��� ������ ����������� ������
������� �������������� ��� ����
����������������������������������
�������� ��� ���������� ���� ����
���������������������������������
������������������������������
�� ����� ��������� �����������
����� ������ �������������� �����
������������������ ����� ����
��������
���������
SPURNING DAGSINS
Hvernig var að leika Felix,
Felix?
„Það var stór listræn upplifun sem ég
mun geyma í hjarta mínu að eilífu.“
Felix Bergsson lék sjálfan sig á meðan
Dr. Gunna var skipt út fyrir Örn Árnason í
Spaugstofuútgáfunni af Popppunkti.
LANDBÚNAÐUR „Ég fagna því ef
menn eru tilbúnir til þess að
fella niður tolla á innfluttum
matvælum,“ segir Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, formaður
Samfylkingarinnar.
Ingibjörg segir þó ekki þurfa
að bíða eftir Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni til þess að fara í
slíkar aðgerðir. „Mér finnst
málið ekki einungis snúast um
samningsatriði við stofnunina
heldur hvernig best sé að bæta
lífskjör Íslendinga.“ Ingibjörg
segir þar skipta verulegu máli
að ná niður matarverði, sem
meðal annars verði gert með
því að lækka tolla á innfluttum
landbúnaðarvörum.
„Vinstri grænir eru ekki
stuðningsmenn þess að gefa
íslenskan landbúnað upp á bátinn,“
segir Steingrímur J. Sigfússon,
formaður Vinstri grænna.
„Breytingar á kerfinu hefði hins
vegar mátt gera fyrir löngu, enda
lengi verið ljóst hvert stefndi.“
Steingrímur kveðst fylgjandi því
að framleiðslustyrkjum sem nú
eru við lýði verði breytt í greiðslur
sem ekki trufli samkeppnisstöðu.
„Breytingar á borð við
þessar verður að gera hægt og
skipulega og gæta þess vel að
okkar landbúnaður haldi velli,“
segir Guðjón Arnar Kristjánsson,
formaður Frjálslyndra. - ht
Stjórnarandstaða um vilja ráðherra til lækkunar tolla á innfluttum matvælum:
Breytinga á styrkjakerfi þörf
INGIBJÖRG SÓLRÚN GÍSLADÓTTIR
Formaður Samfylkingarinnar segir lækkun
tolla á innfluttum landbúnaðarvörum geta
skilað sér í lægra matvöruverði.