Fréttablaðið - 18.12.2005, Blaðsíða 39
ATVINNA
SUNNUDAGUR 18. desember 2005 3
Sjá ennfremur: www.kopavogur.is og www.job.is
Frá leikskólum Kópavogs
Eftirfarandi stöður eru lausar við leikskóla
Kópavogs, nú þegar eða um áramót.
Um er að ræða heilar stöður og hluta stöður.
• Álfatún: Leikskólakennari og
starfsmaður í eldhús
• Dalur: Deildarstjóri og leikskólakennari
• Núpur: Matráður og leikskólakennari
• Rjúpnahæð: Deildarstjóri, leikskóla-
kennari og þroskaþjálfi
• Grænatún: Sérkennslustjóri
• Urðarhóll: Sérkennslustjóri
• Kópasteinn: Leikskólakennari
• Smárahvammur: Leikskólakennari
v/ sérkennslu
• Efstihjalli: Leikskólakennari og leik-
skólakennari v/ sérkennslu
• Álfaheiði: Leikskólakennari
• Fífusalir: Deildarstjóri og leikskóla-
kennari
• Arnarsmári: Leikskólakennari
• Fagrabrekka: Sérkennslustjóri
Upplýsingar um leikskólana er að finna á heima-
síðu Kópavogs www.kopavogur.is en þar er
einnig hægt að nálgast umsóknareyðublöð
( Job.is).
Nánari upplýsingar um stöðurnar veita leik-
skólastjórar viðkomandi leikskóla.
Fáist ekki leikskólakennarar í störfin
verða ráðnir starfsmenn
með aðra
uppeldismenntun
eða leiðbeinendur.
Fræðsluskrifstofa
Kópavogs
Áhugaverð störf í boði
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum hjá
borginni. Atvinnuauglýsingar má einnig skoða á heimasíðu Reykjavíkurborgar:
www.reykjavik.is/storf Hjá símaveri Reykjavíkurborgar, 4 11 11 11, færð þú allar
upplýsingar um þjónustu og starfsemi borgarinnar og samband við þá starfsmenn
sem þú þarft að ná í.
Þjónustu- og rekstrarsvið fer með þjónustu, innkaupamál, upplýsinga-
tækni og rekstur. Nýstofnaðar þjónustumiðstöðvar í hverfum heyra undir
sviðið, innkaupa- og rekstrarskrifstofa, skrifstofa þjónustu- og
upplýsingatækni, upplýsingatæknimiðstöð og símaver.
Sjúkraliði / starfsmaður vanur umönnun
Þjónustumiðstöð Vesturbæjar, Vesturgarður
óskar eftir sjúkraliða eða starfsmanni vönum
umönnun í 62,5% starf á dagdeild aldraðra
Þorrasel, Þorragötu 3.
Í starfinu felst öll almenn þjónusta við gesti
dagdeildarinnar. Vinnutími er frá kl. 09.00 til
14.00 virka daga. Þorrasel er dagdeild fyrir 40
aldraða einstaklinga þar sem fram fer
skapandi og skemmtileg starfsemi.
Góð vinnuaðstaða í fallegu umhverfi.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum
Reykjavíkurborgar og viðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veita:
Droplaug Guðnadóttir í síma 562 2571,
netfang: droplaug.gudnadottir@reykjavik.is og
Björg Einarsdóttir í síma 561 2828,
netfang: bjorg.einarsdottir@reykjavik.is
ÞJÓNUSTU- OG REKSTRARSVIÐ
Orkuveita Reykjavíkur er
sjálfstætt þjónustufyrirtæki sem
aflar og dreifir vistvænni orku á
sem hagkvæmastan hátt og í sátt
við umhverfið.
Á þjónustusvæði fyrirtækisins
býr meira en helmingur íslensku
þjóðarinnar.
Stefna Orkuveitunnar er að veita
viðskiptavinum sínum bestu
mögulegu þjónustu og sjá þeim
fyrir ódýrri vistvænni orku sem
framleidd er úr endurnýjanlegum
íslenskum orkulindum. Þannig
stuðlar fyrirtækið að aukinni
notkun hreinnar innlendrar orku
og leggur um leið sitt af mörkum
til nýsköpunar og framfara í
landinu.
Starfsemi Orkuveitu Reykjavíkur
tekur mið af skynsamlegri
nýtingu orkulinda og fyrirtækið
er til fyrirmyndar í umgengni á
eigin umráðasvæðum og vinnur
þar að uppgræðslu lands og
friðun dýralífs.
Það er stefna Orkuveitu Reykja-
víkur að auka hlut kvenna í
stjórnunar- og ábyrgðarstöðum
innan fyrirtækisins.
Orkuveita Reykjavíkur óskar að ráða öflugan einstakling
í stöðu deildarstjóra í Áætlanadeild Framleiðslusviðs.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
O
R
K
3
07
25
12
/2
00
5
Í deildinni starfa verk- og tæknifræðingar, sem hafa sérþekkingu á búnaði
og tækjum hluta þeirra veitna sem tilheyra Framleiðslusviði.
Þeir annast fjárhagsáætlanagerð, skipuleggja verkefni og stýra þeim.
Þeir eru tæknilegir samstarfsmenn rekstrarmanna við úrlausn ýmissa
verkefna, t.d. vélbúnaðar, rafmagns og stýrivéla.
Starfsmenn deildarinnar hafa frumkvæði að framtíðarþróun kerfa Framleiðslusviðs með
skipulagningu fjárfestinga, sem leiða til hagkvæmari og betri rekstrar og til að mæta
þörfum viðskiptavina sem best.
Deildarstjóri þarf að hafa háskólamenntun í véla- eða rafmagnsverkfræði eða sambærilega
menntun. Hann þarf að hafa reynslu í stjórnun. Frumkvæði og sjálfstæði í starfi eru
mikilvæg og þar sem deildarstjórinn þarf að hafa samskipti við marga, bæði innan
Orkuveitunnar og utan, eru samskiptahæfileikar dýrmætir.
Upplýsingar og umsjón með úrvinnslu umsókna hafa Helga Jónsdóttir (helga@img.is) og
Sigrún Ýr Árnadóttir (sigrun@img.is) hjá Mannafli-Liðsauka. Umsóknarfrestur er til og
með 22. desember.
Umsækjendur eru vinsamlega beðnir að leggja inn umsókn á heimasíðu Mannafls-Liðsauka:
www.mannafl.is og sendið jafnframt ferilskrá og yfirlit yfir umsagnaraðila.
Farið er með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum
umsækjendum svarað.
Öflugur stjórnandi
Starfs- og ábyrgðarsvið:
Menntunar- og hæfniskröfur: