Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 82
2. desember 2005 FÖSTUDAGUR62
ANDERSON (Brasilía)
Leiddi þjóð sína ásamt framherj-
anum Ramon alla leið í úrslitaleik
mótsins en þar kom mikilvægi
hans í brasilíska liðinu glögg lega
í ljós. Anderson meiddist illa á
fyrstu mínútum úrslitaleiksins
gegn Mexíkó og án hans átti Bras-
ilía enga glætu og beið að lokum
ósigur, 3-0. Fram að þeim tíma
hafði Anderson spilað stórkost-
lega, reyndar ekki skorað nema
eitt mark en þátt í flestum öðrum
mörkum brasilíska liðsins. Það
kom fáum á óvart þegar hann var
valinn besti leikmaður mótsins að
því loknu, þar sem hann fékk strax
kunnuglegt viðurnefni: „Hinn nýi
Ronaldinho.“
NURI SAHIN (Tyrkland)
Þessi yngsti leikmaður sem
nokkurn tímann hefur spilað í
þýsku úrvalsdeildinni var að sjálf-
sögðu burðarásinn í mögnuðu liði
Tyrkja á mótinu. Sahin, sem er
til mála hjá Borussia Dortmund,
er alhliða miðjumaður sem líður
best rétt fyrir aftan framherjana
í frjálsri stöðu. Hann hefur gríðar-
lega næmt auga fyrir spili, ótrúlega
tækni og magnaðan hægri fót og
telja margir að þarna sé mögulega
á ferð efnilegasti leikmaður sem
Tyrkir hafa alið af sér.
CARLOS VELA (Mexíkó)
Varð markakóngur á mótinu með
fimm mörk í jafnmörgum leikjum
og bar uppi sóknarleikinn hjá sigur-
liði Mexíkó. Hans helsta fyrirmynd
er brasilíski framherjinn Ronaldo
og þykir Vela svipa til hans inni á
velli; leiftursnöggur og marksæk-
inn með eindæmum. Arsene Weng-
er hjá Arsenal hefur miklar mætur
á Vela, sem er að öllum líkindum á
leið til Arsenal eftir næsta tímabil.
„Ég set mér það markmið að verða
heimsmeistari og markakóngur,“
sagði Vela áður en mótið hófst.
Hann stóð við stóru orðin.
GIOVANI DOS SANTOS
(Mexíkó)
Hinn Brasilískættaði Dos Santos
var allt í öllu í leik heimsmeist-
ara Mexíkó í Perú og varð annar í
kjörinu á leikmanni mótsins. Með
frammistöðu sinni vakti hann
athygli útsendara frá Manchest-
er United, Chelsea og fleiri liðum
en hann hefur verið á mála hjá
Barcelona frá tólf ára aldri og
segist hvergi vilja spila annars
staðar. Þessi örvfætti snillingur
með boltann var uppáhald áhorf-
enda á mótinu, enda hreinræktað-
ur skemmtikraftur þegar hann fær
boltann í fæturna. Jorge Fossati,
þjálfari Úrúgvæ, hélt ekki vatni
yfir hæfileikum Dos Santos. „Að
hafa leikmann í hans gæðaflokki
munar öllu í þessum aldursflokki.
Hann var sá sem skildi Mexíkó að
frá öðrum liðum á mótinu.“
DAVID ARVIZU (Bandaríkin)
Hann er ekki nema 167 sentímetrar
á hæð en bætir þann ókost upp með
ótrúlegum hraða. Hann getur spilað
á hvorum kantinum sem er og er
snillingur í að leysa inn að miðju og
gefa stungusendingar á framherja
liðsins. Út á þetta gekk leikskipulag
Bandaríkjanna á mótinu og komu
öll mörk liðsins nema eitt eftir send-
ingu frá Arvizu.
MOMODOU CEESAY (Ghana)
Eftir mjög svo óvæntan sigur
Gana á Brasilíu í opnunarleik
mótsins var nafn Momodou
Ceesay á allra manna vörum.
Þessi tröllvaxni framherji, 195
sentímetrar, olli miklum skrá-
veifum í vörn Brassanna með
styrk sínum og leikni en ekki síst
hraða. Hann skoraði tvö mörk
fyrir Gana á mótinu og gekk
leikur liðsins í rauninni út á það
að koma boltanum á hann og bíða
eftir að hann byggi eitthvað til.
Ceesay býr yfir mjög óvenjuleg-
um hæfileikum, sem víst er að
mörg af stærstu félögum heims eru líkleg til að vilja nýta sér
innan tíðar.
MYONG HO CHOE (Suður-
Kórea)
Choe þótti standa upp úr stór-
skemmtilegu liði S-Kóreu á mót-
inu í Perú, sem spilaði líklega
skemmtilegasta fótboltann af
öllum liðum. Það heyrði til undan-
tekninga ef leikmenn liðsins tóku
meira en tvær snertingar á bolt-
ann áður en þeir sendu hann áfram
en oftar en ekki var það Choe sem
batt endahnútinn á magnaðar
sóknir liðsins. Choe skoraði þrjú
mörk í fjórum leikjum og þykir
einstaklega góður að klára færin
sín. Hann er eldsnöggur, leikinn
með boltann en vantar nokkuð
upp á líkamlegan styrk - eins og
reyndar flestir liðsfélagar sínir.
CANER ERKIN (Tyrkland)
Vinstri vængmaðurinn sem hefur
verið kallaður hinn nýi Luis Figo.
Hann þykir nánast þindarlaus,
eins og stanslaus hlaup hans upp
og niður vinstri vænginn hjá
Tyrkjum á mótinu gáfu til kynna.
Erkin er frábær sendingamaður
en jafnfram mikill markaskorari
og á mótinu skoraði hann þrjú
mörk og lagði upp tvö. Síðast en
ekki síst þykir hann mikill leið-
togi inni á velli og smitar út frá
sér með dugnaði sínum og ósér-
hlífni. Er samningsbundinn Bayer
Leverkusen í Þýskalandi þar sem
skilaboð forráðamanna eru þau að
Erkin sé ekki til sölu.
TIM KRUL (Holland)
Um leið og hann stígur inn á völlinn
fangar þessi stóri og mikli mark-
vörður óhjákvæmilega augu flestra.
Leiðtogahæfileikar hans og sú virð-
ing sem honum er sýnd skín í gegn
og þykir hann minna mjög á sjálfan
Peter Cech hjá Chelsea, bæði hvað
líkamsburði og leikstíl varðar. Krul
er á mála hjá Newcastle á Englandi
og ef marka má frammistöðu hans
fyrir Holland á heimsmeistaramót-
inu verður hann farinn að veita
Shay Given harða keppni um byrj-
unarliðsstöðunna hjá liðinu jafnvel
strax á næstu leiktíð.
RAMON (Brasilía)
Í liði þar sem nánast hvergi er veik-
an blett að finna er erfitt að draga
einhverja einstaklinga út. Þó má
segja að án Ramon hefði brasilíska
landsliðið líklega átt erfitt með að
skora mörk. Ramon skoraði fjögur
mörk í fjórum leikjum og náði ein-
staklega vel saman við lykilmann-
inn Anderson. Helstu kostir hans
eru mikill hraði og ótrúlega góðar
staðsetningar, en Ramon þykir búa
yfir eðlisávísun sem vísar honum
á þann stað sem boltinn kemur á
- ekki ósvipað því sem Ruud van
Nistel rooy hjá Man. Utd. hefur gert
að vörumerki sínu. ■
STJÖRNUR FRAMTÍÐARINNAR
Í ALÞJÓÐLEGUM FÓTBOLTA
Fyrr í haust fór fram árlegt heimsmeistaramót U-17 ára landsliða í Perú. Í gegnum tíðina hafa margir af fremstu knattspyrnumönnum
heims látið ljós sitt fyrst skína í þessari keppni og fengið í kjölfarið tækifæri hjá atvinnumannaliðum í fremstu röð. Mótið í ár var
engin undantekning og þóttu nokkrir leikmenn skara fram úr. Hér eru þeir tíu helstu kynntir til leiks.
RAMON Helstu
kostir hans eru
mikill hraði og
ótrúlega góðar
staðsetningar, en
Ramon þykir búa
yfir eðlisávísun
sem vísar honum
á þann stað sem
boltinn kemur á.
CANIR ERKIN Hann þykir
nánast þindarlaus, eins og
stanslaus hlaup hans upp
og niður vinstri vænginn
hjá Tyrkjum á mótinu gáfu
til kynna.
ANDERSON meiddist illa á fyrstu
mínútum úrslitaleiksins gegn Mex-
íkó. Án hans átti Brasilía enga glætu
og beið að lokum ósigur, 3-0.
GIOVANI DOS SANTOS
Þessi örvfætti snillingur
með boltann var uppáhald
áhorfenda á mótinu, enda
hreinræktaður skemmti-
kraftur þegar hann fær
boltann í fæturna.
TIM KRUL Um leið og hann stígur inn á
völlinn fangar þessi stóri og mikli mark-
vörður óhjákvæmilega augu flestra.
NURI SAHIN Með gríðarlega
næmt auga fyrir spili, ótrúlega
tækni og magnaðan hægri fót.
Margir telja að þarna sé mögu-
lega á ferð efnilegasti leikmaður
sem Tyrkir hafa alið af sér.
CARLOS VELA Hans helsta fyrirmynd er
brasilíski framherjinn Ronaldo og þykir
Vela svipa til hans inni á velli; leiftursnögg-
ur og marksækinn með eindæmum.