Fréttablaðið - 18.12.2005, Síða 72
Oft vill það verða ákveðið vandamál að gefa jólagjafir. Sérstaklega er erfitt og oft
leiðinlegt að reyna að finna gjafir
handa fólki sem virðist eiga allt
á milli himins og jarðar. Velmeg-
un þess virðist kristallast í því að
þegar maður kemur inn á heimili
þess er þar nánast allt að finna.
Þrátt fyrir þetta er ljóstýra við
enda ganganna fyrir þá sem eru í
vonleysiskasti út af þessu. Frétta-
blaðið fór á stúfana og fann nokkr-
ar skondnar og skemmtilegar jóla-
gjafir sem öruggt er að fáir eiga.
Robomop: Að þrífa gólfin heima
hjá sér er leiðindavinna. Við eyðum
fleiri tímum í þetta í hverjum
mánuði á meðan við gætum verið
að gera eitthvað annað uppbyggi-
legra í staðinn. Það er hins vegr
leið til þess að sleppa við þrifin án
þess að allt verði í rusli í kringum
mann. Robomop er sjálfvirkur
gólfhreinsir sem fer um gólfin
eins og stormsveipur og hreinsar
öll óhreinindi upp á augabragði.
Hann breytir sjálfkrafa um átt
ef hann skynjar stóla, veggi eða
eitthvað fyrir framan sig. Frábær
jólagjöf fyrir húsmóðurina.
Tölvuþýðarinn: Þessi litla hand-
hæga tölva gerir það að verkum
að þú getur skilið orðabókina eftir
heima þegar þú heldur í ferðalag-
ið. Í henni eru yfir 400.000 orð og
orðtök á yfir tólf tungumálum, þar
á meðal ensku, ítölsku, frönsku,
spænsku, þýsku og ítölsku. Einnig
er í tölvunni myntbreytir, reikni-
vél, og margt fleira skemmtilegt.
Hér er því á ferðinni bæði nota-
drjúg og skemmtileg gjöf.
Rafknúinn skóburstari: Skórn-
ir eru það fyrsta sem menn taka
eftir þegar fólk hittist í fyrsta
sinn. Það verður því að vera
öruggt að skórnir þínir séu allt-
af í toppstandi. Ljóst þykir þó að
skóburstun er ekki það skemmti-
legasta sem menn gera. Á því
verður breyting með rafknúna
skóburstanum sem er handægur
og fljótvirkur búnaður sem gerir
skóburstunina að skemmtilegu
verki. Jólagjöf fyrir þann sem vill
koma vel fyrir.
Grínverjinn: Finnst þér gaman
að segja brandara en manst aldrei
neina þegar þig langar að varpa
þeim fram? Það mun fljótlega
breytast þegar Grínverjinn er
kominn í þína eigu. Yfir þúsund
brandarar í nítján mismunandi
flokkum gera þetta litla tæki að
nauðsynlegum félaga í veislum og
öðrum upákomum. Svo getur þú
stillt inn þína uppáhaldsbrandara
í sérstaka möppu svo þeir séu til-
tækir þegar rétti tíminn rennur
upp. Gjöf handa þeim sem vilja
vera fyndnir en ráða ekki við það
upp á eigin spýtur.
Vindlasett: Þetta er ekki venju-
legt vindlasett, þar sem því fylgja
engir vindlar. Þetta er sérstakt
sett sem inniheldur öskubakka
og vindlaskera í fallegu nikkel-
húðuðu skríni. Það er óþarfi að
vera ósmekklegur við vindlareyk-
ingarnar. Fullkomin gjöf fyrir
nautnasegginn.
Fartölvubakki: Það er þreyt-
andi að vera ávallt með fartölvuna
í fanginu þegar setið er í sófan-
um. Fartölvubakkinn leysir þetta
vandamál. Hægt er að notast við
hann nánast hvar sem er, til dæmis
í rúminu, í uppáhalds stólnum
þínum eða jafnvel í flugvélinni.
Hægt er að stilla hæðina á bakk-
anum eftir því hvar og hvernig þú
situr. Frábær gjöf fyrir athafna-
manninn sem er ávallt á ferð og
flugi.
Þitt eigið Monopoly: Það
þekkja allir gamla Matador-
spilið þar sem markmiðið er að
verða sem ríkastur og gera alla
aðra gjaldþrota. Nú er hægt að
nálgast nýja útgáfu af spilinu og
gera það að sínu. Nýverið hefur
framleiðandi spilanna boðið upp
á að þú hannir þitt eigið spil með
þeim götuheitum sem þú vilt
sjálfur hafa í spilinu. Þar með
er þitt spil einstakt í sinni röð.
Í stað Bankastrætis gæti komið
götuheitið þitt eða vina þinna.
Setur skemmtilegan og persónu-
legan svip á gjöfina.
Levitron: Þessi skemmtilega
gjöf er tilvalin fyrir þá sem vilja
hafa skemmtilegt skrifstofustáss
sem vekur athygli. Tækið er gert
úr tveimur seglum sem gera það
að verkum að það svífur yfir disk-
inum sem það stendur á. Levitron
virðist því ganga þvert á öll nátt-
úrulögmál. Það er alveg ljóst að ef
þú þarft að gefa einhverjum jóla-
gjöf sem á allt er pottþétt að hann
á þetta ekki.
Gjafir handa óþolandi
fólkinu sem á allt
18. desember 2005 SUNNUDAGUR56