Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 8
Laugardagur 24. desember 2005, Hellisheiði.
Fyrstu jólin haldin í bústaðnum.
Isuzu D-Max, Crew Cab (4 dyra), sjálfskiptur, 3.0 l. dísil.
Fáir bílar hafa sannað sig eins vel við íslenskar aðstæð-
ur og Isuzu. Þessi sterki og þrautseigi bíll er nú kominn
í nýjan og glæsilegan búning. Hann vekur athygli hvert
sem hann fer en virðist alltaf passa inn í umhverfi sitt,
sama hversu gróft það er.
D-Max var valinn Pick-up ársins 2005 af “4x4 Magazine”
og hlaut gullverðlaun tímaritsins “What Van” 2004.
Komdu til okkar og kynnstu nýjum Isuzu D-MAX.
Staðalbúnaður í D-MAX: Vökva- og veltistýri,
tveir öryggisloftpúðar, rafdrifnar rúður, útvarp og
geislaspilari, snúningshraðamælir, samlæstar hurðir
með fjarstýringu, stokkur á milli framsæta, höfuðpúðar
í aftursæti, fimm þriggja punkta bílbelti, loftkæling,
ABS hemlakerfi, álfelgur, brettakantar, kastarar í
framstuðara, leðurklætt stýrishjól, rafstýrðir útispeglar.
��������������
�����������
��������� � ������������ ��������������������� ��������
www.jpv.is
������������� �����
framúrskarandi vel
úr garði gerð,������������
�������������� augnayndi
frá einni síðu til annarrar�
����������������������������
������������������� ����������
������������������������������
�������������������������������
�… verulegur fengur
að þessari miklu bók.�
� ���������������������������
����������
18. desember 2005 SUNNUDAGUR
MENNTAMÁL Menntaráð Reykja-
víkurborgar hefur ákveðið að auka
fjárveitingar Þróunarsjóðs til
nýsköpunar- og þróunarverkefna
í skólum borgarinnar um þrjátíu
milljónir króna. Styrkjafé
menntaráðs hækkar því úr um
45 milljónum króna í 75 milljónir.
Við úthlutun styrkja verður lögð
sérstök áhersla á nokkur mál sem
menntaráð hefur ákveðið.
Á grunnskólastigi er auglýst
sérstaklega eftir verkefnum sem
varða þróun á fleiri verkefnum
fyrir bráðgerð börn við þeirra
hæfi, þróun á tungumálakennslu
fyrir börn á leikskólastigi og
þróun á verkefnum þar sem kenn-
arar sem hafa náð góðum árangri
í starfi, svokallaðir forystukenn-
arar, geti miðlað reynslu sinni og
þekkingu til annarra skóla.
Styrkjum verður úthlutað á
leikskólastigi sérstaklega til verk-
efna sem lúta að fjölmenningu
og þróunarvinnu sem leiðir til
aukins samstarfs á milli leik- og
grunnskóla.
Stefán J. Hafstein, formaður
menntaráðs, segir hækkunina
endurspegla þann vilja ráðsins
að hvetja kennara og skólastjórn-
endur til að auka fjölbreytni og
nýsköpun í skólastarfinu. - æþe
Menntaráð Reykjavíkurborgar leggur til þrjátíu milljónir:
Nýsköpunarverkefni styrkt
STEFÁN J. HAFSTEIN Er formaður
menntaráðs Reykjavíkurborgar.
ATVINNULÍF „Okkur er gert að senda
trúnaðarupplýsingar til Bænda-
samtakanna en þar sitja menn frá
Mjólkursamsölunni og Osta- og
smjörsölunni, sem eru okkar keppi-
nautar á markaðnum,“ segir Ólafur
M. Magnússon, framkvæmdastjóri
Mjólku, en fyrirtækið hefur mót-
mælt reglum um meðferð trúnaðar-
upplýsinga í íslenskum mjólkuriðn-
aði. Telja þeir víst að lögin stangist
á við eðlilega viðskiptahætti og
samkeppnislög.
Ólafur segist hafa rætt þetta
við Guðna Ágústsson landbúnað-
arráðherra og hann hafi beðið um
formlegt bréf þess efnis. „Það er
alveg með ólíkindum hvað þessi
lög eru úr sér gengin og víðáttu-
vitlaus. Að við sem einkafyrirtæki
og það eina í mjólkuriðnaði sé gert
að upplýsa andstæðinga okkar um
trúnaðarupplýsingar og sölutölur
um fyrirtækið er alveg glórulaust
með öllu.“
Ólafur segir ennfremur að
Mjólka muni ekki greiða svokallað
verðtilfærslu og verðmiðlunargjald
sem kveðið er á í búvörulögum að
lagt skuli á hvern lítra mjólkur. „Að
sama skapi er það barn síns tíma
vegna þess að við erum einkafyrir-
tæki og fáum ekki krónu úr þessum
sjóðum. Greiðum við þá erum við í
raun að niðurgreiða rekstur sam-
keppnisaðila okkar og það er fjarri
lagi að við tökum þátt í því. Við
munum ekki greiða þetta gjald og
fara alla leið fyrir dómstóla ef þess
gerist þörf.“
Guðni Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra segir að málið verði tekið
til athugunar í ráðuneytinu. „Við
munum fara yfir þetta erindi og
skoða lögfræðilega hvort ástæða
sé til breytinga á reglum,“ segir
Guðni. „Ég hef þó ekki mikla trú
á því að til þess þurfi að koma.“
Guðni segir Bændasamtökin hafa
ákveðið aðhald og upplýsingaöflun
með höndum. „Ég sé ekki að það
eigi að þurfa valda vandræðum,“
segir Guðni. Hann kveðst ennfrem-
ur ekki sjá að halda þurfi upplýs-
ingum sem um ræðir leyndum.
albert@frettabladid.is
Trúnaðarupplýsingar
til samkeppnisaðila
Lög skylda einkafyrirtækið Mjólku til að láta af hendi trúnaðarupplýsingar til
Bændasamtakanna en þar sitja meðal annars aðilar frá helstu keppinautum
þeirra. Landbúnaðarráðherra telur ekki að til breytinga þurfi að koma.
FRAMKVÆMDASTJÓRI MJÓLKU Ólafur M.
Magnússon undrast reglur þær er í gildi
eru í mjólkuriðnaðnum. Flestar séu þær
barn síns tíma og ekki sé gert ráð fyrir
einkaaðilum á þeim markaði eins og
staðan sé í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI